Ferill 661. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1212 — 661. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um ferðir utanríkisþjónustunnar.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
Hversu margar utanlandsferðir hafa verið farnar á vegum utanríkisþjónustunnar, þar á meðal af pólitískt ráðnum starfsmönnum, frá því að ríkisstjórnin tók við völdum? Óskað er eftir að í svari komi fram dagsetning ferðar, áfangastaður, fjöldi einstaklinga í hverri ferð, erindi ferðar og lengd hennar.
Skriflegt svar óskast.