Ferill 554. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1180  —  554. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um stafrænt fullveldi Íslands.


     1.      Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
    Sameiginlegar skýjalausnir ráðuneytanna byggjast að verulegu leyti á þjónustu Microsoft. Fyrst og fremst er um að ræða forrit innan Microsoft 365 skrifstofuhugbúnaðarsvítunnar sem eru nýtt í daglegum rekstri, svo sem Outlook, Word, Excel, PowerPoint, Teams o.s.frv.
    Skýjageirar ríkisins fyrir skrifstofuhugbúnað eru níu talsins í rekstri sjö ólíkra aðila. Ráðuneytin eru rekin saman (Umbra), heilbrigðisstofnanir í tveimur (Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri), löggæsla í einum (Ríkislögreglustjóri), dómskerfið í einum (Umbra), ríkisreknir háskólar og menntaskólar í einum (Háskóli Íslands), Landhelgisgæslan í einum (Landhelgisgæslan), Alþingi auk Ríkisendurskoðunar og umboðsmanns Alþingis í einum (Alþingi) og loks eru um 60 stofnanir sameiginlega í einum (Umbra).
    Helstu upplýsingatæknikerfi stofnana ráðuneytisins sem teljast til skýjalausna eru eftirfarandi:

Hugbúnaður/kerfi Fyrirtæki Höfuðstöðvar fyrirtækis Gögn vistuð Heimilisfesti endanlegra eigenda
Skatturinn
1Password 1Password Kanada EES Kanada
Confluence Atlassian Corporation BNA EES BNA
Claude AI Anthropic PBC BNA EES BNA
Overleaf Overleaf England England England
Genesys Cloud Genesys BNA EES BNA
Fjársýslan
Gagnavöruhús fjárhags og launa Microsoft Azure BNA EES BNA
Orri (fjárhags- og mannauðskerfi) Advania Ísland Svíþjóð Ísland BNA
TBR (tekju- og bókhaldskerfi ríkisins) Advania Ísland Svíþjóð Ísland BNA
Libra Loan Libra ehf. Ísland Ísland Holland
Akra IBM BNA Ísland BNA
FSRE
Autodesk Autodesk BNA EES BNA
Main Manager EG Danmark A/S Danmörk EES BNA
Dokobit Signicat Noregur EES Noregur
Tendsign Mercell Noregur EES BNA
HomeED ThinkSoftware Ísland EES Ísland
Stafrænt Ísland
AWS v/Ísland.is Amazon Írland BNA EES BNA
Azure v/Ísland.is Microsoft Írland BNA EES BNA
Kóðasafn Ísland.is Github BNA EES BNA
Zendesk Zendesk BNA EES BNA
AWS v/nafnaþjóna (Ísland.is) Amazon Írland BNA EES BNA
Umbra
Microsoft 365 Microsoft Írland BNA EES BNA
Málaskrá Hugvit Ísland Ísland Ísland
Beiðnakerfi Freshdesk BNA EES BNA

     2.      Hvaða gögn á vegum ráðuneytisins eru geymd í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
    Gögn ráðuneytanna sem hýst eru í skýjalausnum erlendra þjónustuaðila eru aðallega til komin vegna almennra daglegra starfa. Þetta eru til að mynda tölvupóstar, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verða til í daglegri starfsemi.
    Öll gögn Fjársýslunnar, að frátöldu gagnavöruhúsi fjárhags og launa og skrifstofuhugbúnaði, eru hýst í íslenskum gagnaverum. Í gagnavöruhúsi fjárhags og launa eru bókhaldsupplýsingar og mannauðsupplýsingar flestra ríkisaðila.
    Öll gögn Skattsins, að fráskildum þeim sem tilheyra skrifstofuhugbúnaði, eru hýst í íslenskum gagnaverum. Engin gögn sem varða viðskiptavini eru varðveitt í Microsoft 365.
    Gagnagrunnar og gagnavinnsla vegna breytingabeiðna á fjárheimildum fjármálaáætlunar, fjárlaga- og fjáraukalagagerðar eru staðsett í skýjaþjónustu Microsoft Azure. Gagnavöruhús, t.d. með niðurstöðum vinnslu fjárheimilda og gögnum til almenns stuðnings eða greiningar, eru hýst í sama umhverfi. Gagnaumhverfið er rekið og í umsjón Umbru – þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins á tilsvarandi hátt og Microsoft 365 skrifstofuhugbúnaðurinn.
    Gagnagrunnar og gagnavinnsla á vegum Stafræns Íslands (Ísland.is) fer að miklu leyti fram í skýjaþjónustu Amazon Web Services (AWS) á Írlandi og Svíþjóð. Um er að ræða gögn sem verða til við daglega notkun og virkni kerfa, svo sem upplýsingar sem tryggja að þjónusta virki rétt, sé örugg og tiltæk.

