Ferill 230. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1244 — 230. mál.
Breyttur texti.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um brottfararstöð.
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti, Barna- og fjölskyldustofu, Barnaheillum, Blaðamannafélagi Íslands, Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR), FTA – félagi talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, Íslandsdeild Amnesty International, Kvenréttindafélagi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp, Lögmannafélagi Íslands, lögreglustjóranum á Suðurnesjum, Mannréttindastofnun Íslands, námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands, No Borders Iceland, Rauða krossinum á Íslandi, ríkislögreglustjóra, Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Samtökum kvenna af erlendum uppruna, Samtökunum ’78, Solaris, umboðsmanni Alþingis, umboðsmanni barna, UNICEF á Íslandi, Ungheillum, ungliðahreyfingu Íslandsdeildar Amnesty International, ungmennaráði UNICEF á Íslandi, Útlendingastofnun, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, ÖBÍ réttindasamtökum og Öldu – félagi um sjálfbærni og lýðræði.
Nefndinni bárust 33 umsagnir auk tveggja minnisblaða frá dómsmálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er kveðið á um heildarlög um brottfararstöð, um þær meginreglur sem gilda um vistun útlendinga þar og um réttindi þeirra og skyldur. Þá eru lagðar til breytingar á öðrum lögum, þar á meðal lögum um útlendinga, nr. 80/2016, m.a. varðandi vistun á brottfararstöð og til að innleiða skimunarreglugerð Evrópusambandsins.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt um brottfararstöð.
Samkvæmt skilgreiningu í frumvarpinu er brottfararstöð staður þar sem útlendingur sætir frelsisskerðingu samkvæmt lögum um útlendinga vegna ákvörðunar um að hann skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum. Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu byggjast ákvæði frumvarpsins á IV. kafla tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginlega staðla og málsmeðferð í aðildarríkjunum varðandi endursendingu ríkisborgara þriðju landa sem dvelja þar ólöglega (hér eftir brottvísunartilskipunin). Með frumvarpinu verði brottvísunartilskipunin innleidd að fullu, sem Ísland er skuldbundið af á grundvelli þátttöku í Schengen-samstarfinu. Þá er vísað til þess að frumvarpið sé samið að fyrirmynd norskra laga.
Meiri hlutinn tekur undir nauðsyn þess að bregðast við því úrræðaleysi sem einkennir stöðuna í dag þar sem eina leið lögreglu í vissum tilvikum er að úrskurða útlendinga í gæsluvarðhald án þess að fyrir liggi grunur um refsiverða háttsemi. Ljóst er að þegar einstaklingum er synjað um dvöl hér á landi ber þeim að yfirgefa landið. Almennt fá allir tækifæri til að fara sjálfviljugir úr landi að undanskildum þeim sem hafa fengið synjun á umsókn sinni á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Því er mikilvægt að hafa í huga að í mörgum tilvikum getur viðkomandi farið sjálfviljugur til síns heimaríkis eða ríkis þar sem viðkomandi hefur heimild til dvalar og kann einnig eftir atvikum að eiga rétt á enduraðlögunarstyrk. Þá undirstrikar meiri hlutinn að frelsissvipting einstaklinga samkvæmt frumvarpi þessu er ekki í réttarvörsluskyni vegna gruns um refsiverða háttsemi heldur almennt í því skyni að tryggja að viðkomandi einstaklingar séu til staðar við framkvæmd ákvörðunar um að viðkomandi skuli yfirgefa landið og þegar mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar hjá stjórnvöldum. Vistun á brottfararstöð á því aldrei að vera á grundvelli mögulegra brota og sakamáls og skal vistun vara í eins stuttan tíma og mögulegt er innan þess tímaramma sem heimilaður er samkvæmt frumvarpinu.
Þá vill meiri hlutinn árétta, í ljósi þess að horft er til regluverks í Noregi og innan Evrópusambandsins sem fyrirmyndar, að fyrir liggur að útfærsla brottfararúrræða þar hefur sætt gagnrýni. Því sé mikilvægt að leggja sérstakt mat á úrræðið hér á landi og gæta að því að mannúð og mannréttindi verði tryggð í hvívetna og dreginn verði lærdómur af reynslu annarra ríkja. Meiri hlutinn leggur áherslu á að íþyngjandi úrræðum skuli aðeins beitt ef brýn nauðsyn krefur.
Samræmi við stjórnarskrána og alþjóðlegar skuldbindingar.
Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að lagt hafi verið mat á samræmi frumvarpsins við ákvæði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í greinargerð með frumvarpinu hvað það varðar. Við umfjöllun nefndarinnar um málið var ítarlega fjallað um stöðu þess viðkvæma hóps sem kann að falla undir úrræðið og nauðsyn þess að tryggja að mannréttindi hópsins séu ávallt höfð að leiðarljósi.
Ljóst er að ákvörðun um vistun á brottfararstöð skal vera það úrræði þegar kemur að framkvæmd frávísana og brottvísana sem einungis skal grípa til þegar fullnægjandi mat liggur fyrir um að vægara úrræði muni ekki skila árangri. Við ákvörðun um vistun á brottfararastöð ber stjórnvöldum að taka tillit til hagsmuna og réttinda þeirra sem valdbeiting beinist gegn með hliðsjón af því markmiði sem stefnt er að. Leggja þarf einstaklingsbundið mat á hverja ákvörðun sem tekin er um vistun á brottfararstöð. Almenn ólögfest grundvallarregla stjórnsýsluréttar um meðalhóf skal ávallt liggja til grundvallar töku stjórnvaldsákvarðana og við beitingu valdheimilda, sbr. einnig 12. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Þá er í lögreglulögum, nr. 90/1996, kveðið á um sérstaka meðalhófsreglu við beitingu lögregluvalds, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 14. gr. laganna.
Samkvæmt 1. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar má engan svipta frelsi nema samkvæmt heimild í lögum. Hver sá sem sviptur er frelsi, af öðrum ástæðum en vegna gruns um refsiverða háttsemi, á rétt á að dómstóll kveði á um lögmæti þess svo fljótt sem verða má, sbr. 4. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar. Þá skal hver sá sem sviptur er frelsi eiga rétt á að fá að vita tafarlaust um ástæður frelsissviptingarinnar, sbr. 2. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar. Með frumvarpinu er það gert að fortakslausri skyldu að lögregla beri lögmæti ákvörðunar um vistun einstaklinga á brottfararstöð undir héraðsdóm til staðfestingar. Þá kveður frumvarpið á um að einstaklingum verði kynnt skrifleg ákvörðun lögreglu um frelsissviptingu og vistun á brottfararstöð ásamt rökstuðningi á tungumáli sem viðkomandi skilur og miðast réttaráhrif ákvörðunar við birtingu fyrir viðkomandi.
Þá varða þvingunaraðgerðir á borð við líkamsleit og leit í vistarverum, sem mælt er fyrir um í III. kafla frumvarpsins, við ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Í 2. og 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar er kveðið á um skilyrði fyrir því að takmarka friðhelgi einkalífs sem er kveðið á um í 1. mgr. ákvæðisins. Ljóst er að sérstaka lagaheimild þarf til að takmarka stjórnarskrárvarin mannréttindi en einnig getur þurft dómsúrskurð skv. 2. mgr. 71. gr. Meiri hlutinn áréttar að allar ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli slíkra lagaheimilda skulu ávallt byggjast á grundvallarreglunni um meðalhóf og skal því aldrei gengið lengra en nauðsyn krefur við beitingu slíkra heimilda til að ná fram því lögmæta markmiði sem að er stefnt hverju sinni.
Loks ber að geta þess að skv. 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar skal börnum tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst, sbr. einnig 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013 (hér eftir barnasáttmálinn). Nefndin fjallaði ítarlega um stöðu barna samkvæmt frumvarpinu og verður gerð nánari grein fyrir þeirri umfjöllun í kafla um vistun fjölskyldna með börn á brottfararstöð og í kafla um breytingartillögur meiri hlutans.
Að framangreindu virtu telur meiri hlutinn að frumvarpið tryggi réttindi einstaklinga til samræmis við þau lágmarksréttindi sem ákvæði stjórnarskrárinnar kveða á um. Við umfjöllun nefndarinnar um málið bárust ítarlegar umsagnir og gerðar voru alvarlegar athugasemdir við ýmis ákvæði frumvarpsins. Gerð verður nánari grein fyrir umfjöllun nefndarinnar í áliti þessu hvað það varðar, sem og um samræmi frumvarpsins við alþjóðlegar skuldbindingar og hvernig tryggja beri réttindi einstaklinga við framkvæmd laganna. Meiri hlutinn leggur jafnframt til breytingar á frumvarpinu sem gerð verður nánari grein fyrir í kafla að aftan um breytingartillögur, sem er ætlað að koma betur til móts við athugasemdir sem fram komu um málið.
Skilyrði fyrir vistun á brottfararstöð.
Samkvæmt 5. gr. frumvarpsins verður heimilt að vista útlending á brottfararstöð á grundvelli skilyrða í lögum um útlendinga. Lagt er til að sett verði heildarlög um brottfararstöð en mælt fyrir um skilyrði fyrir vistun útlendinga á brottfararstöð og vistunartíma í XIII. kafla laga um útlendinga, þar sem kveðið er á um þvingunar- og rannsóknarúrræði á grundvelli laganna.
