Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1268 — 322. mál.
Viðbót.
Síðari umræða.
Breytingartillaga
við tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030.
Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar (MRK, ÁBH, DBE, GMJ, SHP).
a. Á eftir orðunum „jákvæðri byggðaþróun“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: og bættri lýðheilsu og lífsgæðum.
b. 9. tölul. 1. mgr. orðist svo: Samdráttur í staðbundnum umhverfisáhrifum samgangna og efling lýðheilsu með markvissri þróun ferðavenja og samgönguumhverfis.
c. Á eftir orðunum „breyttum ferðavenjum“ í b-lið 2. kafla, Markmið um greiðar samgöngur, komi: og aukinni daglegri hreyfingu almennings.
d. Á eftir 5. kafla, Markmið um jákvæða byggðaþróun, komi nýr kafli, svohljóðandi:
6. Markmið um samgöngur sem styðja lýðheilsu og lífsgæði.
Samgöngukerfið stuðli að bættri lýðheilsu með því að styðja virka ferðamáta, bæta loftgæði, draga úr hávaða og auka öryggi og aðgengi allra að öruggu og heilsueflandi samgönguumhverfi. Samgönguáætlanir taki mið af áhrifum samgangna á heilsu og lífsgæði íbúa og stuðli að aukinni daglegri hreyfingu í samræmi við samþættingu samgöngu- og lýðheilsustefnu stjórnvalda.
Áherslur:
a. Stuðlað verði að aukinni hlutdeild virkra ferðamáta, svo sem göngu og hjólreiða, í daglegum ferðum.
b. Samgönguáætlanir taki markvisst mið af áhrifum samgangna á loftgæði og hljóðvist í byggð.
c. Við skipulag samgangna- og samgöngumannvirkja verði stuðlað að öruggu aðgengi barna og ungmenna að skóla-, íþrótta- og frístundastarfi.
d. Samgöngukerfið styðji möguleika eldri borgara og fatlaðs fólks til sjálfstæðrar hreyfingar.
e. Markvisst verði unnið að því að samþætta samgönguáætlanir og lýðheilsustefnu stjórnvalda.
f. Reglulega verði fylgst með áhrifum samgangna á lýðheilsu með mælanlegum vísum og taki m.a. til öryggis, greiðleika samgangna, ferðavenja, aðgengis, lýðheilsu, loftgæða og hljóðvistar.
2. Við kaflann Aðgerðaáætlun 2026–2030.
a. Við 1. kafla, Markmið um öryggi í samgöngum, bætist nýir liðir, svohljóðandi:
1.10. Áætlun um uppbyggingu hjólastíga innan þéttbýliskjarna á landsbyggðinni.
Stutt verði við áætlanir um stofnstíganet hjólreiða í þéttbýli utan höfuðborgarsvæðisins í samstarfi við sveitarfélög með hliðsjón af umferðaröryggi, skólasókn, vinnusókn og daglegum ferðum.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við sveitarfélög.
1.11. Ferjuáætlun.
Mótuð verði ferjuáætlun sem setur fram heildstæða stefnu um framtíð ferjusamgangna, þ.m.t. tímasetta framkvæmda- og kostnaðaráætlun um endurnýjun ferjuflotans með tilliti til samgönguþarfa, umhverfissjónarmiða og orkuskipta.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin.
1.12. Samgönguinnviðir sem hluti af þjóðaröryggi.
Unnið verði að heildstæðri greiningu á hlutverki samgönguinnviða í þjóðaröryggi og með hliðsjón af áfallaþoli og varnarskuldbindingum Íslands m.a. hvað varðar varnartengda innviði, flutningsgetu innan lands og tengingar við alþjóðlegt samgöngukerfi, flugvelli og hafnir. Við forgangsröðun framkvæmda verði sérstaklega horft til tvíþættra nota, rekstraröryggis og viðnámsþols lykilinnviða.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið í samvinnu við utanríkisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið.
1.13. Varaflugvallageta fyrir millilandaflug.
Unnið verði að undirbúningi og greiningu og tekin stefnumótandi ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag varaflugvalla fyrir millilandaflug á suðvesturhorni landsins með það að markmiði að tryggja nægilega getu varaflugvallakerfisins miðað við áætlanir um aukningu í flugi, tryggja rekstraröryggi alþjóðaflugs óháð aðstæðum, viðnámsþol samgöngukerfis landsins og viðbótargetu til að bregðast við öryggisógnum. Samhliða verði unnið að eflingu varaflugvallahlutverks flugvallanna á Akureyri og Egilsstöðum með hliðsjón af hlutverki þeirra í flugöryggi, almannavörnum og viðnámsþoli samgöngukerfisins.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
1.14. Náttúruvá, viðnámsþróttur og seigla.
Unnið verði að heildstæðri greiningu á áhrifum náttúruvár á lykilsamgönguinnviði á suðvesturhorni landsins, m.a. með hliðsjón af langtímaáhættumati vegna eldfjallavár. Greiningin taki til berskjöldunar innviða, möguleika á vernd, mótvægisaðgerða, varaleiða og þarfar fyrir tvöföldun lykiltenginga og innviða.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
1.15. Viðbragðshópur um samgöngurof.
Skipaður verði viðbragðshópur sem hefur það hlutverk að skoða möguleg viðbrögð til að draga úr tjóni og áhrifum á íbúa og atvinnulíf og miðla upplýsingum þegar og ef rof verður á samgöngum til samfélaga. Hópurinn verði skipaður fulltrúum frá innviðaráðuneytinu og Vegagerðinni og fulltrúum byggðarlags hverju sinni.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin.
b. Við 2. kafla, Markmið um greiðar samgöngur, bætist nýr liður, svohljóðandi:
2.8. Flugvallarstæði á norðanverðum Vestfjörðum.
Rannsökuð verði hagstæð staðsetning á nýju flugvallarstæði á norðanverðum Vestfjörðum.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
c. Við 3. kafla, Markmið um hagkvæmar samgöngur.
