Ferill 300. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 1243  —  300. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Landsvirkjun, Landsneti, HS Orku, Frumtaki Ventures ehf., Icelandair Group, Isavia, Qair Ísland ehf., Samorku, Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Seðlabanka Íslands, Orkuveitunni og Bændasamtökum Íslands og Friðrik Árna Friðriksson Hirst.
    Nefndinni bárust fjórtán umsagnir auk tveggja minnisblaða frá atvinnuvegaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
    Með frumvarpinu eru lögð til ný heildarlög um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Rýni samkvæmt frumvarpinu vísar til mats á því hvort viðskiptaráðstafanir, sem tryggja erlendum aðilum eignarhald, veruleg áhrif eða yfirráð yfir atvinnufyrirtækjum hér á landi, ógni þjóðaröryggi eða allsherjarreglu. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að frumvarpið standi í samhengi við alþjóðlega þróun á þessu löggjafarsviði, en flest ríki á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) hafa sett löggjöf sambærilega þeirri sem lögð er til með frumvarpinu.
    Frumvarp sama efnis var upphaflega lagt fram á 154. löggjafarþingi ( 726. mál) en náði ekki fram að ganga. Frumvarpið er nú lagt fram í annað sinn með ýmsum breytingum, m.a. með hliðsjón af sjónarmiðum frá fyrra umsagnarferli sem vörðuðu til að mynda frekari þrengingu á gildissviði og einföldun á málsmeðferð.
    Við meðferð málsins fyrir nefndinni voru umsagnaraðilar einhuga um mikilvægi þess að sett yrði löggjöf um rýni erlendra fjárfestinga á Íslandi sem stenst alþjóðlegan samanburð. Tryggja þurfi að til staðar sé skýrt og skilvirkt ferli til að rýna erlendar fjárfestingar með tilliti til þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Aftur á móti mátti einnig finna í umsögnum til nefndarinnar athugasemdir og tillögur um breytingar á ýmsum ákvæðum frumvarpsins.

Tengdir aðilar (12. tölul. 2. gr.).
    Í 12. tölul. 2. gr. frumvarpsins er hugtakið tengdir aðilar skilgreint í a–g-lið. Ákvæðið lýsir ákveðnum tengslum milli aðila, einstaklinga og/eða lögaðila sem rétt þykir að leiði til þess að þeir teljist tengdir aðilar í skilningi ákvæða frumvarpsins og séu því jafnan virtir sem ein heild. Í skýringum við ákvæðið segir að við mótun þess hafi m.a. verið horft til skilgreiningar á hugtakinu samstarf í 100. gr. laga um yfirtökur, nr. 108/2007.
    Í umsögnum til nefndarinnar komu fram sjónarmið um að skilgreiningin á tengdum aðilum innihaldi opin hugtök sem kynni að auka óvissu.
    Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 10. mars sl., er bent á að g-liður 12. tölul. vísi að öðru leyti til skilgreiningar tengdra aðila samkvæmt settum reikningsskilareglum eins og þær hljóða hverju sinni, sbr. lög um ársreikninga. Þá tiltók ráðuneytið að reikningsskilareglur séu vel þekktar í fyrirtækjarekstri og verði því ekki í raun talinn leika vafi á því hvað felist í tengdum aðilum samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum reglum og stöðlum. Rétt hafi þótt að tilgreina algengar tegundir tengsla í dæmaskyni.
    Meiri hlutinn fellst á afstöðu ráðuneytisins um að ekki sé ástæða til að leggja til breytingu á 12. tölul. 2. gr. þar sem hann sé í samræmi við skilgreiningu í alþjóðlegum reikningsskilastöðum og gildandi löggjöf á öðrum sviðum.

Fæðuöryggi (2. tölul. 3. gr.).
    Í 3. gr. frumvarpsins eru taldir upp geirar og starfsemi sem lagt er til að verði skilgreind sem viðkvæm svið í skilningi ákvæða frumvarpsins. Innlendir rekstraraðilar sem starfa á þeim sviðum sem 3. gr. kveður á um falla undir skyldurýni samkvæmt frumvarpinu. Í 1. tölul. er kveðið á um mikilvæga innviði. Þá fjallar 2. tölul. um útvegun eða framleiðslu á mikilvægum aðföngum, þ.m.t. í tengslum við orku eða hráefni eða vegna fæðuöryggis.
    Í umsögn Bændasamtaka Íslands til nefndarinnar er lagt til að við 1. tölul. um mikilvæga innviði bætist vísun til landbúnaðar og landbúnaðarlands. Telja samtökin að með þessum hætti sé hægt að tengja landbúnað við frumvarpið og þar með verja hann frekar, enda undirstöðuatvinnugrein og grundvöllur fæðu- og matvælaöryggis í landinu.
    Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 10. mars sl., var bent á að vísað sé til fæðuöryggis í 2. tölul. 3. gr. Tók ráðuneytið fram að hugtakið hafi breiða skírskotun og standi í tengslum við matvælaframleiðslu og annan landbúnað. Með því ætti vísun til fæðuöryggis að ná utan um þau sjónarmið sem Bændasamtökin reifa í umsögn sinni.
    Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu að ekki sé ástæða til að fella viðskipti með jarðir með almennum hætti undir ákvæði frumvarpsins. Kaup á jörðum falli undir ákvæði sérlaga, til að mynda jarðalög, nr. 81/2004, og lög um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, nr. 19/1966. Jarðaviðskipti kunni þó í einhverjum tilvikum að falla undir ákvæði frumvarpsins um skyldu- eða frumkvæðisrýni en þá með óbeinum hætti að öðrum skilyrðum uppfylltum, t.d. ef erlendur aðili fjárfestir í innlendum rekstraraðila og sá rekstraraðili á fasteignaréttindi.