Í k-lið 1. tölul. 22. gr. frumvarpsins er lagt til að nýtt ákvæði bætist við lög um útlendinga, þ.e. 114. gr. a, þar sem kveðið verði á um í hvaða tilvikum lögreglu verði heimilt að taka ákvörðun um að frelsissvipta útlendinga og vista á brottfararstöð. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að skilyrðin í a–i-lið ákvæðisins séu mörg samhljóða skilyrðum í 115. gr. gildandi laga um útlendinga, sem kveður á um heimild til að handtaka útlending og úrskurða í gæsluvarðhald, að uppfylltum sambærilegum skilyrðum. Með breytingunni er lagt til að einstaklingar, sem nú kunna að sæta gæsluvarðhaldi í tengslum við ákvörðun sem mælir fyrir um för viðkomandi úr landi, verði frekar vistaðir á brottfararstöð. Samhliða eru lagðar til breytingar á 115. gr. gildandi laga um að ekki verði lengur heimilt að handtaka og færa útlending í gæsluvarðhald til að tryggja flutning hans úr landi. Eftir sem áður getur lögregla áfram krafist gæsluvarðhalds yfir útlendingi á grundvelli b- eða f-liðar 115. gr. laga um útlendinga og laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, sé grunur um refsivert brot, að þartilgreindum skilyrðum uppfylltum.
Fram komu athugasemdir við málið um að heimildir til frelsissviptingar í nýju ákvæði 114. gr. a væru of víðtækar og óskýrar samkvæmt frumvarpinu. Laganefnd Lögmannafélags Íslands benti á að þær heimildir sem lagt er til að veita til vistunar útlendings á brottfararstöð skv. 22. gr. frumvarpsins væru heilt yfir helst til rúmar og þörf væri á frekari afmörkunum á þeim og/eða nánari skilyrðum fyrir beitingu þeirra. Vísað er til þess að frelsissvipting sé mest íþyngjandi þvingunarúrræði sem íslensk lög heimila og þurfi ákvæði sem að því lúta að vera skýr og fyrirsjáanleg. Þá var fyrir nefndinni bent á að munur væri á stöðu einstaklinga sem annars vegar hafa lokið málsmeðferð og er í framhaldi af því gert að yfirgefa landið og hins vegar þeirra sem ekki hafa fengið niðurstöðu um umsókn sína um alþjóðlega vernd. Þannig bentu til að mynda Mannréttindastofnun Íslands og Rauði krossinn á Íslandi á að varhugavert sé að frelsissvipta útlendinga sem hafa ekki fengið niðurstöðu varðandi umsókn sína um alþjóðlega vernd. Bendir Rauði krossinn jafnframt á að umsækjendur um alþjóðlega vernd, óháð tegundum málsmeðferðar sem þeir sæta, hafi almennt átt rétt á þjónustu í samræmi við 33. gr. laga um útlendinga og hafi verið frjálsir ferða sinna á meðan mál þeirra er til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 12. mars 2026, bendir ráðuneytið á að gildandi ákvæði í 115. gr. laga um útlendinga séu að einhverju leyti óskýr um það hvenær heimilt sé að svipta útlending frelsi. Með nýju ákvæði í 114. gr. a sé leitast við að skýra heimildir til frelsissviptingar nánar, með upptalningu á þeim skilyrðum sem uppfylla þurfi til vistunar á brottfararstöð. Auk þess ítrekar ráðuneytið þá áherslu að með frumvarpinu sé ætlunin að víkja frá þeirri framkvæmd að vista útlendinga í fangelsi sem fremur ætti að vista á brottfararstöð þar sem tryggður er viðeigandi aðbúnaður og þjónusta. Tekur ráðuneytið því ekki undir umsagnir um að heimildir til frelsissviptingar útlendinga samkvæmt frumvarpinu séu of víðtækar eða að fólki verði refsað fyrir það eitt að sækja um alþjóðlega vernd. Áréttar ráðuneytið að skilyrði til vistunar umsækjenda um alþjóðlega vernd skv. g- og h-lið nýrrar 114. gr. a eigi einungis við um umsækjendur sem fá líklega synjun um efnismeðferð vegna tiltekinna ástæðna, svo sem ef umsókn þeirra er bersýnilega tilhæfulaus. Þá kemur fram í greinargerð með frumvarpinu að ekki sé um nýmæli að ræða hvað það varðar heldur samsvarandi við ákvæði g-liðar 1. mgr. 115. gr. laga um útlendinga, en skerpt sé á skilyrðum.
Meiri hlutinn hefur skilning á þeim sjónarmiðum sem fram hafa komið um málið og tekur undir þær áherslur sem eru til að mynda tilgreindar í umsögn Rauða krossins á Íslandi og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um að frelsi fólks á flótta skuli vera hið eðlilega viðmið. Meiri hlutinn telur þó þörf á að bregðast við þeirri stöðu sem fyrirkomulag hér á landi er í með því að veita heimildir til vistunar á brottfararstöð í afmörkuðum tilvikum en undirstrikar að það beri að beita vægari úrræðum þegar unnt er og að heimild til vistunar beri að beita sem lokaúrræði og í eins stuttan tíma og mögulegt er.
Vægari úrræði á grundvelli laga um útlendinga.
Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpinu er verið að leggja til breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og þar af leiðandi skipti máli að þær heimildir sem kveðið er á um í frumvarpinu verði túlkaðar í samræmi við önnur ákvæði laganna. Í því samhengi má vísa til 2. gr. laganna þar sem segir að tilgangur laganna sé að kveða á um réttarstöðu og tryggja réttaröryggi útlendinga sem koma til landsins eða fara frá því, sækja um dvalarleyfi eða dveljast hér á landi samkvæmt lögunum. Þá er markmið laganna skv. 4. mgr. 2. gr. að tryggja mannúðlega og skilvirka meðferð stjórnvalda í málefnum útlendinga hér á landi. Jafnframt er í lögum um útlendinga þegar kveðið á um heimild fyrir beitingu vægari úrræða en felast í vistun á brottfararstöð.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um samræmi frumvarpsins við stjórnarskrárvarin réttindi og heimildir til að vista einstaklinga á brottfararstöð undirstrikar meiri hlutinn að ákvörðun um vistun á brottfararstöð skuli vera síðasta úrræði sem gripið er til þegar kemur að framkvæmd frávísana og brottvísana og vægari úrræði duga ekki til. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu verður heimilt að vista útlending á brottfararstöð ef fullnægjandi mat hefur farið fram um að vægari úrræði muni ekki skila árangri. Ekki þurfi að sýna fram á að öll vægari úrræði hafi verið fullreynd heldur telst fullnægjandi að mat hafi farið fram um að ekkert vægara úrræði dugi til.
Fyrir nefndinni var fjallað um hvort þörf væri á að kveða nánar á um skyldu til að beita vægari úrræðum í lögunum sjálfum. Í umsögn frá Rauða krossinum á Íslandi er m.a. bent á að varðhaldsúrræði séu margfalt dýrari en önnur vægari úrræði sem geti einnig skilað góðum árangri auk þess að vera mannúðlegri.
Samkvæmt núgildandi lögum um útlendinga er mælt fyrir um önnur þvingunarúrræði í 105., 109. og 114. gr. Í greinargerð er vísað til þess að þau úrræði hafi ekki reynst fullnægjandi í öllum tilvikum til að tryggja að viðkomandi láti sig ekki hverfa innan lands og fari jafnvel af landi brott þar sem landamæraeftirlit er almennt ekki á innri landamærum. Ísland hefur skuldbundið sig með þátttöku í Schengen-samstarfinu til að fylgja samræmdum reglum um eftirlit á ytri landamærum og um frjálst flæði fólks án eftirlits á innri landamærum. Í gildandi lögum er því þegar kveðið á um vægari úrræði.
Í frumvarpinu er skýrlega áréttuð sú meginregla, í nýrri 114. gr. b, að óheimilt verði að taka ákvörðun um vistun útlendings á brottfararstöð ef það felur í sér ósanngjarna ráðstöfun með hliðsjón af eðli máls og atvikum að öðru leyti eða ef talið er fullnægjandi að útlendingurinn sæti þess í stað öðru vægara úrræði skv. XIII. kafla. Vægari úrræði geta t.d. verið haldlagning skilríkja, tilkynningarskylda eða krafa um að útlendingur haldi sig á tilteknum stað eða svæði. Ávallt þurfi því að meta hvort vistun sé nauðsynleg og í réttu hlutfalli við það markmið sem að er stefnt. Þá þurfi að leggja mat á sérstakar aðstæður viðkomandi ásamt heilsufari til að meta hvort vistun gæti sett hann í sérstaklega viðkvæmar aðstæður eða í hættu og hvort viðkomandi þurfi sérstaka umönnun, athygli eða aðstoð. Ávallt þurfi að fara fram einstaklingsbundið mat áður en ákvörðun um vistun er tekin. Þá þarf flutningur útlendings úr landi að meginreglu til að vera raunhæfur kostur frá upphafi til þess að vistun sé yfirhöfuð réttlætanleg. Ef eitthvað gefur til kynna að ómögulegt sé að flytja útlending til ákveðins ríkis er ekki heimilt að vista viðkomandi á brottfararstöð á meðan sú staða er uppi. Er þá einkum átt við aðstæður sem eru ekki á ábyrgð útlendingsins, svo sem vegna þess að ómögulegt er að afla ferðaskilríkja frá heimaríki eða vegna óviðráðanlegra ytri aðstæðna.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 12. mars 2026, er áréttað að vistun á brottfararstöð sé það úrræði sem aðeins komi til álita að undangengnu einstaklingsbundnu mati þegar ljóst sé að vægari úrræði skv. XIII. kafla laga um útlendinga dugi ekki eða muni ekki duga. Ekki var talin þörf á að kveða á um frekari vægari úrræði umfram gildandi heimildir. Þá kemur jafnframt fram að samkvæmt núgildandi lögum sé þegar til staðar heimild til að framlengja frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 3. mgr. 104. gr. laganna, og því ekki þörf á að kveða sérstaklega á um slíka heimild með frumvarpinu. Við mat á fresti er tekið mið af aðstæðum viðkomandi og unnt er að framlengja frest þegar sérstakar ástæður mæla með því.
