Ferill 173. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1240  —  173. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda (erlendar fjárfestingar).

Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Fyrsti minni hluti tekur að mestu leyti undir þau sjónarmið sem birtast í nefndaráliti meiri hlutans, einkum og sér í lagi tilmæli meiri hlutans um að fjármála- og efnahagsráðuneytið taki til skoðunar mögulega einföldun á skattskyldu fjárfesta í fagfjárfestasjóðum. Að auki telur 1. minni hluti vert að vekja athygli á því misræmi sem er til staðar varðandi skattlagningu hlutdeildarskírteina eftir því hvort handhafi er einstaklingur eða lögaðili.
    Í tilfelli einstaklings leggst fjármagnstekjuskattur á mismun kaup- og söluverðs hlutdeildarskírteinis við sölu í sjóði, líkt og um óvissar tekjur sé að ræða, enda ekki loku fyrir það skotið að til gengislækkunar komi síðar meir. Sé handhafi hins vegar lögaðili þá ber að telja gengishækkun hvers rekstrarárs meðal tekna þrátt fyrir að enginn hagnaður hafi verið innleystur. Þess þekkjast í reynd dæmi að lögaðilar hafi ár frá ári greitt skatt af gengishækkun hlutdeildarsjóðs en sjóðurinn að lokum farið á hausinn og fjárfestingin glatast. Að mati 1. minni hluta væri eðlilegra að slík tilvik yrðu meðhöndluð líkt og óvissar tekjur, þ.e. að ekki kæmi til skattlagningar nema við sölu hlutdeildarskírteinis eða slit sjóðs. Sökum þess beinir 1. minni hluti þeim tilmælum til ráðuneytisins að framangreint verði jafnframt tekið til skoðunar í vinnu þess.

Breytingartillaga.
Yfirfæranlegt rekstrartap.
    Með 3. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á 8. tölul. 31. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, þess efnis að fallið er frá þeirri reglu að yfirfæranlegt rekstrartap fyrnist sé það ekki nýtt til frádráttar frá tekjum innan tíu ára. Þess í stað er lagt til að yfirfæranlegt rekstrartap fyrnist ekki. Að mati 1. minni hluta er breytingin til bóta.
    Aftur á móti getur 1. minni hluti ekki séð hvaða rök hníga til þess að eftirstöðvar rekstrartapa sem myndast á rekstrarári sem lauk 2025 eða fyrr sé aðeins hægt að nýta í tíu ár, talið frá og með því ári sem tap varð til.
    Í greinargerð frumvarpsins segir í athugasemdum við 3. gr. að almennt sé leitast við að leggja skatt á heildarhagnað atvinnurekstrar, þ.e. heildartekjur að frádregnum heildargjöldum án tillits til einstakra uppgjörstímabila. Gildandi 8. tölul. 31. gr. laga nr. 90/2003 er frávik frá þessari meginreglu. Bráðabirgðaákvæði í 4. gr. frumvarpsins, um að breytingin verði aðeins framvirk, er því í raun á skjön við markmið frumvarpsins.
    Enn fremur er vert að benda á að í einhverjum tilfellum getur breytingin verið til þess fallin að skekkja samkeppnisstöðu milli einstakra fyrirtækja. Í dæmaskyni má ímynda sér tvö sprotafyrirtæki í sama geira, annað stofnað 2016 (A ehf.) en hitt 2026 (B ehf.), sem bæði skila jafn miklu tapi fyrstu tuttugu ár starfseminnar. Þegar A ehf. skilar loks rekstrarhagnaði árið 2036 á það aðeins tíu ár af yfirfæranlegu tapi. Staða B ehf. árið 2046 er hins vegar önnur, það mun eiga tuttugu ár af tapi til að draga frá hagnaði næstu ára. Jaðaráhrifin sem felast í bráðabirgðaákvæðinu geta því verið töluverð og er í því samhengi vert að hafa í huga að oftar en ekki er taprekstur einna mestur á þeim tíma þegar upphafleg fjárfesting á sér stað, þ.e. á upphafsárum rekstrar.
    Að framangreindu virtu tekur 1. minni hluti undir 1. tölul. breytingartillögu meiri hlutans, en leggur annars til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Efnismálsgrein 4. gr. orðist svo:
    Þrátt fyrir 8. tölul. 31. gr. er aðeins heimilt að nýta eftirstöðvar rekstrartapa sem mynduðust á rekstrarári sem lauk á árinu 2016 eða síðar.

Alþingi, 27. maí 2026.

Hildur Sverrisdóttir.