Ferill 664. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1219  —  664. mál.




Fyrirspurn


til atvinnuvegaráðherra um blóðmerahald.

Frá Heiðbrá Ólafsdóttur.


     1.      Hvernig sér ráðherra fyrir sér að framkvæmd skilyrts leyfis MAST fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum geti stuðlað að stöðugleika í starfsemi þeirra bænda sem starfa innan greinarinnar?
     2.      Eru þær breytingar sem nú hafa verið gerðar á eftirliti og regluverki í kringum blóðmerahald nægilegar til að tryggja traust á starfsemi blóðmerabúa og skapa skýran ramma um greinina til framtíðar?
     3.      Hefur ráðuneytið lagt mat á hvaða áhrif blóðmerahald hefur á atvinnu og tekjuöflun í dreifbýli?


Skriflegt svar óskast.