Meiri hlutinn tekur undir hvað þetta varðar og telur ljóst að vistun útlendings á brottfararstöð skuli aðeins beitt þegar ekkert annað úrræði dugar til. Að framangreindu virtu og í ljósi umsagna sem liggja fyrir telur meiri hlutinn þó ástæðu til að það verði gert skýrara á grundvelli laganna til hvaða vægari úrræða sé vísað í lögum um útlendinga og leggur til breytingu þess efnis sem gerð er nánari grein fyrir í kafla um breytingartillögur meiri hlutans.
Vistun fjölskyldna með börn á brottfararstöð.
Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að sérstakar reglur, með strangari skilyrðum, gildi um að vista fjölskyldur með börn á brottfararstöð, sbr. nýja 114. gr. e við lög um útlendinga. Samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins verður einungis heimilt að vista barn með fjölskyldu sinni á brottfararstöð samkvæmt skilyrðum í a–f-lið 1. mgr. 114. gr. a þegar brýna nauðsyn ber til og sem síðasta úrræði. Þannig verði gerðar strangari kröfur til mats á nauðsyn þess að vista barn á brottfararstöð auk þess sem færri tilvik munu gilda um það hvenær megi vista barn þar. Þá eru tímamörk vistunar barna skýrt afmörkuð og mun skemmri en vistunar fullorðinna. Óheimilt verður að vista fylgdarlaus börn á brottfararstöð og barn verður aldrei vistað þar án fjölskyldu sinnar.
Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu eru þvingaðir flutningar einstaklinga úr landi flóknir, taka talsverðan tíma í undirbúningi og eru kostnaðarsamir. Samkvæmt upplýsingum frá heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra hafa verið áskoranir við flutning fjölskyldna úr landi. Í því ljósi þykir þörf á að mæla fyrir um heimild til vistunar fjölskyldna með börn á brottfararstöð en þó að uppfylltum strangari skilyrðum og í mun skemmri tíma en á við um fullorðna einstaklinga. Almennt skal vistun aðeins fara fram til að tryggja yfirvofandi flutning fjölskyldu með barn úr landi. Slík ráðstöfun kemur aðeins til af brýnni nauðsyn og á að vera allra síðasta úrræði sem beitt er. Vakin er athygli á því að á grundvelli núgildandi laga hefur reyndin verið sú að í vissum tilvikum hefur eina haldbæra úrræði yfirvalda til að tryggja framkvæmd ákvörðunar um þvingaðan brottflutning barnafjölskyldu verið að ráðstafa barni í tímabundið fóstur hjá barnaverndaryfirvöldum samhliða því að forráðamaður barns er úrskurðaður í gæsluvarðhald. Með frumvarpinu er ætlunin að setja skýran lagagrundvöll fyrir vistun barna í ákveðnum takmarkatilvikum til að tryggja að brottflutningur geti farið fram.
Fyrir nefndinni komu fram alvarlegar athugasemdir við heimildir frumvarpsins sem kveða á um vistun barna á brottfararstöð. Nefndinni bárust umsagnir frá mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um frumvarpið, einkum hvað varðar réttindi barna. Í erindi mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins er bent á að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi ítrekað undirstrikað sérstaklega viðkvæma stöðu barna vegna innflytjendastöðu þeirra. Dómstóllinn hefur vísað til þess að forðast skuli frelsissviptingu barna sem skuli aðeins beitt sem lokaúrræði ef fyrir liggur, á grundvelli einstaklingsmats, að engin vægari úrræði komi að gagni og það sé algjörlega nauðsynlegt á grundvelli meðalhófs. Í því samhengi er bent á að þrátt fyrir að frumvarpið takmarki heimild til að frelsissvipta börn með fjölskyldum sínum að hámarki í níu daga sem lokaúrræði sé það ekki útfært í frumvarpinu að stjórnvöldum sé skylt að gera grein fyrir því í hverju einstöku máli að engin vægari úrræði hafi verið möguleg.
Í umsögn Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna kemur fram að það geti aldrei talist barni fyrir bestu að vera hneppt í varðhald, sem er jafnframt áréttað í fleiri umsögnum, m.a. frá Barna- og fjölskyldustofu. Þá bendir umboðsmaður barna á að í sameiginlegri almennri athugasemd barnaréttarnefndarinnar og nefndar um réttindi farandverkafólks og fjölskyldna þeirra frá 2017 komi fram að barnaréttarnefndin líti svo á að frelsissvipting (e. detention) barns vegna innflytjendastöðu þess (e. immigration status) eða foreldra þess sé brot á réttindum barna og ekki í samræmi við bestu hagsmuni þess. Þá gáfu samtök umboðsmanna barna í Evrópu (e. European Network of Ombudspersons for Children, ENOC) út yfirlýsingu í september árið 2019 þar sem fram kemur að það brjóti gegn réttindum barna að frelsissvipta þau á grundvelli innflytjendastöðu og er þar sérstaklega vísað til 2., 3. og 37. gr. barnasáttmálans og einnig 3. og 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. UNICEF á Íslandi og Barnaheill benda á sömu sjónarmið og undirstrika að banna eigi varðhald á börnum vegna stöðu þeirra eða foreldra þeirra sem útlendinga og lögfesta aðra valkosti fyrir fjölskyldur.
Meiri hlutinn áréttar þá lögbundnu skyldu að það sem er barni fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar um er að ræða vistun þess, sbr. 4. mgr. e-liðar k-liðar 22. gr. frumvarpsins, sbr. einnig 1. mgr. 3. gr. barnasáttmálans. Samkvæmt 37. gr. barnasáttmálans er gert ráð fyrir að börn geti sætt frelsissviptingu að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Frelsissvipting barna skal eiga sér stoð í lögum og skal aðeins beitt sem síðasta úrræði og í skemmsta tíma sem við getur átt. Samkvæmt 1. mgr. 37. gr. barnasáttmálans skal ekkert barn látið sæta pyndingum eða annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá er kveðið á um í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga að ákvörðun sem varðar barn skuli tekin með hagsmuni þess að leiðarljósi. Barni sem myndað getur eigin skoðanir skal tryggður réttur til að tjá sig í máli sem það varðar og skal tekið tillit til skoðana þess í samræmi við aldur og þroska.
Í þessu samhengi ítrekar meiri hlutinn að í framkvæmd skuli ítarlegt og einstaklingsbundið mat ætíð fara fram þar sem tekið er tillit til aldurs, aðstæðna og hagsmuna barnsins. Börn verði aldrei vistuð ein á brottfararstöð en hugað verði að einingu fjölskyldunnar. Í því samhengi tekur meiri hlutinn undir sjónarmið sem fram koma í umsögn Barna- og fjölskyldustofu um að nauðsynjamat um frelsissviptingu barna í slíkum tilvikum þurfi að snúa að fjölskyldunni í heild strax í upphafi, þ.e. að hin ströngu skilyrði um vistun barna þurfi einnig að ná til ákvarðana sem snúa að fjölskyldunni í heild í þeim tilvikum sem ákvörðun hefur áhrif á barn.
Í ljósi framangreinds telur meiri hlutinn þörf á að bregðast við og leggur til breytingar á frumvarpinu hvað varðar heimild til vistunar barna á brottfararstöð, sem gerð verður nánari grein fyrir í kafla um breytingartillögur meiri hlutans.
Staða viðkvæmra hópa á brottfararstöð.
Samkvæmt 8. gr. frumvarpsins skal þjónusta á brottfararstöð taka mið af þörfum og stöðu vistmanna. Einkum skal huga að aðstæðum einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í skýringum við ákvæðið kemur fram, sbr. einnig orðskýringar í 2. gr. frumvarpsins, að með einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu sé m.a. átt við börn, fatlaða einstaklinga, þ.m.t. einstaklinga með geðfötlun, einstaklinga með geðraskanir, aldraða einstaklinga, þungaða einstaklinga, einstæða foreldra með ung börn, þolendur mansals, alvarlega veika einstaklinga og einstaklinga sem hafa orðið fyrir pyndingum, kynfæralimlestingum, nauðgun eða öðru alvarlegu andlegu, líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi. Þá kemur fram að aðstæður sérstaklega viðkvæmra einstaklinga geti kallað á sérstakan aðbúnað eða þjónustu sem ber að huga að. Þá er lagt til að ráðherra verði heimilt að kveða nánar á um þjónustu, aðstæður og aðbúnað á brottfararstöð í reglugerð, sbr. 20. gr.
ÖBÍ réttindasamtök gagnrýna í umsögn sinni að í frumvarpinu sé ekki vísað til réttinda fatlaðs fólks heldur falli sá hópur undir skilgreiningu einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Telja þau það ekki fullnægjandi til að tryggja mannréttindi fatlaðs fólks samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem hefur nýlega verið lögfestur, sbr. lög nr. 80/2025. Þá er í umsögn frá Landssamtökunum Þroskahjálp lýst verulegum áhyggjum af áhrifum frumvarpsins á stöðu og réttindi fatlaðs fólks, og þá sérstaklega fatlaðra barna, sem leita alþjóðlegrar verndar á Íslandi. Samtökin árétta m.a. sérstaklega skyldu stjórnvalda til að tryggja fötluðum einstaklingum viðeigandi aðlögun, sem er grundvallarregla í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá var fyrir nefndinni vakin athygli á stöðu fleiri hópa í viðkvæmri stöðu, m.a. árétta Samtökin ’78 viðkvæma stöðu hinsegin fólks á flótta og minna á mikilvægi stuðnings og fræðslu fyrir þann hóp sem getur átt að baki flókna áfallasögu vegna fordóma í heimalandi gegn hinsegin fólki. Því skipti líka máli að allt starfsfólk brottfararstöðvar hafi þekkingu á flókinni stöðu hinsegin flóttafólks.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 12. mars 2026, er tekið undir mikilvægi þess að tryggja aðbúnað, öryggi og þjónustu fyrir einstaklinga í viðkvæmri stöðu og að við uppbyggingu og skipulag úrræðisins verði sérstök áhersla lögð á þau sjónarmið. Þá er áréttað að samkvæmt nýrri 114. gr. b þurfi að fara fram einstaklingsbundið og heildstætt mat áður en tekin er ákvörðun um vistun á brottfararstöð. Sé vistun óforsvaranleg með hliðsjón af aðstæðum viðkomandi, t.d. vegna áfalla eða líkamlegs eða andlegs ástands viðkomandi, skuli beita öðrum úrræðum.
