Ferill 574. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1239 — 574. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um viðbrögð við mönnunarvanda á heilbrigðisstofnunum úti á landi.
1. Hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir á grundvelli tillagna starfshóps um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og svæðaskilgreiningar Byggðastofnunar? Ef svo er, hvaða aðgerðir eru í undirbúningi og hvenær er ráðgert að farið verði í þær?
Já, heilbrigðisráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra vinna sameiginlega að undirbúningi þess að hægt verði að auglýsa ívilnanir á námslánum fyrir tiltekin störf heilbrigðisstétta á þeim svæðum sem til lengri tíma hefur verið hvað erfiðast að manna með þeim hætti sem þörf er á. Að svo stöddu er einblínt á verst settu svæðin hvað mönnun heilbrigðisstétta varðar þar sem vilji ráðherra stendur til þess að auglýstar verði ívilnanir. Í kjölfarið verður unnt að leggja mat á það hvort ívilnanirnar hafi borið tilætlaðan árangur.
Þá hefur ráðuneytið lagt ríka áherslu á innleiðingu og styrkingu fjarheilbrigðisþjónustu um allt land, en með fjarheilbrigðisþjónustu er hægt að nýta betur mannauð, efla samvinnu milli stofnana og landsvæða, auka hagkvæmni, gera þjónustu aðgengilega óháð búsetu og stuðla að nýsköpun.
Heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp um framtíðarþjónustu Sjúkrahússins á Akureyri til framtíðar. Markmið hópsins er að skoða fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu sem veitt er á sjúkrahúsinu til að hámarka nýtingu mannauðs og fjárveitinga í þágu þjónustunnar. Starfshópnum hefur því verið falið að greina núverandi þjónustu, meta framtíðarþarfir og gera tillögur að útfærslu sem stuðlar að skilvirkni, gæðum og sjálfbærni heilbrigðisþjónustu á svæðinu.
2. Telur ráðherra að svæðaskilgreining Byggðastofnunar endurspegli raunverulegan mönnunarvanda heilbrigðisþjónustu? Ef ekki, stendur til að endurskoða hana?
Í svæðaskilgreiningu Byggðastofnunar vegna ívilnanaheimilda Menntasjóðs námsmanna, frá júlí 2024, er vísað til tillagna starfshóps þáverandi heilbrigðisráðherra um jöfnun aðgengis að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu, frá maí 2023. Í tillögum starfshópsins var landinu skipt upp eftir því hvort mönnun væri talin góð, ábótavant eða ábótavant en nálægt svæði með góða mönnun.
Svæðaskilgreining Byggðastofnunar skilgreinir öll þau svæði sem koma að mati Byggðastofnunar til greina varðandi ívilnanir á námslánum til að bæta mönnun í heilbrigðisþjónustu. Í svæðaskilgreiningunni er farin sú leið að telja upp öll svæðin þar sem mönnun er ábótavant og ekki gerður greinarmunur á því hvort svæðin eru nálægt svæði með góða mönnun. Það er því hægt að skilgreina þau svæði sem ættu að njóta ívilnana námslána á grundvelli 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna mun þrengra og horfa eingöngu til þeirra svæða sem einnig eru í hvað mestri fjarlægð frá svæðum með góða mönnun.
Svæðaskilgreiningu Byggðastofnunar verður ekki beitt einni og sér heldur er litið á hana sem grundvallargagn fyrir ákvörðunartöku um beitingu ívilnana skv. 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna. Ekki stendur því til að endurskoða hana. Svæðaskilgreiningin endurspeglar það að almennt er erfiðara að manna sérfræðistöður í heilbrigðisþjónustu eftir því sem svæði eru fámennari, dreifbýlli og fjær helstu þéttbýlissvæðum landsins. Mikilvægt er að skoða mönnun í heilbrigðisþjónustu út frá öllum hliðum og með heildarsýn í huga áður en hægt er að komast að þeirri niðurstöðu að ívilnanir námslána séu til þess fallnar að bæta mönnun. Litið er svo á að ívilnanir námslána geti skilað betri árangri fyrir þau svæði sem njóta þeirra ef þær eru ekki í boði annars staðar líka.
3. Hvernig hefur ráðuneytið metið mönnunarvanda á Sjúkrahúsinu á Akureyri og hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að bregðast við þeim vanda?
