Ferill 510. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1277 — 510. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með tillögu til rökstuddrar dagskrár
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (hækkun stofnframlaga ríkisins o.fl.).
Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.
Fyrsti minni hluti styður markmið frumvarpsins um að grípa verði til aðgerða til að auðvelda byggingu nýrra íbúða. 1. minni hluti leggst aftur á móti gegn þeim tillögum sem mælt er fyrir um í frumvarpinu, enda munu þær að öllum líkindum vinna gegn markmiðum frumvarpsins þegar upp er staðið.
Röng forgangsröðun.
Vandi húsnæðismarkaðarins hér á landi er fyrst og fremst sá að vextir eru háir og regluverk í byggingariðnaði óþarflega flókið og íþyngjandi. Sá vandi verður ekki leystur með hækkun stofnframlaga til almennra íbúða. Þvert á móti vinnur slík útgjaldahækkun hins opinbera gegn lækkun vaxta.
Með tilliti til versnandi vaxtaumhverfis í kjölfar mikillar útgjaldaaukningar og skattahækkana í fjárlögum fyrir yfirstandandi ár telur 1. minni hluti óábyrgt að auka ríkisútgjöld enn frekar eins og lagt er til í frumvarpinu. Stjórnvöld ættu fremur að draga úr útgjöldum og lækka álögur á fólk og fyrirtæki og styðja við Seðlabanka Íslands í að koma böndum á vextina.
Þá telur 1. minni hluti óráðlegt að auka umsvif almenna íbúðakerfisins umfram það sem nú er. Mikill meiri hluti landsmanna vill fremur eiga húsnæði en að leigja það. Hið opinbera ætti mun frekar að grípa til aðgerða til að styðja við séreignarstefnuna heldur en að hækka styrki til byggingar leiguíbúða.
Áhrif frumvarpsins rangt metin.
Í greinargerð frumvarpsins segir að ekki sé talið að frumvarpið muni hafa fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð verði það að lögum með þeim rökum að hækkun á stofnframlagi og viðbótarframlögum ríkisins rúmist innan fjárheimilda til stofnframlaga hverju sinni samkvæmt fjárlögum. Þessi fullyrðing stenst hins vegar ekki skoðun. Í fyrsta lagi felur frumvarpið í sér hækkun stofnframlaga, þ.e. aukningu ríkisútgjalda, og hefur því eðli málsins samkvæmt fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð. Gildir þar einu hvort hækkunin rúmist innan fjárheimilda í fjárlögum. Í öðru lagi eru ummæli í greinargerð frumvarpsins um að gert sé ráð fyrir að hækkun stofnframlaga rúmist innan fjárheimilda til stofnframlaga „hverju sinni“ markleysa, enda liggur hvorki fyrir hverjar fjárheimildir til stofnframlaga verða í fjárlögum í framtíðinni né hver fjöldi umsókna um stofnframlög verður.
Hins vegar er yfir allan vafa hafið að hækkun stofnframlaga leiðir til aukningar ríkisútgjalda og hefur þar með fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð. Sem dæmi má nefna að hefði ákvæði frumvarpsins verið í gildi árið 2025 hefðu framlög ríkisins verið að minnsta kosti 800 millj. kr. hærri það árið.
Frávísunartillaga.
Fyrsti minni hluti leggur til að frumvarpinu verði vísað frá með svofelldri
RÖKSTUDDRI DAGSKRÁ:
Með vísan til þess sem að framan er ritað samþykkir Alþingi að vísa málinu frá og taka fyrir næsta mál á dagskrá.
Alþingi, 2. júní 2026.
| Rósa Guðbjartsdóttir, frsm. |
Sigurður Örn Hilmarsson. |