Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1294  —  305. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.

Frá meiri hluta velferðarnefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá Mannréttindastofnun Íslands, félags- og húsnæðismálaráðuneyti, Reykjavíkurborg, velferðarsviði Akureyrarbæjar, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Mosfellsbæ, Barnaheillum – Save the Children á Íslandi, ÖBÍ réttindasamtökum, dómstólasýslunni, Landspítala og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.
    Nefndinni bárust 12 umsagnir auk tveggja minnisblaða frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði heildarlöggjöf um þjónustu og úrræði fyrir einstaklinga sem skulu sæta öryggisráðstöfunum á grundvelli dómsúrlausnar. Með frumvarpinu er jafnframt lagt til að koma á fót stofnun, Miðstöð um öryggisráðstafanir, sem skuli fara með framkvæmd öryggisráðstafana auk annarra verkefna í samræmi við ákvæði frumvarpsins. Með frumvarpinu og frumvarpi um breytingu á almennum hegningarlögum ( þskj. 439, 313. mál), sem er til umfjöllunar hjá allsherjar- og menntamálanefnd, er ætlunin að tryggja að í dómsorði sé kveðið eins skýrt og unnt er á um á hvaða öryggisgæslustað einstaklingur skuli vistast og hvaða vægari öryggisráðstöfunum hann skuli sæta.

Umfjöllun nefndarinnar.
Öryggisgæslustaðir á landsbyggðinni.
    Við umfjöllun nefndarinnar komu fram áhyggjur af því að vista ætti alla þá sem sæti öryggisgæslu á einum stað í Miðstöð um öryggisráðstafanir og að ekki yrðu áfram öryggisgæslustaðir á öðrum stöðum, svo sem á landsbyggðinni. Í umsögn velferðarsviðs Akureyrarbæjar kemur fram að mikilvægt sé að fólk sem nú sætir öryggisgæslu í heimabyggð sé ekki fært til Miðstöðvarinnar þegar hún rís, enda telji velferðarsviðið að það yrði mikið áfall og afturför fyrir skjólstæðinga bæjarins að yfirgefa sína þjónustuíbúð, starfsfólk sem það þekkir og heimabæ sinn til þess eins að vera vistaðir á stofnun sem staðsett sé hinum megin á landinu. Velferðarsviðið telji mikilvægt að öryggisgæslustaðir verði einnig á landsbyggðinni svo að unnt verði að vista skjólstæðinga nærri heimabyggð þeirra.
    Í 22. gr. frumvarpsins er m.a. fjallað um ákvörðun um öryggisgæslustað en í 1. mgr. kemur fram að Miðstöð um öryggisráðstafanir ákveði öryggisgæslustað á sínum vegum eða samningsaðila skv. 14. gr. Þá þarf að liggja fyrir rökstutt álit þverfagslegs teymis skv. 21. gr. að því marki sem ekki hefur verið tekin afstaða til þess í dómsúrlausn. Í ákvæðinu er tiltekið á hvaða þáttum matið eigi að byggjast og kemur fram að það skuli jafnframt byggjast á högum og aðstæðum skjólstæðings þegar matið fer fram. Samkvæmt c-lið 2. mgr. 22. gr. skal við mat teymisins m.a. litið til stuðningsþarfar skjólstæðings, þ.m.t. hvers konar félags- og heilbrigðisþjónustu viðkomandi þarf, aldurs, kyns og búsetu skjólstæðings, og leitast við að gera skjólstæðingum kleift að viðhalda félagslegum tengslum, svo sem með vistun í nálægð við fjölskyldu.
    Að mati meiri hlutans er það ekki ætlun frumvarpsins að Miðstöð um öryggisráðstafanir taki við og hýsi á einum stað alla þá einstaklinga sem dæmdir eru til öryggisgæslu. Miðstöðin hefur heimild skv. 14. gr. frumvarpsins til að semja við sveitarfélög eða einkaaðila um framkvæmd öryggisráðstafana fyrir tiltekinn skjólstæðing sem sætir öryggisráðstöfunum. Telur meiri hlutinn að frumvarpið geri í reynd ráð fyrir að öryggisgæslustaðir verði á fleiri en einum stað á landinu og því unnt að vista skjólstæðinga í nálægð við fjölskyldu og heimabyggð, einkum ef litið er til 22. gr. frumvarpsins. Óski skjólstæðingur Miðstöðvar um öryggisráðstafanir eftir því að vera vistaður nærri sinni heimabyggð telur meiri hlutinn mikilvægt að þverfaglega matsteymið skv. 21. gr. og Miðstöðin leitist við að verða við þeirri beiðni sé það skjólstæðingi í hag, með tilliti til allra aðstæðna, en slíkt yrði metið í hverju tilviki fyrir sig.

