Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1269 — 594. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum (verndarsamkomulag Evrópusambandsins).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti, Barnaheillum, embætti ríkislögreglustjóra, FTA – Félagi talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, kærunefnd útlendingamála, Persónuvernd, Rauða krossinum á Íslandi og Útlendingastofnun.
Nefndinni bárust átta umsagnir auk minnisblaðs frá dómsmálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til nauðsynlegar breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og lögreglulögum, nr. 90/1996, til að innleiða þann hluta verndarsamkomulags Evrópusambandsins sem Ísland er skuldbundið til að innleiða í lög.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt um skuldbindingar Íslands til að innleiða ákvæði reglugerða sem eru hluti af verndar- og fólksflutningasamkomulagi Evrópusambandsins.
Með frumvarpinu er kveðið á um breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og lögreglulögum, nr. 90/1996, í því skyni að innleiða skuldbindandi ákvæði reglugerða sem eru hluti af verndar- og fólksflutningasamkomulagi Evrópusambandsins (hér eftir verndarsamkomulag ESB). Um er að ræða reglugerð (ESB) 2024/1351 um stjórnun verndar- og fólksflutningamála (hér eftir AMMR-reglugerðin), reglugerð (ESB) 2024/1359 um að taka á neyðarástandi og óviðráðanlegum atvikum á sviði fólksflutninga og verndarmála (hér eftir neyðarástandsreglugerðin) og reglugerð (ESB) 2024/1358 um evrópska fingrafaragrunninn (hér eftir Eurodac-reglugerðin).
Markmið verndarsamkomulagsins er m.a. að styrkja stjórnun ytri landamæra Schengen-svæðisins, efla samræmda framkvæmd milli ríkja og stuðla að skilvirkri meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Íslandi ber að innleiða þann hluta samkomulagsins sem telst til þróunar á Schengen-regluverkinu og fellur undir þær alþjóðlegu skuldbindingar sem leiðir af tvíhliða samningi Íslands og Noregs við Evrópusambandið frá árinu 2001 um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki, á Íslandi eða í Noregi. Innleiðing þeirra reglugerða sem frumvarpið tekur til er því nauðsynleg til að tryggja að íslensk löggjöf og stjórnsýsluframkvæmd samræmist skuldbindingum Íslands eigi síðar en 12. júní 2026, þegar gerðir verndar- og fólksflutningasamkomulagsins taka gildi í samstarfsríkjum Schengen, fyrir utan AMMR-reglugerðina sem tekur í megindráttum gildi 1. júlí 2026. Aðrar gerðir verndarsamkomulagsins eru ekki skuldbindandi fyrir Ísland og verða því ekki innleiddar með frumvarpinu.
Meiri hlutinn telur brýnt að frumvarpið nái fram að ganga í ljósi skuldbindinga Íslands gagnvart Schengen-samstarfinu. Náist það ekki verður eftir gildistöku AMMR-reglugerðarinnar ekki hægt að beita Dyflinnarreglugerðinni varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd, líkt og Útlendingastofnun bendir á í umsögn sinni, þar sem sameiginlegt regluverk Evrópusambandsins myndi þá ekki hafa gildi hér á landi í ótilgreindan tíma. Þá undirstrikar meiri hlutinn að með frumvarpinu er einungis verið að innleiða þá hluta reglugerða Evrópusambandsins sem Ísland er skuldbundið af. Sérstaklega má geta þess að þar undir fellur ekki innleiðing á ákvæðum IV. hluta AMMR-reglugerðarinnar um samstöðu ríkja og dreifingu ábyrgðar á umsóknum um alþjóðlega vernd.
AMMR-reglugerðin og neyðarástandsreglugerðin.
