Ferill 669. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1271  —  669. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Heiðbrá Ólafsdóttur um heimild RÚV til að birta myndefni sem aflað er með ólögmætum hætti.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hefur ráðherra skoðað hvort birting RÚV á myndefni sem fengið er með ólögmætum hætti, t.d. með innbroti í húsnæði, samræmist þeim lagalegu og siðferðilegu kröfum sem gerðar eru til RÚV?

    Ríkisútvarpið er sjálfstætt og óháð í störfum sínum og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur ekki afskipti af fréttum eða annarri dagskrárgerð Ríkisútvarpsins. Það fyrirkomulag byggist á sjónarmiðum um ritstjórnarlegt sjálfstæði og „armslengd“ á milli stjórnvalda og fjölmiðla, vegna þess mikilvæga lýðræðis- og aðhaldshlutverks sem fjölmiðlar gegna gagnvart stjórnvöldum og atvinnulífi.
    Ráðherra leggur ríka áherslu á að starfsemi Ríkisútvarpsins, sem og annarra ríkisaðila sem undir ráðuneytið heyra, fari fram í samræmi við gildandi lög og reglur. Það er hlutverk stjórnvalda að tryggja að lagaumgjörð um fjölmiðla miði að því að tryggja tjáningarfrelsi og ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla; að fjölmiðlar og fréttafólk geti sinnt lýðræðislegu hlutverki sínu án afskipta ríkisins, eigenda eða auglýsenda fjölmiðla.
    Stjórn Ríkisútvarpsins ber ábyrgð á rekstri Ríkisútvarpsins og að farið sé að lögum um Ríkisútvarpið. Í því felst m.a. að móta í samvinnu við útvarpsstjóra dagskrárstefnu og megináherslur í starfi Ríkisútvarpsins til lengri tíma og að fylgjast með starfsemi og verkefnum Ríkisútvarpsins.
    Til að stuðla að faglegum vinnubrögðum og tryggja gæði frétta- og dagskrárefnis á Ríkisútvarpið að viðhafa innra eftirlit og fylgja gæðaferlum, auk þess sem upplýst skal á gagnsæjan hátt með hvaða hætti það er gert á hverjum tíma. Ríkisútvarpið setur sér siðareglur 1 sem skulu endurskoðaðar eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Vinnureglur 2 Ríkisútvarpsins um fréttir og dagskrárefni eru aðgengilegar á vef Ríkisútvarpsins. Þá eiga fréttamenn RÚV að taka mið af siðareglum 3 Blaðamannafélags Íslands.



1     images.nyr.ruv.is/media/public/documents/sidareglur_ruv_2022.pdf
2     images.nyr.ruv.is/media/public/documents/Uppfaersla_a_vinnureglum_juni2025.pdf
3     www.press.is/static/files/sidavefur/sidareglur.pdf