Skjólstæðingar í húsnæði á vegum sveitarfélaga.
    Við umfjöllun nefndarinnar komu fram athugasemdir er varða heimildir sveitarfélaga við veitingu þjónustu á grundvelli samnings um öryggisráðstafanir, sbr. 14. gr. frumvarpsins. Í umsögn Mosfellsbæjar var lögð áhersla á að kveðið yrði á um það með skýrum hætti að húsnæði á vegum sveitarfélaga væri heimili einstaklinga en ekki öryggisgæslustaður. Þá benti sveitarfélagið á að heimili nytu friðhelgi samkvæmt stjórnarskránni og því væri ólíklegt að sveitarfélögunum væri heimilt að framfylgja öryggisráðstöfunum, hafa eftirlit eða beita þvingunum í heimahúsi. Teldi sveitarfélagið því mikilvægt að dómstólar úrskurðuðu ekki um búsetu í húsnæði sveitarfélaga heldur einungis um þær öryggisráðstafanir sem ríkisvaldið bæri ábyrgð á.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 11. maí 2026, kemur fram að samkvæmt frumvarpinu sé öryggisgæsla annars vegar innlögn á heilbrigðisstofnun þar sem veitt er réttar- og öryggisgeðþjónusta og hins vegar vistun á öryggisgæslustað á vegum Miðstöðvar um öryggisráðstafanir eða samningsaðila hennar. Miðstöðin geti samið við sveitarfélag eða einkaaðila um að skjólstæðingur sé í öryggisgæslu á vegum þeirra og verði það úrræði þá öryggisgæslustaður í skilningi laganna. Ekki sé útilokað að skjólstæðingur geti átt lögheimili á þeim stað en það feli hins vegar ekki í sér neinar skyldur á sveitarfélög til að sinna framkvæmd öryggisráðstafana því að eins og skýrt komi fram í frumvarpinu muni Miðstöðin sjá um alla framkvæmd og eftirlit öryggisráðstafana, hvort sem það er öryggisgæsla eða framkvæmd vægari öryggisráðstafana. Að mati ráðuneytisins fari það ekki gegn 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu að mönnum sé gert að sæta öryggisráðstöfun á heimili sínu, svo sem vægari öryggisráðstöfunum líkt og rafrænu eftirliti, en skv. 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar sé heimilt með sérstakri lagaheimild að takmarka friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 12. maí 2026, segir að dómari geti kveðið á um vægari öryggisráðstafanir, svo sem um dvalarstað. Þannig sé ekki loku fyrir það skotið að í dómsorði sé kveðið á um að einstaklingur skuli búa á tilteknum stað og jafnvel sæta þar öðrum vægari ráðstöfunum, svo sem geðlæknismeðferð, en í slíkum tilvikum sé ekki um öryggisgæslustað að ræða heldur búsetuúrræði sem hann eigi rétt á samkvæmt lögum þar um. Miðstöðin muni annast framkvæmd vægari öryggisráðstafana og hafa eftirlit með því að þeim sé fylgt. Sveitarfélögin þurfi því ekki að framfylgja þeim eða annast eftirlit með skjólstæðingum. Í einhverjum tilvikum þurfi þó að vera samstarf á milli Miðstöðvarinnar og félagsþjónustu sveitarfélags um hvernig öryggisráðstöfunum skuli háttað.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins um að ef um ræðir samning við sveitarfélag eða einkaaðila skv. 14. gr. frumvarpsins verði húsnæði sveitarfélagsins eða einkaaðilans að öryggisgæslustað í skilningi frumvarpsins. Fari þá um þann öryggisgæslustað samkvæmt þeim reglum sem fram komi í frumvarpinu. Það feli ekki í sér neinar skyldur á sveitarfélagið eða einkaaðilann að sinna framkvæmd öryggisráðstafana heldur sinni Miðstöðin framkvæmd þeirra og eftirliti hvort sem um ræðir öryggisgæslu eða framkvæmd vægari öryggisráðstafana.