Gildandi reglugerð um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í einu aðildarríkjanna, svonefnd Dyflinnarreglugerð, kveður á um það hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd. AMMR-reglugerðin mun taka við af núgildandi Dyflinnarreglugerð. Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu á samstarf á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar rætur að rekja til samnings aðildarríkja Evrópusambandsins frá árinu 1990 um ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd, en nær í dag einnig til annarra ríkja sem taka þátt í samstarfinu á grundvelli sérstakra samninga, þar á meðal Íslands. Meginmarkmið samstarfsins er að setja skýrar reglur um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd, þannig að ljóst sé hvaða ríki beri ábyrgð á efnismeðferð og að umsókn hljóti afgreiðslu í einu ríki. Jafnframt er leitast við að tryggja skilvirka og samræmda framkvæmd innan Schengen-svæðisins og draga úr áframhaldandi för umsækjenda milli ríkja. Samkvæmt núgildandi Dyflinnarreglugerð ber það ríki sem umsækjandi um alþjóðlega vernd kemur fyrst til að jafnaði ábyrgð á meðferð umsóknar. Með samþykkt verndarsamkomulags Evrópusambandsins var ákveðið að endurskoða regluverk um ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd í heildstæðu samhengi og sem hluta af heildstæðu regluverki um stjórnun verndarmála og fólksflutninga. Áfram er lögð áhersla á að viðhalda meginstoðum Dyflinnarsamstarfsins en jafnframt að bæta skilvirkni, stytta málsmeðferðartíma og tryggja betur samræmda framkvæmd milli ríkja ásamt því að leggja áfram áherslu á vernd réttinda umsækjenda og leitast þannig við að viðhalda jafnvægi milli skilvirkni kerfisins, ábyrgðar umsækjenda og verndar grundvallarréttinda.
Þá er jafnframt lagt til að innleiða tilgreind ákvæði neyðarástandsreglugerðarinnar sem kveða á um nýjar heimildir til að grípa til tímabundinna ráðstafana og veita sértækar undanþáguheimildir frá málsmeðferðarreglum AMMR-reglugerðarinnar þegar aðildarríki glíma við neyðarástand eða óviðráðanleg ytri atvik á landamærum. Áhersla er lögð á að undanþágur séu tímabundnar, bundnar við þær aðstæður sem gefa tilefni til þeirra og háðar reglulegu endurmati.
Lagt er til að III., V. og VII. kafli í AMMR-reglugerðinni öðlist lagagildi hér á landi. Meginefni III. hluta AMMR-reglugerðarinnar varðar viðmiðanir og fyrirkomulag við ákvörðun þess ríkis sem ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd. Í V. kafla AMMR-reglugerðarinnar er mælt fyrir um málsmeðferð, framkvæmd ákvarðana og bindandi tímafresti samkvæmt reglugerðinni. Kaflinn felur í sér breytingar frá Dyflinnarreglugerðinni þar sem tímafrestir voru að verulegu leyti lengri og í framkvæmd oft ekki virtir, sem hefur leitt til tafa á afgreiðslu mála. Kveðið er á um skýr og stutt tímamörk í því skyni að tryggja skilvirka framkvæmd og draga úr töfum, ásamt því að tryggja að umsóknir séu teknar til afgreiðslu á einum stað innan fyrirsjáanlegra tímamarka. Reglugerðin kveður jafnframt á um að kærumeðferð skuli ljúka innan tiltekins tímafrests og er aðildarríkjum veitt svigrúm til að útfæra kærufrest innan þess ramma.
Í minnisblaði dómsmálaráðuneytis, dags. 27. maí 2026, er áréttað að meginreglur um hagsmuni barnsins og fjölskyldutengsl verði áfram hluti þess regluverks sem Ísland er bundið af samkvæmt AMMR-reglugerðinni og að tekið verði mið af þeim við framkvæmd laganna og setningu reglugerða á grundvelli þeirra. Við framkvæmd laganna og reglugerða verður jafnframt tekið mið af einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjenda, þar á meðal stöðu fylgdarlausra barna og annarra einstaklinga í viðkvæmri stöðu.
Meiri hlutinn undirstrikar, líkt og vísað er til í minnisblaðinu, að frumvarpið felur ekki í sér grundvallarbreytingu á því ábyrgðarkerfi sem gilt hefur hingað til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni. Frumvarpið miði fyrst og fremst að því að innleiða uppfært og skýrara regluverk með styttri og skýrari tímafrestum og skilvirkari framkvæmd, í samræmi við gildandi lög og alþjóðlegar skuldbindingar. Má í því samhengi einkum vísa til réttinda fatlaðs fólks á grundvelli Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sbr. lög nr. 80/2025, og réttinda barna á grundvelli Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013.
Eurodac-reglugerðin.
