Ferill 678. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1263 — 678. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um virðisaukaskatt á lækninga- og hjálpartæki fyrir hreyfihamlað fólk.
Frá Sigmundi Erni Rúnarssyni.
1. Telur ráðherra að 24% virðisaukaskattur á nauðsynleg lækninga- og hjálpartæki fyrir hreyfihamlað fólk samræmist skuldbindingum Íslands gagnvart samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, þar sem sérstaklega er kveðið á um að stjórnvöld skuli fjarlægja hindranir og tryggja aðgengi fatlaðs fólks að hjálpartækjum?
2. Er umrætt virðisaukaskattsþrep á Íslandi í samræmi við skattlagningu annarra Norðurlanda á sambærilegum lækninga- og hjálpartækjum?
Skriflegt svar óskast.