Ferill 320. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1231 — 320. mál.
3. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun.
Frá Guðmundi Ara Sigurjónssyni.
Í stað dagsetningarinnar „1. september 2026“ í 1. mgr. 26. gr. komi: 1. janúar 2027.
Greinargerð.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að nauðsynlegt sé að hæfilegur tími verði veittur til að innleiða efni frumvarpsins, verði það samþykkt. Til að tryggja að samþykkt frumvarpsins muni ekki hafa þau áhrif að úthlutunum úr sjóðum haustið 2026 kunni að seinka eða náist jafnvel ekki er lagt til að gildistöku verði seinkað til 1. janúar 2027.