Ferill 300. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1260  —  300. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

Frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Annar minni hluti tekur undir markmið frumvarpsins um að tryggja að einstakar erlendar fjárfestingar leiði ekki af sér ógn við þjóðaröryggi og -hag og telur það góðra gjalda vert. Aftur á móti er það mat 2. minni hluta að með frumvarpinu sé víða gengið lengra en þörf krefur og að breytingartillögur meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar nægi ekki til að sníða þá vankanta af.
    Í greinargerð með frumvarpinu segir að markmið laganna sé að samþætta sjónarmið um mikilvægi erlendra fjárfestinga fyrir efnahagslífið og nauðsyn þess að erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum og annarri samfélagslega mikilvægri starfsemi séu í samræmi við þjóðaröryggi og allsherjarreglu. Markmið laganna sé ekki að takmarka erlendar fjárfestingar með almennum hætti heldur að tryggja að þær leiði ekki af sér öryggisógn á afmörkuðum mikilvægum samfélagssviðum.
    Annar minni hluti telur að þrátt fyrir nefnt markmið muni frumvarpið í reynd leiða til þess, sökum strangra form- og efniskrafna sem ganga lengra en þekkist í sambærilegri löggjöf erlendis, að áhugi erlendra fjárfesta á Íslandi verði minni en ella.
    Óþarft er að fjölyrða um þau áhrif sem fylgja fjárfestingu erlendra aðila hér á landi og fýsileika þess að ýta undir hana. Þar hafa ýmis atriði gegnum tíðina reynst þrándur í götu og nægir þar að nefna tíðar og fyrirvaralitlar skattbreytingar, breyttar túlkanir á skattlöggjöf án undanfarandi lagabreytinga og ýmsa gullhúðun innflutts regluverks. Annar minni hluti óttast að efni frumvarpsins geti bæst við þennan lista og orðið til þess að standa enn frekar í vegi erlends fjármagns. Sitjandi ríkisstjórn hefur verið tíðrætt um að efla samkeppnishæfni Íslands, auka verðmætasköpun, draga inn erlenda fjárfestingu, svo og að draga úr íþyngjandi regluverki. Frumvarpið, þrátt fyrir breytingar meiri hlutans, gengur í berhögg við öll framangreind markmið.
    Í dæmaskyni má nefna birgja-, rekstrar- og þjónustusamninga, sem oft eru fjölmargir hjá einstökum rekstraraðilum og margir hverjir samhangandi. Telja má víst að tilkynningarskyldan, jafn víðtæk og frumvarpið gerir ráð fyrir, muni leiða til tregðu og tafa við samningsgerð, sem síðar mun leiða til þess að lengja í tímalínum verkefna.
    Þá telur 2. minni hluti rétt að vekja athygli á víðtækum heimildum ráðherra til að útfæra lögin nánar með reglugerð, sbr. 1. mgr. 3. gr., 3. mgr. 5. gr. og 4. mgr. 6. gr. frumvarpsins. Í ljósi þess hve víðtækar heimildir ráðherra fær til inngripa samkvæmt lögunum, á sviði sem varðar stjórnarskrárvarin réttindi, telur 2. minni hluti að betur færi á því að reglugerðarheimildirnar væru þrengri og betur afmarkaðar. Að sama skapi brýnir 2. minni hluti fyrir ráðuneytinu að vinna hratt og örugglega úr þeim tilkynningum sem berast því á grundvelli laganna eftir samþykkt frumvarpsins.

