Ferill 602. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1184  —  602. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2024 og nr. 68/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta), nr. 158/2025 og nr. 159/2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) og nr. 310/2025 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2024 frá 2. febrúar 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 frá 7. október 2020 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 og tilskipun (ESB) 2019/1937.
                  b.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1504 frá 7. október 2020 um breytingu á tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga.
                  c.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1988 frá 12. júlí 2022 um framlengingu á umbreytingartímabilinu til að veita áfram hópfjármögnunarþjónustu í samræmi við landslög eins og um getur í 1. mgr. 48. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2118 frá 24. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun 2009/103/EB um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja og um að fylgja því eftir að vátrygging vegna slíkrar ábyrgðar sé tekin.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2025 frá 13. júní 2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn framselda tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2775 frá 17. október 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB að því er varðar breytingar á stærðarviðmiðunum fyrir örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki eða samstæður.
     4.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2025 frá 13. júní 2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2101 frá 24. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun 2013/34/ESB að því er varðar birtingu tekjuskattsupplýsinga af hálfu tiltekinna fyrirtækja og útibúa.
     5.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 310/2025 frá 5. desember 2025 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn og að fella inn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1232 frá 14. júlí 2021 um tímabundna undanþágu frá tilteknum ákvæðum tilskipunar 2002/58/EB að því er varðar notkun veitenda fjarskiptaþjónustu milli einstaklinga, sem er ótengd númerum, á tækni til að vinna úr persónuupplýsingum og öðrum gögnum í þeim tilgangi að berjast gegn kynferðislegri misnotkun barna á netinu.
                  b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1307 frá 29. apríl 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/1232 um tímabundna undanþágu frá tilteknum ákvæðum tilskipunar 2002/58/EB að því er varðar notkun veitenda fjarskiptaþjónustu milli einstaklinga, sem er ótengd númerum, á tækni til að vinna úr persónuupplýsingum og öðrum gögnum í þeim tilgangi að berjast gegn kynferðislegri misnotkun barna á netinu.
    Framsetning tillögunnar telst að mati meiri hlutans vera í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 18. maí 2026.

Pawel Bartoszek,
form.
Dagbjört Hákonardóttir,
frsm.
Diljá Mist Einarsdóttir.
Hildur Sverrisdóttir. Sigmar Guðmundsson. Sigurður Helgi Pálmason.
Sigurður Ingi Jóhannsson. Víðir Reynisson.