Félagsþjónusta á öryggisgæslustöðum á ábyrgð Miðstöðvar um öryggisráðstafanir (27. gr.).
    Í 27. gr. frumvarpsins er fjallað um félags- og heilbrigðisþjónustu sem veitt er samhliða öryggisráðstöfunum. Í 1. mgr. kemur fram að skjólstæðingar á öryggisgæslustað skuli njóta sambærilegrar heilbrigðisþjónustu og almennt gildir, sbr. lög um heilbrigðisþjónustu. Þá kemur einnig fram að um félagsþjónustu fari samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
    Í umsögn Reykjavíkurborgar komu fram ábendingar um að af frumvarpinu mætti ráða að sveitarfélögin ættu að veita félagsþjónustu samhliða öryggisráðstöfunum og þannig væri lögð ný lagaskylda á sveitarfélög sem ekki hefði verið kostnaðarmetin. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga er tekið undir þessi sjónarmið og það að skýrt þurfi að koma fram í 27. gr. að Miðstöðin sjái um félagsþjónustu á öryggisgæslustöðum en ekki sveitarfélögin. Jafnframt að skýra þurfi betur ábyrgðarskil hvað varðar vægari öryggisráðstafanir.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 11. maí 2026, tekur ráðuneytið fram að frumvarpið leggi engar skyldur á sveitarfélög umfram það sem gildandi lög kveði á um. Með frumvarpinu sé skýrt að ríkið muni annast framkvæmd öryggisráðstafana og að kostnaður vegna þeirra greiðist úr ríkissjóði. Utan þess kostnaðar falli hins vegar öll sú þjónusta sem sveitarfélögum og öðrum þjónustuaðilum sé skylt að veita einstaklingum, svo sem á grundvelli laga um félagsþjónustu eða laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, og falli ekki undir öryggisráðstafanir. Tekur ráðuneytið fram að með þessu sé verið að tryggja að einstaklingar sem sæta öryggisráðstöfunum njóti allra þeirra réttinda sem þeir eigi lögbundinn rétt á en falli ekki milli skips og bryggju eins og dæmi séu um í núgildandi lagaumhverfi. Þá tekur ráðuneytið fram að einnig sé skýrt að félagsþjónusta sem veitt sé á öryggisgæslustöðum verði veitt á vegum nýrrar Miðstöðvar um öryggisráðstafanir þar sem gert sé ráð fyrir að fagmenntað starfsfólk verði á hverjum öryggisgæslustað, svo sem félagsráðgjafar. Því sé ekki gert ráð fyrir að sveitarfélögin veiti slíka þjónustu á öryggisgæslustað líkt og þau hafi talið og lýst áhyggjum af.
    Þá kemur enn fremur fram í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 12. maí 2026, að ráðuneytið telji skýrt, sbr. 8. gr. frumvarpsins, að félagsþjónusta á öryggisgæslustöðum verði á vegum Miðstöðvarinnar. Þá kemur fram að í athugasemdum við 24. gr. frumvarpsins, sem kveði á um vægari öryggisráðstafanir, segi að við slíkar aðstæður sæti skjólstæðingur ekki öryggisgæslu. Hann geti þó búið í húsnæði á vegum félagsþjónustu sveitarfélags og þegar svo hátti til beri Miðstöðin ábyrgð á framkvæmd öryggisráðstöfunar en félagsþjónusta sveitarfélagsins á búsetu og annarri þjónustu við einstaklinginn samkvæmt lögum um félagsþjónustu og lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins og telur frumvarpið skýrt um að ríkið annist framkvæmd öryggisráðstafana og að kostnaður vegna þeirra greiðist úr ríkissjóði. Frumvarpið leggi engar nýjar skyldur á sveitarfélög umfram það sem gildandi lög kveði á um. Félagsþjónusta sem veitt sé á öryggisgæslustöðum verði veitt á vegum nýrrar Miðstöðvar um öryggisráðstafanir en ekki á vegum félagsþjónustu sveitarfélaganna.

Breytingartillögur.
Forstöðumenn öryggisgæslustaða (1. mgr. 8. gr.).
    Við umfjöllun nefndarinnar kom fram ábending um að í 1. mgr. 8. gr. frumvarpsins væri fjallað um forstöðumenn öryggisgæslustaða en á öðrum stöðum í frumvarpinu væri notað orðið yfirmaður. Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 11. maí 2026, kemur fram að ráðuneytið telji betra að alltaf sé talað um yfirmann öryggisgæslustaðar.
