Ferill 602. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Nr. 15/157.
Þingskjal 1276 — 602. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2024 og nr. 68/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta), nr. 158/2025 og nr. 159/2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) og nr. 310/2025 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn.
________
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2024 frá 2. febrúar 2024 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
a. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 frá 7. október 2020 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 og tilskipun (ESB) 2019/1937.
b. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1504 frá 7. október 2020 um breytingu á tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga.
c. Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1988 frá 12. júlí 2022 um framlengingu á umbreytingartímabilinu til að veita áfram hópfjármögnunarþjónustu í samræmi við landslög eins og um getur í 1. mgr. 48. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503.
2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 68/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2118 frá 24. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun 2009/103/EB um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja og um að fylgja því eftir að vátrygging vegna slíkrar ábyrgðar sé tekin.
3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2025 frá 13. júní 2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn framselda tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2775 frá 17. október 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB að því er varðar breytingar á stærðarviðmiðunum fyrir örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki eða samstæður.
4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2025 frá 13. júní 2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2101 frá 24. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun 2013/34/ESB að því er varðar birtingu tekjuskattsupplýsinga af hálfu tiltekinna fyrirtækja og útibúa.
5. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 310/2025 frá 5. desember 2025 um breytingu á XI. viðauka (Rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
a. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1232 frá 14. júlí 2021 um tímabundna undanþágu frá tilteknum ákvæðum tilskipunar 2002/58/EB að því er varðar notkun veitenda fjarskiptaþjónustu milli einstaklinga, sem er ótengd númerum, á tækni til að vinna úr persónuupplýsingum og öðrum gögnum í þeim tilgangi að berjast gegn kynferðislegri misnotkun barna á netinu.
b. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1307 frá 29. apríl 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/1232 um tímabundna undanþágu frá tilteknum ákvæðum tilskipunar 2002/58/EB að því er varðar notkun veitenda fjarskiptaþjónustu milli einstaklinga, sem er ótengd númerum, á tækni til að vinna úr persónuupplýsingum og öðrum gögnum í þeim tilgangi að berjast gegn kynferðislegri misnotkun barna á netinu.
Samþykkt á Alþingi 2. júní 2026.