Viðkvæmt svið (7. tölul. 3. gr.).
    Í 3. gr. frumvarpsins um viðkvæm svið er kveðið á um að ráðherra skuli tilgreina nánar í reglugerð þá starfsemi sem fellur undir töluliði greinarinnar.
    Í umsögnum til nefndarinnar komu fram sjónarmið um að 7. tölul. 3. gr. væri of yfirgripsmikill þar sem ekki væri skilgreint frekar hvaða tegund af tækni gæti fallið undir hann. Ráðherra væri því falið frjálst mat til þeirrar ákvörðunar í reglugerð.
    Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 25. mars sl., kemur fram að eftir því sem ráðuneytið kemst næst er mikilvæg tækni eins og 7. tölul. 3. gr. kveður á um undirorpin fjárfestingarýni í helstu samanburðarlöndum með einum eða öðrum hætti. Í 4. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/452 um almenna umgjörð um reglur um fjárfestingarýni í löggjöf aðildarríkja sambandsins er kveðið á um að mikilvæg tækni teljist til viðkvæms sviðs. Undir það fellur m.a. tækni í tengslum við gervigreind, hálfleiðara, netöryggi, varnamál, orkugeymslu, skammtafræði og kjarnorku auk nanótækni og líftækni. Þá stendur yfir vinna hjá Evrópusambandinu við endurskoðun á reglugerðinni og fyrirsjáanlegt er að mikilvæg tækni muni áfram falla undir skyldurýni.
    Þá tók ráðuneytið fram í minnisblaði sínu, dags. 10. mars sl., að ekki væri unnt að fallast á að hið afmarkaða valdframsal til ráðherra skv. 3. gr. færi gegn kröfum stjórnarskrárinnar. Reglugerðarheimildin lýtur að afmörkuðum atriðum sem ákvæðið tiltekur. Ráðherra yrði jafnframt sem endranær bundinn af reglum stjórnsýsluréttar við meðferð slíkrar valdheimildar.
    Meiri hlutinn áréttar að reglugerð sem sett verður skv. 3. gr. frumvarpsins muni á ítarlegan hátt útfæra hvaða annars konar mikilvæg tækni falla undir 7. tölul. ákvæðisins. Þá bendir meiri hlutinn á að áþekkar reglugerðarheimildir er nú þegar að finna í lögum, sbr. 3. gr. laga um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, nr. 78/2019, og reglugerðir nr. 866/2020 og 1255/2020. Sú tilhögun hefur ekki valdið vafa við framkvæmd þeirra laga. Meiri hlutinn undirstrikar að mikilvægt sé að tíminn fram að gildistöku laganna verði nýttur til ítarlegs samráðs með hagaðilum um efni reglugerðarinnar.

Tveggja fasa málsmeðferð og frestir (8. gr.).
    Í greinargerð kemur fram að ljóst sé að málsmeðferð samkvæmt frumvarpinu geti haft í för með sér tafir á viðskiptum sem þegar eru frágengin milli aðila. Því sé það mikilvægt að rýni sé eins skilvirk og kostur er og að hún byggist á forgangsröðun veigameiri og flóknari mála þar sem raunveruleg þörf er á rýni fram yfir smærri og einfaldari mál þar sem athugun leiði fljótt í ljós að ekki sé þörf á viðamikilli málsmeðferð. Í ljósi þess kveður frumvarpið á um að málsmeðferð ráðherra verði tvískipt í fyrri og síðari fasa með það að markmiði að rýniferlið standi ekki lengur en nauðsyn ber til. Fyrri fasi skv. 1. mgr. 8. gr. kveður á um að ráðherra taki afstöðu innan 15 virkra daga. Telji ráðherra þörf á frekari rýni getur hann skv. 2. mgr. ákvæðisins beint máli yfir í síðari fasa og bætast þá við 50 virkir dagar við frestinn. Þann frest getur ráðherra síðan framlengt um allt að 25 virka daga ef nauðsyn krefur.
    Í umsögnum til nefndarinnar var vikið að frestum skv. 8. gr. og áréttað mikilvægi skjótrar málsmeðferðar. Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 10. mars sl., segir að ekki sé ástæða til að ætla að þeir frestir sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu verði ávallt fullnýttir, hvort heldur í fasa 1 eða 2. Þá ætti það að heyra til undantekninga að hefja þurfi fasa 2 miðað við reynslu af framkvæmd sambærilegrar löggjafar í öðrum ríkjum. Jafnframt mætti ætla að með frekari reynslu af framkvæmd ákvæða frumvarpsins taki málsmeðferð í mörgum tilvikum skemmri tíma.
    Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að í hvívetna verði allt kapp lagt á að haga málsmeðferð með eins skilvirkum hætti og kostur er.