Meiri hlutinn telur brýnt að í framkvæmd verði tekið fullt tillit til einstaklinga í viðkvæmri stöðu við meðferð þeirra mála og þeim veitt sú aðstoð og tillit sem aðstæður þeirra krefjast og í samræmi við mannréttindasamninga og gildandi lög.
Skimunarreglugerðin og vistun útlendinga í skimunarferli á brottfararstöð.
Með frumvarpinu er einnig verið að innleiða reglugerð (ESB) nr. 2024/1356 um skimun ríkisborgara þriðju landa á ytri landamærum (hér eftir skimunarreglugerðin), auk innleiðingar á áðurnefndri brottvísunartilskipun, sem er hluti af verndar- og fólksflutningssamkomulagi Evrópusambandsins. Líkt og rakið hefur verið er meðal markmiða frumvarpsins að uppfylla skyldur Íslands samkvæmt Schengen-samstarfinu. Reglur skimunarreglugerðar varða komu fólks til landsins, en fram komu athugasemdir frá umsagnaraðilum um að hægt verði, í undantekningartilvikum, að vista útlendinga sem sæta skimun í brottfararstöð. Meiri hlutinn telur ástæðu til að reifa stuttlega ákvæði frumvarpsins sem innleiða skimunarreglugerðina og í því samhengi ákvæði sem fjalla um heimildir lögreglu til að frelsissvipta útlendinga í skimunarferli og vista á brottfararstöð.
Skimunarreglugerðin kveður á um verklag til að skima ríkisborgara þriðju ríkja á ytri landamærum Schengen-svæðisins, m.a. til upplýsingaöflunar, heilsufarsskoðunar, til greiningar á því hvort viðkomandi sé í viðkvæmri stöðu eða til öryggisathugunar. Með d-lið 1. tölul. 22. gr. frumvarpsins eru kröfur skimunarreglugerðarinnar innleiddar með nýju ákvæði í lög um útlendinga, 19. gr. a, sem gerir kröfu um að tilteknir útlendingar sæti skimun í framangreindum tilgangi. Meðal þeirra sem sæta skimun samkvæmt ákvæðinu eru útlendingar sem stöðvaðir eru í ólögmætri för yfir landamæri, þeir sem sækja um alþjóðlega vernd á ytri landamærum og uppfylla ekki komuskilyrði og þeir sem dvelja ólöglega hér á landi og eru taldir hafa komið inn á Schengen-svæðið án þess að hafa sætt skimun. Skimun skv. 19. gr. a fer fram á móttökumiðstöð, sbr. f-lið 1. tölul. 22. gr. frumvarpsins, og gert er ráð fyrir að henni ljúki að jafnaði innan nokkurra klukkustunda, þótt einhverjar undantekningar séu á því.
Skimunarreglugerðin gerir jafnframt kröfu um að tryggt verði að útlendingur sem sætir skimun sé til staðar í skimunarferlinu. Að því virtu bætist nýr stafliður við 1. mgr. 114. gr. gildandi laga um útlendinga sem mælir fyrir um að heimilt verði að skylda útlending til að sinna reglulegri tilkynningarskyldu um veru sína hér á landi eða dveljast á ákveðnum stað meðan á skimun stendur samkvæmt framangreindri 19. gr. a. Líkt og fram kemur í skýringum við ákvæði frumvarpsins er heimildin m.a. sett til að koma í veg fyrir að útlendingur láti sig hverfa áður en skimunarferli er lokið. Jafnframt þurfi að tryggja að þeim útlendingum sem njóta réttar til dvalar vegna umsóknar um alþjóðlega vernd sé ekki heimil frjáls för um landið á meðan skimun stendur yfir. Þá kemur einnig fram í skýringum við ákvæðið að heimilt verði að vista útlending á brottfararstöð ef fullnægjandi mat hefur verið lagt á að vægara úrræði dugi ekki til að tryggja að viðkomandi sé til staðar í skimunarferlinu. Að framangreindu virtu má ráða að undir tilteknum kringumstæðum, þ.e. einkum í tilvikum þegar útlendingur sætir skimun skv. 19. gr. a, og hlítir ekki tilkynningarskyldu eða skyldu til vistunar á tilteknum stað í skimunarferli samkvæmt nýjum lið í 114. gr., eða ef nauðsynlegt er að tryggja viðveru hans til að upplýsa um auðkenni hans, er heimilt að vista útlending í skimunarferli á brottfararstöð, sbr. a- og c-lið 114. gr. a.
Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að frumvarpið gangi lengra en skimunarreglugerðin, sem gerir eingöngu kröfu um tilkynningarskyldu útlendings eða um að hann haldi sig á tilteknu svæði í skimunarferli en gerir ekki kröfu um vistun á brottfararstöð. Þá var í umsögn lögreglustjórans á Suðurnesjum gagnrýnt að blanda saman á brottfararstöð annars vegar einstaklingum sem eru að hefja málsmeðferð hjá stjórnvöldum, svo sem umsækjendum um alþjóðlega vernd, og sæta skimun, og hins vegar þeim sem hafa fengið synjun á inngöngu í landið eða á umsókn um alþjóðlega vernd og fyrirhugað er að flytja frá landinu. Í umsögninni koma einnig fram sjónarmið um að málsmeðferð um ákvörðun um vistun á brottfararstöð samkvæmt frumvarpinu sé afar umfangsmikil í ljósi tilgangs vistunar einstaklinga sem sæta skimun á landamærum á grundvelli 19. gr. a. Þá koma fram sjónarmið um það hvert hlutverk fyrirhugaðrar móttökustöðvar í skimunarferlinu væri ef ekki ætti að vista þar einstaklinga sem sæta skimun og tryggja viðveru þeirra á tilteknu svæði meðan á skimunarferli stendur. Er að mati lögreglustjórans tilefni til að huga að því hvort vistun einstaklinga í framangreindri stöðu samræmist tilgangi frumvarpsins um brottfararstöð.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 12. mars 2026, kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að einstaklingar sem sæta skimun séu að jafnaði vistaðir á brottfararstöð. Í undantekningartilvikum gæti slík staða komið upp, en þá væri það ávallt lokaúrræði og vistun á brottfararstöð aðeins beitt að uppfylltum framangreindum skilyrðum í 114. gr. a og öðrum viðeigandi ákvæðum frumvarpsins.
Meiri hlutinn telur mikilvægt að uppfylla Schengen-skuldbindingar sem varða innleiðingu á skimunarreglugerð Evrópusambandsins. Um er að ræða verklag til að skima ríkisborgara þriðju ríkja á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Fyrir liggur að gerð er krafa um að skimun á ytri landamærum skuli fara fram án tafar og skuli vera lokið innan sjö daga og er sá tímafrestur ófrávíkjanlegur. Þá telur meiri hlutinn brýnt að einstaklingar sem sæta skimun verði að jafnaði ekki vistaðir á brottfararstöð en ef til þess kemur, í ljósi þess að viðkomandi sinni ekki tilkynningarskyldu eða ákvörðun um að dvelja á ákveðnum stað, veiti ekki upplýsingar um auðkenni sitt eða gefi rangar upplýsingar, verði það aðeins gert í undantekningartilvikum og ávallt sem síðasta úrræði.
Sjálfstætt og reglubundið eftirlit.
Við upphaf vistunar á brottfararstöð verður skylt að upplýsa vistaðan einstakling um heimild til að beina kvörtun til umboðsmanns Alþingis og um rétt viðkomandi til að hafa samband við lögmann. Þá skal heimila einstaklingi að hafa samband við lögmann, aðstandendur, fulltrúa heimalands síns og/eða viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök eins fljótt og auðið er. Ákvarðanir samkvæmt lögum um brottfararstöð verða jafnframt kæranlegar til ráðherra nema annað sé tekið fram. Þá er ljóst að allar ákvarðanir um vistun á brottfararstöð mun þurfa að bera undir dómstóla til staðfestingar innan tilgreindra tímamarka og því ljóst að dómstólar muni veita aðhald hvað það varðar.
Fyrir nefndinni og í umsögnum var ítrekað fjallað um skort á sjálfstæðu og reglubundnu eftirliti, umfram þann möguleika að geta beint kvörtun til umboðsmanns Alþingis og heimild til að kæra ákvarðanir til ráðherra.
