Ferill 676. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1252  —  676. mál.




Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar


um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um málsatvik í tengslum við snjóflóð í Súðavík 16. janúar 1995.


    Árla morguns 16. janúar 1995 féll snjóflóð úr Súðavíkurhlíð á byggðina í Súðavík með þeim afleiðingum að fjórtán manns létu lífið, þar af átta börn. Þessi atburður var reiðarslag fyrir samfélagið í Súðavík og hefur haft djúpstæð áhrif á eftirlifendur og aðstandendur þeirra sem létust, auk þess sem atburðurinn hefur markað djúp spor í sögu þjóðarinnar.
    Aðdragandi að skipun rannsóknarnefndarinnar var sá að 6. júní 2023 barst stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd bréf frá þáverandi forsætisráðherra. Í því kom fram að ráðherra hefði borist erindi frá lögmannsstofu fyrir hönd aðstandenda og eftirlifandi ættingja þeirra fjórtán einstaklinga sem létust í snjóflóðinu. Í erindinu var þess farið á leit að rannsókn færi fram á þætti hins opinbera í snjóflóðinu, til að mynda með skipun rannsóknarnefndar Alþingis. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd ákvað að taka málið til umfjöllunar, afla gagna og kalla til sín gesti. Að lokinni þeirri yfirferð var það niðurstaða nefndarinnar að mikilvægt væri að fram færi hlutlæg og óháð rannsókn á málsatvikum í tengslum við snjóflóðið. Að mati nefndarinnar þyrfti að taka til rannsóknar málsatvik svo að leiða mætti í ljós hvernig staðið var að ákvörðunum og verklagi stjórnvalda í tengslum við snjóflóðið. Á grundvelli slíkrar athugunar gætu Alþingi og stjórnvöld eftir atvikum metið hvort dreginn hefði verið lærdómur af atburðunum og hvort úrbóta væri þörf. Síðast en ekki síst hefði slík athugun það mikilvæga hlutverk að svara ákalli um óhlutdræga rannsókn. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd flutti því tillögu til þingsályktunar um rannsókn vegna snjóflóðs sem féll í Súðavík 16. janúar 1995, skv. 2. mgr. 1. gr. laga um rannsóknarnefndir, nr. 68/2011, og var sú tillaga samþykkt af Alþingi 30. apríl 2024 sem þingsályktun nr. 12/154.
    Í þingsályktuninni var hlutverk rannsóknarnefndarinnar afmarkað en hún skyldi draga saman og útbúa til birtingar upplýsingar um málsatvik í því augnamiði að varpa ljósi á ákvarðanir og verklag stjórnvalda þar sem gerð yrði grein fyrir:

     1.      hvernig staðið var að ákvörðunum um snjóflóðavarnir, hvernig skipulagi byggðar var háttað með tilliti til snjóflóðahættu, gerð hættumats og hvernig staðið var að upplýsingagjöf um snjóflóðahættu til íbúa Súðavíkur,
     2.      fyrirkomulagi og framkvæmd almannavarnaaðgerða í aðdraganda snjóflóðsins, í kjölfar þess og þar til hættuástandi var aflétt,
     3.      eftirfylgni stjórnvalda í kjölfar snjóflóðsins.

