Ferill 673. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1234  —  673. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um stöðu heimilislækna og aðgengi að heilsugæslu.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hver hefur fjöldi fastráðinna heimilislækna verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
     2.      Hve mörg ársstörf heimilislækna hafa verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
     3.      Hver hefur fjöldi íbúa á þjónustusvæði hverrar heilsugæslustöðvar verið á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
     4.      Hversu margir íbúar hafa verið skráðir með fastan heimilislækni við hverja heilsugæslustöð á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
     5.      Hver hefur biðtími eftir tíma hjá heimilislækni verið við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.
     6.      Hve margir gestalæknar hafa starfað við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026 og hversu mörgum ársstörfum hafa þeir sinnt? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum, auk upplýsinga um hversu lengi stöður hafa verið mannaðar með tímabundnum ráðningum í stað fastráðninga.
     7.      Hve margir læknanemar, kandídatar eða læknar í sérnámi hafa starfað við heilsugæslustöðvar landsins á hverju ári á tímabilinu 2016–2026 og hversu stórum hluta þjónustunnar hafa þeir sinnt, eftir því sem gögn leyfa? Óskað er eftir sundurliðun eftir heilsugæslustöðvum og heilbrigðisumdæmum.


Skriflegt svar óskast.