Meiri hlutinn áréttar að umboðsmaður Alþingis sinnir veigamiklu eftirlitshlutverki hvað varðar eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og að tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Þá er á grundvelli 2. mgr. 2. gr. laga um umboðsmann Alþingis, nr. 85/1997, kveðið á um að umboðsmaður sinni hlutverki þess eftirlitsaðila sem tilgreindur er í 3. gr. valfrjálsrar bókunar frá 18. desember 2002 við samning Sameinuðu þjóðanna frá 10. desember 1984 gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (hér eftir OPCAT). Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu kveður bókunin m.a. á um eftirlit aðildarríkis með því hvort og hvernig réttindi frelsissviptra einstaklinga eru virt og þá hvort og hvernig dregið er úr líkum á brotum gegn þeim með forvarnastarfi. Umboðsmaður Alþingis hefur heimild til að heimsækja alla staði þar sem einstaklingar eru eða kunna að vera sviptir frelsi sínu og mun það eftirlit ná yfir aðstæður frelsissviptra einstaklinga sem vistaðir verða á brottfararstöð.
Þá ber aðildarríkjum skv. 10. gr. skimunarreglugerðarinnar að koma á fót óháðu eftirlitskerfi til að tryggja að grundvallarréttindi séu virt. Aðildarríkjum ber að tryggja sjálfstæði og óhæði eftirlitskerfisins sem skal sinna eftirliti sínu m.a. með vettvangsheimsóknum. Mælt er fyrir um að umboðsmenn þjóðþinga og innlendar mannréttindastofnanir, þar á meðal þær stofnanir sem hafa hlutverki að gegna samkvæmt OPCAT, skuli taka þátt í starfi hins sjálfstæða eftirlitskerfis. Auk þess skal eftirlitskerfið koma á og viðhalda nánum tengslum við innlendar persónuverndarstofnanir og Evrópsku persónuverndarstofnunina. Samkvæmt skimunarreglugerðinni er mælt fyrir um að fela megi umboðsmönnum þjóðþinga og mannréttindastofnunum að sinna þessu hlutverki. Í frumvarpinu er ekki mælt sérstaklega fyrir um að komið sé á fót sjálfstæðu eftirlitskerfi hvað þetta varðar. Lagt er til að ráðherra kveði í reglugerð nánar á um skimun og þar á meðal um eftirlit með grundvallarréttindum fólks sem sætir skimun. Að mati meiri hlutans er slíkt ákvæði ekki fullnægjandi lagagrundvöllur fyrir stofnsetningu þess sjálfstæða eftirlitskerfis sem skimunarreglugerðin mælir fyrir um. Meiri hlutinn kallaði því sérstaklega eftir nánari skýringum frá ráðuneytinu um hvernig frumvarpið tryggði sjálfstætt og óháð eftirlitskerfi, m.a. í samræmi við 10. gr. skimunarreglugerðarinnar.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 12. mars 2026, er að finna umfjöllun um markmið eftirlitsins og hvernig gert sé ráð fyrir að það fari fram. Þar kemur m.a. fram að markmið eftirlitsins sé að tryggja að mannréttindi útlendinga sem sæta skimun séu virt og að framkvæmd ferlisins samræmist reglum um meðalhóf, réttaröryggi sem og alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum. Með hliðsjón af þeirri umfjöllun telur ráðuneytið að framkvæmd eftirlitsins falli vel að lögbundnu hlutverki Mannréttindastofnunar Íslands, sbr. b-lið 2. mgr. 2. gr. laga um stofnunina, nr. 88/2024. Þar kemur fram að stofnunin skuli hafa eftirlit með framkvæmd laga og alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda. Hafi ráðuneytið því sent stofnuninni erindi þess efnis.
Meiri hlutinn telur þörf á að það verði tekið til nánari skoðunar af hálfu ráðuneytisins hvernig slíku eftirliti verði best fyrir komið með það að markmiði að tryggja mannréttindi útlendinga sem sæta þvingunarúrræðum á grundvelli laga um útlendinga. Ljóst er að umboðsmaður Alþingis gegnir veigamiklu hlutverki hvað varðar eftirlit með réttindum borgara gagnvart stjórnvöldum og með því hvort og hvernig réttindi frelsissviptra einstaklinga eru virt. Meiri hlutinn telur að ef fela eigi stofnun sem starfar á vegum Alþingis að fara með eftirlit af þeim toga sem hér um ræðir, þ.e. umfram það eftirlit sem er þegar til staðar, þá verði það ekki gert nema að undangenginni könnun á því hvort það falli að hlutverki stofnunarinnar og heimildum hennar. Jafnframt verði að skoða inntak eftirlitsins og hvernig það samræmist sjálfstæði þessara stofnana þingsins. Í því sambandi ber að hafa í huga að ekki má líta á eftirlit á vegum þeirra sem lið í athöfnum framkvæmdarvaldsins heldur sem fyrirbyggjandi aðgerð. Í framkvæmd hefur það verið forsætisnefnd Alþingis sem hefur í nánu samstarfi við stofnanir þingsins lagt til breytingar á starfssviði þeirra og Alþingi síðan samþykkt með breytingum á lögum um þær.
Meiri hlutinn áréttar að brýnt sé að það verði skoðað heildstætt hvernig beri að tryggja fullnægjandi, reglubundið og sjálfstætt eftirlit þegar kemur að þvingunarúrræðum á grundvelli laga um útlendinga, bæði hvað varðar framkvæmd skimunar, sbr. 10. gr. skimunarreglugerðarinnar, og framkvæmd brottvísana og frávísana, þar á meðal í þeim tilvikum þegar einstaklingar verða vistaðir á brottfararstöð. Með vísan til þess sem reifað er í minnisblaði dómsmálaráðuneytis beinir meiri hlutinn því til dómsmálaráðherra, í tengslum við setningu reglugerðar á grundvelli 120. gr. laga um útlendinga, um skimun skv. 19. gr. a, þar á meðal um eftirlit með grundvallarmannréttindum, að það verði greint heildstætt hvort og þá hvernig viðeigandi eftirlit sé tryggt og hvar því verði best fyrir komið. Jafnframt þurfi að leggja mat á umfang eftirlitsins og hvaða heimildir þurfi að vera til staðar svo að eftirlitið teljist fullnægjandi. Slíkt eftirlit skuli vera til samræmis við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist, m.a. á grundvelli Schengen-samstarfsins. Þá væri æskilegt að horfa til þess hvernig sams konar eftirliti hefur verið fyrir komið í þeim löndum sem Ísland ber sig saman við, til að mynda í Noregi.
Aðgengi fjölmiðla og mannúðarsamtaka að brottfararstöð.
Í umsögn Blaðamannafélags Íslands um málið eru gagnrýndar breytingar sem voru gerðar á frumvarpinu frá því að það var birt í samráðsgátt stjórnvalda. Í fyrri útgáfu hafi verið kveðið á um heimild fjölmiðla til að taka viðtöl við vistmenn í brottfararstöð með samþykki þeirra en slíka heimild sé ekki að finna í frumvarpinu eins og það liggur nú fyrir. Blaðamannafélagið bendir á að aðgengi blaðamanna að einstaklingum sem eru í haldi hjá hinu opinbera, hvort sem um er að ræða fanga, umsækjendur um alþjóðlega vernd í brottfararstöð eða aðra sem vistaðir eru í opinberu úrræði, sé forsenda lýðræðislegrar umræðu, tjáningarfrelsis og gagnsæis. Það tryggi nauðsynlegt aðhald með viðkomandi stjórnvöldum og að almenningur geti myndað sér upplýsta skoðun og borið traust til slíkra stofnana.
Rauði krossinn á Íslandi og Samtökin ’78 benda einnig á að búið sé að fella brott umrætt ákvæði sem var að finna í 10. gr. frumvarpsins eins og það var kynnt á fyrri stigum í samráðsgátt stjórnvalda, þar sem var einnig kveðið á um heimild fyrir félagasamtök til að heimsækja brottfararstöð. Þau benda á að heimsóknir félagasamtaka geti þjónað þeim tilgangi að hafa eftirlit með aðbúnaði og að mannréttindi vistmanna séu virt sem og að mæta sálfélagslegum þörfum þeirra sem þar eru vistaðir. Í því samhengi er vísað í verkefni sem Rauði krossinn í Noregi sinnir og sambærileg verkefni í Svíþjóð og Finnlandi. UNICEF á Íslandi bendir jafnframt á að það eigi að vera skýr réttur þeirra sem sæta varðhaldi á brottfararstöð að félagasamtök, þá sér í lagi mannréttindasamtök, og fjölmiðlar geti komið í heimsókn til að veita aðhald og ganga úr skugga um að mannréttindi séu virt. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna leggur einnig til að kveðið verði skýrt á um ótakmarkaðan rétt vistmanna til að hafa samband við viðeigandi mannúðarsamtök í lagatextanum sjálfum, sem myndi jafnframt samræmast alþjóðlegum skuldbindingum.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 12. mars 2026, er áréttað að í 20. gr. frumvarpsins sé skýr reglugerðarheimild þar sem ráðherra er falið að setja nánari reglur um heimsóknir og önnur réttindi vistmanna, þar á meðal um skilyrði og framkvæmd heimsókna, þar sem fjallað verði nánar um m.a. aðgang félagasamtaka og fjölmiðla.
Meiri hlutinn undirstrikar að kveðið verði skýrt á um það í reglugerð hvernig tryggt verði að viðeigandi stofnanir og félagasamtök, þar á meðal viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök, muni eiga kost á að heimsækja brottfararstöð, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, til samræmis við alþjóðlegar skuldbindingar, sem og hvað varðar aðgengi fjölmiðla.
Staðsetning brottfararstöðvar og samráð við sveitarfélög.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert verði ráð fyrir að brottfararstöð verði komið upp nærri stærstu landamærastöð Íslands, á Suðurnesjum. Einnig standi til að flytja móttökumiðstöð skv. 27. gr. laga um útlendinga á Suðurnes og að lögreglustjórinn á Suðurnesjum verði með starfseiningu þar ásamt því að bera ábyrgð á rekstri brottfararstöðvar. Vísað er til þess að mikilvægt verði að eiga samráð við sveitarfélögin á Suðurnesjum við mótun úrræðanna. Gert sé ráð fyrir að gengið verði til samninga við þjónustuveitanda á Suðurnesjum um þá heilbrigðisþjónustu sem vistmönnum mun standa til boða.