Með frumvarpinu er einnig lagt til að innleiða skuldbindandi ákvæði Eurodac-reglugerðarinnar en evrópski fingrafaragrunnurinn er lífkennagagnagrunnur Schengen-ríkjanna. Í grunninn er safnað fingraförum umsækjenda um alþjóðlega vernd og einstaklinga sem teknir hafa verið í ólögmætri för yfir landamæri og þau geymd. Gagnagrunnurinn gerir aðildarríkjum Schengen-samstarfsins kleift að bera saman fingraför í tengslum við málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd. Nánar tiltekið er kerfið notað til að ákvarða hvaða aðildarríki ber ábyrgð á meðferð tiltekinnar umsóknar um alþjóðlega vernd. Þá er það einnig notað við upplýsingamiðlun milli landsyfirvalda til að fyrirbyggja alvarleg afbrot. Nýja reglugerðin felur í sér grundvallarbreytingu á hlutverki evrópska fingrafaragrunnsins sem er kveðið á um að verði víðtækur lífkennagagnagrunnur sem innihaldi ekki einungis fingraför heldur einnig andlitsmyndir, tilteknar persónuupplýsingar og ákveðnar öryggisupplýsingar um einstaklinga. Þá eru reglur er varða persónuvernd styrktar.
Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að vinnsla persónuupplýsinga fari fram í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Þá verður ráðherra veitt heimild til að setja reglugerð um evrópska fingrafaragrunninn þar sem verður kveðið nánar á um reglur um persónuvernd við skráningu og meðferð upplýsinga í grunninum sem og um ábyrgð og aðgang að fingrafaragrunninum.
Málsmeðferð og tímafrestir (2. gr.).
Samkvæmt 3. málsl. 7. gr. gildandi laga um útlendinga sætir ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á efnismeðferð á grundvelli 36. gr. laganna sjálfkrafa kæru til kærunefndar útlendingamála nema umsækjandi óski þess sérstaklega að kæra ekki og skal greinargerð vegna kæru berast kærunefnd innan 14 daga frá birtingu ákvörðunarinnar. Með 2. gr. frumvarpsins er lagt til að fallið verði frá framangreindu fyrirkomulagi en þess í stað verði kærufrestur á ákvörðunum Útlendingastofnunar um synjun á efnismeðferð á grundvelli 36. gr. sjö dagar frá birtingu ákvörðunar, auk þess sem mælt er fyrir um að greinargerð skuli berast kærunefnd útlendingamála samhliða kæru innan sama frests.
Í umsögn frá Félagi talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd er bent á að sjö daga kærufrestur sé óþarflega knappur og sérstaklega er gerð athugasemd við að lagt sé til að greinargerð skuli berast samhliða kæru. Þá er vísað til þess í viðbótarumsögn FTA að með hliðsjón af framkvæmd við birtingu ákvarðana hér á landi sé sjö daga kærufrestur til þess fallinn að skerða verulega möguleika umsækjenda á að fá ranga niðurstöðu leiðrétta, auk möguleika á að gæta réttinda sinna á annan hátt. Lýst er yfir vonbrigðum yfir því að með frumvarpinu sé miðað við lágmarksfrest þar sem AMMR-reglugerðin geri ráð fyrir a.m.k. viku kærufresti en í mesta lagi þriggja vikna fresti. Loks er bent á að það sé ekki kveðið á um frest til að skila greinargerð á grundvelli AMMR-reglugerðarinnar né heldur hvergi á hinum Norðurlöndunum og því um séríslenska reglu að ræða. Þá er í umsögn kærunefndar útlendingamála vísað til þess að skv. 3. mgr. 43. gr. AMMR-reglugerðarinnar skuli ákvörðun um frestun framkvæmdar tekin innan mánaðar en bent á að í greinargerð með frumvarpinu sé að finna óljóst orðalag um að úrskurða beri í málum innan mánaðar.
Í minnisblaði frá dómsmálaráðuneyti, dags. 27. maí 2026, er það áréttað að sá eins mánaðar frestur sem fram kemur í 3. mgr. 43. gr. AMMR-reglugerðarinnar taki til afgreiðslu beiðna um frestun réttaráhrifa en ekki til endanlegrar niðurstöðu í kærumálum almennt. Þá er jafnframt vísað til þess að breytingar á kærufresti samkvæmt frumvarpinu séu í samræmi við tímamörk á grundvelli AMMR-reglugerðarinnar, sem gerir ráð fyrir hraðari og skilvirkari málsmeðferð við ákvörðun ábyrgðarríkis og framkvæmd flutnings umsækjenda. Þá sé jafnframt litið til þess að við meðferð mála skv. 36. gr. laga um útlendinga hefur að jafnaði þegar farið fram ítarleg rannsókn og gagnaöflun hjá Útlendingastofnun, m.a. um aðstæður í viðtökuríki og önnur atriði sem máli skipta fyrir úrlausn máls.