1. Á eftir orðinu „ökutækjaskrá“ í lið 3.5, Umbætur í umferðarmælingum, komi: og nýtingu gagna til reglubundinnar vöktunar á ferðavenjum og þróun samgönguumhverfis.
2. Við bætist tveir nýir liðir, svohljóðandi:
3.9. Samþætting skólaaksturs og almenningssamgangna á landsbyggðinni.
Unnin verði greining á möguleikum á samþættingu skólaaksturs og landsbyggðarvagna almenningssamgöngukerfisins.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samráði við sveitarfélög.
3.10. Fjárfestingarþörf og innviðaskuld í samgöngumálum.
Við vinnu næstu grænbókar verði lagt heildstætt mat á þörf fyrir innviðafjárfestingu, viðhald og rekstur innviða og almenningssamgangna til framtíðar, svo að skapa megi breiða sátt um þá stefnumörkun og fjármögnun. Inn í þá vinnu komi markmið samgönguáætlunar, samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins, jarðgangaáætlun o.fl., auk sjónarmiða um náttúruvá, varnartengda hagsmuni og öryggi í samgöngum, jafnt á vegum, á sjó og í flugi.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
d. Við 4. kafla, Markmið um umhverfislega sjálfbærar samgöngur.
1. Við 1. málsl. í lið 4.1, Val á ferðamáta í samgöngum, bætist: og metin verði áhrif ferðamátavals á lýðheilsu, loftgæði og hljóðvist í byggð.
2. Við 2. málsl. í lið 4.6, Umhverfisáhrif flugvalla, bætist: og áhrif á lýðheilsu metin eftir því sem við á.
3. Á eftir lið 4.8, Hafnir sem orkumiðstöðvar, komi tíu nýir liðir, svohljóðandi:
4.9. Landsnet virkra ferðamáta.
Unnið verði að kortlagningu og skilgreiningu landsnets virkra ferðamáta með það að markmiði að tryggja samfelldar og öruggar tengingar fyrir gangandi, hjólandi og notendur smáfarartækja innan og milli byggðarkjarna og við helstu skiptistöðvar almenningssamgangna.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við sveitarfélög.
4.10. Samstarfsrammi ríkis og sveitarfélaga um stígakerfi utan höfuðborgarsvæðisins.
Mótaður verði samstarfsrammi ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu samfelldra stígakerfa fyrir virka ferðamáta utan höfuðborgarsvæðisins með það að markmiði að styrkja öruggar tengingar innan þéttbýlisstaða og milli þeirra og við almenningssamgöngur.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við sveitarfélög.
4.11. Öruggir ferðamátar barna til skóla.
Unnið verði að greiningu og forgangsröðun aðgerða sem stuðla að auknu öryggi virkra ferðamáta barna á leið til skóla í samstarfi við sveitarfélög og skólayfirvöld.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við sveitarfélög.
4.12. Samþætting virkra ferðamáta og almenningssamgangna.
Unnið verði að því að bæta samþættingu virkra ferðamáta og almenningssamgangna, m.a. með uppbyggingu aðstöðu fyrir hjól og smáfarartæki við skiptistöðvar almenningssamgangna og með bættri tengingu stígakerfa við helstu samgöngumiðstöðvar.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við sveitarfélög, Betri samgöngur og rekstraraðila almenningssamgangna.
4.13. Mælikvarðar fyrir virka ferðamáta og lýðheilsu.
Unnið verði að þróun mælikvarða um hlutdeild virkra ferðamáta og áhrif þeirra á lýðheilsu, loftgæði og ferðavenjur í samgöngum í samstarfi við viðeigandi fagstofnanir.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
4.14. Áætlun um eflingu almenningssamgangna á stofnleiðum.
Unnin verði áætlun um eflingu almenningssamgangna á helstu stofnleiðum landsins með það að markmiði að skapa raunhæfan og samkeppnishæfan valkost við einkabíl, m.a. á leiðum þar sem fyrirhugað er að taka upp gjaldtöku vegna notkunar samgönguinnviða. Í áætluninni verði m.a. horft til tíðni ferða, ferðatíma, samþættingar leiðakerfa, tenginga við vinnusóknarsvæði og aðgengis að lykilþjónustu.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið.
4.15. Efling almenningssamgangna á svæðinu milli Hvítár og Hvítár.
Unnin verði sérstök aðgerðaáætlun um eflingu almenningssamgangna á svæðinu milli Hvítár í Borgarfirði og Hvítár í Árnessýslu með það að markmiði að styrkja samgöngur innan vinnusóknarsvæðisins og tengingar við höfuðborgarsvæðið. Í áætluninni verði m.a. horft til tíðni ferða, samþættingar leiðakerfa, tenginga við skóla- og þjónustukjarna og samspils við aðrar almenningssamgöngur.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu.