    Meiri hlutinn leggur því til að breyta orðanotkun í 1. mgr. 8. gr. frumvarpsins úr forstöðumanni í yfirmann til samræmis við önnur ákvæði frumvarpsins.

Ósk einstaklings um hver verði skipaður tilsjónarmaður (3. málsl. 1. mgr. 15. gr.).
    Í 3. málsl. 1. mgr. 15. gr. frumvarpsins kemur fram að dómari skuli gefa einstaklingi kost á að koma á framfæri ósk um hver verði skipaður tilsjónarmaður nema ljóst sé að slíkt beri ekki árangur. Við umfjöllun nefndarinnar um málið kom fram ábending frá Mannréttindastofnun Íslands um að hætta væri á að fyrirvarinn yrði túlkaður með rýmri hætti en ástæða væri til, svo sem þannig að einstaklingur fengi ekki tækifæri til að tjá sig vegna þess að hann notaði óhefðbundnar tjáskiptaleiðir eða einfaldlega á grundvelli huglægs mats á getu viðkomandi til að tjá skynsamlega afstöðu, sem samræmdist illa réttindum fatlaðs fólks, sbr. m.a. 13. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Lagði stofnunin því til að orðalagið „nema ljóst sé að slíkt beri ekki árangur“ yrði fellt brott.
    Meiri hlutinn, í samráði við félags- og húsnæðismálaráðuneyti, telur rétt að fella brott þann hluta málsliðarins til samræmis við tillögu stofnunarinnar og leggur því til breytingu þess efnis.

Málsmeðferðarreglur í málum um skriflegar aðfinnslur um störf tilsjónarmanns (17. gr.).
    Við umfjöllun nefndarinnar kom fram ábending frá Daða Kristjánssyni, héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, sem dómstólasýslan tók jafnframt undir í umsögn sinni, um að í 17. gr. frumvarpsins skorti ákvæði um hvaða málsmeðferðarreglur ættu við þegar dómari úrskurðaði í málum þegar gerðar væru skriflegar aðfinnslur við störf skipaðs tilsjónarmanns. Kom fram tillaga um að bæta við í 17. gr. frumvarpsins málsgrein um að málsmeðferð samkvæmt þeirri lagagrein fari samkvæmt 2. gr. og XXVII. kafla laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, og jafnframt að úrskurðir samkvæmt lagagreininni sæti kæru til Landsréttar, sbr. XXX. kafla sömu laga.
    Í minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti kom fram að ráðuneytið væri sammála breytingartillögu sem fram kemur í umsögnum Daða Kristjánssonar og dómstólasýslunnar.
    Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið umsagnaraðila og telur rétt að bæta nýrri málsgrein við 17. gr. frumvarpsins þar sem skýrt verði kveðið á um hvaða málsmeðferðarreglur eigi við þegar skriflegar aðfinnslur um störf tilsjónarmanns eru bornar upp við viðeigandi dómstól og þar af leiðandi hvernig fari um kæru slíkra úrskurða.

Fulltrúi sveitarfélags í þverfaglegu matsteymi (21. gr.).
    Við umfjöllun um málið kom fram ábending frá velferðarsviði Akureyrarbæjar um að í hinu þverfaglega matsteymi skv. 21. gr. frumvarpsins væri mikilvægt að hafa stöðu fulltrúa félagsþjónustunnar breytilega þannig að hann kæmi úr því sveitarfélagi sem þekkti best til skjólstæðingsins hverju sinni.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 11. maí 2026, kemur fram að ráðuneytið sé sammála því að leita beri hverju sinni til þeirrar félagsþjónustu sem þekki skjólstæðinginn best. Að mati ráðuneytisins sé hins vegar óþarft að kveða á um það sérstaklega í ákvæðinu sjálfu. Skv. 60. gr. frumvarpsins skuli ráðherra setja reglugerð sem kveði á um skipan þverfaglegs teymis og telur ráðuneytið að hægt sé að bregðast við ábendingu velferðarsviðs Akureyrarbæjar í þeirri reglugerð.
    Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið velferðarsviðs Akureyrarbæjar. Meiri hlutinn telur þó rétt að útfæra tillöguna á annan hátt en fram kemur í umsögn velferðarsviðs Akureyrarbæjar enda geti reynst vandkvæðum bundið að meta hvaða sveitarfélag eða fulltrúi félagsþjónustu þekki best til skjólstæðingsins. Að mati meiri hlutans er mikilvægt að tilgreina sérstaklega í ákvæðinu að fulltrúi lögheimilissveitarfélags skjólstæðings skuli sitja í þverfaglega matsteyminu. Þá telur meiri hlutinn jafnframt nauðsynlegt að matsteyminu sé heimilt að afla upplýsinga frá þeim sveitarfélögum eða þjónustusvæðum sem þekkja vel þjónustuþarfir skjólstæðingsins. Þannig geti matsteymið leitað til annarra sveitarfélaga en lögheimilissveitarfélags, svo sem sveitarfélagsins þar sem viðkomandi skjólstæðingur bjó áður. Matsteymið geti þannig leitað til þess sveitarfélags um upplýsingar og jafnvel óskað eftir að fulltrúi þess sitji fundi matsteymisins í þeim tilgangi að þjónusta skjólstæðinginn sem best. Leggur meiri hlutinn til breytingu á 3. mgr. 21. gr. þess efnis.

Öryggisgæslustaður á vegum Miðstöðvar um öryggisráðstafanir eða samningsaðila (21. og 22. gr.).
    Nefndin fjallaði um öryggisgæslu á vegum Miðstöðvar um öryggisráðstafanir, einkum með hliðsjón af ábendingum í umsögn Landspítalans. Í 19. gr. frumvarpsins kemur fram að kveðið sé á um öryggisráðstafanir í dóms- eða úrskurðarorði. Til öryggisráðstafana teljast öryggisgæsla, sem getur annars vegar verið innlögn á viðeigandi heilbrigðisstofnun þar sem veitt er réttar- og öryggisgeðþjónusta og hins vegar vistun í öryggisgæslu á vegum Miðstöðvar um öryggisráðstafanir eða samningsaðila. Þá kemur skýrt fram að vistun á vegum Miðstöðvarinnar geti farið tímabundið fram á heilbrigðisstofnun samkvæmt ákvörðun yfirlæknis viðkomandi stofnunar en öryggisgæsla á heilbrigðisstofnun fari eftir lögum um réttindi sjúklinga og öðrum lögum og reglum sem um sjúklinga gilda. Meiri hlutinn bendir því á að skv. 19. gr. er gerður greinarmunur á öryggisgæslu á heilbrigðisstofnun og öryggisgæslu á vegum Miðstöðvarinnar. Um öryggisgæslu á viðeigandi heilbrigðisstofnun fari eftir annarri löggjöf og samkvæmt ákvörðun yfirlæknis. Um vistun á vegum Miðstöðvarinnar fari eftir ákvæðum 21. og 22. gr.
    Samkvæmt 21. gr. frumvarpsins er starfrækt þverfaglegt matsteymi Miðstöðvar um öryggisráðstafanir sem leggur mat á þjónustuþörf skjólstæðings með tilliti til þeirra öryggisráðstafana sem honum er gert að sæta. Í teyminu á yfirlæknir réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítalans fast sæti ásamt öðrum sérfræðingum með viðeigandi fagþekkingu og skal álit teymisins lagt til grundvallar þegar tekin er ákvörðun um framkvæmd öryggisráðstöfunar á vegum Miðstöðvarinnar samkvæmt dómsúrlausn. Þá er í 22. gr. fjallað um ákvörðun um öryggisgæslustað á vegum Miðstöðvarinnar þar sem lagt er til að hún taki ákvörðun um öryggisgæslustað á sínum vegum eða samningsaðila. Við slíka ákvörðunartöku þarf að liggja fyrir rökstutt álit hins þverfaglega matsteymis skv. 21. gr. að því marki sem ekki hefur verið tekin afstaða til þess í dómsúrlausn. Í skýringum við 21. og 22. gr. kemur þó fram að Miðstöðin sé ekki bundin af áliti matsteymisins þrátt fyrir að það vegi þungt við ákvörðunartöku.
