Ferill 621. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1235  —  621. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um aðgengi Íslands að kaupskipum á háskatímum.



     1.      Þar sem ekkert íslenskt kaupskip hefur siglt undir íslenskum fána í rúma tvo áratugi, hefur þá verið lagt mat á það að hvaða marki aðgangur Íslands að þessum skipum gæti takmarkast eða glatast komi til alþjóðlegra átaka, neyðarástands eða annarra alvarlegra truflana á alþjóðlegum flutningakeðjum?
    Samkvæmt hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna skulu skip aðeins sigla undir fána eins ríkis og lúta sérlögsögu þess á úthafinu. Kaupskip sem sigla til og frá Íslandi lúta því á úthafinu ekki lögsögu Íslands þar sem þau eru skráð á skipaskrár annarra ríkja og sigla því undir fána þeirra.
    Komi til ófriðar eða annars neyðarástands hér á landi eða á heimsvísu getur íslenska ríkið ekki gert tilkall til skipa sem sigla undir erlendum fána og sú staða getur skapast að Ísland verði háð ríkjum þar sem skipin eru skráð til flutninga til og frá landinu.

     2.      Hefur ráðuneytið unnið eða látið vinna greiningar um mögulegar afleiðingar þessa fyrir íslenskt samfélag? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður þeirra?
    Hjá innviðaráðuneyti og forverum þess hefur frá því að kaupskipum tók að fækka á íslenskri skipaskrá verið unnin ýmis vinna þessu tengd. Árið 2004 skipaði samgönguráðherra, í samráði við fjármálaráðherra, starfshóp til að kanna stöðu þessara mála á þeim tíma á Íslandi. Niðurstöður þess starfshóps voru að setja þyrfti á stofn íslenska alþjóðlega skipaskrá sem væri samkeppnishæf við erlendar skipaskrár og ein ástæða þess sem talin er upp fyrir því er þjóðaröryggi en meiri áhersla er lögð á mikilvægi þess að vernda atvinnugreinina hér á landi og atvinnu farmanna. Á grundvelli tillögu hópsins voru lögð fram frumvörp til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá og um skattlagningu kaupskipaútgerða. Lögin tóku gildi 1. janúar 2008. Í kjölfar athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA voru þó lög um skattlagningu kaupskipaútgerða felld úr gildi í desember 2011.
    Árið 2014 skipaði fjármála- og efnahagsráðherra starfshóp sem hafði það hlutverk að kanna hvort unnt væri að útfæra lagaumhverfi í kringum skráningu kaupskipa á Íslandi með þeim hætti að Ísland yrði samkeppnishæft á alþjóðavettvangi á sviði kaupskipaútgerðar. Innanríkisráðuneytið átti fulltrúa í þeim hópi. Niðurstöður þess starfshóps voru að fjárhagslegur ávinningur af slíkri skrá yrði takmarkaður fyrir íslenska ríkið, en skapast gætu afleidd störf og óbeinar tekjur fyrir ríkissjóð vegna ýmissar hliðarstarfsemi sem fylgir slíkri skipaskrá. Áhrif takmarkaðs aðgengis Íslands að kaupskipum komi til alþjóðlegra átaka, neyðarástands eða annarra alvarlegra truflana á alþjóðlegum flutningakeðjum voru ekki skoðuð sérstaklega í vinnu þessa starfshóps.
    Í mars árið 2021 kynnti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá í samráðsgátt stjórnvalda. Í greinargerð sem fylgdi drögunum kemur fram að ekki sé talið æskilegt með tilliti til þjóðaröryggis að öll kaupskip sem sigla hingað til lands sigli undir erlendum fána og lúti erlendum lögum. Komi til ófriðar eða hamfara af öðrum toga sé mikilvægt að skip lúti íslenskum lögum þannig að tryggja megi örugga vöruflutninga til og frá landinu. Fjallað er um mikilvægi öruggra vöruflutninga til og frá landinu með tilliti til matvæla- og orkuöryggis þjóðarinnar. Frumvarpið var ekki lagt fram á Alþingi.
    Í tíð núverandi innviðaráðherra hefur málið verið tekið upp að nýju innan ráðuneytisins. Minnisblað um samkeppnishæfni siglinga var á dagskrá fundar ríkisstjórnar í september 2025. Einn þáttur þess snýr að mikilvægi eflingar íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár. Ráðherra sendi ritara Þjóðaröryggisráðs erindi um málið í desember 2025 þar sem hann upplýsti um stöðuna og að hún kynni að varða öryggi ríkisins og almennings. Þá setti ráðherra á dagskrá ríkisstjórnarfundar minnisblað um íslenska alþjóðlega skipaskrá í mars sl.

     3.      Telur ráðherra að núverandi staða sé ásættanleg? Ef svo er ekki, hvaða aðgerða telur ráðherra að hægt sé að grípa til?
    Að mati ráðherra samrýmist þessi staða ekki því áfallaþoli sem íslenskt samfélag gerir kröfu um. Á öðrum Norðurlöndum er litið á sjóflutninga sem hluta af heildstæðu öryggisumhverfi og áfallaþoli samfélagsins.
    Er það mat ráðherra að efling íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár styrki getu ríkisins til að efla áfallaþol íslensks samfélags við óvenjulegar aðstæður sem skapast geta.
    Ráðherra fyrirhugar að leggja fram á 158. löggjafarþingi frumvarp til breytingar á lögum um íslenska alþjóðlega skipaskrá, nr. 38/2007, með það að markmiði að efla skipaskrána og gera hana að raunhæfum kosti fyrir skipafélög. Eitt helsta markmið þess snýr að því að auka áfallaþol íslensks samfélags.
    Til að tryggja heimild ríkisins til að leggja hald á skip þegar neyðarástand skapast þarf einnig lagasetningu. Í Noregi hafa verið sett sérlög þar sem fjallað er um rétt ríkisins, í stríði eða hættuástandi, til að leggja hald á skip (n. Lov om adgang til rekvisisjon av skip m.v. under krig eller kriseforhold). Slík lagasetning er til skoðunar í ráðuneytinu og er þar höfð hliðsjón af vinnu við eflingu áfallaþols samfélagsins og haft samráð við helstu hagaðila innan Stjórnarráðsins.