Í umsögn frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum er lögð áhersla á að áður en frumvarpið verði afgreitt þurfi að fara fram heildstætt mat á áhrifum lagasetningarinnar á samfélag og innviði á Suðurnesjum. Það þurfi að hefja raunverulegt og opið samráð við sveitarfélög svæðisins. Þá þurfi að skýra hvernig móttökumiðstöð og brottfararstöð verði útfærðar og fjármagnaðar.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 12. mars 2026, kemur fram að vistun muni ekki leiða til lögheimilistengdra réttinda eða skyldna fyrir viðkomandi sveitarfélag enda verði vistmenn ekki lögheimilisskráðir í sveitarfélaginu vegna vistunar á brottfararstöð né einstaklingar sem munu dvelja í stutta stund í móttökumiðstöð. Sú þjónusta og aðbúnaður sem kveðið er á um í frumvarpinu verður veitt innan brottfararstöðvarinnar enda um lokað úrræði að ræða. Þá er unnið að því innan Stjórnarráðsins í samráði við heilbrigðisþjónustuveitendur á svæðinu að tryggja heilsufarsskimun við komu til landsins ásamt nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í brottfararstöð. Mikilvægi samráðs við sveitarfélög og hagsmunaaðila er jafnframt ítrekað.
Meiri hlutinn hefur skilning á framangreindum sjónarmiðum og áréttar mikilvægi þess að við frekari útfærslu og uppbyggingu á úrræðinu verði tryggt að ráðuneytið eigi gott samráð við sveitarfélög á svæðinu. Í ljósi þess að stærsta landamærastöð Íslands, Keflavíkurflugvöllur, er staðsett á Suðurnesjum sé falið í því aukið hagræði og skilvirkni að staðsetja slík úrræði í nálægð við flugvöllinn líkt og tíðkast einnig í öðrum ríkjum. Þá er lögreglustjóranum á Suðurnesjum falið að bera ábyrgð á rekstri brottfararstöðvar. Það sé mikilvægt að tryggja að framkvæmd og þekking sé byggð upp á heildstæðan hátt, sem fellur vel að hlutverki lögregluembættisins á Suðurnesjum, sem ber m.a. ábyrgð á landamæravörslu á Keflavíkurflugvelli.
Breytingartillögur.
Skilyrði fyrir vistun á brottfararstöð.
Í umsögn Útlendingastofnunar um málið er lagt til að við 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins, þar sem kveðið er á um að heimilt sé að vista útlending á brottfararstöð samkvæmt skilyrðum laga um útlendinga, verði vísað beint í 105. gr. laganna, sem kveður á um þvingunarúrræði til að tryggja framkvæmd ákvörðunar. Meiri hlutinn tekur undir að það geti aukið skýrleika ákvæðisins að vísa með nákvæmari hætti í viðeigandi ákvæði útlendingalaga og að um sé að ræða úrræði sem aðeins komi til álita þegar því markmiði sem að er stefnt verður ekki náð með öðrum hætti. Leggur meiri hlutinn þar af leiðandi til breytingu þess efnis.
Vistun á brottfararstöð þegar önnur úrræði duga ekki til.
Líkt og gerð hefur verið grein fyrir komu fram ýmsar athugasemdir fyrir nefndinni hvað varðar heimildir til vistunar á brottfararstöð og vísað var til þess að um væri að ræða of óljósar og matskenndar heimildir og ekki væri skýrt samkvæmt frumvarpinu sjálfu hvaða vægari úrræði þyrftu að hafa komið til skoðunar áður en heimilt yrði að beita svo íþyngjandi heimildum. Í umsögn Mannréttindastofnunar Íslands kemur m.a. fram að brýnt sé að ekki verði gripið til frelsissviptingar í tilvikum þar sem aðrar og vægari ráðstafanir eru færar. Þegar talið er nauðsynlegt að heimila frelsissviptingu sé brýnt að lagaákvæðin séu skýr, málefnaleg og gangi ekki lengra en nauðsyn beri til. Af stjórnarskránni og mannréttindasáttmála Evrópu leiði að lagaákvæði sem skerða mannréttindi þurfi að vera nægilega skýr til að beiting þeirra sé fyrirsjáanleg. Þá fjallar Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um það í umsögn um málið að það beri að forðast að frelsissvipta umsækjendur um alþjóðlega vernd og að það skuli eingöngu koma til skoðunar sem algjört lokaúrræði. Varðhald gangi lengst hvað varðar að takmarka frelsi og það beri að beita vægari úrræðum fyrst.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 12. mars 2026, kemur skýrt fram að vistun á brottfararstöð skuli einungis beitt þegar önnur úrræði duga ekki til. Í frumvarpinu sé sú meginregla skýrlega áréttuð í nýrri 114. gr. b, þar sem kveðið er á um að óheimilt sé að vista útlending á brottfararstöð ef vistun yrði ósanngjörn með hliðsjón af atvikum máls eða ef nægilegt væri að beita vægara úrræði skv. XIII. kafla laga um útlendinga. Með því sé skýrt undirstrikað að vistun á brottfararstöð sé úrræði sem einungis er gripið til þegar önnur vægari úrræði hafa ekki eða munu ekki duga til og er háð meðalhófi og einstaklingsbundnu mati í hverju tilviki. Ákvæðið byggist á sambærilegri heimild í gildandi 115. gr. laga um útlendinga sem heimilar að færa útlendinga í gæsluvarðhald á sambærilegum grundvelli og frumvarpið mælir fyrir um. Samkvæmt 2. mgr. 115. gr. laganna er það lögfest að ekki skuli beita heimild til að handtaka útlending og færa í gæsluvarðhald ef tilkynningarskylda eða krafa um að dveljast á ákveðnum stað skv. 114. gr. er talin nægjanleg til að ná því markmiði sem að er stefnt.
Með hliðsjón af þeim athugasemdum sem komu fram fyrir nefndinni við umfjöllun um málið telur meiri hlutinn ástæðu til að kveða skýrar á um í nýrri 114. gr. a að ekki skuli beita ákvæðinu ef tilkynningarskylda eða krafa um að dveljast á ákveðnum stað skv. 114. gr. er talin nægjanleg til að ná því markmiði sem að er stefnt. Slík breyting væri til samræmis við gildandi 2. mgr. 115. gr. laga um útlendinga.
Sérstakar reglur um vistun barna á brottfararstöð sem lokaúrræði.
Í frumvarpinu kemur skýrt fram að vistun fjölskyldna með börn á brottfararstöð skuli einungis heimil þegar brýna nauðsyn ber til og sem síðasta úrræði. Af því leiðir að vægari úrræði þurfi að hafa verið metin eða reynd áður og ekkert annað dugað til.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 26. febrúar 2026, er vísað til þess að 1. mgr. 114. gr. b gildi um vistun barna, sem mælir fyrir um að vistun sé óheimil ef vægari úrræði skv. XIII. kafla laga um útlendinga duga. Til að taka af allan vafa leggur ráðuneytið til að bæta við tilvísun í XIII. kafla laga um útlendinga við ákvæði nýrrar 114. gr. e um sérstakar reglur um vistun barna á brottfararstöð, þannig að enginn vafi leiki á því hvaða vægari ráðstafanir geti verið um að ræða.
Meiri hlutinn tekur undir tillögu ráðuneytisins og leggur til breytingu þess efnis til að koma til móts við ábendingar um að ekki sé skýrt um hvaða vægari úrræði sé að ræða. Meiri hlutinn áréttar að ríkari kröfur eru gerðar til vistunar barna á brottfararstöð en einstaklinga 18 ára og eldri sem felst m.a. í því að strangari kröfur eru gerðar til mats á nauðsyn þess að vista barn og færri tilvik gilda um hvenær megi vista barn á brottfararstað, þ.e. á grundvelli a–f-liðar 1. mgr. 114. gr. a. Þá eru tímamörk vistunar skýrt afmörkuð og mun skemmri en vistunar fullorðinna. Vistun má aðeins eiga sér stað ef hún er óhjákvæmileg og þjónar lögmætu markmiði sem að er stefnt.
Aðskildar vistarverur fyrir fjölskyldur með börn.
Við umfjöllun nefndarinnar um málið var ítarlega rætt um stöðu barna, líkt og gerð hefur verið grein fyrir í áliti þessu. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið um að slíku úrræði skuli eingöngu beitt í undantekningartilvikum og sem lokaúrræði þegar brýna nauðsyn ber til í afmarkaðan tíma og ljóst er að vægari úrræði hafa ekki eða munu ekki duga til. Þá skiptir grundvallarmáli að aðstæður séu þess eðlis að fjölskyldum verði séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggi fullnægjandi friðhelgi þeirra.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 26. febrúar 2026, eru lagðar til breytingar á frumvarpinu til að bregðast við athugasemdum um málið og til að taka af allan vafa um að tryggja beri fullan aðskilnað fjölskyldna með börn frá öðrum á brottfararstöð og ítreka réttindi barna meðan á vistun stendur.
