Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1274 — 594. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með frávísunartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum (verndarsamkomulag Evrópusambandsins).
Frá 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Með frumvarpi þessu eru lagðar til umfangsmiklar breytingar á lögum um útlendinga, nr. 80/2016, og lögreglulögum, nr. 90/1996. Þótt meiri hlutinn leggi áherslu á að hér sé um nauðsynlegar breytingar að ræða vegna alþjóðlegra skuldbindinga telur 1. minni hluti að hugleiða beri vel það skref sem hér er stigið, að innleiða fyrstu hluta hins nýja verndar- og fólksflutningasamkomulags Evrópusambandsins.
Sú aðferð sem valin er í frumvarpinu til innleiðingar á gerðum er sérstök og þar telur 1. minni hluti tilefni til að vanda vel til verka, ef vilji manna stendur til þess að samþykkja frumvarpið. Lagt er til að reglugerðum Evrópusambandsins verði veitt beint lagagildi hér á landi með svokallaðri tilvísunaraðferð. Með því er löggjafarvald að því marki framselt til Evrópusambandsins enda öðlast þá beint lagagildi hér bein þýðing á regluverki sem sett er saman án beinnar aðkomu íslenskra kjósenda eða Alþingis. Kærunefnd útlendingamála bendir í umsögn sinni á að takmörkuð reynsla sé af þessari aðferð og að hún geti valdið vandkvæðum við túlkun, sérstaklega þar sem hugtakanotkun ESB stemmir ekki alltaf við íslenska stjórnsýslu.
Þótt sá hluti pakkans sem hér er innleiddur, AMMR-, Eurodac- og neyðarástandsreglugerðir, sé sagður snúast um einfalda tæknilega samvinnu og skilvirka málsmeðferð telur 1. minni hluti að með því að stíga þessi skref aukist verulega líkur á því að næstu hlutar pakkans verði í framhaldinu álitnir fýsileg næstu skref af ríkisstjórn sem aðhyllist frekari aðlögun að Evrópusambandinu. Í greinargerð með frumvarpinu er boðað að aðrar gerðir verndarsamkomulagsins séu ekki innleiddar að svo stöddu en verði teknar til skoðunar síðar. Þannig getur næsta frumvarp falið í sér annan „saklausan“ lið til innleiðingar hér en áður en menn vita af geti sá fimmti og sá sjötti komið til sögunnar og þá komin slík reynsla á þessa innleiðingu að hætt er við að hún fari á eins konar sjálfstýringu í kerfinu. Fyrr en varir geta komið fram skaðlegar afleiðingar af framsali Íslendinga á yfirráðum yfir landamærastjórn sinni, sem erfitt getur verið að sjá fyrir. Ábyrgðarhluti er því að meta vel hagsmuni Íslendinga af því að undirgangast þetta verndarsamkomulag.
Fyrsti minni hluti varar við því að með því að samþykkja þennan fyrsta hluta sé Ísland í reynd að gera sig líklegt til að taka þátt í heildstæðu kerfi ESB sem gæti í framtíðinni falið í sér íþyngjandi kröfur um samstöðuframlög og ábyrgðardreifingu, sem nú þegar er kveðið á um í IV. hluta AMMR-reglugerðarinnar en Ísland stendur enn utan við. Ef af því verður á síðari stigum skuldbinda Íslendingar sig til að glíma við vandræði annarra þjóða í álfunni sem þeir hafa lítið með að gera.
Samkvæmt 4. gr. frumvarpsins fær 12. og 13. gr. ESB-reglugerðar 2024/1359 lagagildi á Íslandi. Þær greinar reglugerðarinnar fjalla um undanþágu ríkis í neyðartilvikum frá því að taka við umsækjanda um hæli sem kom fyrst til þess ríkis og skýrt er að sé á ábyrgð þess (a-liður). Hingað til hefur Dyflinnarreglugerðin verið gagnleg til að senda úr landi umsækjendur um vernd og aðra sem áttu viðkomu í öruggu landi á leið til Íslands, sem eðli málsins samkvæmt eru nærri því allir sem á annað borð sækja landið. Það er í ljósi þess atriðis sem reglugerðin er svo mikilvæg hagsmunum Íslands. Við erum aðilar að samningi á grundvelli hennar. Ef fyrirhugað er að afnema þessa heimild er afar vafasamt að gera það einhliða án þess að við föllumst á nýtt fyrirkomulag. Það fyrirkomulag er ekki bara sent hingað til afgreiðslu.