     3.      Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
    Ekki hefur verið sett fram ein sameiginleg, formleg skilgreining á stafrænu fullveldi í gagna- og upplýsingamálum ráðuneytanna. Hins vegar taka þau í framkvæmd mið af sömu meginsjónarmiðum, svo sem yfirráðum yfir gögnum, öryggi, aðgangsstýringum, staðsetningu vinnslu og geymslu gagna, samræmi í lausnum og því að verða ekki of háð einstökum þjónustuaðilum.
    Umræða um stafrænt fullveldi hefur aukist vegna vaxandi óvissu í alþjóðlegum stjórnmálum. Í því samhengi hefur sjónum verið beint að bandarískri löggjöf sem veitir yfirvöldum heimildir til að afla upplýsinga frá þarlendum fyrirtækjum til að rannsaka glæpi og verjast hryðjuverkum. Þessar heimildir hafa m.a. vakið upp spurningar varðandi persónuverndarsjónarmið, þar sem hætta þykir á að bandarísk stjórnvöld geti krafist aðgangs að gögnum evrópskra viðskiptavina. Persónuverndarfulltrúi Stjórnarráðsins hefur nýlega lokið sérstakri greiningu þar sem lagt var mat á heimildir bandarískra yfirvalda til aðgangs að persónuupplýsingum. Niðurstaða þeirrar greiningar var að ekki þyki þörf á frekari athugunum eða sérstöku mati af hálfu Stjórnarráðsins á þessu stigi. Sú niðurstaða byggist að miklu leyti á og er í fyllsta samræmi við viðamiklar greiningar annarra Evrópuþjóða á þessum sömu áskorunum, ekki síst ítarlegt mat hollenskra stjórnvalda á sambærilegum skýjalausnum.
    Önnur Evrópuríki eru í svipaðri eða sömu stöðu gagnvart ríkjandi markaðsstöðu bandarískra hugbúnaðarfyrirtækja. Einna helst hefur verið rætt um þjónustu Microsoft í þessu samhengi (Microsoft 365 og Azure), en Amazon Web Services (AWS) og Oracle eru önnur dæmi.
    Þó að stjórnvöld séu meðvituð um áhættuna sem fylgir því að eiga í umfangsmiklum viðskiptum við einn stóran þjónustuveitanda er metið svo að núverandi fyrirkomulag tryggi hærra öryggisstig en væri mögulegt í öðru fyrirkomulagi. Lausnir Microsoft eru í fremstu röð á heimsvísu þegar kemur að öryggisgetu, vöktun og uppfærsluferlum. Val á leyfategundum og útfærslum hefur einnig mótast af ströngum öryggiskröfum og þörf fyrir samræmdar varnir.
    Stjórnvöld telja óraunhæft að sinna sambærilegri öryggisvöktun og reglubundnu eftirliti að fullu innanlands. Þar vegur þungt að stórir rekstraraðilar búa yfir getu og sérþekkingu sem nauðsynleg er til að bregðast skjótt við netógnun, t.d. með hröðum uppfærslum og afritun, sem styrkir varnir gegn algengum netárásum. Samhliða þessu er einnig lögð áhersla á mótvægisaðgerðir til að auka seiglu og draga úr líkum á þjónusturofi. Til að tryggja rekstrarsamfellu er m.a. mikilvægt að tryggja staðbundna afritun og skýrar viðbragðsáætlanir.
    Bæði Microsoft og Amazon hafa skuldbundið sig til að vista gögn ríkisins eingöngu innan Evrópu. Þetta er gert til að tryggja rekstrarþol og endurheimt við þjónusturof, uppfylla lagaskyldur og takmarka áhættu. Í tilfelli Íslands er það Evrópa. Þessu til viðbótar hafa rekstraraðilar opinberra skýjageira hérlendis framkvæmt eigin öryggisafritanir. Stjórnvöld leggja áherslu á að þessar skuldbindingar endurspeglist að fullu í samningsskilmálum. Sjá nánar:
          a.      Gagnaverndarskilmálar Microsoft sem fylgja þjónustusamningum fyrirtækisins (e .Microsoft Data Protection Addendum).
          b.      Svæðisbundin gagnavistun Microsoft 365 (e. Microsoft 365 Data Residency).
          c.      Yfirlit yfir viðbrögð Microsoft við viðskiptarofi (e. Resiliency and continuity over­view).
          d.      Styrkt gagnaþol hjá Microsoft (e. data resilience)
          e.      Skuldbindingar Microsoft um þjónustusamfellu í Evrópu (e. Announcing comprehensive sovereign solutions empowering European organizations).
          f.      Hvítbók AWS um evrópska skýjaþjónustu (e. AWS European Sovereign Cloud).
    Stjórnvöld fylgjast grannt með tækniþróun á þessu sviði og taka virkan þátt í samstarfi Evrópuríkja til að mæta þessum sameiginlegu áskorunum.

