Ferill 230. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1248 — 230. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um brottfararstöð.
Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Inngangur.
Fyrsti minni hluti styður markmið frumvarpsins um að uppfylla Schengen-skuldbindingar Íslands og efla skilvirkni í málefnum útlendinga en leggur til nokkrar úrbætur til að bæta málsmeðferð og tryggja réttindi þeirra sem dvelja munu í brottfararstöð sem og þeirra sem þar munu starfa.
Fyrsti minni hluti leggur því fram breytingartillögur við frumvarpið sem eru m.a. byggðar á athugasemdum sem bárust frá umsagnaraðilum, þá sérstaklega lögreglustjóranum á Suðurnesjum og ríkislögreglustjóra.
Athugasemdir við frumvarpið.
Niðurfelling gæsluvarðhaldsheimilda.
Fyrsti minni hluti tekur undir markmið frumvarpsins um að koma á sérhæfðu vistunarúrræði, brottfararstöð, frekar en að gæsluvarðhald í fangelsi sé eina úrræðið sem til staðar er. Það er bæði mannlegra og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt Schengen-samstarfinu.
Fyrsti minni hluti geldur hins vegar varhug við því að fella niður gæsluvarðhaldsheimildir 115. gr. útlendingalaga áður en nokkur reynsla hefur fengist á brottfararstöðina. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lýsti sérstaklega yfir andstöðu við þessa tilhögun og benti á að upp kunna að koma tilvik sem ekki er æskilegt að meðhöndla í brottfararstöð með öðrum vistmönnum.
Hagsmunir barna í brottfararstöðvum.
Fyrsti minni hluti leggur áherslu á að hagsmunir barna í brottfararstöðvum séu tryggðir í hvívetna, að vistun barna komi eingöngu til í undantekningartilvikum þegar brýna nauðsyn ber til og allra leiða sé gætt til að tryggja að vistun þeirra skuli ávallt vera eins skammvinn og kostur er og sæta reglubundnu endurmati. Við slíkt mat skuli hagsmunir barnsins ávallt hafðir að leiðarljósi, í samræmi við grundvallarreglu barnaréttar um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang.
Hvorki í frumvarpinu né í breytingartillögum meiri hluta nefndarinnar er friðhelgi barna tryggð með fullnægjandi hætti. Í nefndaráliti meiri hlutans er sérstaklega tiltekið að með breytingartillögu hans er fjölskyldum með börn eingöngu tryggð sín eigin afmörkuðu svefnrými. Af því leiðir að barni getur verið gert að nýta eldunaraðstöðu eða salerni með fullorðnum einstaklingum utan fjölskyldunnar. Er því lagt til að mælt verði sérstaklega fyrir um að fjölskyldum með börn sem vistaðar eru í brottfararstöð verði að lágmarki úthlutað sínu eigin afmarkaða svefnrými, tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis- og eldunaraðstöðu.
Réttindi og skyldur starfsfólks brottfararstöðva.
Fyrsti minni hluti gagnrýnir þá breytingu sem gerð var á frumvarpsdrögunum eftir að þau voru lögð í samráðsgátt er varðar starfsfólk brottfararstöðvarinnar, þar sem hugtakið „fangaverðir“ er fellt brott og í stað þess eingöngu vísað til „starfsfólks“. Sú breyting virðist fyrst og fremst hafa að markmiði að mála ljósari mynd af starfsemi brottfararstöðva en tilefni er til. Brottfararstöð hefur í grunninn nákvæmlega sama hlutverk og fangelsi, þ.e. að hýsa frelsissvipta einstaklinga. Jafnframt hefur starfsfólk brottfararstöðva og fangaverðir í fangelsum sams konar valdbeitingarheimildir og fangaverðir, auk sambærilegra heimilda til líkamsleitar og leitar í vistarverum þeirra sem þar eru vistaðir. Þá hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum, rétt eins og forstöðumenn fangelsa, heimild til að beita þá sem vistaðir eru á brottfararstöð agaviðurlögum og vistun í öryggisklefa.
Hins vegar er umtalsverður munur á réttindum og skyldum fangavarða og starfsfólks brottfararstöðva.
Í fyrsta lagi eru eingöngu 15 ára og eldri vistaðir í fangelsi, en enginn lágmarksaldur er til staðar í brottfararstöðvum.
Í öðru lagi er gerð krafa samkvæmt lögum um að fangaverðir hafi lokið prófi í fangavarðafræðum eða sambærilegu námi sem viðurkennt er af Fangelsismálastofnun, sbr. 1. mgr. 8. gr. laga um fullnustu refsinga, nr. 15/2016. Ekki er mælt fyrir um sambærilega menntun starfsfólks brottfararstöðva í frumvarpinu.
Í þriðja lagi er gerð krafa um bakgrunnsskoðun fangavarða í 10. gr. laga nr. 15/2016. Í slíkri skoðun er lagt sérstakt mat á hvort óhætt sé að veita viðkomandi aðgang að fangelsum og aðgengi að upplýsingum um framkvæmd fangelsisstarfa og fanga. Fangelsismálastofnun er m.a. heimilt að afla upplýsinga um viðkomandi úr málaskrá lögreglu, sakaskrá og upplýsingakerfi Alþjóðalögreglunnar eða annarra erlendra yfirvalda. Skal skoðunin endurtekin með reglulegu millibili og ekki sjaldnar en á fimm ára fresti. Í frumvarpinu er hvergi vikið að bakgrunnsskoðun starfsfólks brottfararstöðva.