Meiri hlutinn áréttar að stjórnsýslulög, nr. 37/1993, gilda um meðferð útlendingamála nema annað leiði af öðrum ákvæðum laga um útlendinga. Með vísan til þess hvílir á stjórnvöldum rannsóknarskylda skv. 10. gr. stjórnsýslulaga til að sjá til þess, að eigin frumkvæði, að mál sé nægilega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Í verklagsreglum kærunefndar útlendingamála er gert ráð fyrir að heimilt sé að leggja fram viðbótargögn sem taka skal tillit til á meðan mál er til meðferðar hjá kærunefnd. Frestur til að skila greinargerð mun því ekki takmarka heimild til að leggja fram viðbótargögn. Meiri hlutinn undirstrikar að breytingunni er einkum ætlað að stytta málsmeðferðartíma og auka skilvirkni en er ekki ætlað að skerða rétt umsækjanda til réttlátrar málsmeðferðar.
Frestun réttaráhrifa við kæru (3. gr.).
Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. gildandi laga um útlendinga er kveðið á um að kæra ákvörðunar um synjun á efnismeðferð umsóknar um alþjóðlega vernd á grundvelli 36. gr. fresti réttaráhrifum ákvörðunarinnar, þ.e. þegar liggur fyrir að annað ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknarinnar. Það felur í sér að ákvörðun kemur ekki til framkvæmda fyrr en endanleg niðurstaða liggur fyrir á stjórnsýslustigi. Með 3. gr. frumvarpsins er lögð til breyting á því fyrirkomulagi til samræmis við AMMR-reglugerðina.
Í greinargerð með frumvarpinu er gerð grein fyrir því að skv. III. hluta AMMR-reglugerðarinnar sé kveðið á um kæruleiðir og réttaráhrif ákvarðana sem teknar eru á grundvelli reglugerðarinnar. Hefur kæra slíkrar ákvörðunar ekki í för með sér frestun réttaráhrifa. Það marki grundvallarbreytingu frá Dyflinnarreglugerðinni og þeirri framkvæmd sem gilt hefur hér á landi, þar sem kæra ákvörðunar um synjun á efnismeðferð hefur haft í för með sér sjálfkrafa frestun réttaráhrifa. Markmið breytingarinnar sé að tryggja skilvirka framkvæmd ákvarðana um ábyrgðarríki og flutninga samkvæmt reglugerðinni og koma í veg fyrir tafir sem geta grafið undan virkni kerfisins og stuðlað að áframhaldandi för umsækjenda innan Schengen-svæðisins.
Fyrir nefndinni komu fram athugasemdir við þessa breytingu og var m.a. lagt til að ákvæði 3. gr. frumvarpsins yrði fellt brott. Barnaheill og Íslandsdeild Amnesty International bentu m.a. á að þrátt fyrir að fram kæmi í greinargerð með frumvarpinu að ákvarðanir Útlendingastofnunar í slíkum málum væru í langflestum tilvikum staðfestar í kærumeðferð og því ekki talið að breytingin hefði íþyngjandi áhrif í framkvæmd, þá skipti máli að í einhverjum málum væri það ekki svo og breytingin ylli því skerðingu á réttaröryggi. Þá bendir Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd á að það sé óljóst samkvæmt frumvarpinu hver ábyrgð íslenska ríkisins yrði ef sú staða kemur upp að einstaklingi er synjað um efnismeðferð og er í kjölfarið sendur úr landi þrátt fyrir að kæra liggi fyrir, hvaða áhrif það hefði ef viðkomandi fær ákvörðunina fellda niður.