Breytingartillögur.
Önnur tækni (7. tölul. 3. gr.).
    Í 3. gr. frumvarpsins er talin upp í sjö töluliðum starfsemi sem telst vera á viðkvæmu sviði og þar með undirorpin gildissviði og kvöðum laganna. Athygli er vakin á því að samkvæmt greininni, sbr. 2. málsl. ákvæðisins, hefur ráðherra heimild til að kippa starfsemi ýmist undir eða undan gildissviði laganna með reglugerð.
    Í 7. tölul. greinarinnar er að finna opið ákvæði sem varðar framleiðslu og þróun á annars konar mikilvægri tækni en fellur undir þá sex töluliði sem á undan koma. Í sérstökum athugasemdum við greinina er að finna upptalningu á ýmissi starfsemi sem fyrirhugað er að falli undir ákvæðið en enga upptalningu er að finna í ákvæðinu sjálfu.
    Í ljósi þess að löggjöfin hefur áhrif á eignarrétt og atvinnufrelsi, sem varin eru skv. 72. og 75. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, telur 2. minni hluti að betur færi á því að lögin afmörkuðu að nokkru leyti ramma um atvinnugreinar sem fallið gætu undir greinina, í stað þess að ráðherra hverju sinni hefði sjálfdæmi um hvað félli þar undir.

Nýstofnuð félög (4. mgr. 4. gr.).
    Annar minni hluti tekur undir umfjöllun meiri hlutans um 4. mgr. 4. gr. frumvarpsins. Í greininni er mælt fyrir um að tilteknar ráðstafanir í tilfelli nýstofnaðra félaga myndi ekki tilkynningarskyldu, enda nemi ráðstöfun erlends aðila til innlends aðila að hámarki 800 millj. kr. yfir þriggja ára tímabil í kjölfar þess að innlenda aðilanum er komið á fót, að því gefnu að erlendi aðilinn fari ekki með yfirráð eða hafi ekki veruleg áhrif í innlenda fyrirtækinu. Meiri hlutinn telur rétt að hækka fyrrgreint hámark um 200 millj. kr., en að mati 2. minni hluta er þar ekki stigið nógu vasklega fram.
    Í umsögn Frumtaks er vikið að því að viðbúið sé að fjárfestingar erlendra aðila í nýsköpunarfélögum, bæði snemmbærum og á vaxtarstigi, muni falla innan þeirra marka og að fjárhæðin sé ekki sérstaklega rökstudd. Er þar lagt til að fjárhæðarmörkin verði tvöfölduð hið minnsta. Annar minni hluti tekur undir þessar athugasemdir og leggur til að fjárhæðarmörkin hækki í 2.000 millj. kr. Var í þeim efnum horft til þess að í danskri löggjöf um efnið, sem sú íslenska sækir fyrirmynd sína til, hefur verið miðað við 75 millj. danskra kr., eða sem nemur tæplega 1.500 millj. kr. á gengi dagsins. Að mati 2. minni hluta er mikilvægt að hvetja til fjárfestingar hér á landi og er því lagt til að upphæðin hér á landi verði hærri.

Gildissvið 5. gr.
    Í umsögnum umsagnaraðila voru gerðar athugasemdir við nokkur atriði frumvarpsins, einkum og sér í lagi þær umfangsmiklu kvaðir sem 5. gr. frumvarpsins leggur á rekstraraðila hér á landi. Með greininni er lögð til tilkynningarskylda vegna samninga milli erlendra aðila og innlendra rekstraraðila, sem falla undir gildissvið 3. gr., og varðar tilkynningarskyldan m.a. vissa samninga um lánsfjármögnun, veð- og tryggingarréttindi og samstarf um rannsóknir og þróun, svo og tilgreinda birgja-, rekstrar- og þjónustusamninga.
    Annar minni hluti telur að greinin, þrátt fyrir bætur meiri hlutans, þrengi mjög að innlendum rekstraraðilum og sé ýmist til þess fallin að draga úr áhuga erlendra þjónustu- og lánveitenda á viðskiptum við þá eða leiða til lakari viðskiptakjara og skerðinga á samkeppniskjörum. Má í því samhengi benda á að greinin gengur lengra en erlendar fyrirmyndir hennar.
    Í umsögn Samorku er að finna tillögu að breyttu orðalagi 1. mgr. 5. gr., sem samtökin telja að tryggi þau markmið sem stefnt er að með frumvarpinu, án þess að kvaðir þess verði of íþyngjandi fyrir starfsemi rekstraraðila mikilvægra innviða. Annar minni hluti tekur undir breytingartillögu samtakanna og gerir hana að sinni.


