Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1261  —  510. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (hækkun stofnframlaga ríkisins o.fl.).

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Bjargi íbúðafélagi, Brynju leigufélagi, BSRB, Landssamtökunum Þroskahjálp, Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði Íslands og ÖBÍ réttindasamtökum.
    Nefndinni bárust níu umsagnir auk minnisblaðs frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Frumvarpið er liður í áformum stjórnvalda um að fjölga almennum íbúðum í samræmi við fyrsta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum sem kynntur var í október 2025. Með frumvarpinu er lagt til að hækka stofnframlög ríkisins samkvæmt lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016, til að mæta háum fjármagnskostnaði stofnframlagshafa við núverandi efnahagsaðstæður og styrkja þar með grundvöll fyrir uppbyggingu leiguhúsnæðis með viðráðanlegum kostnaði. Þá er frumvarpinu einnig ætlað að einfalda skilyrði stofnframlaga sem veitt eru til kaupa á almennum íbúðum.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Fyrir nefndinni var fjallað um tilgang og markmið frumvarpsins. Lagðar eru til breytingar á hlutföllum stofnframlaga ríkisins skv. 11. gr. laga um almennar íbúðir, til samræmis við þau áform sem kynnt voru í fyrsta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar um húsnæðismál. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu er markmið leiguíbúðakerfis samkvæmt lögunum að bæta húsnæðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga undir ákveðnum tekju- og eignamörkum með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda eða að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna. Með a-lið 2. gr. frumvarpsins er því lagt til að almennt stofnframlag ríkisins geti numið allt að 23% í stað 18% af stofnvirði almennrar íbúðar, líkt og gildandi lög mæla fyrir um. Jafnframt fær ráðherra heimild til að ákveða með reglugerð hlutfall stofnframlagsins innan marka a-liðar með hliðsjón af markaðsaðstæðum hverju sinni, sbr. b-lið 2. gr. Þá er í c-lið 2. gr. lagt til að viðbótarframlag frá ríkinu verði hækkað úr 4% í 5%.
    Frumvarpinu var fagnað í flestum umsögnum sem nefndinni bárust. Fram kom að það væri mikilvægt skref í átt að frekari uppbyggingu leiguhúsnæðis fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum. Þó voru gerðar tilteknar ábendingar við einstaka þætti frumvarpsins, svo sem um útfærslu á hækkun stofnframlags skv. a- og c-lið 2. gr.
    Í umsögnum ÖBÍ réttindasamtaka og Brynju leigufélags komu fram sjónarmið um að viðbótarframlag skv. c-lið 2. gr. frumvarpsins ætti að hækka í 10% í stað 5% til að tryggja betur aðgang viðkvæmra hópa að öruggu húsnæði. Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 4. maí 2026, var hins vegar bent á að hækkun viðbótarframlags ríkisins úr 4% í 5% sé í samræmi við þau áform sem áður voru kynnt í fyrsta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar. Ráðuneytið leggur því áherslu á að með frumvarpinu sé komið til móts við fjármagnskostnað stofnframlagshafa með viðbótarframlagi ríkisins, en einnig með hækkun á almennu stofnframlagi skv. a-lið 2. gr.
    Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að tryggja aðgang viðkvæmra hópa að öruggu húsnæði en tekur þó undir með ráðuneytinu og telur rétt að orðalag c-liðar 2. gr. frumvarpsins haldist óbreytt að þessu sinni.
    Þá var í umsögn Þroskahjálpar bent á að fjölga þyrfti húsnæðisúrræðum fyrir fatlað fólk og útrýma herbergjasambýlum í samræmi við réttindi fatlaðs fólks sem tryggð eru í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, sem og í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025. Í umræddu minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis er tekið undir mikilvægi þess að auka framboð húsnæðis fyrir fatlað fólk. Bent er á að starfshópur á vegum ráðuneytisins vinni nú að mótun tillagna um uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk og þróun þjónustu til næstu ára. Þá sé lögð áhersla á áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis í samvinnu við sveitarfélög til að mæta þörf og stytta biðlista, sem og að þróa fjölbreyttari búsetuleiðir og efla stuðning í eigin húsnæði þannig að þjónustan fylgi einstaklingnum fremur en búsetuformi. Markmiðið sé að tryggja sjálfstætt líf, aukin lífsgæði og sjálfbærari framkvæmd þjónustunnar til framtíðar.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið Þroskahjálpar og telur mikilvægt að efla húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk, einkum með tilliti til lögbundinna skyldna. Meiri hlutinn telur þó brýnt að umræddur starfshópur haldi áfram að móta tillögur að uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk og beinir því til ráðuneytisins að tryggja áframhaldandi vinnu.
    Aðrar ábendingar umsagnaraðila lutu m.a. að fjárhagslegum áhrifum frumvarpsins og stimpilgjöldum óhagnaðardrifinna leigufélaga en meiri hlutinn vísar til þeirra sjónarmiða sem fram koma í umræddu minnisblaði ráðuneytisins hvað þær ábendingar varðar. Þá ítrekar meiri hlutinn það sem fram kemur í greinargerð frumvarpsins um að frumvarpinu sé ekki ætlað að hafa fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð verði það að lögum. Hækkun á stofnframlagi rúmast innan fjárheimilda til stofnframlaga hverju sinni samkvæmt fjárlögum.