Breytingartillögur.
Innlendur rekstraraðili (4. tölul. 2. gr.).
    Í 4. tölul. 2. gr. frumvarpsins er hugtakið innlendur rekstraraðili skilgreint. Í umsögn Seðlabanka Íslands kom fram að samkvæmt töluliðnum mætti gera ráð fyrir því að samningar og aðrar ráðstafanir sem lögaðilar, þ.m.t. stofnanir og stjórnvöld, framkvæma falli undir ákvæði laganna þegar umræddir aðilar gera samninga eða framkvæma ráðstafanir sem falla undir 5. gr. frumvarpsins. Seðlabankinn benti jafnframt á að með lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019, er bankanum falið að sinna ýmsum viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans, eins og ýmsum verkefnum tengdum fjármálainnviðum. Með hliðsjón af sjálfstæði sínu til að sinna lögbundnum verkefnum taldi Seðlabankinn að betur færi á því að allur vafi væri tekinn af um það hvort frumvarpið næði til allra samninga og ráðstafana sem hann framkvæmdi í því sambandi.
    Að teknu tilliti til framangreinds telur meiri hlutinn rétt að skerpt sé á hugtakinu innlendur rekstraraðili í 2. gr. Meiri hlutinn leggur því til að tekið verði fram í 4. tölul. að stofnanir og stjórnvöld á vegum íslenska ríkisins sem og sveitarfélög falli ekki undir skilgreiningu töluliðarins.

Erlendur aðili (f-liður 6. tölul. 2. gr.).
    Í 6. tölul. 2. gr. frumvarpsins er hugtakið erlendur aðili skilgreint í a–g-lið. Í skýringum við töluliðinn segir að hér sé um að ræða grundvallarhugtak enda miðast ákvæði frumvarpsins við ráðstafanir sem erlendir aðilar standa að. Í f-lið er lýst tilviki þar sem innlendur rekstraraðili skv. 4. tölul. telst jafnframt vera erlendur aðili í skilningi frumvarpsins. Það á við um innlendan rekstraraðila ef 25% eða meira af eignarhlutum eða atkvæðisrétti hans er beint eða óbeint í eigu erlends eða erlendra aðila sem falla undir annan eða aðra stafliði 6. tölul., miðað við samanlagða hlutdeild einstakra aðila og tengdra aðila.
    Í umsögnum til nefndarinnar komu fram ábendingar um að það kynni að vera óeðlilegt að innlendur rekstraraðili falli utan skilgreiningar erlends aðila í þeim tilvikum þar sem hann er að verulegum hluta í eigu erlendra aðila, en enginn þeirra á 25% eða meira af atkvæðisrétti. Að óbreyttu myndi til dæmis innlendur rekstraraðili ekki teljast erlendur aðili ef hann væri samtals 96% í eigu fjögurra ótengdra erlendra aðila og hver þeirra ætti einungis 24% hlut.
    Meiri hlutinn telur rétt að bregðast við framangreindri ábendingu og leggur til breytingu á f-lið 6. tölul. 2. gr. þess efnis að ákvæðið taki til innlends rekstraraðila ef samanlagt 50% eða meira af eignarhlutum eða atkvæðisrétti hans er beint eða óbeint á hendi erlendra aðila óháð eignarhluta hvers og eins og án tillits til þess hvort um tengda aðila er að ræða.

