Ferill 672. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1233 — 672. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um lokanir í Hvalfjarðargöngum.
Frá Ólafi Adolfssyni.
Hversu oft hefur Hvalfjarðargöngum verið lokað eða umferð um göngin stöðvuð tímabundið undanfarin fimm ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum og eftir því hvort ástæða lokunar var viðhald, slys, forgangsakstur eða bilanir í ökutækjum.
Skriflegt svar óskast.