Í því ljósi tekur meiri hlutinn undir tillögur ráðuneytisins og leggur til breytingar á frumvarpinu sem er ætlað að skerpa á því að fjölskyldur með börn verði aðeins vistaðar í sérstöku húsnæði sem verði eingöngu ætlað þeim og algjörlega aðskilið öðrum vistarverum fyrir einstaklinga. Þannig verði tryggður algjör aðskilnaður þessa viðkvæma hóps frá öðrum einstaklingum sem eru vistaðir á brottfararstöð. Til að tryggja friðhelgi og vernd einkalífs fjölskyldna með börn er kveðið á um að þeim skuli útvegaðar sérstakar vistarverur innan fjölskylduhúsnæðis þannig að hver fjölskylda hafi eigið afmarkað rými, að lágmarki svefnrými. Ákvæðið útiloki þó ekki að fleiri en ein fjölskylda geti deilt sameiginlegri aðstöðu, svo sem eldunaraðstöðu, tómstundarými og þess háttar. Með þessari breytingu sé ætlunin að taka betur mið af þörfum barna og tryggja að fjölskyldur dvelji í umhverfi sem stuðli að viðunandi og mannsæmandi fjölskyldulífi meðan á stuttri vistun stendur.
Samkvæmt 17. gr. frumvarpsins verður heimilt að vista vistmenn í öryggisklefa ef nauðsyn krefur í ákveðnum tilvikum. Þá er kveðið á um í 5. mgr. sama ákvæðis að einungis verði heimilt að vista barn í öryggisklefa í ýtrustu neyð og þegar ljóst er að aðrar vægari ráðstafanir duga ekki til. Meiri hlutinn telur slíka heimild ekki samræmast ofangreindum breytingum sem er ætlað að tryggja það að börn verði aðeins vistuð með fjölskyldum sínum í sérstöku húsnæði sem er aðskilið frá öðrum einstaklingum sem verða vistaðir á brottfararstöð. Meiri hlutinn leggur því til að óheimilt verði að vista barn í öryggisklefa. Því tengt leggur meiri hlutinn til breytingu á 2. mgr. 17. gr. en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir því að þegar einstaklingur er vistaður í öryggisklefa megi nota belti, fót- og handreimar í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að viðkomandi skaði sig. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að óheimilt verði að beita slíkum heimildum gagnvart börnum. Í ljósi þess að ekki mun geta reynt á slíkar heimildir gagnvart börnum þar sem óheimilt verði að vista börn í öryggisklefa telur meiri hlutinn ekki ástæðu til að tilgreina það sérstaklega í ákvæðinu.
Meiri hlutinn tekur undir athugasemdir í umsögn Barna- og fjölskyldustofu og áréttar að meginreglan skuli vera sú að beiting þvingunarráðstafana gagnvart börnum sé óheimil en nauðsynlegar heimildir beri að túlka þröngt með vísan til ýtrustu neyðar þegar aðrar vægari ráðstafanir dugi ekki til, sbr. m.a. 3. mgr. 11. gr. um heimild til valdbeitingar. Í greinargerð er vísað til þess að það kunni að koma upp tilvik þar sem nauðsynlegt þyki að beita valdi og að ákvæðið sé sambærilegt ákvæði sem er að finna í barnaverndarlögum, nr. 80/2002, sbr. b-lið 2. mgr. 82. gr. laganna.
Réttur barna til að taka þátt í leikjum og afþreyingu.
Samkvæmt 8. gr. frumvarpsins er kveðið á um réttindi og skyldur vistmanna, m.a. rétt til útiveru og að iðka tómstundastörf og líkamsrækt, eftir því sem aðstæður leyfa. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert sé ráð fyrir að börn skuli eiga rétt á sérstökum vistarverum í brottfararstöð þar sem friðhelgi þeirra og fjölskyldu sé virt, auk þess sem þau eigi rétt á að sinna frístundastarfi og hafa aðgang að barnvænu og öruggu leik- og útivistarsvæði.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 26. febrúar 2026, eru lagðar til breytingar til að kveða skýrt á um afþreyingu barna. Meiri hlutinn tekur undir tillögu ráðuneytisins og leggur til að við 4. mgr. 8. gr. frumvarpsins bætist nýr málsliður sem kveði á um að börn skuli eiga kost á að taka þátt í leikjum og afþreyingu sem hæfi aldri þeirra. Það orðalag sé í samræmi við 3. mgr. 17. gr. brottvísunartilskipunarinnar þar sem skýrt er kveðið á um að tryggja beri börnum viðeigandi afþreyingu sem hæfi aldri þeirra á meðan vistun á brottfararstöð varir, með það að markmiði að stuðla að velferð þeirra við þær aðstæður.
Heimild til að hafa samband við skipaðan talsmann.
Í umsögn frá Félagi talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd er bent á að með frumvarpinu sé ekki kveðið á um rétt þeirra sem eru vistaðir á brottfararstöð til að eiga samskipti við skipaðan talsmann. Samkvæmt 30. gr. laga um útlendinga á umsækjandi um alþjóðlega vernd rétt á að Útlendingastofnun skipi honum talsmann við meðferð málsins hjá stjórnvöldum og helst sá réttur við mögulega kærumeðferð.
Í 6. gr. frumvarpsins er kveðið á um ýmsar reglur um upphaf vistunar en skv. 5. mgr. ákvæðisins skal við upphaf vistunar heimila einstaklingi að hafa samband við lögmann, aðstandendur, fulltrúa heimalands síns og/eða viðurkennd mannúðar- eða mannréttindasamtök eins fljótt og auðið er.
Meiri hlutinn telur tilefni til að bregðast við ábendingu um að sú staða kunni að koma upp að einstaklingur verði vistaður á brottfararstöð sem hefur þegar verið skipaður talsmaður eða ætti rétt á talsmanni skv. 30. gr. laga um útlendinga. Meiri hlutinn leggur því til breytingu þess efnis að því verði bætt við upptalningu í 5. mgr. 6. gr. að við upphaf vistunar verði einstaklingi jafnframt heimilt að hafa samband við skipaðan talsmann, sbr. 30. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi bendir meiri hlutinn jafnframt á að fyrir liggur samkvæmt nýju ákvæði, 114. gr. c við lög um útlendinga, að útlendingi skuli skipaður lögmaður vegna meðferðar máls fyrir dómi þegar ákvörðun um vistun á brottfararstöð er borin undir dómstóla.
Heimild starfsfólks brottfararstöðvar til valdbeitingar.
Gert er ráð fyrir því að lögreglustjórinn á Suðurnesjum ráði starfsfólk brottfararstöðvar og að allt starfsfólk sem starfi með vistmönnum á brottfararstöð hljóti viðeigandi þjálfun til starfsins sem taki mið af þeim fjölbreytta hópi einstaklinga sem þar kunna að vera vistaðir. Með 11. gr. frumvarpsins er kveðið á um heimild til valdbeitingar á brottfararstöð og tilgreint í hvaða tilvikum starfsfólki er heimilt að beita valdi við skyldustörf ef það telst nauðsynlegt til að koma í veg fyrir nánar tilgreindar aðstæður. Aldrei má ganga lengra í beitingu valds en þörf er á hverju sinni.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 26. febrúar 2026, er vísað til þess að í skýringum við ákvæði 11. gr. komi fram að starfsfólk sem starfar með vistmönnum geti þurft að beita valdi við vissar aðstæður og að með því sé átt við starfsfólk sem er í nánu samneyti við vistmenn. Í minnisblaðinu leggur ráðuneytið til, til að taka af allan vafa um það hvaða starfsfólk geti beitt valdi samkvæmt ákvæðinu, að kveðið verði skýrt á um það í ákvæðinu sjálfu að einungis starfsfólk brottfararstöðvar sem hefur fengið viðeigandi þjálfun í valdbeitingu hafi heimild til að beita valdi við störf sín. Þar sé um að ræða starfsfólk sem hafi lokið viðeigandi fræðslu og þjálfun í valdbeitingu.
Meiri hlutinn áréttar að lögreglustjórinn á Suðurnesjum muni hafa heimild til að ráða starfsfólk en ljóst sé að það muni þurfa að leggja mat á hvernig starfsfólk þurfi að starfa á brottfararstöð með ólíka sérfræðiþekkingu, m.a. sérþekkingu á aðstæðum og hagsmunum barna og annarra hópa í viðkvæmri stöðu. Í greinargerð kemur fram að það verði gert að skilyrði að allt starfsfólk sem starfi með vistmönnum á brottfararstöð hljóti viðeigandi þjálfun til starfsins sem taki mið af þeim fjölbreytta hópi einstaklinga sem þar kunna að vera vistaðir.
Meiri hlutinn leggur til breytingu á 11. gr. með það að markmiði að skýra enn frekar að eingöngu starfsfólki sem hefur fengið viðeigandi þjálfun í valdbeitingu verði heimilt að beita valdi við skyldustörf sín. Slík heimild skal einungis eiga við þegar það telst nauðsynlegt í tilgreindum tilvikum samkvæmt ákvæðinu, og er þar um tæmandi talningu að ræða, tilvikum þegar einstaklingar reyna að flýja, hindra þarf að vistmaður skaði sjálfan sig eða aðra eða til að verjast yfirvofandi árás. Þá eigi heimild til valdbeitingar eingöngu við þegar vægari úrræði duga ekki til. Með viðeigandi þjálfun sé átt við þjálfun sem uppfylli kröfur samkvæmt reglugerð sem ráðherra setur um þjálfun í valdbeitingu, sbr. e-lið 1. mgr. 20. gr., og nánari starfsreglur sem gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji. Ákvæðið útiloki þó ekki að starfsfólk sem þegar hefur hlotið sambærilega eða meiri þjálfun á grundvelli starfa sinna, svo sem lögreglumenn og fangaverðir, teljist uppfylla skilyrðið, enda sé þjálfun þeirra metin fullnægjandi að efni og umfangi.