Nýstofnuð fyrirtæki (4. mgr. 4. gr.).
    Í 4. gr. frumvarpsins er kveðið á um skyldu til tilkynningar vegna tiltekinna fjárfestinga o.fl. Þar segir í 4. mgr. að tilkynningarskylda samkvæmt ákvæðinu gildi ekki um ráðstafanir þar sem fjárframlag erlends aðila til innlends rekstraraðila, sem fellur undir 2.–7. tölul. 3. gr., nemur fjárhæð sem er lægri en 800 millj. kr. miðað við samanlagt fjárframlag erlends aðila og tengdra aðila í allt að þrjú ár í kjölfar nýstofnunar viðkomandi rekstraraðila, enda fari erlendi aðilinn ásamt tengdum aðilum ekki með veruleg áhrif eða yfirráð yfir rekstraraðilanum. Fjárhæð þessi taki síðan breytingum 1. janúar ár hvert í samræmi við vísitölu neysluverðs. Með þessu er tekið tillit til m.a. hagsmuna sprota- og tæknifyrirtækja að því er varðar aðgengi að erlendri fjármögnun á fyrstu árum starfsemi þeirra.
    Í umsögn Frumtak Ventures var bent á að fjárhæð 4. mgr. 4. gr. væri ekki rökstudd sérstaklega og líklegt yrði að meiri hluti fjárfestinga erlendra aðila í innlendum tæknifyrirtækjum myndi falla innan markanna.
    Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 10. mars sl., var í fyrsta lagi bent á að hafa þurfi í huga að frumvarpið felur ekki í sér hömlur á erlendri fjármögnun almennt séð. Ákvæði frumvarpsins um skyldurýni skv. 4. og 5. gr. gildir einungis um ákveðnar gerðir ráðstafana sem uppfylla þau afmörkuðu skilyrði sem þar er kveðið á um. Að því gættu yrðu aðrar ráðstafanir sem ekki falla undir ákvæði frumvarpsins ekki rýndar. Í annan stað telur ráðuneytið unnt að taka fjárhæðarmörk 4. mgr. 4. gr. til endurskoðunar telji nefndin tilefni til þess.
    Í ljósi framangreinds er það mat meiri hlutans að tilefni sé til að hækka fjárhæðarmörk málsgreinarinnar. Meiri hlutinn hafði hliðsjón af því að sams konar ákvæði í dönskum lögum kveður á um 75 millj. danskra kr. sem hámark. Leggur meiri hlutinn til breytingu þess efnis að fjárhæð 4. mgr. 4. gr. hækki um 200 millj. kr. og verði því 1 milljarður kr.