Aðstæður hér eru afar ólíkar aðstæðum á meginlandi Evrópu þar sem vel kann að vera að nýtt fyrirkomulag Schengen-samstarfsins henti vel. Með því stefnir í að Ísland verði háð duttlungum suðurríkja Evrópu í landamæragæslu enn frekar en þegar var ef þau ríki kjósa að lýsa yfir neyðarástandi og hætta að taka við fólki. Í stað þess að beygja sig undir slíkt fyrirkomulag, sem sennilega mun taka frekari breytingum og ekki endilega til batnaðar fyrir hagsmuni Íslands, væri réttast að byrja á að kanna til hlítar aðrar leiðir til að semja um áframhaldandi heimildir Íslands á sama grunni og verið hefur út frá Dyflinnarreglugerðum.
Niðurstaða.
Að mati 1. minni hluta er þetta frumvarp fyrsta skref, þótt meinlaust kunni að virðast, í átt að áframhaldandi framsali á valdi okkar Íslendinga yfir landamærum okkar til ókjörinna embættismanna í Brussel undir því yfirskini að verið sé að uppfylla Schengen-skuldbindingar. Með því að opna á fyrstu hluta þessa samkomulags eru Íslendingar að hefja inngöngu í regluverk sem við höfum litla stjórn á og getur vel leitt af sér kröfu um frekari samruna í framtíðinni sem þarf alls ekki að vera eins hagstæður fyrir landið.
Vendingar þessar eru sérstaklega umhugsunarverðar í ljósi gáleysis fjölda Evrópuþjóða á sviði landamæramála. Nefna má ákvörðun spænskra yfirvalda sem nýverið veittu 500 þúsund ólöglegum innflytjendum dvalarleyfi til eins árs með möguleika á framlengingu. Þar með bættist hálf milljón manna inn á Schengen-svæðið sem getur farið frjálslega um það og yfirvöld kunna ef til vill lítil sem engin deili á. Líklegt er að hælispakki ESB, sem frumvarpið innleiðir að hluta, muni þróast enn frekar með ófyrirsjáanlegum hætti. Um það er mjög erfitt að segja á þessu stigi en öll skref í þessa átt þarf að rýna vel. Þótt fréttir berist innan úr Evrópusambandinu af áformum um að gera umbætur á sameiginlegu verndarkerfi þátttökuríkjanna hefur kerfið allt verið í miklum ólestri undanfarin ár með skaðlegum afleiðingum fyrir þjóðir ESB. Rétt er að fagna ekki þeirri breytingu að forysta stjórnmálanna boði að bregðast eigi við óánægju almennings fyrr en hún er fram komin og farin að hafa áhrif til hins betra. Fram til þeirrar stundar eiga Íslendingar að nálgast frekari samruna við þessi kerfi af mikilli varúð.
Aðstæður á Íslandi þola hvorki meiri óvissu né að landinu verði komið inn í ógagnsætt fyrirkomulag fólksflutninga þar sem innlend stjórn yfir því hver geti dvalið í landinu veikist. Næstu ár og áratugir verða að nýtast íslenskum stjórnvöldum vel til að tryggja lýðfræðilega sjálfbærni þjóðarinnar, að hún vaxi og dafni af eigin rammleik og geti í auknum mæli séð fyrir sjálfri sér á vinnumarkaði. Með athugasemdalausri samþykkt svona frumvarps er hætt við að því marki sé stefnt í hættu. Heildaráhrif verndarsamkomulagsins á íslenskt fullveldi verður að skoða nánar áður en lengra er haldið.
Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 2. júní 2026.
Snorri Másson.