Ferill 516. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1197 — 516. mál.
Síðari umræða.
Breytingartillaga
við tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu
um framhald viðræðna um aðild Íslands
að Evrópusambandinu.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur, Hildi Sverrisdóttur, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni.
Við tillögugrein.
a. Í stað dagsetningarinnar „29. ágúst 2026“ í 1. mgr. komi: 17. október 2026.
b. 2. mgr. orðist svo:
Eftirfarandi spurning verði borin upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni:
„Á Ísland að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið?
❏ Já.
❏ Nei.“
c. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ráðherra skal eigi síðar en 30 dögum áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram kynna opinberlega á vef Stjórnarráðsins samningsmarkmið Íslands í mögulegum aðildarviðræðum við Evrópusambandið.