Þá bentu bæði kærunefnd útlendingamála sem og Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd á að sú breyting sem er lögð til með 3. gr. frumvarpsins hafi ekki aðeins áhrif á þau mál sem falla undir AMMR-reglugerðina heldur einnig mál sem afgreidd kunna að vera á grundvelli annarra stafliða 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, svo sem a-liðar sem fjallar um virka vernd í öðru ríki og d-liðar sem kveður á um regluna um fyrsta griðland. Í greinargerð með frumvarpinu sé ekki að finna nánari umfjöllun um þau áhrif sem lagabreytingarnar hafa á rétt þeirra hópa sem falla undir aðra stafliði 1. mgr. 36. gr. Þá bendir kærunefndin jafnframt á að fyrirséð er að farið verði fram á frestun réttaráhrifa í vel flestum málum sem kærð verða til nefndarinnar. Því fylgir að kærunefndin þarf að úrskurða fyrst um frestun réttaráhrifa og því næst um kæruna og eykst þannig fjöldi mála til vinnslu. Verði því ekki fallist á að breytingin sé til þess fallin að tryggja skilvirka meðferð mála.
Þess ber að geta að í greinargerð með frumvarpinu er vísað til þess að breyting skv. 3. gr. frumvarpsins sé í samræmi við 3. mgr. 42. gr. AMMR-reglugerðarinnar en rétt tilvísun á að vera í 3. mgr. 43. gr. reglugerðarinnar.
Meiri hlutinn áréttar að umsækjendur halda óskertum rétti til að kæra ákvörðun Útlendingastofnunar til kærunefndar útlendingamála og geta jafnframt óskað eftir frestun réttaráhrifa á grundvelli 29. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Kærunefndinni ber að taka slíka beiðni til úrlausnar áður en flutningur til viðtökuríkis fer fram og skal við mat sitt gæta að alþjóðlegum skuldbindingum Íslands, þar á meðal samkvæmt mannréttindasáttmála Evrópu.
Skylda umsækjanda til samvinnu við stjórnvöld (5. gr.).
Með 5. gr. frumvarpsins er lagt til að sett verði skýr lagaheimild um skyldu umsækjenda til að vinna með stjórnvöldum við meðferð mála skv. 36. gr. laga um útlendinga og um framkvæmd ákvarðana sem teknar eru á þeim grundvelli. Jafnframt er mælt fyrir um að skortur á samvinnu umsækjanda geti, að teknu tilliti til atvika máls og með hliðsjón af meginreglum stjórnsýsluréttar, haft áhrif á framkvæmd málsmeðferðar, þar á meðal um fresti og hraða málsmeðferðar. Nánar verði kveðið á um framkvæmd ákvæðisins með reglugerð og með því leitast við að tryggja samræmda framkvæmd, fyrirsjáanleika og réttaröryggi umsækjenda, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands og meginreglur stjórnsýsluréttar.
Í umsögnum komu fram athugasemdir við þessa breytingu og einkum vísað til þess að ekki liggi fyrir í hverju slík áhrif geti falist, annað en að geta falið í sér áhrif á fresti og hraða málsmeðferðar, en ráðherra verði að öðru leyti falið að útfæra það nánar í reglugerð. Félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd telur að ákvæði 5. gr. gangi lengra en AMMR-reglugerðin gerir ráð fyrir og mun lengra en nauðsynlegt er. Þá benda Barnaheill og Íslandsdeild Amnesty International einkum á að gæta þurfi að því að slíkum úrræðum verði ekki beitt þannig að þau geti haft áhrif á málsmeðferð barna og fólks í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Í minnisblaði dómsmálaráðuneytis, dags. 27. maí 2026, er áréttað að ákvæði frumvarpsins um samvinnu umsækjenda sé fyrst og fremst ætlað að stuðla að skilvirkri og skýrri málsmeðferð. Ákvæðið feli hvorki í sér sjálfvirka skerðingu réttinda né sjálfstæð viðurlög gagnvart umsækjendum. Skortur á samvinnu geti fyrst og fremst haft þau áhrif að stjórnvöld geti þurft að byggja ákvörðun sína á þeim upplýsingum sem fyrir liggja, t.d. ef umsækjandi mætir ekki til viðtals eða veitir ekki nauðsynlegar upplýsingar.
Meiri hlutinn undirstrikar að beiting slíkra úrræða skal ávallt byggjast á einstaklingsbundnu mati á atvikum máls og í samræmi við gildandi lög og alþjóðlegar skuldbindingar. Skortur á samvinnu umsækjenda geti, að teknu tilliti til atvika máls og í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar, haft áhrif á meðferð máls, þar á meðal fresti og hraða málsmeðferðar, m.a. með styttri frestum eða hraðari málsmeðferð, í því skyni að tryggja skilvirka framkvæmd ákvörðunar.