Í fjórða lagi er fangavörðum óheimilt að gera verkfall, sbr. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 15/2016, ólíkt starfsfólki brottfararstöðva. Ekkert stendur því í vegi fyrir því að starfsfólk brottfararstöðva leggi niður störf í kjaradeilum.
Í fimmta lagi er kveðið á um rétt fangavarða til bóta úr ríkissjóði vegna líkams- og munatjóns sem þeir verða fyrir í starfi sínu, sbr. 4. mgr. 8. gr. laga nr. 15/2016, en sambærilegt ákvæði er ekki til staðar í frumvarpinu.
Með vísan til framangreinds er að mati 1. minni hluta ótækt að gera minni kröfur til menntunar fangavarða og bakgrunnsskoðunar starfsfólks brottfararstöðva en gert er í tilviki fangavarða, sér í lagi þegar mun yngri börn eru vistuð á brottfararstöðvum en í fangelsum. Þá er það jafnframt varhugavert að starfsfólki brottfararstöðva sé heimilt að gera verkfall, en eðli málsins samkvæmt myndi starfsemi brottfararstöðva þá liggja niðri á meðan verkfall varir. Þá telur 1. minni hluti jafnframt mikilvægt að tryggja réttindi starfsfólks brottfararstöðva til bóta vegna tjóns sem það getur orðið fyrir í störfum sínum. Þó að frelsissvipting á brottfararstöð sé ekki tilkomin vegna gruns um refsiverða háttsemi og þeir einstaklingar sem þar hafa verið vistaðir því ekki fangar í skilningi refsilaga er um að ræða frelsissviptingu og því mikilvægt að tryggja sem best öryggi vistmanna og gæslu þeirra. Að mati 1. minni hluta er það best tryggt með starfsmönnum sem hafa þá þekkingu, menntun og reynslu sem fangaverðir búa yfir.
Því leggur 1. minni hluti til að kveðið verði á um að starfsfólk brottfararstöðva verði fangaverðir, líkt og lagt var upp með í frumvarpsdrögunum í samráðsgátt.
Staðsetning brottfararstöðva.
Fyrsti minni hluti leggur til að kveðið verði sérstaklega á um það í frumvarpinu að brottfararstöðvar skuli staðsettar utan þéttbýlis. Fangelsi hafa í seinni tíð verið staðsett utan þéttbýlis og þykir rétt að tryggt verði að sömu sjónarmið séu viðhöfð við ákvörðun staðsetningar brottfararstöðva, enda um sambærileg úrræði að ræða.
Vistun útlendinga í neyðartilvikum.
Fyrsti minni hluti leggur til að ekki verði kveðið sérstaklega á um að heimilt sé að víkja frá 4. mgr. 7. gr. þegar neyðarástand stendur yfir skv. 10. gr. frumvarpsins. Í 10. gr. kemur nú þegar fram að heimilt sé að vista útlendinga annars staðar en á brottfararstöð þegar neyðarástand ríkir og tekur það því eðli máls til þeirra sem vistaðir eru í sérstökum vistarverum skv. 4. mgr. 7. gr. Slíkar vistarverur eru brottfararstöð, sbr. 4. tölul. 2. gr. frumvarpsins, og kveðið er á um þær vistarverur í II. kafla frumvarpsins sem ber heitið „Brottfararstöð“. Því er ekki ástæða til að tilgreina sérstaklega 4. mgr. 7. gr. í 10. gr. frumvarpsins.
Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. 4. gr. orðist svo, ásamt fyrirsögn:
Starfsfólk.
Fangaverðir skulu uppfylla skilyrði til starfa sem sett eru í lögum um fullnustu refsinga og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Heimilt er að ráða fangavörð tímabundið til afleysinga, enda hafi hann setið undirbúningsnámskeið í fangavörslu og staðist bakgrunnsskoðun.
Fangaverðir skulu njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og mælt er fyrir um í lögum um fullnustu refsinga.
Fangaverðir og annað starfsfólk skal hljóta viðeigandi þjálfun sem tekur mið af þeim einstaklingum sem vistaðir eru á brottfararstöð.
2. Við 5. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Brottfararstöðvar skulu staðsettar utan þéttbýlis.
3. 4. mgr. 7. gr. orðist svo:
Fjölskyldum með börn skal séð fyrir sérstökum vistarverum sem tryggja fullnægjandi friðhelgi þeirra í húsnæði sem er eingöngu ætlað fjölskyldum með börn. Hver fjölskylda með börn skal hafa eigið afmarkað rými með að lágmarki svefnaðstöðu, tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis- og eldunaraðstöðu.
4. Orðin „og einnig víkja frá 4. mgr. 7. gr.“ í 10. gr. falli brott.
5. L-liður 1. tölul. 22. gr. falli brott.
Alþingi, 1. júní 2026.
| Sigurður Örn Hilmarsson, frsm. |
Jón Pétur Zimsen. |