Láns- og fjármögnunarsamningar (1. tölul. 1. mgr. 5. gr.).
    Í 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins er kveðið á um tilkynningarskyldu vegna láns- og fjármögnunarsamninga til lengri tíma en eins árs. Sú skylda er m.a. bundin því skilyrði að heildarfjárhæð skuldbindingar, að meðtöldum vöxtum og kostnaði, nemi að minnsta kosti 25% eða meira af hreinni ársveltu rekstraraðilans, þ.e. lántakans, á næstliðnu reikningsári. Heildarfjárhæð láns skuli þó ekki vera lægri en 50 millj. kr. og tekur sú fjárhæð breytingum árlega eftir vísitölu neysluverðs.
    Í umsögnum til nefndarinnar var 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. gagnrýndur. Bent var til að mynda á að töluliðurinn hefði það í för með sér að fyrirtæki sem fjármögnuðu sig á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum þyrftu að setja fyrirvara í slík útboð um tilkynningarskyldu ef einn aðili, eða aðilar tengdir honum, eignast of stóran hlut í útgáfunni. Höfðu umsagnaraðilar áhyggjur af því að fyrirvarar sem þessir kynnu að leiða til þess að þátttaka í alþjóðlegri skuldabréfaútgáfu yrði dræm eða verri kjör myndu bjóðast. Jafnframt var bent á að fjármögnunarþarfir væru oft verulegar og sveifluðust nokkuð í hlutfalli af ársveltu. Tenging fjárhæðar við ársveltu ætti því ekki við þegar tímabundnar og stórar langtímafjárfestingar koma til. Þá var bent á að láns- og fjármögnunarsamningar væru ekki meðal þeirra samninga sem háðir væru rýni samkvæmt dönskum lögum um fjárfestingarýni sem höfð var hliðsjón af við gerð frumvarpsins.
    Ráðuneytið telur samkvæmt minnisblaði þess, dags. 10. mars sl., að veltumörk 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. séu afar há í almennu samhengi, enda séu þau við það miðuð að einn erlendur aðili, eða tengdir aðilar samanlagt, eigi kröfuréttindi á hendur innlendum lántaka á viðkvæmu sviði sem nemi a.m.k. 25% af heildarveltu hans á ári. Taki það mið af hreinni ársveltu, þ.e. brúttótekjum, en ekki t.d. hagnaði af rekstri. Tekur ráðuneytið fram að þegar fjárhæð lánsskuldbindingar nemi svo háu hlutfalli af ársveltu innlends rekstraraðila sé líklegt að viðkomandi kröfuhafi sé í slíkri áhrifastöðu í reynd að það gæti haft áhrif á þá hagsmuni sem frumvarpinu er ætlað að vernda. Jafnframt bendir ráðuneytið á að samkvæmt framansögðu myndi skuldabréfaútgáfa sem dreifist almennt á marga kröfuhafa ekki virkja skyldurýni á grundvelli töluliðarins, nema svo hátti til að einn þátttakandi í skuldabréfaútgáfunni kaupi svo stóran hlut hennar að skuldabréfaeign hans, eða tengdra aðila samanlagt, nái veltumörkum ákvæðisins. Auk þess þyrfti lánstími samkvæmt skuldabréfinu að vera a.m.k. eitt ár án uppgreiðsluheimildar. Þá tók ráðuneytið fram að ekki væri skynsamlegt að undanþiggja skuldabréfaútgáfu alfarið gildissviði 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. Gæti það haft í för með sér misræmi og hættu á að farið yrði í kringum ákvæðið með því að færa lánveitingu í búning skuldabréfaútgáfu. Vísaði ráðuneytið einnig til skýrslu framkvæmdastjórnarinnar til Evrópuþingsins og ráðsins: Fjórða ársskýrslan um athugun á beinni erlendri fjárfestingu í sambandinu, dags. 17. október 2024. Þar komi fram að ekkert bendi til þess að fjárfestingarýni hafi kælingaráhrif á fjárfestingar innan sambandsins. Auk þess tiltók ráðuneytið að langtímalán teljist til ráðstafana sem geta sætt rýni á grundvelli danskra laga um fjárfestingarýni, sbr. 4. tölul. 4. gr. Investeringsscreeningsloven, sbr. lovbekendtgørelse nr. 1256/2023.
    Meiri hlutinn áréttar að rýni samkvæmt frumvarpinu verður skjótvirk og ætla má að flest mál verði afgreidd í fasa 1, þ.e. innan 15 virkra daga. Sömuleiðis er fjárfestingarýni vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu orðin viðtekið og þekkt ferli innan allflestra ríkja ESB og OECD. Því sé ekki ástæða til að ætla að slík rýni hér á landi muni gera fjárfestingar í innlendri atvinnustarfsemi minna aðlaðandi fyrir erlenda aðila, þ.m.t. þegar kemur að kaupum á skuldabréfum. Með vísan til alls framangreinds telur meiri hlutinn að málefnalegt sé að rýni skv. 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. fari fram. Meiri hlutinn telur þó réttmætt að koma til móts við umsagnaraðila. Leggur hann því annars vegar til 10% hækkun á veltumörkum 1. tölul. þannig að þau verði 35% og hins vegar breytingu á þá leið að 1. tölul. taki til láns- og fjármögnunarsamninga til lengri tíma en tveggja ára, í stað eins árs.
    Í 3. málsl. 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. segir að ákvæði töluliðarins gildi þó hvorki um lán veitt af fjármálafyrirtækjum sem heyra undir eftirlit Seðlabanka Íslands eða hliðstæðs stjórnvalds á Evrópska efnahagssvæðinu né um lán veitt af alþjóðlegum fjármálastofnunum í eigu ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu.
    Í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, dags. 9. febrúar, var bent á að einungis væri vísað til „fjármálafyrirtækja“ í málsliðnum og því velt upp hvort ætlunin hafi verið að vísa til laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Tóku samtökin fram að samkvæmt fyrrnefndum lögum væru fjármálafyrirtæki einungis lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki. Hugtakið aðili á fjármálamarkaði væri aftur á móti víðtækara og næði jafnframt til vátryggingafélaga o.fl. aðila. Samtökin undirstrikuðu að til þess að afmörkunin verði sem skýrust og afdráttarlaus væri réttast að hafa hliðsjón af skilgreiningum hugtaka í lögum um fjármálafyrirtæki gagnvart þeim aðilum sem fjármálalöggjöf skuli gilda um.
    Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 25. mars, var fallist á tillögu um að vísa til laga um fjármálafyrirtæki, nánar tiltekið hugtaksins aðilar á fjármálamarkaði, sbr. 2. tölul. 1. gr. b, í stað orðsins fjármálafyrirtæki. Benti ráðuneytið jafnframt á að með þessu væri notast við víðtækara hugtak.
    Meiri hlutinn telur tillögu þessa til bóta og leggur til breytingu til samræmis við framangreint. Með þessu nær undantekning málsliðarins til allra tegunda aðila á fjármálamarkaði innan EES.

