Ferill 555. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1283 — 555. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um stafrænt fullveldi Íslands.
1. Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Í dag gegnir Umbra – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins hlutverki þjónustuaðila ráðuneytisins þegar kemur að rekstri skýjalausna. Fyrst og fremst er um að ræða lausnir innan Microsoft 365 skrifstofuhugbúnaðarsvítunnar. Dæmi um lausnir innan Microsoft 365 eru Outlook, Word, excel, PowerPoint, Teams o.s.frv. sem eru nýttar í daglegum rekstri. Þá er lausnin Dokobit nýtt við stafræna undirritun skjala.
| Hugbúnaður/kerfi | Fyrirtæki | Höfuðstöðvar fyrirtækis | Gögn vistuð | Heimilisfesti endanlegra eigenda |
| Microsoft 365 | Microsoft Írland | BNA | EES | BNA |
| Málaskrá | Hugvit | Ísland | Ísland | Ísland |
| Dokobit | Signicat | Noregur | EES | Noregur |
| Orri (fjárhags- og mannauðskerfi) | Advania Ísland | Svíþjóð | Ísland | BNA |
2. Hvaða gögn á vegum ráðuneytisins eru geymd í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
Gögn ráðuneytisins sem hýst eru í skýjalausnum erlendra þjónustuaðila eru fyrst og fremst til komin vegna almennra daglegra starfa. Þetta eru til að mynda tölvupóstar, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verða til í daglegri starfsemi.
3. Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
Ekki liggur fyrir ein sameiginleg og formleg skilgreining á stafrænu fullveldi í netmiðlun ráðuneytisins.
4. Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins og undirstofnana skráður á Íslandi?
Öll lén (rótarföng) ráðuneytisins og stofnana þess eru skráð á Íslandi undir landsléninu .is hjá ISNIC. Framangreind skráning segir þó ekki ein og sér til um hvar undirliggjandi vefþjónusta, póstþjónusta eða nafnaþjónusta er rekin. Það helgast af því að lénaskráning og rekstur viðkomandi þjónustu fara ekki endilega saman og slíkar lausnir geta byggst á mismunandi þjónustuumhverfi.
5. Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?
Til er viðbragðsáætlun til að tryggja tölvupóstsamskipti ef samband við útlönd rofnar. Meginþorri tölvupóstþjónustu ráðuneytisins er í skýjalausnum utan Íslands og viðbragðsáætlunin tekur mið af tveimur meginsviðsmyndum:
Ef hefðbundið netsamband um sæstrengi dettur út hefur Umbra, í samstarfi við Farice, komið á varaleið um gervihnetti sem þegar er komin í prófanir. Þessi leið tryggir að bæði innlend og erlend tölvupóstsamskipti haldi áfram án verulegs rofs. Til lengri tíma litið hefur aðgangur einnig verið tryggður að öruggum fjarskiptatengingum í gegnum gervihnattakerfi Evrópusambandsins sem mun styrkja þessar varnir enn frekar.
Ef allt samband rofnar við útlönd, þ.m.t. gervihnattasamband, fellur tenging við skýjalausnir erlendis niður. Í þeirri sviðsmynd tekur við viðbragðsáætlun um að endurreisa staðbundið póstkerfi sem byggist á gagnaafritum sem hýst eru á Íslandi. Slík endurreisn tryggir innlenda tölvupóstþjónustu milli ráðuneytisins og annarra innlendra aðila.