4.16. Efling almenningssamgangna á Eyjafjarðarsvæðinu.
Unnin verði sérstök aðgerðaáætlun um eflingu almenningssamgangna á Eyjafjarðarsvæðinu á grundvelli borgarstefnu stjórnvalda, með það að markmiði að styrkja samgöngur innan svæðisins sem sameiginlegs vinnusóknar- og þjónustusvæðis. Í áætluninni verði m.a. horft til samþættingar leiðakerfa, tenginga við helstu atvinnu-, mennta- og þjónustukjarna og samspils við aðrar almenningssamgöngur milli byggða.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu.
4.17. Almenningssamgöngur milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar.
Unnin verði heildstæð samantekt á fyrirliggjandi greiningum og tillögum um eflingu almenningssamgangna milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkurflugvallar. Á grundvelli þeirrar vinnu verði metnir valkostir til framtíðar, þar á meðal hraðvagnakerfi sem nýtir innviði Borgarlínu og mögulegar lestarsamgöngur til flugvallarins, m.a. með hliðsjón af tengingum við helstu samgöngumiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið, Vegagerðin og Isavia í samstarfi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.
4.18. Samgöngumiðstöð Reykjavíkur – fyrir almenningssamgöngur í tengslum við Miklubraut í jarðgöngum.
Unnið verði að frekari greiningu og undirbúningi samgöngumiðstöðvar fyrir almenningssamgöngur í rými við vestari munna fyrirhugaðra jarðganga Miklubrautar, með það að markmiði að styrkja tengingar rútusamgangna frá Keflavíkurflugvelli og frá landsbyggðinni við almenningssamgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins. Við undirbúning verði sérstaklega horft til þess að á yfirborði svæðisins er fyrirhuguð umfangsmikil skiptistöð Borgarlínu og Strætós og að þar skapist tækifæri til að efla samþættingu almenningssamgangna á landsvísu.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við Betri samgöngur og Reykjavíkurborg.
e. Á eftir 5. kafla, Markmið um jákvæða byggðaþróun, komi nýr kafli, svohljóðandi:
6. Markmið um samgöngur sem styðja lýðheilsu og lífsgæði.
6.1. Mælanlegir árangursvísar samgönguáætlunar.
Skilgreindir verði mælanlegir árangursvísar fyrir markmið samgönguáætlunar þar sem þeirra nýtur ekki þegar við. Árangursvísar taki eftir því sem við á m.a. til öryggis, greiðleika samgangna, ferðavenja, aðgengis, lýðheilsu, loftgæða og hljóðvistar. Jafnframt verði komið á reglubundinni eftirfylgni og birtingu upplýsinga um framvindu markmiða samgönguáætlunar.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið í samstarfi við Vegagerðina og Samgöngustofu.
6.2. Samgönguumhverfi og ferðavenjur.
Unnin verði reglubundin greining á þróun ferðavenja og samgönguumhverfis með hliðsjón af áhrifum samgangna á lýðheilsu, loftgæði, hljóðvist og aðgengi. Á grundvelli greiningarinnar verði mótaðar tillögur að aðgerðum sem stuðla að aukinni hlutdeild virkra ferðamáta í daglegum ferðum og bættri lýðheilsu.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Vegagerðin í samstarfi við sveitarfélög.
3. Við töflu 6.
a. Í stað tölunnar „305.017“ í töflunni „Fjármál Vegagerðarinnar“ komi: 305.368.
b. Í stað tölunnar „9.998“ í töflunni „Fjármál Vegagerðarinnar, framhald“ komi: 9.968.
c. Í stað tölunnar „150.434“ í töflunni „Fjármál Vegagerðarinnar, framhald“ komi: 150.404.
d. Liðurinn „Framkvæmdir við vita og hafnir“ og samtala í töflunni „Fjármál Vegagerðarinnar, framhald“ orðist svo:
| Framkvæmdir við vita og hafnir | 631 | 623 | 617 | 611 | 605 | 10.100 | 10.100 | 23.287 | ||
| Vitabyggingar | 30 | 30 | 30 | 30 | 30 | 150 | 150 | 450 | ||
| Sjóvarnargarðar (sjá sundurliðun í töflu 10) | 181 | 173 | 159 | 150 | 144 | 800 | 800 | 2.407 | ||
| Landeyjahöfn | 30 | 30 | 30 | 30 | 30 | 150 | 150 | 450 | ||
| Hornafjörður – Dýpkun á Grynnslunum | 250 | 250 | 250 | 251 | 251 | 1.250 | 1.250 | 3.752 | ||
| Ferjubryggjur og leiðarmerki | 300 | 300 | 878 | |||||||
| Umsjón leiðarmerkja | 20 | 20 | 20 | 20 | 20 | |||||
| Viðhald mannvirkja og öryggisaðgerðir | 30 | 30 | 10 | 10 | 10 | |||||
| Hrísey – ferjurampur | 26 | |||||||||
| Vestmannaeyjar – Ekjubrú Herjólfs | 2 | 30 | 30 | |||||||
| Hafna- og strandrannsóknir | 90 | 90 | 90 | 90 | 90 | 450 | 450 | 1.350 | ||
| Skip til ferjusiglinga | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 7.000 | 7.000 | 14.000 | ||
| Samtals | ||||||||||
| Vegagerðin 10-211 | 55.137 | 55.200 | 54.465 | 54.661 | 54.354 | 318.800 | 318.800 | 911.417 | ||
4. Við töflu 7.
a. Taflan „Suðursvæði“ orðist svo:
Tafla 7. Vegáætlun 2026–2040 – sundurliðun nýframkvæmda.