Rýni láns- og fjármögnunarsamninga (1. tölul. 1. mgr. 5. gr.).
    Annar minni hluti tekur undir athugasemdir og áhyggjur sem birtast m.a. í umsögnum Samorku, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, Frumtaks, HS Orku og Landsnets. Fyrirséð er til að mynda að fyrirvarar um tilkynningarskyldu samninga í skuldabréfaútboðum muni draga úr áhuga erlendra aðila á þátttöku í slíkum útboðum eða leiða til verri vaxtakjara en ella. Slíkt mun óhjákvæmilega skila sér út í verðlagningu fjármagns, í formi hærri vaxta, til heimila og fyrirtækja, auk þess að auka vaxtakostnað fyrirtækja sem eiga og reka þjóðhagslega mikilvæga innviði. Þá er til þess að líta að fjármagn er afar kvikt og óvíst hvort erlendir fjárfestar telji það þjóna hagsmunum sínum að bíða með að koma fjármagni í vinnu á meðan rýni ráðuneytisins stendur yfir, svo og að fjármálastofnanir lúta ströngu eftirliti og þurfa að uppfylla margvíslegar kröfur, m.a. um lágmarkseiginfjárhlutfall, og getur því riðið á að fjármögnun gangi hratt og örugglega fyrir sig.
    Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa bent á að upp geti komið alvarleg staða ef fjármögnun fjármálafyrirtækja falla undir lögin. Fjármögnun bankakerfisins á fjármálamarkaði erlendis er óhjákvæmileg forsenda fyrir virku atvinnulífi og góðum lífskjörum hérlendis. Án slíkrar fjármögnunar væri verulegum erfiðleikum bundið að tryggja nægilegt fjármagn til íslensks atvinnulífs og heimilanna í landinu. Minnt er á að þau fyrirtæki sem um ræðir eru starfsleyfisskyld, starfa eftir ströngum evrópskum lagaramma og eru undir eftirliti Seðlabanka Íslands. Þar að auki er ljóst að fjármálafyrirtæki þurfa að lúta ýmsum kröfum um eigið fé, laust fé, lágmarkskröfur um eiginfjárgrunn og hæfar skuldbindingar (e. MREL). Skjótt og milliliðalaust aðgengi að fjármagnsmarkaði er nauðsynleg forsenda þess að framangreindir aðilar geti uppfyllt þær skyldur og því falla kröfur frumvarpsins illa að þeim. Um er að ræða þekkt og staðlað viðskiptaform sem hefur verið byggt upp í áraraðir og getur haft afdrifaríkar afleiðingar ef aukaskref og afbrigði koma inn í hliðina á slíkum viðskiptum.
    Vert er að vekja athygli á því að láns- og fjármögnunarsamningar skv. 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. eru frábrugðnir fjármögnunarsamningum sem tryggðir eru með veði í fasteignum, mannvirkjum, hugréttindum eða annars konar tryggingu. Hinir síðarnefndu geta leitt til þess að mikilvægir innviðir verði í kjölfar fullnustuaðgerða eign erlendra lánveitenda en sama staða er ekki uppi á teningnum varðandi þá fyrrnefndu.
    Annar minni hluti telur að reglan verði til þess fallin að hækka fjármögnunarkostnað kerfislega mikilvægra fyrirtækja, bæði í fjármálageiranum og þeirra sem eiga og reka innviði landsins, sem verði sá kostur nauðugur að velta verri fjármagnskjörum yfir á neytendur þjónustunnar, heimili og fyrirtæki landsins, án þess að augljós ávinningur sé til staðar á móti.
    Í samræmi við framangreint leggur 2. minni hluti til að 1. tölul. 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins falli brott.

