Ferill 173. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1223  —  173. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda (erlendar fjárfestingar).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Skattinum, Deloitte, KPMG, Samtökum iðnaðarins, Kauphöll Íslands, Sjávarklasanum og Framvís.
    Nefndinni bárust tíu umsagnir auk minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, í þeim tilgangi að einfalda regluverk sem snýr að erlendum fjárfestingum og gera með því rekstrarumhverfi hagfelldara fyrir nýsköpunarfyrirtæki sem starfa hér á landi.
    Í frumvarpinu er lagt til að skattskylda erlendra aðila vegna söluhagnaðar af hlutabréfum í íslenskum hlutafélögum verði felld brott og sömuleiðis skattskylda erlendra aðila vegna hagnaðar af sölu hlutdeildarskírteina í verðbréfasjóðum og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta hér á landi. Einnig er lögð til orðalagsbreyting sem ætlað er að árétta og skýra nýlega samþykktar reglur um kauprétt til handa sprotafyrirtækjum. Loks er lagt til að í stað þess að rekstraraðilum sé heimilt að draga frá tekjum sínum eftirstöðvar rekstrartapa síðustu tíu ára á undan tekjuári verði nú miðað við eftirstöðvar rekstrartapa sem myndast rekstrarárið 2025 eða fyrr.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Í umsögnum og fyrir nefndinni kom fram að á undanförnum árum hefði skapast mikill áhugi hjá erlendum fjárfestum fyrir því að fjárfesta í fyrirtækjum á Íslandi, sérstaklega á sviði nýsköpunar. Mörg þeirra fyrirtækja væru í fararbroddi á sínu sviði og Ísland því að mörgu leyti ákjósanlegur fjárfestingarkostur. Í einhverjum tilvikum hefðu fjárfestar sett fyrir sig það umstang sem fylgir hlutabréfaviðskiptum erlendra aðila hér á landi. Var það álit margra að með frumvarpinu væri stigið skref í þá átt að einfalda skattframkvæmd og styðja við aukna erlenda fjárfestingu hér á landi sem væri samfélaginu öllu til hagsbóta.
    Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að efla fjárfestingar erlendra aðila hérlendis. Fjárfesting í atvinnurekstri er undirstaða velmegunar og það er verðugt verkefni stjórnvalda að fjölga fjárfestum og auka þátttöku erlendra aðila á hlutabréfamörkuðum og í fjárfestingum hérlendis.

Hagnaður erlendra aðila af hlutdeildarskírteinum í verðbréfasjóðum og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta (b-liður 1. gr.).
    Í b-lið 1. gr. frumvarpsins er lagt til að felld verði brott skattskylda erlendra aðila vegna hagnaðar af sölu hlutdeildarskírteina í verðbréfasjóðum og sérhæfðum sjóðum fyrir almenna fjárfesta hér á landi.
    Í umsögnum og fyrir nefndinni kom fram að það væri í samræmi við markmið frumvarpsins að útvíkka undanþáguna fyrir hlutdeildarskírteini í sjóðum að því marki að undanþágan næði til allra tegunda sérhæfðra sjóða, óháð því hvort þeir væru ætlaðir almennum fjárfestum eða fagfjárfestum. Þessi breyting myndi minnka verulega þá óvissu sem erlendir fagfjárfestar sem fjárfesta í slíkum sjóðum standa frammi fyrir vegna flækjustigs við að sækja um undanþágur vegna tvísköttunarsamninga.
    Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis, dags. 17. febrúar 2026, er bent á að stærstur hluti fagfjárfestasjóða sé rekinn í formi samlagshlutafélaga eða sambærilegra félaga með ósjálfstæða skattskyldu. Slík sjóðsform séu almennt skattalega gegnsæ og beri ekki sjálfstæða skattlagningu. Skattaleg meðferð fari því fram hjá eigendum að slíkum sjóðum en ekki hjá sjóðnum sjálfum. Afnám skattskyldu á sjóðinn sjálfan myndi því í reynd ekki hafa áhrif á skattlagningu fjárfestanna.
    Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu að slík breyting á ákvæðinu myndi í reynd ekki leiða til þess hagræðis og þeirra markmiða sem stefnt er að með frumvarpinu. Að því athuguðu beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að það kanni hvort aðrar mögulegar útfærslur séu framkvæmanlegar og heppilegar til einföldunar á skattskyldu fjárfesta í fagfjárfestingarsjóðum.

Breytingartillögur.
Hagnaður erlendra aðila af sölu hlutabréfa (a-liður 1. gr.).
    Í a-lið 1. gr. frumvarpsins er lagt til að skattskylda erlendra aðila vegna söluhagnaðar hlutabréfa í íslenskum hlutafélögum verði felld brott, hvort sem seljandi er lögaðili eða einstaklingar sem ekki hafa átt skattalegt heimilisfesti á Íslandi á síðastliðnum fimm árum fyrir sölu og eiga, beint og óbeint, minna en 25% af hlutafé félagsins.
    Í umsögn Skattsins kom fram að í frumvarpinu séu undanþágunni engar sérstakar skorður settar þegar um er að ræða eignarhald í gegnum félög eða sjóði á lágskattasvæðum. Líkur séu á því að verði frumvarpið óbreytt að lögum muni það leiða til færslu eignarhalds á hlutabréfum í eigu íslenskra aðila til þekktra skattaskjóla. Breytingar líkt og þær sem fram koma í ákvæði a-liðar 1. gr. frumvarpsins auki hættu á skattasniðgöngu, svo sem með flutningi á eignarhaldi til lágskattasvæða, og hættu á duldu eignarhaldi og peningaþvætti. Auk þess kemur fram í umsögn Skattsins að skilyrði undanþágunnar fyrir einstaklinga um að þeir eigi ekki meira en 25% af hlutafé félagsins sé ekki nægilega skýrt og að það geti verið erfitt í framkvæmd. Krafan sé þannig ekki afmörkuð við ákveðið tímabil eða tímamark líkt og t.d. sé gert ráð fyrir í 3. mgr. 57. gr. a laga um tekjuskatt. Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis, dags. 17. febrúar 2026, kemur fram að erfitt sé í framkvæmd að vinna með hugtakið „lágskattaríki“ og ekki sé hægt að styðjast við það í ákvæðinu. Bendir ráðuneytið á að skv. 2. mgr. 57. gr. a laga um tekjuskatt teljist ríki vera lágskattaríki ef hagnaður félags þar sætir lægri skattlagningu en sem nemur 2/3 af þeim skatti sem það hefði greitt ef félagið hefði verið íslenskt. Hugtakið „lágskattaríki“ miðist því ekki við tiltekinn lista af ríkjum heldur þurfi að leggja mat á það ár hvert í samræmi við þetta lagaákvæði. Ríki með hátt skatthlutfall gætu þannig talist vera „lágskattaríki“ í einstökum tilvikum ef félag þar í landi fengi einhvers konar ívilnun, t.d. vegna rannsókna og þróunar, sambærilega og veitt er hér á landi á grundvelli laga um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, nr. 152/2009. Þá verði ekki séð að önnur lönd setji skilyrði sölu frá lágskattasvæðum við aðstæður sem þessar. Enn fremur kemur fram að ráðuneytið komi ekki auga á hvaða skattalegu hvatar ættu að búa að baki því að færa hlutabréf til útlanda verði frumvarpið að lögum. Ekkert sé því til fyrirstöðu nú að íslenskir aðilar stofni erlend félög um hlutabréfaeign sína. Sé það hins vegar gert án þess að viðskiptaleg eða efnahagsleg rök standi því að baki þá geti íslenskar reglur nú þegar tekið á því. Í þeim tilvikum þar sem um skattasniðgöngu er að ræða gæti erlenda félagið talist hafa fasta starfsstöð á Íslandi eða að litið verði svo á að raunveruleg framkvæmdastjórn þess sé talin stödd á Íslandi. Teljist erlenda ríkið lágskattaríki þá væri CFC-reglum beitt, sbr. 57. gr. a í lögum um tekjuskatt, en auk þess væri hægt að byggja á skattasniðgöngureglu 57. gr. sömu laga ef megintilgangurinn væri að komast yfir skattalegt hagræði. Færi einstaklingur hlutabréfaeign sína til útlanda hefði það alla jafna neikvæðar skattalegar afleiðingar fyrir viðkomandi enda myndi það leiða til skattlagningar við færsluna og aftur þegar bréf í erlenda félaginu væru seld.