Vísitala áætlana 25.050.
Suðursvæði.
| Eftirstöðvar | ||||||||||||||
| Lengd | kostnaðar | |||||||||||||
| Vegnr. | Vegheiti | kafla | 1.1.2026 | 2031– | 2036– | Óvissa kostnaðar- | Hönnunar- | |||||||
| Kaflanr. | Kaflaheiti | [km] | [m.kr.] | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 | 2035 | 2040 | áætlunar | stigi lokið | ||
| Undirbúningur verka utan áætlunar | 130 | 130 | 130 | 130 | 130 | 650 | 650 | |||||||
| 1 | Hringvegur | |||||||||||||
| a3–a4 | Fossálar – Breiðbalakvísl | 12 | 3.400 | 3.400 | -15/+40% | Frumdr./Forh. | ||||||||
| b2 | Um Reynisfjall | 3,3 | 1.900 | 1.900 | -15/+40% | Frumdrög | ||||||||
| b8–d1 | Markarfljót – Þjórsá** | 49,5 | 37.900 | 1.500 | -30/+85% | Skilgreining | ||||||||
| d2 | Þjórsá – Selfoss** | 15,4 | 11.800 | 440 | 11.360 | -30/+85% | Skilgreining | |||||||
| d2–d5 | Um Ölfusá* | 5 | 10.000 | 6.000 | 2.500 | 1.500 | -10/+25% | Forhönnun | ||||||
| d2–d5 | Um Ölfusá, umsjón framkvæmdar | 600 | 250 | 250 | 250 | |||||||||
| d6–d8 | Varmá – Kambar** | 3 | 4.700 | 450 | 1.900 | 2.350 | -5/+15% | Verkhönnun | ||||||
| 23 | Búðafossvegur | |||||||||||||
| 01 | Hlutur ríkis í framkvæmd | 7 | 2.850 | 2.850 | -5/+15% | Verkhönnun | ||||||||
| 32 | Þjórsárdalsvegur | |||||||||||||
| 02 | Hlutur ríkis í framkvæmd | 7 | 150 | 150 | -5/+15% | Verkhönnun | ||||||||
| 35 | Biskupstungnabraut | |||||||||||||
| 08 | Um Geysissvæðið og Tungufljót | 5 | 1.900 | 1.900 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | ||||||||
| 35 | Kjalvegur | |||||||||||||
| 12-13 | Kattarhryggur – Kerlingarfjallav. | 26 | 1.300 | 1.300 | -30/+85% | Skilgreining | ||||||||
| 39 | Þrengslavegur | |||||||||||||
| 01 | Um Skógarhlíðarbrekkur | 2 | 1.300 | 650 | 650 | -10/+25% | Forhönnun | |||||||
| 41 | Reykjanesbraut | |||||||||||||
| 19-21 | Hafnarvegur – Garðskagavegur | 4,7 | 6.200 | 6.200 | -15/+40% | Frumdrög | ||||||||
| 43 | Grindavíkurvegur | |||||||||||||
| 01 | Reykjanesbraut – Seltjörn | 1,9 | 600 | 600 | -30/+85% | Skilgreining | ||||||||
| Samtals suðursvæði | 9.380 | 2.880 | 1.880 | 1.230 | 2.680 | 18.740 | 13.510 | |||||||
| * Framkvæmdir við Hringveg um Ölfusá verði fjármagnaðar með gjaldtöku. Verkefni verði vísað til innviðafélags. | ||||||||||||||
| ** Verkefnið er þegar hluti af samgönguáætlun og fjármagnað innan hennar, en er jafnframt skilgreint sem verkefni sem getur komið til skoðunar í samningum við innviðafélag um aðra fjármögnun og framkvæmd, enda uppfylli það skilyrði laga um innviðafélag, þ.m.t. um fjárhagslega sjálfbærni, markaðspróf, hjáleið og fullnægjandi almenningssamgöngur sem valkost. | ||||||||||||||
b. Taflan „Höfuðborgarsvæði“ orðist svo:
Höfuðborgarsvæði.
