Ferill 619. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1177 — 619. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um endurhæfingarlífeyri.
1. Hver voru útgjöld ríkissjóðs vegna endurhæfingarlífeyris á fjárlögum undanfarin 20 ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum, upphæð og sem hlutfall af fjárlögum fyrir hvert ár.
Í töflu 1 má sjá útgjöld ríkissjóðs vegna endurhæfingarlífeyris sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðslna eftir breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, sem tóku gildi 1. september 2025, en þá tóku svokallaðar sjúkra- og endurhæfingargreiðslur við af endurhæfingarlífeyri á fjárlögum síðastliðin 20 ár. Útgjöldin eru sundurgreind eftir árum, upphæð og sem hlutfall af fjárlögum hvers árs. Fjárhæðir eru í milljónum króna og á verðlagi hvers árs.
Tafla 1.
|
Ár
|
Greiðslur TR vegna endurhæfingar |
Hlutfall fjárlaga ársins |
| 2006 | 1.175 | 0,3% |
| 2007 | 1.428 | 0,4% |
| 2008 | 1.890 | 0,4% |
| 2009 | 2.487 | 0,4% |
| 2010 | 2.272 | 0,4% |
| 2011 | 2.314 | 0,4% |
| 2012 | 2.640 | 0,5% |
| 2013 | 2.982 | 0,5% |
| 2014 | 3.559 | 0,5% |
| 2015 | 3.631 | 0,5% |
| 2016 | 4.006 | 0,5% |
| 2017 | 4.735 | 0,6% |
| 2018 | 5.927 | 0,7% |
| 2019 | 7.580 | 0,8% |
| 2020 | 10.171 | 1,0% |
| 2021 | 11.763 | 1,0% |
| 2022 | 11.690 | 1,0% |
| 2023 | 14.890 | 1,1% |
| 2024 | 20.747 | 1,4% |
| 2025 | 28.371 | 1,8% |
|
Heimild: Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Tryggingastofnun. |
||
2. Hver var fjöldi endurhæfingarlífeyrisþega á tímabilinu? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Í töflu 2 má sjá fjölda endurhæfingarlífeyrisþega, sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþega, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar, sem fengu greiðslur frá Tryggingastofnun síðastliðin 20 ár.
Tafla 2.
|
Ár
|
Fjöldi |
| 2006 | 1.889 |
| 2007 | 1.929 |
| 2008 | 2.133 |
| 2009 | 2.281 |
| 2010 | 2.097 |
| 2011 | 2.028 |
| 2012 | 2.470 |
| 2013 | 2.788 |
| 2014 | 3.081 |
| 2015 | 3.332 |
| 2016 | 3.271 |
| 2017 | 3.543 |
| 2018 | 3.936 |
| 2019 | 4.623 |
| 2020 | 6.028 |
| 2021 | 6.188 |
| 2022 | 6.313 |
| 2023 | 6.726 |
| 2024 | 7.837 |
| 2025 | 9.398 |
| Heimild: Tryggingastofnun. | |
3. Hefur endurhæfingarlífeyrisþegum fjölgað? Ef svo er, hver er ástæðan fyrir fjölguninni?
Samkvæmt upplýsingum í ársskýrslum Tryggingastofnunar hefur sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegum (áður endurhæfingarlífeyrisþegar) sem fá greiðslur frá Tryggingastofnun almennt fjölgað á síðastliðnum 20 árum. Í ársskýrslum Tryggingastofnunar kemur jafnframt fram að geðraskanir eru helsta ástæðan fyrir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum (áður endurhæfingarlífeyrir) og koma stoðkerfissjúkdómar þar á eftir. Aðrar ástæður skiptast á milli meðfæddra skerðinga sem og margra ólíkra sjúkdóma, svo sem sjúkdóma í blóðrásarkerfi, innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma og krabbameina. Aukning er í öllum flokkum í sjúkra- og endurhæfingargreiðslum (áður endurhæfingarlífeyrir) frá árinu 2014 og af þeim sem búsettir eru á Íslandi hefur nýjum sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegum hlutfallslega fjölgað frá árinu 2015 úr 0,7% í 1,1% árið 2025. Framangreind aukning er í samræmi við auknar áherslur á starfsendurhæfingu og endurkomu á vinnumarkað, sérstaklega hjá yngra fólki. Líkt og að framan er rakið tók í gildi 1. september 2025 nýr greiðsluflokkur, sjúkra- og endurhæfingargreiðslur, í staðinn fyrir endurhæfingarlífeyri. Nýi greiðsluflokkurinn nær til breiðari hóps einstaklinga en endurhæfingarlífeyrir samkvæmt eldri lögum og var gert ráð fyrir fjölgun greiðsluþega í samræmi við það.
4. Hvernig er eftirliti með málaflokknum háttað?
Félags- og húsnæðismálaráðherra fer með yfirstjórn lífeyristrygginga og annarra málefna sem kveðið er á um í lögum um almannatryggingar. Ráðherra fer jafnframt með yfirstjórn Tryggingastofnunar. Þá er kveðið á um stjórnunar- og eftirlitsheimildir ráðherra í lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, sbr. IV. kafla laganna. Samkvæmt lögum um opinber fjármál, nr. 123/2015, ber ráðherra ábyrgð á og hefur virkt eftirlit með framkvæmd fjárlaga á sínu málefnasviði og ber ábyrgð á að ráðstöfun fjárheimilda sé innan þess ramma sem Alþingi ákveður. Þá ber forstöðumaður Tryggingastofnunar ábyrgð gagnvart ráðherra á að starfsemin skili tilætluðum árangri og að rekstur og afkoma sé í samræmi við fjárveitingar og áætlanir sem samþykktar hafa verið.
Tryggingastofnun fer með framkvæmd laga um almannatryggingar. Stofnunin ákvarðar því rétt einstaklinga til bóta, greiðir þær út og hefur eftirlit með því að skilyrði fyrir greiðslum séu uppfyllt. Þetta felur meðal annars í sér að sannreyna réttmæti upplýsinga sem ákvarðanir um réttindi byggjast á, svo sem búsetu og tekjur. Tryggingastofnun fer því með daglegt og einstaklingsbundið eftirlit með málaflokknum.
Ákvarðanir Tryggingastofnunar má kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála. Þá hefur umboðsmaður Alþingis almennt eftirlit með stjórnsýslunni, þar á meðal Tryggingastofnun og úrskurðarnefnd velferðarmála. Loks geta dómstólar endurskoðað lögmæti stjórnvaldsákvarðana í málaflokknum.