    Vegna skilyrðis undanþágunnar fyrir einstaklinga um að þeir eigi ekki meira en 25% af hlutafé félagsins tekur ráðuneytið fram að það miði við það tímamark þegar aðili nýtur söluhagnaðarins. Það tímamark hafi ekki verið vandamál í framkvæmd svo vitað sé. Bendir ráðuneytið á að það væri fyrst og fremst við afmarkaðar aðstæður sem til misnotkunar kæmi vegna ákvæðisins og þá helst þegar einstaklingur á umfram 25% hlut í félagi hér á landi en selur hluta af þeim bréfum með þeim afleiðingum að hann fer undir 25% eignarhlut áður en hann selur það sem eftir stendur af bréfunum. Þar með væri hann undir því eignarhlutfalli sem ákvæðið kveður á um og gæti nýtt sér undanþáguna. Ráðuneytið telur eftir sem áður einfaldara að hafa ekkert skilyrði um tímabil eða tímamark eignarhalds í ákvæðinu.
    Meiri hlutinn tekur fram að þegar reglum á sviði skattalaga er breytt og auknar undanþágur veittar frá skattskyldu til hagræðis og einföldunar, líkt og hér um ræðir, þá vegast ætíð á sjónarmið um kosti slíkra undanþágna á móti hættunni á því að þær verði nýttar í vondri trú til þess að komast undan réttmætri skattlagningu með gjörningum sem ekki eru gerðir í eðlilegum viðskiptalegum tilgangi. Meiri hlutinn undirstrikar að megintilgangurinn með því að fella brott skattskyldu erlendra aðila á söluhagnað af hlutabréfum í íslenskum hlutafélögum er að gera íslenskum fyrirtækjum auðveldara um vik að sækja fjármagn erlendis frá og með því stíga mikilvæg skref í að byggja upp og reka sína starfsemi. Einkum er hér horft til nýsköpunarfyrirtækja sem treysta á aðgang að erlendu hlutafé og lánsfé. Með því er stigið mikilvægt skref í að minnka umstang og flækjustig fyrir erlenda fjárfesta líkt og áður segir.
    Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu að það geti verið vandkvæðum bundið að setja undanþágunni skorður vegna sölu frá lágskattaríkjum. Slíkar reglur gætu haft í för með sér aukna umsýslu og flækjustig sem myndi vinna gegn þeim megintilgangi frumvarpsins að einfalda skattframkvæmd líkt og áhersla er lögð á með frumvarpinu. Í því samhengi vísar meiri hlutinn til ítarlegrar umfjöllunar í minnisblaði ráðuneytisins um stöðu þekktra skattaskjóla þar sem m.a. eru raktar þær reglur sem gilda hér á landi um lágskattaríki og það átak sem átt hefur sér stað á alþjóðavettvangi við að loka skattaskjólum, auka upplýsingaskipti og afnema bankaleynd í þeim tilgangi að koma í veg fyrir skattasniðgöngu á alþjóðavísu.
    Jafnframt tekur meiri hlutinn undir það sem segir í minnisblaði ráðuneytisins að ekki sé ljóst hvaða skattalegu hvatar ættu að verða til þess að íslenskir aðilar geri sér far um að færa hlutabréf sín til útlanda í þeim tilgangi að komast undan skattskyldu hér á landi verði frumvarpið að lögum. Að því gættu tekur meiri hlutinn fram að það kemur í hlut skattyfirvalda að hafa eftirlit með því að undanþágan sem mælt er fyrir um í a-lið 1. gr. frumvarpsins verði ekki notuð í þeim tilgangi að komast undan réttmætri skattlagningu. Verður þar sérstakt úrlausnarefni hvort einstaklingar sem eiga meira en 25% hlut í félögum hér á landi reyni að nýta undanþáguna með því að selja hlutabréf sín í áföngum eða öðrum samhliða viðskiptum líkt og lýst er í minnisblaði ráðuneytisins. Með hliðsjón af því sem að öðru leyti kemur fram í minnisblaðinu telur meiri hlutinn að skattyfirvöld séu nú þegar vel í stakk búin til að takast á við slíka skattasniðgöngu með sérstökum og almennum hætti enda geti þau nú þegar nýtt til þess sértækar heimildir í tekjuskattslögum auk alþjóðlegra samninga og samstarfs um upplýsingaskipti.
