Ferill 519. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1188 — 519. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Erni Rúnarssyni um óskir brotaþola Skeggja Ásbjarnarsonar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hyggst ráðherra bregðast við óskum brotaþola Skeggja Ásbjarnarsonar um að fram fari rannsókn á brotunum og ábyrgð skólayfirvalda á sínum tíma?
2. Hyggst ráðherra tryggja að brotaþolar Skeggja fái sanngirnisbætur eins og fordæmi eru fyrir gagnvart brotaþolum sem áttu að njóta skjóls innan annarra opinberra stofnana?
Í dag eru ekki í gildi lög um greiðslu sanngirnisbóta né almennar rannsóknarheimildir samkvæmt lögum.
Málefni sanngirnisbóta eru til skoðunar í Stjórnarráðinu en í forsætisráðuneytinu er m.a. unnið að frumvarpi um rannsóknarheimildir og almennar sanngirnisbætur.
Þá hefur jafnframt verið tekin ákvörðun um að færa ábyrgð á málaflokknum frá dómsmálaráðuneyti yfir til forsætisráðuneytis.