Ferill 639. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1185  —  639. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini B Sæmundssyni um fulltrúa á aðalfundi Landsbanka Íslands hf.


     1.      Hverjir áttu seturétt á aðalfundi Landsbanka Íslands hf. hinn 18. mars sl.?
    Samkvæmt samþykktum Landsbanka Íslands hf. og fundargerð aðalfundarins áttu eftirfarandi aðilar seturétt á fundinum:
     –      Hluthafar, persónulega eða samkvæmt umboði.
     –      Bankaráð.
     –      Bankastjóri.
     –      Endurskoðandi bankans.
     –      Aðrir fundargestir með samþykki fundarstjóra (án atkvæðisréttar).

     2.      Hverjir voru fulltrúar eigenda 98,2% hlutafjár bankans, sem er í eigu ríkisins, á fundinum?
    Gylfi Þorsteinn Gunnlaugsson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, fór með atkvæðisrétt ríkisins fyrir hönd ráðherra á fundinum samkvæmt umboði.

     3.      Hvernig voru fulltrúarnir valdir?
    Val á fulltrúum ríkisins var í höndum fjármála- og efnahagsráðherra, sem fer með eignarhlut ríkisins. Eignamál ríkisins, þ.m.t. eignarhald félaga og undirbúningur og framkvæmd eigendastefnu ríkisins gagnvart hluta- og sameignarfélögum í eigu ríkisins, eru hluti af verkefnum skrifstofu stjórnunar og umbóta. Ráðherra veitir að jafnaði tilteknum starfsmönnum ráðuneytisins umboð til að fara með setu og atkvæðisrétt ríkisins á aðalfundum fyrirtækja sem ríkið á hlut í. Fyrir slíka fundi er farið yfir dagskrárliði fundar og afgreiðslu þeirra innan ráðuneytisins. Þetta er hefðbundið verklag í umsýslu ríkisins á hlutafélögum.