Ferill 638. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1214 — 638. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini B Sæmundssyni um rekstur Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hverjar voru heildartekjur Sinfóníuhljómsveitar Íslands ár hvert árin 2015–2025?
2. Hvert var hlutfall ríkisframlags annars vegar og andvirðis seldra aðgöngumiða hins vegar af heildartekjum ár hvert árin 2015–2025?
3. Hver var fjöldi seldra aðgöngumiða ár hvert árin 2015–2025?
4. Hver var fjöldi útgefinna frímiða ár hvert árin 2015–2025?
5. Hvernig þróaðist verð aðgöngumiða árin 2015–2025?
Í töflunni hér fyrir neðan er svar við fyrirspurninni:
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Skýringar með töflunni:
– Gögn frá 2015 eru ekki aðgengileg þar sem miðasala var í eldra miðasölukerfi og aðgangur í núverandi fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins, Orra, nær einungis 10 ár aftur í tímann.
– Árin 2020–2022 hafði heimsfaraldur kórónuveiru mikil áhrif á miðasölu.
– Fram til ársins 2020 var sala færð til tekna við sölu en frá árinu 2020 var sala lotuð eftir viðburðadagsetningum.
– Fjöldi frímiða er boðsmiðar á þá tónleika sem selt var inn á. Miðar á viðburði sem ekki er tekið gjald fyrir, eins og skólatónleika, Menningarnótt o.fl., eru því ekki inni í þessari tölu.
– Þess má geta að framlag hins opinbera hjá sinfóníuhljómsveitum á Norðurlöndunum er um 80–85% af heildartekjum.