Tilkynningar viðskipta- og samstarfssamninga (b- og c-liður 3. tölul. 1. mgr. 5. gr.).
    Í athugasemdum umsagnaraðila við b- og c-lið 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. er á það bent að stærstur hluti samninga rekstraraðila mikilvægra innviða muni falla undir skyldu greinanna og þar með yrðu flestir birgja- og samstarfssamningar þeirra háðir tilkynningarskyldu, algjörlega óháð því hvort þeir varði mikilvæga innviði eður ei. Vert er að hafa í huga að slíkir samningar geta hlaupið á hundruðum hjá einstökum rekstraraðila og því ljóst að umfangið getur orðið umtalsvert.
    Í nefndaráliti meiri hlutans er brugðist við þessu með því að lengja í gildistíma samninga sem falla undir skylduna, svo og uppsagnarfresti þeirra, þ.e. að binditími samninga verði að vera minnst 36 mánuðir og uppsagnarfrestur 24 mánuðir til að tilkynningarskylda kvikni.
    Annar minni hluti telur breytingu meiri hlutans til bóta en að enn sé hætta á að kvöðin geti leitt til dræmari þátttöku í útboðum, hærra verðs, lakari samningskjara og minni áhuga erlendra aðila á samvinnu við innlenda rekstraraðila. Jafnframt er sú hætta enn til staðar að margir samningar muni falla undir tilkynningarskylduna, sem viðbúið er að leiði til þess að málsmeðferðartími verði úr hófi.
    Af þeim sökum leggur 2. minni hluti til enn frekari lengingar á framangreindum frestum á þann veg að binditími verði að ná 48 mánuðum hið minnsta og uppsagnarfrestur 36 mánuðum.

Frumkvæðisrýni ráðherra (1. mgr. 6. gr.).
    Annar minni hluti tekur undir athugasemdir í nefndaráliti meiri hlutans varðandi 1. mgr. 6. gr. en telur að með breytingartillögu meiri hlutans sé ekki gengið nógu langt.
    Samkvæmt frumvarpinu er ráðherra veitt heimild til að grípa til frumkvæðisrýni vegna viðskipta, sem ekki falla undir ákvæði frumvarpsins um skyldurýni, ef nauðsynlegt þykir með tilliti til þjóðaröryggis eða allsherjarreglu. Slíkri rýni verði þó ekki beitt ef meira en fimm ár eru liðin frá því að ráðstöfun átti sér stað.
    Með breytingartillögu meiri hlutans er því skilyrði bætt við að slíkri rýni verði ekki beitt ef liðnir eru meira en sex mánuðir frá því að ráðherra varð kunnugt um umrædda ráðstöfun. Slík breyting er til bóta en þó ekki fullnægjandi að mati 2. minni hluta. Orðalag breytts ákvæðis skilur eftir þann möguleika að ráðherra geti borið fyrir sig að hafa ekki verið meðvitaður um ráðstöfun og gripið inn í nokkuð seint. Sökum þess leggur 2. minni hluti til breytingu þess efnis að ráðherra geti ekki gripið til úrræðisins hafi sex mánuðir liðið frá því að honum mátti vera kunnugt um ráðstöfun, svo sem í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar, skýrsluskila til opinbers aðila eða með öðrum sambærilegum hætti.