     4.      Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins og undirstofnana skráður á Íslandi?
    Já, öll lén (rótarföng) ráðuneytisins og undirstofnana eru skráð á Íslandi undir landsléninu .is hjá ISNIC.
    Hvað varðar vefi, póstþjóna og nafnaþjóna þá lýtur það að rekstri og hýsingu þeirrar tækniþjónustu fremur en formlegri skráningu. Eins og rakið er í svörum við 1. og 2. tölul. er sú undirliggjandi þjónusta ýmist vistuð hér á landi eða í skýjalausnum þjónustuaðila innan Evrópska efnahagssvæðisins. Vefur, póstþjónusta og nafnaþjónusta Skattsins eru að öllu leyti vistuð og rekin á Íslandi.

     5.      Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?

    Til er viðbragðsáætlun til að tryggja tölvupóstsamskipti ef samband við útlönd rofnar. Meginþorri tölvupóstþjónustu stjórnvalda er í skýjalausnum utan Íslands og viðbragðsáætlunin tekur mið af tveimur meginsviðsmyndum:
    Ef hefðbundið netsamband um sæstrengi dettur út hefur Umbra, í samstarfi við Farice, komið á varaleið um gervihnetti sem þegar er komin í prófanir. Þessi leið tryggir að bæði innlend og erlend tölvupóstsamskipti haldi áfram án verulegs rofs. Til lengri tíma litið hefur Ísland einnig tryggt sér aðgang að öruggum fjarskiptatengingum í gegnum gervihnattakerfi Evrópusambandsins sem mun styrkja þessar varnir enn frekar.
    Ef allt samband rofnar við útlönd, þ.m.t. gervihnattasamband, fellur tenging við skýjalausnir erlendis niður. Í þeirri sviðsmynd tekur við viðbragðsáætlun um að endurreisa staðbundið póstkerfi sem byggist á gagnaafritum sem hýst eru á Íslandi. Slík endurreisn tryggir innlenda tölvupóstþjónustu milli ráðuneytanna og annarra innlendra aðila.