    Að því virtu beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að fylgjast með því hvort undanþágan verði almennt misnotuð með þessum hætti.
    Í umsögn Skattsins um málið á 154. löggjafarþingi kom fram sú tillaga að það kynni að vera skýrari framsetning að færa ákvæðið í a-lið 1. gr. frumvarpsins í tvo málsliði.
    Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis, dags. 17. febrúar 2026, kom fram að ráðuneytið gæti fallist á tillöguna.
    Meiri hlutinn tekur undir að ákvæðið er skýrara þegar því er skipt upp með þeim hætti og leggur til breytingartillögu því til samræmis.

Yfirfæranlegt rekstrartap (4. gr.).
    Með 3. gr. frumvarpsins er lagt til að felld verði brott úr 1. málsl. 8. tölul. 31. gr. laga um tekjuskatt tíu ára tímatakmörk sem gilt hafa um nýtingu á eftirstöðvum rekstrartapa frá fyrri árum. Í 4. gr. frumvarpsins er lagt til nýtt bráðabirgðaákvæði sem mælir fyrir um að eftirstöðvar rekstrartapa sem myndast á rekstrarári sem lauk 2025 eða fyrr sé aðeins hægt að nýta í tíu ár, talið frá og með því ári sem tap varð til.
    Í umsögnum er bent á að í bráðabirgðaákvæðinu felist regla sem er þrengri en sú sem kveðið er á um í núgildandi ákvæði 1. málsl. 8. tölul. 31. gr. laga um tekjuskatt. Samkvæmt henni er heimilt að nýta eftirstöðvar rekstrartapa frá síðustu tíu árum á undan tekjuári. Reglan í 4. gr. frumvarpsins mælir fyrir um að notkun taps verði heimil í tíu ár talið frá og með því ári sem tap varð til. Því muni ári á reglunum þar sem núgildandi regla sé hagstæðari.
    Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytis, dags. 17. febrúar 2026, er bent á að eðli málsins samkvæmt verði rekstrartap ekki nýtt á því ári sem það myndast. Þrátt fyrir það fellst ráðuneytið á að ákvæðið eins og það er lagt upp í frumvarpinu geti valdið óskýrleika.
    Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu að þessu leyti og leggur til breytingartillögu þar að lútandi. Í ljósi þess að nú þegar er langt liðið á rekstrarárið 2026 leggur meiri hlutinn jafnframt til að tíu ára takmörkun á nýtingu rekstrartapa verði frestað um eitt ár, þ.e. úr 2025 í 2026.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      A-liður 1. gr. orðist svo: Við 7. tölul. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ákvæði 1. málsl. á þó ekki við um söluhagnað af hlutabréfum í félögum, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr., sem lögaðilar njóta. Sama á við um menn sem ekki hafa haft skattalegt heimilisfesti á Íslandi á síðastliðnum fimm árum fyrir sölu og eiga beint og óbeint minna en 25% af hlutafé félagsins.
     2.      Efnismálsgrein 4. gr. orðist svo:
         Þrátt fyrir 8. tölul. 31. gr. er aðeins heimilt að nýta eftirstöðvar rekstrartapa sem mynduðust á rekstrarári sem lauk á árinu 2026 eða fyrr í tíu ár, talið frá og með því ári sem næst kemur á eftir því ári sem tap varð til.

    Stefán Vagn Stefánsson og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. maí 2026.

Arna Lára Jónsdóttir,
form.
Sigmundur Ernir Rúnarsson,
frsm.
Ragna Sigurðardóttir.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. Pawel Bartoszek.