Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1241 — 632. mál.
Lagfæring.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna (viðmið uppfærslu launa).
Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, Dómarafélagi Íslands, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, Samtökum atvinnulífsins, ríkissaksóknara og Hagstofu Íslands.
Nefndinni bárust sex umsagnir auk kynningarefnis og minnisblaðs frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Gögnin eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lögð til breyting á varanlegu viðmiði fyrir uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna hverra laun eru ákvörðuð með lögum. Í þeim hópi eru forseti Íslands, alþingismenn, ráðherrar, dómarar, saksóknarar, lögreglustjórar, ráðuneytisstjórar, seðlabankastjóri, varaseðlabankastjórar og ríkissáttasemjari.
Í frumvarpinu er lagt til að viðmið við uppfærslu launa hópsins verði hlutfallsleg breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Í því sambandi er lagt til að Hagstofa Íslands fái það lögbundna hlutverk að reikna og birta meðaltal reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna sem hagtölur auk hlutfallslegra breytinga á grundvelli þeirra. Til þess að veita stofnuninni svigrúm við innleiðingu á nýjum útreikningum og framkvæmd uppfærslu á grundvelli nýs lögbundins viðmiðs er í frumvarpinu lagt til að innleiðing á nýju varanlegu viðmiði hefjist 1. janúar 2028. Einnig er í frumvarpinu lagt til að fyrirhugaðar hækkanir launa samkvæmt gildandi ákvæðum laga, sem kveða á um árlega breytingu á launum þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna, komi ekki til framkvæmda dagana 1. júlí 2026 og 1. júlí 2027 en þess í stað nemi hækkun launa þá daga 3,5% hlutfalli. Loks er lagt til að uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa verði ekki meiri en 3,5% dagana 1. apríl 2028 og 1. október 2028.
Frumvarpið tekur mið af tillögum starfshóps sem forsætisráðherra skipaði í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins í júlí 2025. Starfshópurinn lagði mat á gildandi viðmið þeirra sem fá laun samkvæmt sérákvæðum laga með tilliti til mögulegra breytinga á því fyrirkomulagi og lagði fram tillögur að breyttri uppfærslu launa til framtíðar þar sem áhersla var lögð á að viðmiðanir þyrftu að vera gagnsæjar, stöðugar og málefnalegar.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ætlunin sé að skýra viðmið við uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna til samræmis við ætlun löggjafans og þingvilja við setningu laga nr. 79/2019, um breytingu á ýmsum lögum vegna brottfalls laga um kjararáð, nr. 130/2016, með síðari breytingum (launafyrirkomulag). Með frumvarpinu sé gengið út frá því að eitt verði látið ganga yfir alla þjóðkjörna fulltrúa og æðstu embættismenn hverra laun eru ákveðin með lögum. Lögð sé áhersla á að sama fyrirkomulag gildi um allan hópinn en það sé einn þáttur í því að stuðla að fyrirsjáanleika og stöðugleika við uppfærslu á launum hans. Þá hækka laun hópsins að óbreyttum lögum umtalsvert umfram aðra hópa 1. júlí 2026 og standi nauðsyn til þess að bregðast við því með þeim hætti að gengið sé fram með góðu fordæmi á tímum mikillar verðbólgu og hárra vaxta.
Meiri hlutinn tekur heilshugar undir þau orð og telur það bæði sanngjarnt og í samræmi við jafnræðissjónarmið að eitt skuli yfir alla ganga þegar viðmiði við uppfærslu launa er slegið föstu. Meiri hlutinn tekur einnig fram að þrátt fyrir að sá hópur þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna sem frumvarpið tekur til sé ekki stór í þjóðhagslegu samhengi þá hefur hópurinn ríkt fordæmisgildi og mikið vægi í opinberri umræðu. Á hópnum hvílir því mikil ábyrgð sem felst í því að ganga á undan með góðu fordæmi til skemmri og lengri tíma, líkt og frumvarpið kveður á um.
Innleiðing á uppfærðu verklagi.
