Ferill 460. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1178  —  460. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.


     1.      Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka, sjá töflu hér á eftir.
    Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. innan ársins og 8,2 milljarða kr. sértækri hagræðingu. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025. Þrátt fyrir þetta nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Því fóru ráðuneyti og stofnanir strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gerð er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis frá desember 2025.
    Meðal þeirra verkefna sem þegar hefur verið hrint af stað á málefnasviðum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins eru aðgerðir sem lúta að einföldun stofnanaumhverfis, aukinni skilvirkni í stjórnsýslu og endurskoðun á skipulagi styrkja og sjóða. Nú þegar hefur eitt þessara verkefna komið til framkvæmda með sameiningu Listasafns Einars Jónssonar og Listasafns Íslands, sem tók formlega gildi um áramótin 2025/2026. Lagt hefur verið upp með að sameiningin stuðli að öflugri starfsemi, betri þjónustu við almenning og betri nýtingu opinberra fjármuna.

     2.      Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmd fjárlaga. Hvert ráðuneyti ber ábyrgð á að innleiða hagræðingaraðgerðir innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á vef Stjórnarráðsins, á undirsíðunni hagsýni í ríkisrekstri, er haldið utan um verkefni ráðuneyta sem tengjast hagræðingaraðgerðunum. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að öll ráðuneyti birti tvisvar yfir árið yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna. Þetta var síðast gert í september 2025 og vísast í fyrrnefnda vefsíðu.
    Meðfylgjandi er yfirlit yfir hvernig ráðuneytin útfærðu hagræðingaraðgerðir í fjárlögum fyrir árið 2026. Við áætlanagerð ársins 2026 var stofnunum ætlað að laga starfsemi að fjárveitingum með markvissum aðhaldsráðstöfunum og forgangsröðun verkefna. Stofnanir hafa ekki verið beðnar um að halda utan um hagræðingu sem kemur beint í kjölfar tillagna hagræðingarhópsins og er því ekki unnt að svara til um áhrif tillagnanna á einstaka rekstrarliði.

Málaflokkur/stofnun Upphæð í millj. kr.
07.10 Vísindi og samkeppnissjóðir í rannsóknum -2,7
    17-511 Tækniþróunarsjóður -1,3
    17-550 Rannsóknasjóður -0,4
    17-560 Rammaáætlanir ESB um menntun, rannsóknir og tækniþróun -0,3
    17-580 Rannsóknamiðstöð Íslands -0,7
07.20 Nýsköpun, samkeppni og þekkingargreinar -1.305,4
    16-521 Endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi -1.100,0*
    17-190 Ýmis verkefni -0,3
    17-522 Styrkir til nýsköpunarfyrirtækja -200,0
    17-528 Nýsköpun og atvinnuþróun -5,1
18.10 Safnamál -63,2
    17-701 Listasafn Íslands -8,9
    17-702 Náttúruminjasafn Íslands -2,6
    17-703 Þjóðminjasafn Íslands -14,6
    17-704 Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn -18,8
    17-705 Þjóðskjalasafn Íslands -11,8
    17-706 Listasafn Einars Jónssonar -0,9
    17-707 Gljúfrasteinn – Hús skáldsins -0,9
    17-708 Kvikmyndasafn Íslands -1,9
    17-709 Hljóðbókasafn Íslands -2,1
    17-710 Safnasjóður -0,6
    17-791 Samningar og styrkir til starfsemi safna -0,1
18.20 Menningarstofnanir -143,1
    17-731 Þjóðleikhúsið -23,4
    17-732 Sinfóníuhljómsveit Íslands -25,4
    17-733 Íslenski dansflokkurinn -4,0
    17-735 Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús í Reykjavík -15,0
    17-752 Kvikmyndamiðstöð Íslands -1,8
    17-782 Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum -17,3
    17-793 Samningar og styrkir til starfsemi menningarstofnana -56,2
18.30 Menningarsjóðir -4,7
    17-751 Launasjóðir listamanna -0,4
    17-752 Kvikmyndamiðstöð Íslands -1,2
    17-795 Samn. og styrkir til starfsemi á sviði lista og menningar -3,1
19.10 Fjölmiðlun -0,3
    17-302 Fjölmiðlanefnd -0,3
21.10 Háskólar og rannsóknastarfsemi -341,2
    17-201 Háskóli Íslands -127,2
    17-210 Háskólinn á Akureyri -18,7
    17-216 Landbúnaðarháskóli Íslands -8,1
    17-217 Hólaskóli – Háskólinn á Hólum -3,4
    17-225 Háskólinn á Bifröst -3,1
    17-227 Háskólinn í Reykjavík -18,3
    17-228 Listaháskóli Íslands -8,9
    17-298 Styrkir á sviði háskóla- og vísindastarfsemi -7,1
    17-299 Fræða- og þekkingarsetur -0,5
    17-998 Varasjóðir málaflokka -145,9
21.40 Stjórnsýsla menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis -33,8
    17-101 Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, aðalskrifstofa -29,7
    17-580 Rannsóknamiðstöð Íslands -4,1
Heildarsumma -1.894,4

* Tekið skal fram að þær fjárhæðir sem birtar eru vegna endurgreiðslna til kvikmyndagerðar eru settar fram með fyrirvara. Heildarfjárhæð endurgreiðslna ræðst ekki af fyrir fram afmörkuðum fjárheimildum heldur af því hvort og að hvaða marki umsóknir, sem berast umsýsluaðila, teljast uppfylla skilyrði laga nr. 43/1999, um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.