Ferill 422. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1186  —  422. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Adolfssyni um lyfjakostnað sjúklinga og Sjúkratrygginga Íslands.


     1.      Hver var kostnaðarhlutdeild sjúklinga í lyfseðilsskyldum lyfjum á árunum 2014–2026, flokkað eftir:
                  a.      almennum lyfjum,
                  b.      leyfisskyldum lyfjum,
                  c.      öllum lyfjum (þ.m.t. lausasala).
             Óskað er eftir sundurliðun eftir árum og að fram komi bæði upphæðir og prósentur.

    Leitað var eftir umsögn hjá Sjúkratryggingum Íslands vegna fyrirspurnarinnar.
    Meðfylgjandi yfirlit nær aðeins til 2018 þar sem eldri gögn eru ekki aðgengileg. Yfirlitið tekur til lyfja sem eru með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Yfirlitið tekur hins vegar ekki til almennra lyfja né lausasölulyfja sem eru ekki með almennri greiðsluþátttöku. Yfirlitið nær aðeins til hluta leyfisskyldra lyfja þar sem Sjúkratryggingar eru ekki með upplýsingar um lyf sem eru afgreidd í apóteki LSH. Hlutdeild Sjúkratrygginga í leyfisskyldum lyfjum er 100%. Sjúklingar greiða ekki fyrir leyfisskyld lyf.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og sjá má fór hlutdeild einstaklinga lækkandi milli áranna 2018 og 2023 er varðar almenn lyf, þrátt fyrir ákvæði 6. tölul. 1. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008. Þar er sérstaklega mælt fyrir um að fjárhæðir þrepa í lyfjagreiðslukerfi skuli endurskoðaðar árlega með það að markmiði að heildarhlutfall þess kostnaðar sem sjúkratryggðir þurfi að greiða sjálfir af lyfjakostnaði haldist að mestu óbreytt milli ára.

     2.      Hver er áætlaður árlegur sparnaður í lyfjakostnaði Sjúkratrygginga Íslands með innleiðingu nýs greiðsluþreps um sl. áramót?
    Áætlaður árlegur sparnaður er 400–450 millj. kr., sem er að meðaltali 1.500 kr. fyrir hvern notanda. Þannig er gert ráð fyrir að einstaklingar muni í mesta lagi borga 2.000–3.000 kr. meira á ári en áður fyrir lyf sem falla undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga.
    Markmið breytinganna er að bregðast við vaxandi útgjöldum hins opinbera vegna lyfjakaupa en standa jafnframt vörð um grundvallarmarkmið greiðsluþátttökukerfisins sem er að verja einstaklinga fyrir háum útgjöldum sem og einstaka hópa, þ.e. öryrkja, aldraða og börn. Frá því að kerfið var innleitt árið 2013 hafa engar uppfærslur verið gerðar á fjárhæðum þess. Hlutfallsleg greiðsluþátttaka sjúklinga hefur því lækkað umtalsvert að raunvirði á sama tíma og útgjöld sjúkratrygginga hafa aukist verulega.