Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1292 — 322. mál.
Síðari umræða.
Breytingartillaga
við tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.
Á eftir lið 4.8, Hafnir sem orkumiðstöðvar, í 4. kafla, Markmið um umhverfislega sjálfbærar samgöngur, komi nýr liður, svohljóðandi:
4.9. Uppbygging Borgarlínu.
Uppbygging Borgarlínu og einstakir verkefnafasar hennar, svo og önnur samgönguverkefni Betri samgangna ohf., samgöngusáttmálinn og fjármögnun hans, verði kynnt reglulega fyrir umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Aðkoma Alþingis að framkvæmdunum verði tryggð.
Ábyrgð: Innviðaráðuneytið og Betri samgöngur ohf. í samstarfi við sveitarfélög.