Ferill 462. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1175 — 462. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.
1. Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka, sjá töflu hér á eftir.
Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. innan ársins og 8,2 milljarða kr. sértækri hagræðingu. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025. Þrátt fyrir þetta nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Því fóru ráðuneyti og stofnanir strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gert er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis frá nóvember 1 2025.
Innviðaráðuneytið hefur skilgreint 16 hagræðingar- og umbótaverkefni sem unnið er að í ráðuneytinu. Samkvæmt áður skilgreindum tímaramma verða þau unnin á árinu 2026. Vinna við nokkur þeirra er hafin og hér að neðan má sjá töflu með stöðu verkefna.
|
Verkefni
|
Staða | Markmið |
|
Sameining verkferla og stafvæðing – þvert á stofnanir ráðuneytis.
|
Í vinnslu. | Umbætur sem ættu að skila betri þjónustu og einfaldari stjórnsýslu. |
| Færsla leyfisveitinga o.þ.h. frá ráðuneyti til stofnana. | Í vinnslu. | Einföldun stjórnsýslu og bætt þjónusta. |
| Efling hraðamyndavélakerfis í umferð. | Í vinnslu. | Umbætur í umferðaröryggi. Skoðað sameiginlega af innviðaráðuneyti og dómsmálaráðuneyti. |
| Endurskoðun laga um Byggðastofnun. | Í vinnslu. | Unnið að samningu frumvarps. |
| Sameining reikningsskila- og upplýsinganefndar og eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga. | Í vinnslu. | Er hluti lagafrumvarps til nýrra sveitarstjórnarlaga. |
| Bætt skilvirkni í utanumhaldi framkvæmda hjá Isavia innan lands. | Í vinnslu. | Greiningavinna hafin. |
| Regluverk um stafræna innviði verði flutt undir ábyrgð innviðaráðuneytis. | Í vinnslu. | Starfshópur við störf. |
| Skoðun skila milli Vegagerðar og löggæslu annars vegar og Vegagerðar og almannavarna hins vegar. | Í vinnslu. | Umbóta- og hagræðingarmarkmið. |
| Skoðun reglna sem liggja til grundvallar alþjónustu pósts. | Ekki hafið. | Hagræðingarmarkmið. Lögð er til 2,5% hagræðing í fjármálaáætlun 2026–2030 samhliða endurskoðun verkefnisins „Alþjónusta“. |
| Endurskoðun þjónustu og notendagjalda. | Ekki hafið. | Hagræðingarmarkmið. Skilgreining gjalda og fyrirkomulag ákvarðana upphæða. |
| Skoðun laga um flutningsjöfnun. | Ekki hafið. | Hagræðingarmarkmið. |
| Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara. | Ekki hafið. | Hagræðingar- og jafnræðismarkmið. |
| Fjölgun verkefna rannsóknarnefndar samgönguslysa. | Ekki hafið. | Kortlagning á verkefnum og hugsanlegum verkefnum RNSA – Tækifæri til umbóta. |
| Rekstur Vaðlaheiðarganga færður til Vegagerðarinnar. | Ekki hafið. | Hagræðingarmarkmið. |
| Samræmt verklag innan Stjórnarráðsins og stofnana við innleiðingu verkefna. | Ekki hafið. | Hagræðingarmarkmið og bætt þjónusta. |
| Sameining Lóu, matvælasjóðs og uppbyggingarsjóðs landshluta. | Ekki hafið. | Hagræðingarmarkmið. |
2. Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmdar fjárlaga. Hvert ráðuneyti ber ábyrgð á að innleiða hagræðingaraðgerðir innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á vef Stjórnarráðsins, á undirsíðunni Hagsýni í ríkisrekstri, er haldið utan um verkefni ráðuneyta sem tengjast hagræðingaraðgerðunum. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að öll ráðuneyti birti tvisvar yfir árið yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna. Þetta var síðast gert í september 2025 og vísast í fyrrnefnda vefsíðu.
Meðfylgjandi er yfirlit yfir hvernig ráðuneytin útfærðu hagræðingaraðgerðir í fjárlögum 2026. Við áætlanagerð ársins 2026 var stofnunum ætlað að laga starfsemi að fjárveitingum með markvissum aðhaldsráðstöfunum og forgangsröðun verkefna. Stofnanir hafa ekki verið beðnar um að halda utan um hagræðingu sem kemur beint í kjölfar tillagna hagræðingarhópsins og er því ekki unnt að svara til um áhrif tillagnanna á einstaka rekstrarliði.
| Fylgirit fjárlaga 2026 | |
| Innviðaráðuneytið | Gjöld í millj. kr. |
| 11.10 Samgöngur | 745,3 |
| 10-211 Vegagerðin | 697,3 |
| 10-221 Samgöngustofa | 6,8 |
| 10-231 Rannsóknarnefnd samgönguslysa | 0,5 |
| 10-252 Flugvellir og flugleiðsöguþjónusta | 40,7 |
| 11.20 Fjarskipti | 27,8 |
| 10-190 Ýmis verkefni | 25,0 |
| 10-512 Fjarskiptastofa | 2,8 |
| 11.30 Stjórnsýsla innviðaráðuneytis | 41,6 |
| 10-101 Innviðaráðuneyti, aðalskrifstofa | 41,6 |
| Heildarsumma | 814,7 |
1 www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/Umb%C3%A6tur%20og%20hagr%C3%A6%C3%B0ing%20%C3%AD%20r%C3%ADkisrekstri.pdf