Ferill 615. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1193  —  615. mál.




Svar

                                  

innviðaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um forgangsröðun verkefna í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða forsendur og mælikvarðar liggja að baki ákvörðunum um forgangsröðun verkefna í tímaáætlun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins? Er ráðist fyrst í arðbærustu verkefnin eða er miðað við aðra þætti, og þá hvaða?

    Í samkomulagi ríkisins og sex sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu árið 2019 um skipulag og fjármögnun uppbyggingar á samgönguinnviðum (samgöngusáttmálanum) lá fyrir að komið gæti til endurskoðunar þess, sbr. 7. gr. samkomulagsins. Í mars 2023 var ákveðið að uppfæra sáttmálann og gera viðauka við hann í samræmi við verkáætlun sem samþykkt var á fundi forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og innviðaráðherra með bæjarstjórum sveitarfélaganna, borgarstjóra og Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH).
    Skipaður var viðræðuhópur með fulltrúum þriggja ráðuneyta og sveitarfélaganna sex. Hópurinn lauk störfum sumarið 2024 og alls áttu 15 fulltrúar ríkis og sveitarfélaga sæti í viðræðuhópnum á starfstímanum. Uppfærsla framkvæmdatöflu samgöngusáttmála (tíma- og kostnaðaráætlanir) var eitt af lykilverkefnum hópsins og tímaröðun verkefna til ársins 2040 því ein af meginniðurstöðum vinnu fulltrúa ríkis og sveitarfélaga á þeim 16 mánuðum sem hópurinn starfaði. Í lok ágúst 2024 skrifuðu forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra, borgarstjóri og bæjarstjórar allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu undir uppfærðan sáttmála og uppfærða framkvæmdatöflu.
    Í kafla 5 í greinargerð viðræðuhópsins kemur fram að við uppfærslu framkvæmdatöflu hafi einkum verið litið til eftirfarandi þátta:
     1.      Markmið sáttmálans og eigenda hans.
     2.      Hönnun, áætlanagerð, skipulags- og matsferli.
     3.      Framkvæmdatími og samþætting verkefna.
     4.      Fjármögnun, fjárflæði og afkastageta hins opinbera og ráðgjafa- og verktakamarkaðar.
    Ítarlegri lýsingu á viðmiðum við uppfærslu framkvæmdaáætlunar er að finna í greinargerð sem finna má á vef Stjórnarráðsins 1 .



1     www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/IRN/Frettatengd-skjol/Greinarger%C3%B0%20vi%C3%B0r%C3%A6%C3%B0uh%C3%B3ps_agust2024.pdf