Samstarfsverkefni um rannsóknir eða þróunarstarfsemi (a-liður 3. tölul. 1. mgr. 5. gr.).
    Í a-lið 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. segir að tilkynna beri ráðherra um samstarfssamninga sem varða verkefni um rannsóknir eða þróunarstarfsemi þar sem erlendur viðsemjandi hefur rétt til að taka úrslitaákvörðun, þ.m.t. neitunarvald, um tilhögun, umfang eða viðfangsefni samstarfsins eða rétt til að nýta sér afurðir þess, enda varði samstarfið mikilvægan þátt í starfsemi hins innlenda rekstraraðila.
    Í umsögn Orkuveitunnar til nefndarinnar kom fram að Orkuveitusamstæðan tæki þátt í fjölmörgum samstarfsverkefnum, bæði með erlendum styrkveitendum og samstarfsaðilum. Sú þátttaka fæli í engu tilfelli í sér eignaraðild eða yfirráð yfir starfsemi samstæðunnar og ætti því að falla utan markmiðs laganna. Orkuveitan benti þó á að ákvæðið, í óbreyttri mynd, gæti haft í för með sér neikvæð áhrif á framgang styrkverkefna og samningaviðræðna. Það ætti einkum við þegar um væri að ræða umsóknir um Evrópustyrki þar sem tímafrestir væru almennt mjög skammir og óumsemjanlegir. Lagði Orkuveitan til að samstarfs- og styrkverkefni sem unnin eru á vegum Evrópusambandsins, Evrópuráðsins og fleiri sambærilegra alþjóðlegra stofnana yrðu undanþegin tilkynningarskyldu, að því marki sem slíkir samningar færu ekki gegn markmiðsákvæði 1. mgr. 1. gr.
    Meiri hlutinn telur ábendingu þessa réttmæta og leggur því til að við a-lið 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. bætist að umræddur stafliður gildi ekki ef erlendi viðsemjandinn er stofnun í eigu ríkja á EES-svæðinu.

Skylda til tilkynningar vegna tiltekinna viðskipta- og samstarfssamninga (b- og c-liður 3. tölul. 1. mgr. 5. gr.).
    Í b-lið 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. er kveðið á um að birgjasamningar um aðföng er varða mikilvæga þætti í starfsemi rekstraraðila séu, að öðrum skilyrðum uppfylltum, tilkynningarskyldir samkvæmt stafliðnum. Sömuleiðis eru skv. c-lið sama töluliðar rekstrar-, hönnunar-, byggingar- eða þjónustusamningar er lúta að mikilvægum mannvirkjum, aðstöðu, búnaði eða kerfum rekstraraðila mikilvægra innviða tilkynningarskyldir, að uppfylltum nánari skilyrðum samkvæmt ákvæðinu.
    Fram komu ábendingar í fjölda umsagna til nefndarinnar um að 5. gr. leggi tilkynningarskyldu á stóran hluta láns- og viðskiptasamninga rekstraraðila mikilvægra innviða. Flestir samningar af því tagi snúi að eðlilegum hluta af rekstri og innkaupum fyrirtækja. Sú tilkynningarskylda væri jafnframt óháð því hvort samningurinn hafi nokkuð með mikilvæga innviði að gera eða feli í sér að erlendur aðili öðlist veruleg áhrif eða yfirráð þannig að ógnað geti þjóðaröryggi eða allsherjarreglu. Fram kom að á meðan beðið væri eftir samþykki ráðherra komi samningar sem falla undir 5. gr. ekki til framkvæmda og geti það orðið afar íþyngjandi. Sérstaklega var bent á að fyrirtæki sem starfa á alþjóðlegum mörkuðum séu í mikilli samkeppni um verktaka, birgja og ráðgjafa. Óþarfatafir á samningum gætu þar af leiðandi leitt til þess að færri bjóði í útboð, hærra verðs og lakari samningskjara. Þá bentu umsagnaraðilar á að óbreytt 5. gr. fæli í sér að óþarflega margir samningar yrðu rýndir og myndi það eflaust leiða til lengri málsmeðferðartíma sökum anna.
    Meiri hlutinn telur rétt að bregðast við athugasemdum umsagnaraðila um að þrengja gildissvið 5. gr. Meiri hlutinn tekur þó undir með ráðuneytinu, sbr. minnisblað þess, dags. 25. mars sl., að skilyrði um að erlendur aðili öðlist yfirráð eða veruleg áhrif yfir innlendum rekstraraðila á viðkvæmu sviði einskorðist við samninga sem falla undir b- og c-lið 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. Í minnisblaðinu segir jafnframt að ætla verði að svo hátti einungis til í undantekningartilvikum að slíkir samningar veiti erlendum aðila yfirráð eða veruleg áhrif yfir innlendum rekstraraðila á viðkvæmu sviði. Í þeim tilvikum standa almennt rök til þess að sá samningur sæti rýni eins og aðrar viðskiptaráðstafanir sem hafa slíkt í för með sér. Hvað varðar 1., 2. og a-lið 3. tölul. fellst meiri hlutinn á með ráðuneytinu að slíkir samningar séu almennt ekki þess eðlis að þeir skapi yfirráð í hefðbundnum skilningi. Ef svo væri myndi samningurinn hvort sem er falla undir 4. gr. frumvarpsins sem tekur til þess þegar erlendur aðili öðlast beint, eða óbeint, 25% eða meira af hlutafé eða atkvæðisrétti eða veruleg áhrif eða yfirráð gagnvart innlendum rekstraraðila. Að því gættu leggur meiri hlutinn til breytingar til samræmis við framangreint.
    Í b- og c-lið 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. er kveðið á um að rekstraraðili sé bundinn við samning lengur en 24 mánuði eða uppsagnarfrestur sé lengri en 12 mánuðir. Það er mat meiri hlutans að rök standi til þess að lengja báða þessa tímafresti til hagsbóta fyrir samningsaðila. Leggur hann því til breytingu þess efnis að kveðið verði á um 36 mánaða binditíma samnings og 24 mánaða uppsagnarfrest.
    Þessu til viðbótar vill meiri hlutinn undirstrika tvær heimildir ráðherra samkvæmt frumvarpinu. Annars vegar 3. mgr. 5. gr. sem kveður á um heimild ráðherra til að undanþiggja ákveðnar tegundir samninga skyldurýni með reglugerð. Hins vegar kveður 4. mgr. 6. gr. á um heimild ráðherra til að mæla fyrir um það í reglugerð að erlendir aðilar sem séu ríkisborgarar samstarfs- eða bandalagsríkis eða lögaðilar með staðfestu í slíku ríki skuli undanþegnir tilkynningarskyldu skv. 4. og 5. gr. Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að hafa þessar heimildir í huga og nýta sér þær strax og í ljós kemur að fenginni reynslu að tilteknar samningstegundir eða samstarfs- eða bandalagsríki kalli ekki á sérstaka rýni.