Þá leggur meiri hlutinn til að lögreglustjórinn á Suðurnesjum skuli ákveða, að undangengnu heildstæðu mati á hæfi viðkomandi, hvaða starfsmenn hafi heimild til að beita valdi þegar slíkt telst nauðsynlegt. Með því verði tryggt enn betur að einungis starfsmenn sem uppfylla kröfur um þjálfun og hæfni fari með slíka heimild en heimildin verði ekki almenn fyrir allt starfsfólk. Heimildin verði þó tilgreind sérstaklega í starfslýsingu hlutaðeigandi starfsmanna og að því leyti almenn og hluti af starfslýsingu viðkomandi starfsfólks en ekki háð sérstakri heimild í hverju einstöku tilviki. Meiri hlutinn telur þó sérstaklega brýnt að undirstrika það sem fram kemur í skýringum við ákvæðið í greinargerð, að líta verði á það sem meginreglu að þeir sem munu starfa á brottfararstöð sinni skyldustörfum sínum án valdbeitingar.
Samkvæmt e-lið 1. mgr. 20. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að ráðherra skuli kveða í reglugerð nánar á um valdbeitingarheimildir starfsfólks á brottfararstöð og beitingu valdbeitingartækja. Til viðbótar við breytingar á 11. gr., til að afmarka hvaða starfsfólk muni hafa heimild til valdbeitingar, leggur meiri hlutinn til breytingu á reglugerðarákvæðinu til að skýra nánar hvað skuli kveða á um í reglugerð í tengslum við valdbeitingarheimildir starfsfólks. Ráðherra skuli í reglugerð kveða á um valdbeitingarheimildir starfsfólks og framkvæmd valdbeitingar, þar á meðal um beitingu valdbeitingartækja og þau skilyrði sem slík beiting er háð. Í reglugerðinni verði m.a. kveðið á um hvaða valdbeitingartæki séu heimil auk þess sem mælt verði fyrir um stigskiptingu valdbeitingar og viðeigandi verklag við beitingu valds. Þá verði einnig kveðið á um kröfur til þjálfunar starfsfólks sem fer með valdbeitingarheimildir, þar á meðal um grunnþjálfun, símenntun og eftir atvikum sérstaka þjálfun nýliða og afleysingafólks.
Skimun vegna ólögmætrar farar yfir ytri landamæri.
Samkvæmt a-lið 1. mgr. nýrrar 19. gr. a í lögum um útlendinga skulu útlendingar sem stöðvaðir eru í ólögmætri för yfir landamæri sæta skimun sem felur í sér upplýsingaöflun, heilsufarsskoðun og greiningu á því hvort viðkomandi teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu og öryggisathugun.
Í skýringum við ákvæðið í greinargerð með frumvarpinu kemur skýrlega fram að skv. a-lið skuli skima alla útlendinga sem uppfylla ekki skilyrði fyrir komu og eru stöðvaðir í tengslum við óheimila för (e. illegal border crossing) yfir ytri landamæri.
Meiri hlutinn leggur til orðalagsbreytingu með það að markmiði að það verði skýrt samkvæmt ákvæðinu sjálfu að þeir sem skulu sæta skimun skv. a-lið ákvæðisins séu útlendingar sem stöðvaðir eru í ólögmætri för yfir ytri landamæri og uppfylla ekki komuskilyrði.
Málsmeðferð fyrir dómi.
Með nýrri 114. gr. c við lög um útlendinga er mælt fyrir um skyldu til að bera ákvörðun lögreglu um vistun á brottfararstöð undir héraðsdóm til staðfestingar.
Í umsögn laganefndar Lögmannafélags Íslands er bent á að kæra megi úrskurð dómara til Landsréttar ef hann getur sætt kæru eftir almennum reglum 1. mgr. 192. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Laganefnd telur ákvæðið mjög óljóst og ekki skera að fullu úr um það hvort úrskurðir héraðsdóms um vistun á brottfararstöð séu kæranlegir til Landsréttar. Laganefnd telur að taka þurfi af allan vafa hvað þetta varðar þar sem um afar íþyngjandi þvingunarúrræði sé að ræða sem jafna megi til gæsluvarðhalds á grundvelli laga um meðferð sakamála.
Meiri hlutinn tekur undir athugasemdir laganefndar Lögmannafélagsins um að skýra megi kæruheimildir vegna úrskurða um vistun á brottfararstöð til að taka af allan vafa um að úrskurðir héraðsdóms á grundvelli laga um útlendinga séu kæranlegir til Landsréttar.
Gildistaka.
Samkvæmt frumvarpinu var gert ráð fyrir því að lögin tækju gildi 1. mars 2026 og að brottfararstöð tæki til starfa þremur mánuðum síðar, þ.e. 12. júní 2026. Sú dagsetning tekur mið af því að fyrirséð er að ákveðið svigrúm þurfi frá gildistöku laganna þar til brottfararstöð tekur til starfa til að undirbúa starfsemi hennar, ráða starfsfólk og fleira.
Með hliðsjón af þinglegri meðferð frumvarpsins er ljóst að gera þarf breytingar á gildistökuákvæði þess. Meiri hlutinn leggur til að verði frumvarpið að lögum öðlist þau þegar gildi en að brottfararstöð taki ekki til starfa fyrr en 1. desember 2026 og jafnframt muni viðeigandi breytingar á lögum um útlendinga öðlast gildi á sama tíma. Áfram er þó lagt til að ákvæði frumvarpsins er varða skimun taki gildi 12. júní 2026.
Þá eru lagðar til nokkrar lagatæknilegar breytingar og lagfæringar á orðalagi sem er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. Við 1. mgr. 5. gr. bætist: sbr. 105. gr. laganna.
2. Á eftir orðinu „lögmann“ í 5. mgr. 6. gr. komi: skipaðan talsmann skv. 30. gr. laga um útlendinga.
3. 4. mgr. 7. gr. orðist svo:
Fjölskyldum með börn skal séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggja fullnægjandi friðhelgi þeirra í húsnæði sem er eingöngu ætlað fjölskyldum með börn.
4. Við 4. mgr. 8. gr.
a. Á undan orðunum „lög þessi“ komi: við.
b. Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Börn skulu eiga kost á að taka þátt í leikjum og afþreyingu sem hæfir aldri þeirra.
5. Við 1. mgr. 9. gr.
a. 1. málsl. orðist svo: Heimilt er að hafa eftirlit með heimsóknum, símtölum og bréfasendingum vistmanna skv. 3. mgr. 8. gr. og takmarka og skilyrða réttindi þeirra skv. 3. og 4. mgr. 8. gr. þegar það er nauðsynlegt til að viðhalda ró, góðri reglu og öryggi á brottfararstöð eða til að koma í veg fyrir refsiverðan verknað.
b. Í stað orðanna „gildir skv.“ í 2. málsl. komi: gildir um.
6. 1. málsl. 1. mgr. 11. gr. orðist svo: Starfsfólki brottfararstöðvar, sem hefur hlotið viðeigandi þjálfun í valdbeitingu og nýtur heimildar lögreglustjórans á Suðurnesjum til valdbeitingar, er heimilt að beita valdi við skyldustörf sín ef það telst nauðsynlegt til að.
7. Í stað orðanna „beita skriflegri“ í 2. mgr. 15. gr. komi: veita skriflega.
8. Við 17. gr.
a. Orðin „en þó ekki á börn“ í 2. mgr. falli brott.
b. 5. mgr. orðist svo:
Óheimilt er að vista barn í öryggisklefa.
9. Við 20. gr.
a. E-liður 1. mgr. orðist svo: valdbeitingarheimildir starfsfólks, framkvæmd valdbeitingar, þar á meðal um beitingu valdbeitingartækja og þjálfun og hæfisskilyrði þeirra sem fara með slíkar heimildir, sbr. 11. gr.
b. Á eftir orðunum „líkamsleit og leit“ í g-lið 2. mgr. komi: í vistarverum.
10. 21. gr. orðist svo:
Lög þessi öðlast þegar gildi. Brottfararstöð skal þó ekki taka til starfa fyrr en 1. desember 2026.
Þrátt fyrir 1. málsl. 1. mgr. skulu d-, f- og j-liður 1. tölul. 22. gr. taka gildi 12. júní 2026 en a-, b-, c-, e-, g-, h-, i-, k-, l-, m- og n-liður 1. tölul. 22. gr. taka gildi 1. desember 2026.
11. Við 1. tölul. 22. gr.
a. A-liður d-liðar orðist svo: útlendingur sem stöðvaður er í ólögmætri för yfir ytri landamæri og uppfyllir ekki komuskilyrði.
b. Í stað orðanna „fórnarlömb mansals“ í 1. málsl. 2. tölul. f-liðar komi: þolendur mansals.
c. Á eftir 1. mgr. a-liðar k-liðar komi ný málsgrein, svohljóðandi:
Ekki skal beita þessu ákvæði ef tilkynningarskylda eða krafa um að dveljast á ákveðnum stað skv. 114. gr. er talin nægjanleg til að ná því markmiði sem að er stefnt.
d. Í stað 1. málsl. 5. mgr. c-liðar k-liðar komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Úrskurður dómara um að útlendingur skuli vistaður á brottfararstöð sætir kæru til Landsréttar. Um meðferð málsins fer eftir lögum um meðferð sakamála.
e. Við 1. málsl. 1. mgr. e-liðar k-liðar bætist: enda hafi ekkert annað vægara úrræði skv. XIII. kafla dugað til eða það talist ófullnægjandi.
f. Í stað orðsins „þess“ í 3. málsl. 5. mgr. e-liðar k-liðar komi: barns.
g. Inngangsmálsliður m-liðar orðist svo: 5. tölul. 1. mgr. 120. gr. laganna orðast svo.
Alþingi, 26. maí 2026.
| Víðir Reynisson, form. |
Grímur Grímsson, frsm. |
Guðmundur Ari Sigurjónsson. | |
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | Sandra Sigurðardóttir. | ||