| Eftirstöðvar | ||||||||||||||
| Lengd | kostnaðar | Óvissa | Hönnunar- | |||||||||||
| Vegnr. | Vegheiti | kafla | 1.1.2026 | 2031– | 2036– | kostnaðar- | stigi | |||||||
| Kaflanr. | Kaflaheiti | [km] | [m.kr.] | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 | 2035 | 2040 | áætlunar | lokið | ||
| Undirbúningur verka utan áætlunar | 80 | 82 | 130 | 130 | 130 | 650 | 650 | |||||||
| 1 | Hringvegur | |||||||||||||
| e1–e2 | Gunnarshólmi – Hólmsá | 1,3 | 1170 | 980 | 190 | -5/+15% | Verkhönnun | |||||||
| e1–e2 | Hólmsá – Bæjarháls** | 5,5 | 13.000 | 1.450 | 8.235 | 3.315 | -10/+25% | Forh./Verkh. | ||||||
| f5 | Þingvallavegur – Esjumelar | 2,3 | 3.700 | 3.700 | -30/+85% | Skilgreining | ||||||||
| f5 | Um Kjalarnes** | 5 | 6.350 | 150 | 2.100 | 2.100 | 2.000 | -5/+15% | Verkhönnun | |||||
| 36 | Þingvallavegur | |||||||||||||
| 12 | Í Mosfellsdal | 700 | 700 | -15/+40% | Frumdrög | |||||||||
| 41 | Reykjanesbraut | |||||||||||||
| 15 | Krýsuvíkurvegur – Hvassahraun | 5,6 | 175 | 175 | -5/+15% | Verkhönnun | ||||||||
| 410 | Elliðavatnsvegur | |||||||||||||
| 02 | Reykjanesbraut – Austurkór, undirbún. | 7 | 100 | 50 | 50 | -30/+85% | Skilgreining | |||||||
| 413 | Breiðholtsbraut | |||||||||||||
| 01 | Hringvegur – Vatnsendahvarf | 2 | 4.000 | 4.000 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | ||||||||
| 450 | Sundabraut* | |||||||||||||
| 450 | Sundabraut, umsjón framkvæmdar | 1.500 | 500 | 500 | 500 | |||||||||
| Bætt umferðarflæði og öryggisaðgerðir | 400 | 400 | 400 | 400 | 400 | 2.000 | 2.000 | |||||||
| Samtals höfuðborgarsvæði | 1.355 | 4.112 | 4.020 | 2.530 | 1.980 | 10.885 | 13.665 | |||||||
| * Framkvæmdir við Sundabraut verði fjármagnaðar með gjaldtöku. Verkefni verði vísað til innviðafélags. | ||||||||||||||
| ** Verkefnið er þegar hluti af samgönguáætlun og fjármagnað innan hennar, en er jafnframt skilgreint sem verkefni sem getur komið til skoðunar í samningum við innviðafélag um aðra fjármögnun og framkvæmd, enda uppfylli það skilyrði laga um innviðafélag, þ.m.t. um fjárhagslega sjálfbærni, markaðspróf, hjáleið og fullnægjandi almenningssamgöngur sem valkost. | ||||||||||||||
c. Taflan „Vestursvæði“ orðist svo:
Vestursvæði.
| Eftirstöðvar | ||||||||||||||
| Lengd | kostnaðar | Óvissa | Hönnunar- | |||||||||||
| Vegnr. | Vegheiti | kafla | 1.1.2026 | 2031– | 2036– | kostnaðar- | stigi | |||||||
| Kaflanr. | Kaflaheiti | [km] | [m.kr.] | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 | 2035 | 2040 | áætlunar | lokið | ||
| Undirbúningur verka utan áætlunar | 130 | 130 | 130 | 130 | 130 | 650 | 650 | |||||||
| 1 | Hringvegur | |||||||||||||
| g1–g5 | Akrafjallsvegur – Borgarnes* | 32,5 | 21.500 | 3.800 | 14.355 | -15/+40% | Frumdrög | |||||||
| g6–g7 | Um Borgarnes* | 4,5 | 6.500 | 2.100 | 4.400 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | |||||||
| j1 | Um Holtavörðuvatn | 7,5 | 1.400 | 1.400 | -15/+40% | Frumdrög | ||||||||
| 52 | Uxahryggjavegur | |||||||||||||
| 04 | Brautartunga – Kaldadalsvegur | 22 | 3.100 | 1.700 | 1.400 | -15/+40% | Frumdrög | |||||||
| 54 | Snæfellsnesvegur | |||||||||||||
| 18 | Stykkishólmsvegur – Svelgsá | 5 | 750 | 500 | 250 | -10/+25% | Forhönnun | |||||||
| 18-22 | Skógarströnd | 45 | 11.800 | 300 | 300 | 750 | 6.680 | 3.770 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | ||||
| 60 | Vestfjarðavegur | |||||||||||||
| 25-28 | Um Gufudalssveit | 9,1 | 4.200 | 3.000 | 1.200 | -5/+15% | Verkhönnun | |||||||
| 35-37 | Dynjandisheiði | 7,3 | 1.450 | 1.450 | -5/+15% | Verkhönnun | ||||||||
| 63 | Bíldudalsvegur | |||||||||||||
| 04-05 | Bíldudalsflugv. – Trostansfj. | 18 | 4.400 | 4.400 | -15/+40% | Frumdrög | ||||||||
| 05-06 | Trostansfj. – Vestfjarðavegur | 10,7 | 2.500 | 250 | 900 | 1.060 | 290 | -15/+40% | Frumdrög | |||||
| 64 | Flateyrarvegur | |||||||||||||
| 01 | Ýmsir staðir, snjóflóðavarnir | 5 | 1.250 | 1.250 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | ||||||||
| 68 | Innstrandavegur | |||||||||||||
| 10 | Heydalsá – Þorpar | 5 | 600 | 600 | -10/+25% | Forhönnun | ||||||||
| 643 | Strandavegur | |||||||||||||
| 06 | Um Veiðileysuháls | 5 | 1.500 | 1.500 | -10/+25% | Forhönnun | ||||||||
| Samtals vestursvæði | 5.080 | 1.830 | 1.330 | 1.490 | 1.770 | 22.080 | 25.975 | |||||||
| * Verkefnið er þegar hluti af samgönguáætlun og fjármagnað innan hennar, en er jafnframt skilgreint sem verkefni sem getur komið til skoðunar í samningum við innviðafélag um aðra fjármögnun og framkvæmd, enda uppfylli það skilyrði laga um innviðafélag, þ.m.t. um fjárhagslega sjálfbærni, markaðspróf, hjáleið og fullnægjandi almenningssamgöngur sem valkost. | ||||||||||||||
d. Taflan „Norðursvæði“ orðist svo:
Norðursvæði.