Frumkvæðisrýni ráðherra (1. mgr. 6. gr.).
    Í 1. mgr. 6. gr. er kveðið á um heimild ráðherra til að efna til frumkvæðisrýni í tilvikum sem ekki falla undir ákvæði frumvarpsins um skyldurýni, að nánari skilyrðum uppfylltum, ef nauðsynlegt þykir vegna þjóðaröryggis eða allsherjarreglu. Frumkvæðisheimild 1. mgr. verður þó ekki beitt ef liðin eru fimm ár frá því að viðkomandi ráðstöfun átti sér stað með samningsgerð eða á annan hátt.
    Í umsögnum til nefndarinnar komu fram athugasemdir um hversu víðtæk heimild ráðherra væri og gæti því valdið óvissu og ófyrirsjáanleika. Jafnframt var bent á að frestur ráðherra til að hefja frumkvæðisrýni væri heldur of rúmur.
    Meiri hlutinn vill í þessum efnum undirstrika að fram kemur í skýringum við ákvæðið í greinargerð að þess megi vænta að frumkvæðisrýni verði beitt sparlega í framkvæmd, enda ættu flest tilvik sem máli skipta að falla undir skyldurýni skv. 4. og 5. gr. Að mati meiri hlutans er þó tilefni til að endurskoða frest ráðherra samkvæmt ákvæðinu. Leggur meiri hlutinn því til breytingu þess efnis að ekki séu liðnir meira en sex mánuðir frá því að ráðherra varð kunnugt um viðkomandi ráðstöfun og fimm ár frá því að ráðstöfunin átti sér stað. Með þessu er ráðherra gert að bregðast skjótar við þegar honum verður kunnugt um ráðstöfun og hefur mun skemmri frest til að beita heimild til frumkvæðisrýni.

Frumkvæðisrýni ráðherra í útboði (3. mgr. 6. gr.).
    Í 3. mgr. 6. gr. er ráðherra veitt heimild til að ákveða að allir erlendir aðilar sem eru þátttakendur í útboði innlends rekstraraðila mikilvægra innviða skv. 1. tölul. 3. gr. tilkynni ráðherra um tilboð sitt skv. 7. gr. Ef ráðherra hefur kunngert slíka ákvörðun er kaupanda í útboði óheimilt að velja tilboð, sem sæta skal rýni, á bindandi hátt áður en málsmeðferð samkvæmt ákvæðum frumvarpsins er lokið. Í þessu felst að rýni fer fram án þess að bindandi samningur sé kominn á við erlendan aðila.
    Í umsögnum til nefndarinnar komu fram áhyggjur um að í þessu fælist tvöföld rýni. Annars vegar að útboðið yrði rýnt á grundvelli 3. mgr. 6. gr. og hins vegar að samningurinn í kjölfarið yrði rýndur, ef hann væri tilkynningarskyldur samkvæmt frumvarpinu. Með vísan til minnisblaðs ráðuneytisins, dags. 25. mars sl., vill meiri hlutinn árétta að heimild ráðherra skv. 3. mgr. 6. gr. var ekki ætlað að verða beitt þegar samningur sem til stendur að gera að loknu útboði uppfyllir skilyrði 5. gr., enda með öllu óþarft að nýta þá heimild við þær aðstæður. Frumkvæðisrýni skv. 3. mgr. 6. gr. getur aðeins átt við um ráðstafanir sem ekki eru þegar háðar skyldurýni.
    Meiri hlutinn leggur því til að við 3. mgr. bætist nýr málsliður sem kveði á um að útboð sem lýtur að gerð samnings sem háður er tilkynningarskyldu skv. 5. gr. falli ekki undir frumkvæðisrýni málsgreinarinnar. Meiri hlutinn taldi einnig rétt að gildissvið 3. mgr. 6. gr. yrði takmarkað við útboð opinberra innviðafyrirtækja, þ.e. þau sem falla undir lög um opinber innkaup, nr. 120/2016. Um þau útboð gilda sérreglur í fyrrnefndum lögum og tengdum reglugerðum, sem eru um margt ítarlegri en reglur sem eiga við um útboð og innkaup einkafyrirtækja.

