Ferill 559. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1176 — 559. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um örorkubætur.
1. Hver voru útgjöld ríkissjóðs vegna örorkubóta á fjárlögum sl. 20 ár, sundurgreint eftir árum, upphæð og sem hlutfall af fjárlögum hvers árs?
Í töflu að aftan má sjá útgjöld ríkissjóðs vegna örorkubóta á fjárlögum undanfarin 20 ár, sundurgreint eftir árum og upphæð og sem hlutfall af fjárlögum fyrir hvert ár. Fjárhæðir eru í millj. kr. og á verðlagi hvers árs.
| Tafla 1. | ||
| Ár | Greiðslur TR vegna örorku | Hlutfall af fjárlögum fyrir árið |
| 2006 | 15.482 | 4,6% |
| 2007 | 17.294 | 4,4% |
| 2008 | 21.126 | 4,6% |
| 2009 | 25.214 | 4,3% |
| 2010 | 25.806 | 4,3% |
| 2011 | 29.062 | 5,3% |
| 2012 | 30.895 | 5,3% |
| 2013 | 33.222 | 5,4% |
| 2014 | 35.289 | 5,4% |
| 2015 | 37.101 | 5,4% |
| 2016 | 42.272 | 5,7% |
| 2017 | 47.204 | 6,1% |
| 2018 | 50.598 | 6,1% |
| 2019 | 55.739 | 6,0% |
| 2020 | 59.579 | 6,0% |
| 2021 | 62.754 | 5,3% |
| 2022 | 67.875 | 5,6% |
| 2023 | 74.877 | 5,6% |
| 2024 | 78.785 | 5,1% |
| 2025 | 85.322 | 5,5% |
| Heimild: Fjármála- og efnahagsráðuneyti og Tryggingastofnun. | ||
2. Hver var fjöldi bótaþega á tímabilinu, sundurgreint eftir árum?
Í töflu að aftan má sjá fjölda bótaþega sem fengið hafa greiðslur frá Tryggingastofnun undanfarin 20 ár. Með bótaþegum er átt við einstaklinga sem þáðu greiðslur í formi örorkulífeyris, hlutaörorkulífeyris og örorkustyrks eða greiðslur í tengdum greiðsluflokkum.
| Tafla 2. | |
| Ár | Fjöldi |
| 2006 | 17.026 |
| 2007 | 17.242 |
| 2008 | 17.667 |
| 2009 | 18.159 |
| 2010 | 17.963 |
| 2011 | 18.463 |
| 2012 | 19.166 |
| 2013 | 19.231 |
| 2014 | 19.557 |
| 2015 | 20.275 |
| 2016 | 20.695 |
| 2017 | 21.138 |
| 2018 | 21.396 |
| 2019 | 21.768 |
| 2020 | 22.609 |
| 2021 | 22.257 |
| 2022 | 22.757 |
| 2023 | 22.631 |
| 2024 | 22.257 |
| 2025 | 21.669 |
| Heimild: Tryggingastofnun. | |
3. Hefur bótaþegum fjölgað? Ef svo er, hver er ástæðan fyrir fjölguninni?
Samkvæmt upplýsingum í ársskýrslum Tryggingastofnunar hefur fjöldi bótaþega sem fengu greiðslur frá Tryggingastofnun almennt vaxið undanfarin 20 ár. Í ársskýrslum Tryggingastofnunar kemur jafnframt fram að geðraskanir séu helsta ástæða fyrir örorku og koma stoðkerfissjúkdómar þar á eftir. Því næst koma sjúkdómar í taugakerfi og skynfærum, innkirtla- og efnaskiptasjúkdómar og sjúkdómar í blóðrásarkerfi. Aukning hefur orðið í öllum flokkum frá árinu 2014 fyrir utan stoðkerfissjúkdóma sem eru eini flokkur sjúkdóma sem dregist hefur saman. Mest er aukningin í innkirtla- og efnaskiptasjúkdómum sem má að miklu leyti rekja til fjölgunar tilfella þar sem sykursýki er ástæða örorku. Fyrir liggur að þeim sem fá greiddan örorkulífeyri hefur fjölgað sem hlutfalli af mannfjölda undanfarinn áratug. Dregið hefur úr þessari þróun undanfarin ár og hefur nýgengi örorku sem hlutfall af þeim sem búsettir eru á Íslandi lækkað frá árinu 2015 úr 0,8% í 0,3% árið 2025. Talið er að þessa þróun megi fyrst og fremst rekja til fjölgunar þeirra sem láta reyna á starfsendurhæfingu áður en kemur til örorkumats.
4. Hvernig er eftirliti með málaflokknum háttað?
Félags- og húsnæðismálaráðherra fer með yfirstjórn lífeyristrygginga og annarra málefna sem kveðið er á um í lögum um almannatryggingar. Ráðherra fer jafnframt með yfirstjórn Tryggingastofnunar. Þá er kveðið á um stjórnunar- og eftirlitsheimildir ráðherra í lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, sbr. IV. kafla laganna. Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, ber ráðherra ábyrgð á og hefur virkt eftirlit með framkvæmd fjárlaga á sínu málefnasviði og ber ábyrgð á að ráðstöfun fjárheimilda sé innan þess ramma sem Alþingi ákveður. Þá ber forstöðumaður Tryggingastofnunar ábyrgð gagnvart ráðherra á að starfsemin skili tilætluðum árangri og að rekstur og afkoma sé í samræmi við fjárveitingar og áætlanir sem samþykktar hafa verið.
Tryggingastofnun fer með framkvæmd laga um almannatryggingar. Stofnunin ákvarðar því rétt einstaklinga til bóta, greiðir þær út og hefur eftirlit með því að skilyrði fyrir greiðslum séu uppfyllt. Þetta felur m.a. í sér að sannreyna réttmæti upplýsinga sem ákvarðanir um réttindi byggjast á, svo sem um búsetu og tekjur. Tryggingastofnun fer því með daglegt og einstaklingsbundið eftirlit með málaflokknum.
Ákvarðanir Tryggingastofnunar má kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þá hefur umboðsmaður Alþingis almennt eftirlit með stjórnsýslunni, þar á meðal Tryggingastofnun og úrskurðarnefnd velferðarmála. Loks geta dómstólar endurskoðað lögmæti stjórnvaldsákvarðana í málaflokknum.