| Eftirstöðvar | ||||||||||||||
| Lengd | kostnaðar | Óvissa | Hönnunar- | |||||||||||
| Vegnr. | Vegheiti | kafla | 1.1.2026 | 2031– | 2036– | kostnaðar- | stigi | |||||||
| Kaflanr. | Kaflaheiti | [km] | [m.kr.] | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 | 2035 | 2040 | áætlunar | lokið | ||
| Undirbúningur verka utan áætlunar | 130 | 130 | 130 | 130 | 130 | 650 | 650 | |||||||
| 1 | Hringvegur | |||||||||||||
| p4/p6 | Þelamörk – Akureyri* | 9,5 | 5.900 | 5.900 | -15/+40% | Frumdrög | ||||||||
| q6 | Um Skjálfandafljót | 1,5 | 1.700 | 300 | 1.400 | -5/+15% | Verkhönnun | |||||||
| r6 | Jökulsá á Fjöllum | 5 | 3.600 | 2.000 | 1.600 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | |||||||
| 76 | Siglufjarðarvegur | |||||||||||||
| 08 | Stafá – Ketilás | 13 | 2.700 | 600 | 1.900 | 200 | -15/+40% | Frumdrög | ||||||
| 85 | Norðausturvegur | |||||||||||||
| 02-03 | Um Skjálfandafljót | 9,5 | 4.750 | 100 | 1.300 | 1.550 | 1.800 | -15/+25% | Forhönnun | |||||
| 27 | Brekknaheiði | 7,6 | 1.040 | 460 | 580 | -5/+15% | Verkhönnun | |||||||
| 711 | Vatnsnesvegur og Síðuvegur | |||||||||||||
| Ýmsir staðir | 62 | 7.500 | 365 | 400 | 700 | 500 | 5.535 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | |||||
| 842 | Bárðardalsvegur vestri | |||||||||||||
| 01 | Hringvegur – Öxará | 3 | 660 | 530 | 130 | -5/+15% | Verkhönnun | |||||||
| 01-04 | Öxará – Sprengisandsleið | 34 | 4.800 | 1.900 | 2.900 | -30/+85% | Skilgreining | |||||||
| Samtals norðursvæði | 1.220 | 2.505 | 2.080 | 3.230 | 2.830 | 11.685 | 11.050 | |||||||
| * Verkefnið er þegar hluti af samgönguáætlun og fjármagnað innan hennar, en er jafnframt skilgreint sem verkefni sem getur komið til skoðunar í samningum við innviðafélag um aðra fjármögnun og framkvæmd, enda uppfylli það skilyrði laga um innviðafélag, þ.m.t. um fjárhagslega sjálfbærni, markaðspróf, hjáleið og fullnægjandi almenningssamgöngur sem valkost. | ||||||||||||||
e. Taflan „Austursvæði“ orðist svo:
Austursvæði.
| Eftirstöðvar | ||||||||||||||
| Lengd | kostnaðar | Óvissa | Hönnunar- | |||||||||||
| Vegnr. | Vegheiti | kafla | 1.1.2026 | 2031– | 2036– | kostnaðar- | stigi | |||||||
| Kaflanr. | Kaflaheiti | [km] | [m.kr.] | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 | 2035 | 2040 | áætlunar | lokið | ||
| Undirbúningur verka utan áætlunar | 130 | 130 | 130 | 130 | 131 | 650 | 650 | |||||||
| 1 | Hringvegur | |||||||||||||
| t3 | Lagarfljót | 4,5 | 4.900 | 4.900 | -30/+85% | Skilgreining | ||||||||
| t7 | Um Grænafell, snjóflóðavarnir | 0,4 | 580 | 580 | -30/+85% | Skilgreining | ||||||||
| u0 | Um Reyðarfjarðarbotn | 1,7 | 2.020 | 1.040 | 980 | -15/+40% | Frumdrög | |||||||
| u3-u4 | Fáskrúðsfjarðarbotn – Vík | 13 | 2.700 | 2.700 | -15/+40% | Frumdrög | ||||||||
| u5 | Vík – Stöðvarfjörður | 12,5 | 1.850 | 1.850 | -15/+40% | Frumdrög | ||||||||
| u7 | Stöðvarfj. – Kambaskriður | 9,3 | 2.100 | 300 | 1.800 | -15/+40% | Frumdrög | |||||||
| v6 | Um Teigarhorn og Búlandsá | 3,9 | 1.350 | 1.065 | 285 | -30/+85% | Skilgreining | |||||||
| x3-x4 | Um Lón | 16 | 5.200 | 5.200 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | ||||||||