Breytingartillögur.
Hlutfall stofnframlags (a- og b-liður 2. gr.).
    Í umsögnum Bjargs íbúðarfélags, ASÍ og BSRB er bent á að orðalag a-liðar 2. gr. frumvarpsins skuli fremur kveða á um tiltekinn ramma, þ.e. að stofnframlagið skuli vera á bilinu 18% til 23%. Ráðherra hafi þá heimild skv. b-lið 2. gr. til að kveða nánar á um hlutfall stofnframlagsins innan þeirra marka. Að óbreyttu telja framangreindir umsagnaraðilar að hlutfall stofnframlags geti farið niður fyrir 18%, sem að þeirra mati samrýmist ekki áformum frumvarpsins og greinargerð þess.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis kemur fram að ráðuneytið telji rétt að orðalag a-liðar 2. gr. haldist óbreytt þar sem lagt er til grundvallar að stofnframlag ríkisins skuli taka mið af markaðsaðstæðum hverju sinni, innan þeirra marka sem lögð eru til í ákvæðinu, sbr. 1. málsl. 11. gr. laganna.
    Meiri hlutinn leggur ríka áherslu á að skýrt sé að svigrúm til að ákvarða hlutfall stofnframlags sé á bilinu 18% til 23% og geti þar með aldrei orðið lægra en 18%. Ráðherra ákvarðar svo nánar með reglugerð hlutfall stofnframlagsins skv. b-lið 2. gr., þó innan þeirra marka og með hliðsjón af markaðsaðstæðum hverju sinni. Meiri hlutinn ítrekar að markmið frumvarpsins, með hliðsjón af lögum um almennar íbúðir, er að efla almenna íbúðakerfið með hærri stofnframlögum en gildandi lög kveða á um til að bregðast við háum fjármagnskostnaði stofnframlagshafa við núverandi efnahagsaðstæður og styrkja þar með grundvöll uppbyggingar leiguhúsnæðis með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði. Að því virtu telur meiri hlutinn það ekki samrýmast því markmiði ef unnt væri að lækka hlutfall stofnframlags niður fyrir það sem hlutfallið er í núgildandi lögum, þ.e. 18%, líkt og a-liður 2. gr. frumvarpsins ber með sér.
    Að öllu framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að orðalag a-liðar 2. gr. kveði á um að hlutfall stofnframlags skuli vera á bilinu 18% til 23%. Af því leiðir að nauðsynlegt er að kveðið verði á um nákvæmt hlutfall með reglugerð, innan framangreinds ramma. Leggur meiri hlutinn því samhliða til breytingu á orðalagi b-liðar 2. gr. þess efnis að ráðherra skuli með reglugerð kveða á um nákvæmt hlutfall stofnframlags ríkisins innan þeirra marka sem kveðið er á um í 1. málsl., þ.e. á bilinu 18% til 23%.

Gildistaka (3. gr.).
    Í ljósi þess að hækkanir á stofnframlagi ríkisins voru boðaðar á kynningu á fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnar 29. október 2025, telur meiri hlutinn eðlilegt að hækkanir stofnframlagsins taki mið af því. Að því virtu og í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneyti leggur meiri hlutinn til að hækkun stofnframlaga ríkisins skv. a-lið 2. gr. frumvarpsins, þ.e. hækkun úr 18% í að hámarki 23%, sem og hækkun viðbótarframlags skv. 1. málsl. c-liðar 2. gr., þ.e. úr 4% í allt að 5%, taki til þeirra stofnframlaga sem veitt hafa verið frá og með nóvember 2025. Breytingin hefur ekki áhrif á kostnaðarmat fyrir yfirstandandi ár. Þá eru til staðar ónýttar fjárheimildir frá 2025 og hvetur meiri hlutinn ráðherra til að skoða nýtingu þeirra í samræmi við 30. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.
    Þá er lögð til breyting á orðalagi sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Við 2. gr.
                  a.      Í stað orðanna „allt að 23%“ í a-lið komi: 18–23%.
                  b.      1. málsl. b-liðar orðist svo: Ráðherra skal með reglugerð kveða nánar á um hlutfall stofnframlags ríkisins innan þeirra marka sem kveðið er á um í 1. málsl. með hliðsjón af markaðsaðstæðum hverju sinni.
                  c.      Í stað orðanna „fjárreiður ríkisins“ í 2. málsl. b-liðar komi: opinber fjármál.
     2.      Við 3. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skulu breytingar á hlutfalli stofnframlags af stofnvirði íbúða skv. a-lið og 1. málsl. c-liðar 2. gr. taka til þeirra stofnframlaga sem veitt hafa verið frá og með nóvember 2025.

Alþingi, 29. maí 2026.


Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form., frsm.
Kristján Þórður Snæbjarnarson.
Grétar Mar Jónsson.
Ragna Sigurðardóttir. Sandra Sigurðardóttir.