Frumkvæðisrýni vegna útboða (3. mgr. 6. gr.).
    Í áliti meiri hluta nefndarinnar er fjallað um skyldu til forrýni vegna útboða, sbr. 3. mgr. 6. gr. frumvarpsins. Í greininni felst að ráðherra geti ákveðið að erlendir aðilar, sem eru þátttakendur í útboði innlends rekstraraðila mikilvægra innviða, tilkynni ráðherra fyrir fram um tilboð sitt. Eftir að ráðherra hefur kunngjört slíka ákvörðun er óheimilt að velja tilboð, sem sæta skal rýni, á bindandi hátt áður en málsmeðferð ráðherra lýkur.
    Meiri hlutinn leggur til að téð skylda geti aðeins gilt um útboð af hálfu rekstraraðila í eigu hins opinbera og að einkaaðilar verði ekki undir sömu reglu settir. Annar minni hluti tekur undir þá tillögu en telur að ganga eigi lengra.
    Að mati 2. minni hluta felst í reglunni í reynd tvöföld rýni, þ.e. fyrst við upphaf útboðs og svo á ný þegar útboði lýkur. Í umsögnum umsagnaraðila er á það bent að fyrrgreind regla geti dregið úr áhuga erlendra aðila á þátttöku í útboðum, svo og að reglan sé til þess fallin að tefja framkvæmd útboða og seinka tímalínum verkefna. Þá er viðbúið að flestir samningar, þegar tilboð liggja fyrir, yrðu háðir rýni og vísast til b- og c-liðar 3. tölul. 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins í þeim efnum.
    Annar minni hluti telur regluna afar íþyngjandi, kostnaðarsama og ekki til þess fallna að flýta fyrir framkvæmdum á vegum hins opinbera, auk þess sem ávinningurinn af henni virðist ekki vera í nokkru samræmi við þá fyrirhöfn sem af hlýst. Af þeim sökum er lagt til að málsgreinin falli brott.
    Að framangreindu virtu leggur 2. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      7. tölul. 3. gr. orðist svo: Framleiðslu eða þróun á þjarkatækni, drónatækni, þrívíddarprentun til framleiðslu íhluta til iðnaðarnota, hálfleiðurum, kjarnorkutækni, skammtatækni, nanótækni, líftækni, flug- og geimtækni, tækni er varðar gervigreind, tækni til varðveislu orku til iðnaðarnota, tækni til orkuumbreytingar og orkuflutninga eða annarri skyldri eða annars konar mikilvægri tækni sem ekki fellur undir aðra töluliði þessarar greinar.
     2.      Í stað orðanna „800 millj.“ í 4. mgr. 4. gr. komi: 2 milljarðar.
     3.      Við 1. mgr. 5. gr.
                  a.      1. málsl. orðist svo:
                      Tilkynna skal ráðherra um gerð eftirfarandi viðskiptasamninga milli erlends aðila og innlends rekstraraðila sem fellur undir 3. gr. með tilkynningu skv. 7. gr., sbr. 8. gr., ef erlendi aðilinn öðlast veruleg áhrif eða yfirráð yfir innlenda rekstraraðilanum í gegnum slíkan samning eða ef í samningnum getur falist ógn við þjóðaröryggi eða allsherjarreglu, svo sem af þeim sökum að samningurinn er um mikilvæga innviði, þ.e. kerfi, mannvirki, búnað, tækni o.fl. sem nauðsynleg eru til að tryggja virkni ómissandi samfélagslegrar starfsemi.
                  b.      1. tölul. falli brott.
                  c.      Við b-lið 3. tölul.
                      1.      Í stað tölunnar „24“ í 3. málsl. komi: 48.
                      2.      Í stað tölunnar „12“ í 3. málsl. komi: 36.
                  d.      Við c-lið 3. tölul.
                      1.      Í stað tölunnar „24“ í 3. málsl. komi: 48.
                      2.      Í stað tölunnar „12“ í 3. málsl. komi: 36.
     4.      Við 6. gr.
                  a.      Í stað orðanna „liðin meira en fimm ár frá því að ráðstöfunin átti sér stað“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: liðnir meira en sex mánuðir frá því að ráðherra mátti vera kunnugt um viðkomandi ráðstöfun og ekki meira en fimm ár frá því að ráðstöfunin átti sér stað.
                  b.      3. mgr. falli brott.
     5.      22. gr. falli brott.


Alþingi, 1. júní 2026.

Hildur Sverrisdóttir,
frsm.
Vilhjálmur Árnason.