    Að lokum leggur meiri hlutinn til þrjár minni háttar orðalagsbreytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við 2. gr.
                  a.      Við 4. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó falla hér ekki undir stjórnvöld og stofnanir á vegum íslenska ríkisins eða sveitarfélög.
                  b.      Í stað hlutfallstölunnar „25%“ í f-lið 6. tölul. komi: samanlagt 50%.
                  c.      Í stað orðanna „í eigu erlends eða erlendra aðila sem falla undir annan eða aðra stafliði þessa töluliðar, miðað við samanlagða hlutdeild einstakra aðila og tengdra aðila“ í f-lið 6. tölul. komi: á hendi erlendra aðila óháð eignarhlut hvers og eins og án tillits til þess hvort um tengda aðila er að ræða.
     2.      Í stað orðanna „800 millj.“ í 4. mgr. 4. gr. komi: 1 milljarður.
     3.      Við 1. mgr. 5. gr.
                  a.      Í stað orðanna „eins árs“ í 1. málsl. 1. tölul. komi: tveggja ára.
                  b.      Í stað hlutfallstölunnar „25%“ í 1. málsl. 1. tölul. komi: 35%.
                  c.      Í stað orðsins „fjármálafyrirtækjum“ í 3. málsl. 1. tölul. komi: aðilum á fjármálamarkaði, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 1. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
                  d.      Við a-lið 3. tölul. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ákvæði þessa stafliðar gildir þó ekki ef erlendi viðsemjandinn er stofnun í eigu ríkja á Evrópska efnahagssvæðinu.
                  e.      Við 1. málsl. b-liðar 3. tölul. bætist: ef erlendur aðili öðlast veruleg áhrif eða yfirráð yfir innlenda rekstraraðilanum á grundvelli slíks samnings.
                  f.      Í stað tölunnar „24“ í 2. málsl. b-liðar 3. tölul. komi: 36.
                  g.      Í stað tölunnar „12“ í 2. málsl. b-liðar 3. tölul. komi: 24.
                  h.      Við 1. málsl. c-liðar 3. tölul. bætist: ef erlendur aðili öðlast veruleg áhrif eða yfirráð yfir innlenda rekstraraðilanum á grundvelli slíks samnings.
                  i.      Í stað orðanna „er einnig tilkynningarskyldur ef hann uppfyllir“ í 2. málsl. c-liðar 3. tölul. komi: þarf auk þess að uppfylla.
                  j.      Í stað tölunnar „24“ í 2. málsl. c-liðar 3. tölul. komi: 36.
                  k.      Í stað tölunnar „12“ í 2. málsl. c-liðar 3. tölul. komi: 24.
     4.      Við 6. gr.
                  a.      Í stað orðanna „liðin meira en fimm ár frá því að ráðstöfunin átti sér stað“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: liðnir meira en sex mánuðir frá því að ráðherra varð kunnugt um viðkomandi ráðstöfun og ekki meira en fimm ár frá því að ráðstöfunin átti sér stað.
                  b.      Á eftir tilvísuninni „skv. 1. tölul. 3. gr.“ í 1. málsl. 3. mgr. komi: á sviði sem fellur undir gildissvið laga um opinber innkaup.
                  c.      Á eftir 1. málsl. 3. mgr. komi nýr málsliður, svohljóðandi: Þetta á þó ekki við ef útboð lýtur að gerð samnings sem háður er tilkynningarskyldu skv. 5. gr.
     5.      Við 19. gr.
                  a.      Í stað orðsins „laganna“ komi: laga þessara.
                  b.      Í stað orðsins „laganna“ í fyrirsögn komi: laga þessara.


    Sigmundur Ernir Rúnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Stefán Vagn Stefánsson og Vilhjálmur Árnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 28. maí 2026.

Arna Lára Jónsdóttir,
form., frsm.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir. Pawel Bartoszek.
Ragna Sigurðardóttir. Sigmundur Ernir Rúnarsson.