| x6-x9 | Um Hornafjarðarfljót | 18 | 550 | 550 | -5/+15% | Verkhönnun | ||||||||
| x6-x7 | Hringtorg við Hafnarveg við Jökulsá, færsla vegar og | 500 | 500 | -5/+15% | Verkhönnun | |||||||||
| y3 | sjóvörn | 2,5 | 300 | 300 | -30/+85% | Skilgreining | ||||||||
| y3/y4 | Um Jökulsá á Breiðamerkursandi | 4 | 3.500 | 1.800 | 1.700 | -30/+85% | Skilgreining | |||||||
| y7-y9 | Fagurhólsmýri – Morsá | 20,5 | 5.000 | 3.350 | 1.650 | -30/+85% | Skilgr./Frumdr. | |||||||
| 98 | Djúpavogsvegur | |||||||||||||
| 01 | Hringvegur – Djúpivogur | 1 | 150 | 150 | -30/+85% | Skilgreining | ||||||||
| 923 | Jökuldalsvegur | |||||||||||||
| 01 | Langagerði – Grund | 8,2 | 1.200 | 300 | 400 | 400 | 100 | -15/+40% | Frumdr./Forh. | |||||
| 931 | Upphéraðsvegur | |||||||||||||
| Um Strönd | 1 | 100 | 100 | -30/+85% | Skilgreining | |||||||||
| 939 | Axarvegur | |||||||||||||
| 01-02 | Um Öxi | 20,0 | 8.850 | 400 | 900 | 1.320 | 400 | 5.830 | -10/+25% | Forh./Verkh. | ||||
| 921 | 4 | Stuðlafossvegur | 2 | 200 | 200 | -30/+85% | Skilgreining | |||||||
| Samtals austursvæði | 1.480 | 2.270 | 2.410 | 2.815 | 1.116 | 17.760 | 15.950 | |||||||
| Samtals almenn verkefni | 18.515 | 13.597 | 11.720 | 11.295 | 10.376 | 81.150 | 80.150 | |||||||
f. Taflan „Jarðgangaáætlun*“ orðist svo:
Jarðgangaáætlun*.
| Eftirstöðvar | Óvissa | Hönnunar- | |||||||||||
| Lengd | kostnaðar | 2031– | 2036– | kostnaðar- | stigi | ||||||||
| Vegnr. | Heiti jarðganga | [km] | 1.1.2026 | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 | 2035 | 2040 | áætlunar | lokið | |
| 793 | Fljótagöng | 5,2 | 21.500 | 3.700 | 9.300 | 5.200 | 3.300 | -15/+40% | Frumdrög | ||||
| Önnur jarðgöng skv. jarðgangaáætlun* | 64.600 | 75.000 | -30/+85% | Skilgreining | |||||||||
| Fáskrúðsfjarðargöng, | 2.200 | ||||||||||||
| 1-u2 | endurbætur | 2.200 | |||||||||||
| 793 | Fljótagöng, undirbúningur | 150 | 150 | ||||||||||
| 61 | Súðavík – Ísafj., undirb. | 70 | 70 | 60 | |||||||||
| Seyðisfj.- og Mjóafjarðarg., undirb. | 70 | 70 | 60 | ||||||||||
| 60 | Miklidalur, Hálfdán, undirbúningur | 50 | 50 | 50 | |||||||||
| Tvöföldun Hvalfjarðarganga** | |||||||||||||
| Göng undir Reynisfjall** | |||||||||||||
| Göng undir Öxnadalsheiði** | |||||||||||||
| Setbergsgöng í Hafnarfirði** | |||||||||||||
| Önnur göng, undirb. | 70 | 70 | 60 | ||||||||||
| Samtals jarðgangaáætlun | 410 | 410 | 230 | 0 | 0 | 0 | 0 | ||||||
| Samtals utan fjárhagsramma | 5.900 | 9.300 | 5.200 | 3.300 | 64.600 | 75.000 | |||||||
| Fjárveiting til jarðgangaáætlunar innan fjárhagsramma er til undirbúnings og rannsókna. | |||||||||||||
| * Verkefni verði vísað til innviðafélags. | |||||||||||||
| ** Verkefnið er tekið inn á samgönguáætlun sem verkefni til sérstakrar skoðunar í samningum við innviðafélag. Verkefnið er ekki fjármagnað innan samgönguáætlunar á þessu stigi og felur skráning þess ekki í sér skuldbindingu um framkvæmd. Framgangur verkefnisins er háður mati á fýsileika, fjármögnun, hagkvæmni, markaðsprófi, hjáleið, fullnægjandi almenningssamgöngum sem valkosti og samningum við innviðafélag. | |||||||||||||
g. Taflan „Sameiginlegt“ orðist svo:
Sameiginlegt.
