Ferill 627. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1198 — 627. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um hlutfall stöðugilda kennara í leikskólum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu hátt er hlutfall stöðugilda kennara við kennslu, umönnun og uppeldi barna í leikskólum, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019? Svar óskast sundurliðað eftir sveitarfélögum.
Í eftirfarandi töflu eru upplýsingar frá Hagstofu Íslands um hlutfall stöðugilda kennara og stjórnenda (leikskólakennarar og aðrir kennarar með leyfisbréf) eftir sveitarfélögum sem ráku leikskóla í desember 2023. Nýrri upplýsingar liggja ekki fyrir.
| Svfnr
|
Sveitarfélag | Hlutfall % |
|
Alls
|
27,85 | |
| 0 | Reykjavíkurborg | 25,5 |
| 1000 | Kópavogsbær | 32,3 |
| 1100 | Seltjarnarnesbær | 34,7 |
| 1300 | Garðabær | 25,9 |
| 1400 | Hafnarfjarðarkaupstaður | 26,5 |
| 1604 | Mosfellsbær | 20,2 |
| 2000 | Reykjanesbær | 28,5 |
| 2510 | Suðurnesjabær | 13,2 |
| 2506 | Sveitarfélagið Vogar | 33,8 |
| 3000 | Akraneskaupstaður | 42,2 |
| 3511 | Hvalfjarðarsveit | 47,1 |
| 3609 | Borgarbyggð | 39,2 |
| 3709 | Grundarfjarðarbær | 19,2 |
| 3716 | Sveitarfélagið Stykkishólmur | 21,8 |
| 3714 | Snæfellsbær | 25,0 |
| 3811 | Dalabyggð | 4,7 |
| 4100 | Bolungarvíkurkaupstaður | 38,6 |
| 4200 | Ísafjarðarbær | 15,9 |
| 4502 | Reykhólahreppur | 7,1 |
| 4604 | Tálknafjörður | 65,1 |
| 4607 | Vesturbyggð | 6,7 |
| 4803 | Súðavíkurhreppur | 8,4 |
| 4911 | Strandabyggð | 4,6 |
| 5200 | Skagafjörður | 33,3 |
| 5508 | Húnaþing vestra | 10,2 |
| 5609 | Sveitarfélagið Skagaströnd | 23,9 |
| 5613 | Húnabyggð | 21,5 |
| 6000 | Akureyrarbær | 44,2 |
| 6100 | Norðurþing | 25,2 |
| 6250 | Fjallabyggð | 19,5 |
| 6400 | Dalvíkurbyggð | 24,8 |
| 6513 | Eyjafjarðarsveit | 19,6 |
| 6515 | Hörgársveit | 44,7 |
| 6601 | Svalbarðsstrandarhreppur | 17,6 |
| 6602 | Grýtubakkahreppur | 23,1 |
| 6612 | Þingeyjarsveit | 22,8 |
| 6709 | Langanesbyggð | 33,3 |
| 7300 | Fjarðabyggð | 27,9 |
| 7400 | Múlaþing | 29,9 |
| 7502 | Vopnafjarðarhreppur | 38,1 |
| 8000 | Vestmannaeyjabær | 30,6 |
| 8200 | Sveitarfélagið Árborg | 25,4 |
| 8401 | Sveitarfélagið Hornafjörður | 18,6 |
| 8508 | Mýrdalshreppur | 49,3 |
| 8509 | Skaftárhreppur | 12,6 |
| 8613 | Rangárþing eystra | 36,0 |
| 8614 | Rangárþing ytra | 28,9 |
| 8710 | Hrunamannahreppur | 21,7 |
| 8716 | Hveragerðisbær | 27,4 |
| 8717 | Sveitarfélagið Ölfus | 13,5 |
| 8719 | Grímsnes- og Grafningshreppur | 50,5 |
| 8720 | Skeiða- og Gnúpverjahreppur | 41,4 |
| 8721 | Bláskógabyggð | 22,6 |
| 8722 | Flóahreppur | 41,2 |
Gögnin hafa einnig verið sett upp í skýringarmynd sem fylgir hér að neðan. Á myndinni tákna bláar súlur hlutfall stöðugilda kennara. Rauð lína sýnir meðaltalshlutfall allra sveitarfélaga sem reka leikskóla. Græn lína sýnir lögbundið hlutfall kennara í leikskólum en að lágmarki 2/ 3 hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla skulu teljast til stöðugilda kennara skv. 14. gr. laga um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, nr. 95/2019.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Fyrir liggur að skortur er á kennurum í leikskólum sem mikilvægt er að bregðast við.