Ferill 663. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1218 — 663. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um stöðugildi hjá RÚV.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
1. Hve mörg stöðugildi fréttamanna og dagskrárgerðarmanna hafa verið hjá RÚV þau ár sem stuðningur við einkarekna fjölmiðla hefur verið veittur? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda fastra stöðugilda annars vegar og verktaka hins vegar.
2. Hefur ráðuneytið upplýsingar um fjölgun eða fækkun stöðugilda hjá RÚV, þ.m.t. verktaka? Ef svo er, hver hefur þróunin verið á þeim árum sem rekstrarstuðningur við einkarekna fjölmiðla hefur verið veittur?
Skriflegt svar óskast.