Með frumvarpinu er lagt til breytt verklag við uppfærslu launa þar sem hlutverk hverrar stofnunar er lögbundið og skýrt afmarkað. Auk þess er með frumvarpinu lagt upp með að nýtt varanlegt viðmið verði innleitt í skrefum fram til ársins 2028. Í ljósi mikilvægis málsins og þeirra miklu hagsmuna sem frumvarpið tekur til beinir meiri hlutinn því til ráðuneytisins að sérstaklega verði vandað til við undirbúning að nýju verklagi þannig að hlutverk hverrar stofnunar verði skýrt og afmarkað.
Breytingartillögur.
Laun forsetaritara í lögum um starfskjör og skrifstofu forseta Íslands, nr. 10/1990 (2. gr.).
Í kynningu fjármála- og efnahagsráðuneytis, dags. 5. maí 2026, kemur fram að með 2. efnismgr. 1. gr. laga um breytingu á lögum um laun forseta Íslands og lögum um Stjórnarráð Íslands (forsetaritari, handhafalaun o.fl.), nr. 41/2026, var lögum um laun forseta Íslands, nr. 10/1990, breytt á þann hátt að laun forsetaritara voru felld undir núgildandi fyrirkomulag um uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna. Í ljósi þeirra laga þurfi nú að gera breytingu á 2. mgr. 5. gr. laga nr. 10/1990 með nýju viðmiði og leggja til nýtt bráðabirgðaákvæði við þau lög samhljóða þeim ákvæðum sem lögð eru til með frumvarpi þessu.
Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 41/2026 er tekið fram að á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar sé að finna fyrirhugað frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna. Nái frumvarpið fram að ganga muni það hafa áhrif á tillögur varðandi launaákvörðun forsetaritara sem og forseta Íslands og annarra embættismanna sem sömu reglur gilda um.
Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu að breytt fyrirkomulag um uppfærslu launa verði einnig látið gilda um uppfærslu launa embættis forsetaritara enda var gert ráð fyrir að svo yrði í frumvarpi því sem varð að lögum um starfskjör og skrifstofu forseta Íslands, nr. 41/2026. Meiri hlutinn leggur því til breytingartillögu þar að lútandi.
Uppfærsla launa seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra (14. gr.).
Með 14. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um breytingu 3. mgr. 5. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, með nýju viðmiði við uppfærslu launa seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Það viðmið sem lagt er til er meðaltal reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna sem Hagstofu Íslands er falið að reikna og birta. Í ákvæðinu er kveðið á um að við launaafgreiðslu uppfæri Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu Íslands.
Samkvæmt núgildandi 3. mgr. 5. gr. laga um Seðlabanka Íslands uppfærir Seðlabankinn sjálfur krónutölufjárhæðir til samræmis við tölur Hagstofunnar.
Meiri hlutinn telur að með hliðsjón af sjónarmiðum um sjálfstæði Seðlabanka Íslands og til hagræðis fyrir starfsemi bankans sé rétt að bankinn fari áfram með launaafgreiðslu seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Meiri hlutinn leggur því til breytingartillögu þar að lútandi.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Á eftir 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Í stað 2.–5. málsl. 2. mgr. 5. gr. laganna koma sjö nýir málsliðir, svohljóðandi: Launin skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt þessari grein. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
2. 2. gr. orðist svo:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Laun forseta Íslands og forsetaritara skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. og 2. mgr. 5. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki meiri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sömu ákvæðum 1. apríl og 1. október 2028.
3. Fyrirsögn I. kafla verði: Breyting á lögum um starfskjör og skrifstofu forseta Íslands, nr. 10/1990.
4. Í stað orðanna „Fjársýsla ríkisins“ í 14. gr. komi: Seðlabankinn.
5. Í stað „1., 3., 5., 6., 8., 10.–12., 14. og 16. gr.“ í 2. málsl. 18. gr. komi: 1., 2., 4., 6., 7., 9., 11.–13., 15. og 17. gr.
Sigmundur Ernir Rúnarsson var fjarverandi við afgreiðslu en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 28. maí 2026.
| Arna Lára Jónsdóttir, form. |
Ragna Sigurðardóttir, frsm. | Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | |
| Pawel Bartoszek. | Sigmundur Ernir Rúnarsson. | ||