Ferill 616. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1237 — 616. mál.
Fylgiskjal.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um arðsemismat samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hefur farið fram arðsemismat fyrir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í heild eða hluta og þá hvaða? Ef svo er, hverjar voru niðurstöðurnar sundurliðað á hverja framkvæmd og hverjar voru helstu forsendur arðsemismatsins? Hér er átt við tekjur og gjöld, bæði á framkvæmdatíma og eftir að innviðir hafa verið byggðir.
Við uppfærslu samgöngusáttmálans sem lauk í ágúst 2024 var unnin félagshagfræðileg greining til að meta arðsemi allra stofnvegaverkefna og borgarlínuverkefna í heild sinni miðað við uppfærðar kostnaðar- og tímaáætlanir fyrirhugaðra verkefna sáttmálans til 2040. Þessi fjárfestingáaætlun í heild var metin með og án Sundabrautar til að varpa ljósi á samspil verkefnanna. Áður höfðu verið gerðar sambærilegar greiningar á fyrstu lotu borgarlínu árið 2020, Sundabraut árið 2021 og Miklubrautarstokki/-göngum árið 2024. Greiningin hefur ekki verið þýdd á íslensku en þýðingu á töflum og myndum má finna í fylgiskjali 2 og skýrsluna sjálfa á vef Stjórnarráðsins. 1
Í töflu 1 (fylgiskjal 1, bls. 15) í greinargerð viðræðuhóps um uppfærslu sáttmálans má sjá að samkvæmt matinu felst langstærstur hluti ábata af fjárfestingum sáttmálans til 50 ára í svokölluðum notendaáhrifum, þ.e. arðsemin kemur að mestu fram í minni ferðatíma og minni umferðartöfum vegfarenda á bíl og í almenningssamgöngum.
Í töflu 6.1 (fylgiskjal 2 ) í skýrslu um niðurstöður félagshagfræðilegrar greiningar á arðsemi sáttmálans, sem fylgdi greinargerð viðræðuhópsins, má sjá að sparnaður vegfarenda í bílaumferð er áætlaður um 793 milljarðar kr. og sparnaður vegfarenda í almenningssamgöngum um 624 milljarðar kr. á greiningartímabilinu. Mynd 8 (fylgiskjal 2) í sömu skýrslu sýnir hvernig áætlaður tímasparnaður dreifist eftir fjárfestingaflokkum sáttmálans.
Í töflu 6.1 (fylgiskjal 2) er að finna nánari sundurliðun á kostnaðar- og ábataliðum á núvirði, þar á meðal má sjá áætlaðan rekstrarkostnað og áætlaðar fargjaldatekjur.
Í greiningunni er stofnkostnaður allra verkefna sáttmálans, auk rekstrar og viðhalds nýrra innviða, metinn á móti reiknuðum ábata samfélagsins af nýjum innviðum yfir 50 ára tímabil.
Í töflu 5.1 (fylgiskjal 2) í skýrslu um niðurstöður félagshagfræðilegrar greiningar á arðsemi sáttmálans má sjá upplýsingar um áætlaðan stofnkostnað verkefna sáttmálans á verðlagi 2023 sem lágu til grundvallar. Í greiningunni er notað svokallað P85 gildi úr kostnaðaráætlunum hverrar framkvæmdar sem er hærri áætlun en P50 gildi sem birt er í greinargerð viðræðuhóps og í framkvæmdatöflu.
Í töflu 5.1 (fylgiskjal 2) í skýrslu um niðurstöður félagshagfræðilegrar greiningar á arðsemi sáttmálans eru einnig upplýsingar um áætlaðan rekstrarkostnað innviða sáttmálans og aukna þjónustu almenningssamgangna með innleiðingu nýs leiðanets með borgarlínu- og strætisvögnum.
Á móti stofn- og rekstrarkostnaði er metinn fjárhagslegur ábati af verkefnum sáttmálans í formi styttri ferðatíma, minni umferðartöfum, auknu umferðaröryggi, minni umhverfisáhrifum og fleiri þáttum. Ferðatími og tímavirði vega þar þyngst. Tímavirði er reiknað með samræmdri alþjóðlegri aðferðarfræði á grundvelli meðallauna á viðkomandi svæði og kaupmáttar. Í töflu 2 (fylgiskjal 2) má sjá tímavirði sem notað er til grundvallar í arðsemismatinu.
Fylgiskjal I.
Greinargerð viðræðuhóps.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1237-f_I.pdf
Fylgiskjal II.
Arðsemismat samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þýddar töflur og myndir.
www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1237-f_II.pdf
1 Capital Area Transport Pact Socioeconomic Analysis. Mannvit, COWI, 2024.