Styrkja þarf framboð á sérfræðiþjónustu lækna á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) og unnið er að því með samkomulagi um aukið formlegt samstarf við Landspítala. Unnið er að sérstöku samkomulagi milli Sjúkrahússins á Akureyri og Landspítala um samnýtingu sérfræðilækna og eflingu sérnáms lækna. Slíkt samkomulag er forsenda þess að hægt verði að tryggja stöðuga sérhæfða læknamönnun á Sjúkrahúsinu á Akureyri og veita þannig örugga og faglega þjónustu fyrir norðan sem dregur úr tilvísunum til sérfræðilækna á höfuðborgarsvæðinu. Mikilvægt er að flýta þessari vinnu sem þjónar því markmiði heilbrigðisstefnu til 2030, að jafna aðgengi landsmanna að sérfræðiþjónustu.
Nú fer ýmis sérfræðiþjálfun lækna (sérnám) fram við Sjúkrahúsið á Akureyri. Landspítalinn er ábyrgðaraðili sérnáms í sjúkrahússérgreinum og er því samstarf milli sjúkrahúsanna um sérnámið. Mikilvægt er að renna styrkari stoðum undir þá samvinnu með formlegum hætti. Með framboði á sérnámi fyrir lækna við Sjúkrahúsið á Akureyri býðst læknum mikilvægt tækifæri til að setjast þar að á meðan þeir sérhæfa sig. Það getur orðið til þess að hluti þeirra festi þar rætur og haldi áfram að veita sérfræðiþjónustu á svæðinu að loknu sérnámi.
Þá er til meðferðar hvernig nýta megi nýjan kjarasamning lækna til að styðja við mönnun og vaktþjónustu á SAk og göngudeildarþjónusta sjúkrahússins er almennt til skoðunar.
Á vegum ráðuneytisins starfar nú framtíðarnefnd um þjónustu SAk, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar, og verður byggt á þeirri greiningu þegar mönnun verður byggð upp til framtíðar.
Loks skoða Sjúkratryggingar Íslands hvernig megi nýta samning við sérgreinalækna til að auka aðgengi að sérfræðiþjónustu á landsbyggðinni en vissulega er SAk ekki undir í þeim samningi.
4. Hver er afstaða ráðherra til þess að beita ívilnunum skv. 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna gagnvart starfsfólki Sjúkrahússins á Akureyri og starfsstöðvum Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Akureyri, þrátt fyrir að Akureyri falli utan svæðaskilgreiningar Byggðastofnunar?
Á meðan fjármagn til þess að bæta mönnun heilbrigðisstétta með ívilnunum námslána er takmarkað er nauðsynlegt að forgangsraða þeim svæðum þar sem mönnun er mest krefjandi, sbr. það sem áður hefur komið fram.
5. Telur ráðherra að beiting 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna sé nóg til að koma til móts við mönnunarvanda heilbrigðiskerfisins úti á landi eða telur ráðherra að jafnframt þyrfti að skoða t.d. beitingu tímabundins skattafsláttar að fyrirmynd skattafsláttar fyrir erlenda sérfræðinga samkvæmt lögum um tekjuskatt?
28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna miðar að því að beita ívilnunum námslána til að bregðast við skorti á fólki með tiltekna menntun á tilteknum svæðum á landsbyggðinni. Slíkt er bara ein leið til að leysa tiltekinn vanda og er því ekki nóg til að bregðast við þeim mönnunarvanda sem ákveðin svæði á landsbyggðinni glíma við. Horfa þarf til fjölbreyttra lausna því vandinn er fjölbreyttur. Ívilnanir og hvatar þurfa að beinast að þörfum þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem laða skal á tiltekna staði. Ívilnanir námslána geta laðað að heilbrigðisstarfsmenn með námslán og skattafsláttur fyrir erlenda sérfræðinga getur laðað að sérfræðimenntaða heilbrigðisstarfsmenn sem búið hafa erlendis í lengri tíma. Annars konar ívilnanir geta sömuleiðis laðað heilbrigðisstarfsfólk með aðrar þarfir á tiltekin svæði á landsbyggðinni. Aðgengi að húsnæði, dagvistun barna, heilbrigðis- og félagsþjónusta, menntun, tómstundir og starf fyrir maka eru allt þættir sem skipta máli fyrir val fólks á búsetu og þar eru heilbrigðisstarfsmenn engin undantekning. Ýmsir aðilar geta lagt lóð á vogarskálarnar til að mæta þessum þörfum aðfluttra sérfræðinga og það skiptir máli að gera það. Þá kann að vera að almennar ívilnanir geti aðstoðað við að bæta mönnun landlægt en það er ljóst að beita þarf sérstökum hvötum til að hvetja það sérfræðimenntaða heilbrigðisstarfsfólk sem þörf er fyrir til að setjast að á afskekktum svæðum til lengri tíma og veita þar heilbrigðisþjónustu.