| 2031– | 2036– | ||||||
| 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 | 2035 | 2040 | |
| Tengivegir, bundið slitlag | 2.200 | 2.100 | 2.100 | 2.200 | 2.500 | 12.500 | 12.500 |
| Breikkun brúa | 500 | 0 | 500 | 0 | 500 | 5.000 | 5.000 |
| Hjóla- og göngustígar | 300 | 300 | 300 | 300 | 350 | 1.750 | 1.750 |
| Stærri öryggisaðgerðir utan höfuðborgarsvæðis | 300 | 300 | 300 | 300 | 300 | 1.500 | 2.500 |
| Samgöngurannsóknir | 20 | 20 | 20 | 20 | 20 | 100 | 100 |
| Héraðsvegir | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 | 500 | 500 |
| Landsvegir | 170 | 170 | 170 | 170 | 180 | 900 | 900 |
| Styrkvegir | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 | 500 | 500 |
| Reiðvegir | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 | 500 | 500 |
| Smábrýr | 50 | 50 | 50 | 50 | 50 | 250 | 250 |
| Girðingar | 60 | 60 | 60 | 60 | 60 | 300 | 300 |
| Sameiginlegur jarðgangakostnaður | 10 | 10 | 10 | 10 | 10 | 50 | 50 |
| Samtals sameiginlegt | 3.910 | 3.310 | 3.810 | 3.410 | 4.270 | 23.850 | 24.850 |
| Samtals nýframkvæmdir | 16.835 | 14.817 | 14.260 | 14.705 | 14.646 | 105.000 | 105.000 |
| Utan fjárhagsramma (hringvegur um Ölfusá) | 6.000 | 2.500 | 1.500 | ||||
| Utan fjárhagsramma (jarðgangaáætlun) | 5.900 | 9.300 | 5.200 | 3.300 | 64.600 | 75.000 |
5. Við bætist ný tafla, tafla 8, svohljóðandi:
Tafla 8. Samgöngusáttmálinn – Framkvæmdaáætlun uppfærðs samgöngusáttmála.
Verðlag samgöngusáttmálans.
| Vegheiti | 2026 | 2027 | 2028 | 2029 | 2030 | 2031– 2035 |
2036– 2040 |
Óvissa | Hönnunar- | |
| kostnaðar- | stigi | |||||||||
| Kaflaheiti | áætlunar | lokið | ||||||||
| Hafnarfjarðarvegur | ||||||||||
| Stokkur í Garðabæ | 200 | 6.600 | 6.000 | -30/+85% | Skilgr. | |||||
| Reykjanesbraut | ||||||||||
| Holtavegur – Stekkjarbakki | 400 | 5.100 | 6.200 | 6.200 | 6.400 | -10/+25% | Forh. | |||
| Gatnamót við Bústaðaveg | 100 | 100 | 1.700 | 400 | -15/+40% | Frumdrög | ||||
| Álftanesvegur – Lækjargata | 200 | 200 | 1.000 | 2.600 | 4.600 | 11.200 | -15/+40% | Frumdr. | ||
| Miklabraut | ||||||||||
| Jarðgöng | 300 | 300 | 20.650 | 33.250 | -15/+40% | Frumdr. | ||||
| Bráðab.tenging við Landspít. | 300 | 1.000 | 1.000 | |||||||
| Arnarnesvegur | ||||||||||
| Rjúpnavegur – Breiðholtsbraut | 2.100 | -5/+15% | Verkhönnun | |||||||
| Borgarlína | ||||||||||
| Ártún – Hamraborg – Hlemmur | 6.200 | 6.200 | 6.200 | 6.200 | 5.400 | 5.300 | -15/+40% | Frumdr./forh. | ||
| Mjódd – BSÍ | 200 | 1.000 | 2.100 | 8.100 | 5.600 | -30/+70% | Skilgreining | |||
| Fjörður – Miklabraut | 19.600 | -30/+70% | Skilgreining | |||||||
| Hamraborg – Lindir | 300 | 1.400 | 5.600 | -30/+70% | Skilgreining | |||||
| Ártún – Spöng | 600 | 11.000 | ||||||||
| Keldur og Blikastaðir | 310 | 1.180 | 2.050 | 3.600 | 8.970 | -30/+70% | Skilgreining | |||
| Snúningur við Hörpu | 100 | 500 | 500 | |||||||
| Stöðvar utan sérrýmislotu 1–6 | 1.300 | 3.900 | 1.200 | |||||||
| Undirbúningur verka | 260 | 260 | 510 | 1.660 | ||||||
| Hjóla- og göngustígar | 1.300 | 1.300 | 1.300 | 1.300 | 3.300 | 20.700 | 3.500 | |||
| Göngubrýr og undirgöng | 200 | 200 | 200 | 200 | 200 | 1.000 | 500 | |||
| Umferðarstýring, aukið umferðarflæði og öryggisaðgerðir | 500 | 500 | 500 | 500 | 600 | 2.000 | 3.000 | |||
| Samtals samgöngusáttmáli | 12.460 | 15.570 | 18.180 | 22.250 | 30.410 | 126.280 | 53.050 | |||
6. Liðurinn Múlaþing í töflunni „Framkvæmdir í höfnum í grunnneti“ í töflu 9 breytist og orðist svo:
| Múlaþing | |||||||||||||||
| Seyðisfjörður: Lenging strandabakka (stálþil og þekja, 280 m, -10 m dýpi) | 1.550 | 162,0 | 65,3 | 400,0 | 129,0 | 343,0 | 110,6 | 382,0 | 123,2 | + | 60% | ||||
| Djúpivogur: Olíubryggja (harðviður), 50 m í -3m | 170 | 30,0 | 14,5 | + | 60% | ||||||||||