Val á innleiðingaraðferð Schengen-skuldbindinga.
Með frumvarpinu er lagt til að skuldbindandi ákvæðum framangreindra reglugerða verði veitt lagagildi hér á landi og að vísað verði til birtingar þeirra ásamt íslenskri þýðingu í C-deild Stjórnartíðinda. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að við val á innleiðingaraðferð hafi ráðuneytið litið til þess að markmið regluverksins sé að tryggja samræmda málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd milli samstarfsríkja, sem takmarkar svigrúm til efnislegrar umritunar. Jafnframt hafi verið tekið mið af norskri framkvæmd þar sem sambærilegri aðferð við innleiðingu verður beitt. Meiri hlutinn gerir ekki athugasemd við þá leið sem farin er í frumvarpinu en í ljósi þess að takmörkuð reynsla er af þeirri aðferð telur meiri hlutinn rétt að ráðuneytið fylgist með framkvæmd laganna verði frumvarpið samþykkt.
Breytingartillögur.
Frestur til að óska eftir frestun réttaráhrifa.
Í umsögn frá kærunefnd útlendingamála er bent á að í 3. mgr. 43. gr. AMMR-reglugerðarinnar er fjallað um frestun á framkvæmd ákvörðunar og gert ráð fyrir að frestur til þess að fara fram á slíkt úrræði sé ekki lengri en sá frestur sem veittur er til þess að kæra. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að beiðni um frestun réttaráhrifa eigi að berast samhliða kæru en það komi þó ekki fram í breytingum á lögum um útlendinga. Ljóst sé að stjórnsýslulög tilgreina ekki sérstakan frest til þess að leggja fram beiðni um frestun réttaráhrifa og bendir kærunefndin á að kveða þurfi á um slíka kröfu í frumvarpinu sjálfu ef ætlunin er að mæla fyrir um að slík beiðni skuli berast samhliða kæru.
Meiri hlutinn tekur undir framangreinda ábendingu kærunefndarinnar og telur ástæðu til að tilgreina í 7. gr. laga um útlendinga að heimilt sé að leggja fram beiðni um frestun réttaráhrifa vegna kæru á ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á efnismeðferð á grundvelli 36. gr. laganna innan sama frests og kæra, þ.e. vikufrests. Líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu munu almennar reglur stjórnsýsluréttar gilda um frestun réttaráhrifa í tilgreindum málum skv. 29. gr. stjórnsýslulaga. Kærunefnd útlendingamála ber að taka beiðni um frestun réttaráhrifa til úrlausnar svo fljótt sem við verður komið á grundvelli mats á atvikum í hverju máli. Að því sögðu undirstrikar meiri hlutinn jafnframt að skv. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga er æðra stjórnvaldi heimilt að fresta réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar meðan kæra er til meðferðar ef ástæður mæla með því. Ákvörðun um að fresta réttaráhrifum ákvörðunar getur æðra stjórnvald ýmist tekið að eigin frumkvæði eða samkvæmt beiðni frá aðila máls og því ekki forsenda slíkrar ákvörðunar að fram komi beiðni þess efnis.
Aðrar breytingar.
Meiri hlutinn leggur til tæknilegar breytingartillögur og orðalagsbreytingar sem er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif. Einkum ber að geta þess að 6. gr. frumvarpsins er felld brott í ljósi þess að 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga var felld brott með lögum nr. 12/2026.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
2. Við 1. efnismálsl. 2. gr. bætist: sama gildir um beiðni um frestun réttaráhrifa.
3. 6. gr. falli brott.
4. Í stað orðsins „tekinn“ í d-lið 1. mgr. 8. gr. komi: stöðvaður.
5. Inngangsmálsliður c-liðar 9. gr. orðist svo: Á eftir 14. tölul. 2. mgr. kemur nýr töluliður, svohljóðandi.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 1. júní 2026.
| Víðir Reynisson, form. |
Grímur Grímsson, frsm. | Guðmundur Ari Sigurjónsson. | |
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | Sandra Sigurðardóttir. | ||