    Þáverandi forseti Alþingis skipaði rannsóknarnefndina í kjölfarið og tók hún til starfa 1. janúar 2025. Nefndarmenn voru Finnur Þór Vilhjálmsson héraðsdómari, formaður, Dóra Hjálmarsdóttir verkfræðingur og Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur. Með nefndinni starfaði Sonja Hjördís Berndsen, lögmaður hjá embætti ríkislögmanns. Um umboð nefndarinnar og viðfangsefni rannsóknar hennar var í skipunarbréfum nefndarmanna vísað til áðurnefndrar greinargerðar með þingsályktunartillögu um skipan nefndarinnar. Þingsályktunin og greinargerðin mörkuðu þannig ramma rannsóknarinnar að ytra umfangi og helstu rannsóknarefni.
    Gagnaöflun nefndarinnar og vinna tengd henni átti sér einkum stað á fyrri helmingi árs 2025 en gögn héldu þó áfram að berast nefndinni út starfstíma hennar. Nefndin leitaðist við að gefa almenningi færi á því að koma ábendingum til sín og bárust henni erindi og komu þannig m.a. fram upplýsingar sem höfðu síðan þýðingu í rannsókn og athugunum nefndarinnar. Undantekningarlaust var brugðist vel við óskum nefndarinnar um gögn og var henni veitt liðsinni við gagnaöflun. Í nokkrum mæli fékk nefndin einnig afhent gögn frá einkaaðilum og einstaklingum ýmist að ósk nefndarinnar eða í kjölfar frumkvæðis þeirra að afhendingu gagna og upplýsinga. Þá fóru nefndarmenn í vettvangsathuganir og heimsóknir. Skýrslutökur fóru fram á síðari hluta árs 2025. Með hliðsjón af atvikum og málefnum ákvað nefndin að veita þeim aðilum sem gáfu skýrslur, veittu henni upplýsingar skriflega eða eftir atvikum þeim sem nefndin átti í óformlegum samskiptum við kost á að þiggja sálfræðiþjónustu.
    Hinn 15. desember 2025 var skýrslu rannsóknarnefndarinnar skilað til forseta Alþingis í samræmi við 13. gr. laga um rannsóknarnefndir. Skýrslan og fylgiskjöl með henni voru birt sama dag á vefsíðu nefndarinnar. Sama dag var skýrslan kynnt á blaðamannafundi. Forseti Alþingis sendi skýrsluna síðan til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í samræmi við lög um rannsóknarnefndir. Hinn 17. desember 2025 birti nefndin tilkynningu á vef Alþingis um að unnt væri að senda henni erindi um skýrsluna en engin erindi bárust. Hófst efnisleg meðferð í janúar 2026. Nefndin fundaði um skýrsluna og fékk á fundi sína nefndarmenn rannsóknarnefndarinnar. Þar var skýrslan kynnt og nefndarmönnum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar gefið færi á að spyrja spurninga um efni skýrslunnar.
    Að lokinni yfirferð sinni er það mat nefndarinnar að skýrsla rannsóknarnefndar standi fyrir sínu. Hún er greinargóð og vönduð. Þingsályktunin lagði áherslu á að draga fram sannleikann um atburðina og eftirmála í tengslum við snjóflóðið í Súðavík 16. janúar 1995. Það er mat nefndarinnar að skýrslan dragi vel fram atburði málsins þrátt fyrir þann langa tíma sem liðinn er en hann hefur eðli málsins samkvæmt með ýmsum hætti áhrif á möguleika til að varpa fullnægjandi ljósi á málsatvik með skýrslutökum af einstaklingum. Þetta eigi bæði við í almennum skilningi með tilliti til minnis fólks og möguleika á að rifja áreiðanlega upp atvik langt aftur í tímann en einnig vegna þess að sumir eru ekki lengur til frásagnar. Að mati nefndarinnar verður ekki betur séð en að rannsóknarnefndin hafi unnið vinnu sína af mikilli yfirvegun, kostgæfni og nærgætni.
    Fyrir stjórnvöld er skýrslan mikilvægur lærdómur. Efling almannavarna er viðvarandi verkefni. Þó vissulega sé langt liðið frá snjóflóðinu í Súðavík og mikil þróun hafi orðið á vettvangi almannavarna ,t.d. hvað varðar tækni, verklag og þekkingu, telur nefndin mikilvægt að stjórnvöld nýti sér lærdóm skýrslunnar. Við framkvæmd almannavarna þarf ábyrgð og verkaskipting að vera skýr, samskipti opin og góð og upplýsingaflæði tryggt. Þá þarf að tryggja aðgerðir sem miða að því að byggja upp samfélög eftir áföll. Skýrslan á jafnframt að vera áminning um mikilvægi þess að almannavarnaatburðir séu rýndir og metnir þannig að leiða megi í ljós orsakir, draga lærdóm af fenginni reynslu og stuðla þannig að umbótum til frambúðar. Skapa þarf umhverfi trausts sem hefur að markmiði að læra af reynslunni og þar með styrkja almannavarnir en ekki að skipta sök eða ábyrgð. Með því megi jafnframt stuðla að auknu trausti milli almennings og stjórnvalda.
    Að lokum leggur nefndin áherslu á að með skýrslunni er tryggt að sagan sé varðveitt með heildstæðum hætti til frambúðar. Fyrir aðstandendur og eftirlifendur snjóflóðsins í Súðavík hefur leiðin verið löng og erfið. Að mati nefndarinnar ber að þakka þeim fyrir þá vegferð en það er einungis vegna ákalls þeirra og þrautseigju sem rannsóknarskýrslan leit dagsins ljós.
    Sigmundur Ernir Rúnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifar undir álit þetta samkvæmt heimild í 4. mgr. 28. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis, sbr. 2. mgr. 29. gr. þingskapa. Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 29. maí 2026.

Bryndís Haraldsdóttir,
form., frsm.
Jón Gnarr. Árni Helgason.
Eiríkur Björn Björgvinsson. Guðmundur Ingi Kristinsson. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir.
Sigmundur Ernir Rúnarsson. Þorgrímur Sigmundsson.