Ferill 520. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1190 — 520. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um dvalarleyfi forsjáraðila.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu mörgum hefur verið veitt dvalarleyfi á grundvelli XIII. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 80/2016 og hvaða ríkisföng höfðu þeir? Óskað er upplýsinga um lengd dvalar þess sem dvaldi lengst í landinu og meðallengd dvalar þeirra sem um ræðir. Jafnframt er óskað eftir fjölda forsjáraðila, barna, fjölda einstaklinga sem fengu dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar samkvæmt ákvæðinu og fjölda þeirra sem hafa í kjölfarið fengið útgefið ótímabundið dvalarleyfi.
Upplýsinga var aflað hjá Útlendingastofnun vegna þessarar fyrirspurnar.
Í ákvæði XIII. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 80/2016 kemur fram að hafi barn sótt um alþjóðlega vernd hér á landi fyrir 1. ágúst 2021 og er enn á landinu skuli Útlendingastofnun gefa út dvalarleyfi til handa forsjáraðila þess enda hafi slík umsókn borist innan þriggja mánaða frá gildistöku laganna. Hið sama gildir ef barn fæddist hér á landi á meðan umsókn forsjáraðila um alþjóðlega vernd var í vinnslu, enda umsóknin borist fyrir 1. ágúst 2021. Einnig segir í ákvæðinu að nánasti aðstandandi útlendings sem fær útgefið dvalarleyfi á þessum grundvelli geti með umsókn fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Þessi lög voru samþykkt í mars 2023 en meðferð allra umsókna sem bárust fyrir 1. ágúst 2021 og gátu því fallið undir beitingu ákvæðisins hefur verið lokið hjá Útlendingastofnun.
Alls hefur 39 einstaklingum verið veitt dvalarleyfi á grundvelli XIII. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 80/2016. Af þeim fengu 16 einstaklingar veitt dvalarleyfi sem forsjáraðilar samkvæmt ákvæðinu. 23 börn fengu veitt dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar við forsjáraðila samkvæmt ákvæðinu.
Meðfylgjandi er skipting dvalarleyfa eftir ríkisfangi, annars vegar til forsjáraðila og hins vegar til barna á grundvelli fjölskyldusameiningar.
Í töflu 1 má sjá veitt dvalarleyfi til forsjáraðila á grundvelli XIII. bráðabirgðaákvæðis laga nr. 80/2016.
Tafla 1. Veitt dvalarleyfi til forsjáraðila.
| Ríkisfang | Fjöldi |
| Bangladesh | 1 |
| Írak | 2 |
| Makedónía | 2 |
| Nígería | 11 |
| Samtals | 16 |
| Heimild: Útlendingastofnun. | |
Tafla 2. Veitt dvalarleyfi til barna.
| Ríkisfang | Fjöldi |
| Ungverjaland | 1 |
| Írak | 5 |
| Makedónía | 3 |
| Nígería | 14 |
| Samtals | 23 |
| Heimild: Útlendingastofnun. | |
Enginn framangreindra einstaklinga hefur fengið útgefið ótímabundið dvalarleyfi.
Sá einstaklingur sem hefur dvalið lengst á landinu samfellt og fellur undir þennan hóp sótti um alþjóðlega vernd í júlí 2018 og hefur því dvalið hér í tæp átta ár.
Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun höfðu þeir forsjáraðilar sem enn dvelja á landinu dvalið hér að meðaltali í rúm sex ár þegar upplýsingar vegna fyrirspurnarinnar voru teknar saman.