    Í umsögn Landspítalans eru gerðar athugasemdir við framangreind ákvæði frumvarpsins þar sem bent er á mikilvægi þess sem fram kemur í skýringum við 21. gr. um að innlögn einstaklings á sjúkrahús sé háð ákvörðun viðkomandi sjúkrahúss. Telur Landspítalinn það hins vegar ekki samræmast því að álit þverfaglega teymisins sé hvorki bindandi fyrir Miðstöðina né önnur stjórnvöld ef þau geta komist að annarri ákvörðun um vistun en yfirlæknir matsteymisins. Að því virtu og með hliðsjón af skýringum við ákvæði 21. og 22. gr. þurfi að skýra þessi atriði nánar.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 12. maí 2026, er bent á að í 19. gr. frumvarpsins komi skýrt fram að enginn verði lagður inn á heilbrigðisstofnun í öryggisgæslu nema samkvæmt ákvörðun dómara eða yfirlæknis viðkomandi stofnunar. Þá bendir ráðuneytið á að Miðstöðin geti einungis ákveðið öryggisgæslustað á sínum vegum eða samningsaðila og þá á grundvelli mats þverfaglegs matsteymis. Ráðuneytið telur hins vegar að skýra mætti nánar í 2. mgr. 21. gr. að ákvörðun um öryggisgæslustað samkvæmt dómsúrlausn á grundvelli ákvæðisins sé á vegum Miðstöðvar eða samningsaðila. Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu og leggur því til breytingu þess efnis.
    Þá leggur ráðuneytið til að bætt verði við fyrirsögn 22. gr. frumvarpsins að um sé að ræða ákvörðun um öryggisgæslustað á vegum Miðstöðvarinnar eða samningsaðila og tekur meiri hlutinn jafnframt undir þá tillögu og leggur til breytingu þess efnis. Að því virtu telur meiri hlutinn mikilvægt að skýrt sé að ákvörðun um öryggisráðstöfun skv. 21. og 22. gr. varði öryggisgæslu á vegum Miðstöðvarinnar, ekki innlögn á viðeigandi heilbrigðisstofnun. Þó eigi ákvæði 21. og 22. gr. við þegar tekin er ákvörðun um að skjólstæðingur sem vistaður er í öryggisgæslu á vegum Miðstöðvarinnar eða samningsaðila skv. 14. gr. skuli tímabundið vistaður á heilbrigðisstofnun samkvæmt ákvörðun yfirlæknis viðkomandi stofnunar, sbr. 2. mgr. 1. tölul. 1. mgr. 19. gr. frumvarpsins. Ef skjólstæðingur í öryggisgæslu er lagður inn á heilbrigðisstofnun fer um meðferð hans og þjónustu þar samkvæmt lögum um réttindi sjúklinga og eftir atvikum öðrum lögum og reglum sem um sjúklinga gilda, sbr. 3. mgr. 1. tölul. 1. mgr. 19. gr. frumvarpsins.
    Að lokum tekur meiri hlutinn undir ábendingu ráðuneytisins um að skýra þurfi óljóst orðalag í skýringu við ákvæði 21. gr. um tilgang yfirlæknis í þverfaglega teyminu. Ráðuneytið bendir á að orðalagið gæti valdið misskilningi í ljósi þess að ákvæðið varðar ákvörðun um öryggisgæslustað á vegum Miðstöðvarinnar eða samningsaðila, ekki annan öryggisgæslustað, svo sem réttargeðdeild. Að öllu framangreindu virtu undirstrikar meiri hlutinn að ef dómsúrlausn kveður á um að einstaklingur skuli sæta öryggisgæslu á vegum heilbrigðisstofnunar, svo sem á réttargeðdeild, fellur sú ákvörðun ekki í skaut Miðstöðvarinnar.

Tímabundið ástand skjólstæðings og mat þverfagslegs matsteymis (4. málsl. 1. mgr. 22. gr.).
    Í umsögn Mannréttindastofnunar Íslands voru gerðar athugasemdir við orðalag 4. málsl. 1. mgr. 22. gr. frumvarpsins. Þar segir að mat þverfaglegs matsteymis skuli byggja á viðtali við skjólstæðing nema því verði ekki við komið. Stofnunin veltir því upp hvort þörf sé á þeim fyrirvara og telur hættu á að orðalagið verði túlkað rúmt, t.d. þannig að sleppa megi viðtali vegna anna eða vegna þess að notast þurfi við óhefðbundnar tjáskiptaleiðir. Að mati stofnunarinnar mætti annaðhvort fella brott orðalagið eða a.m.k. þrengja það þannig að ljóst sé að fyrirvarinn eigi einungis við þegar ómögulegt er að ræða við skjólstæðing vegna ástands hans.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 11. maí 2026, leggur ráðuneytið til að bæta orðunum „vegna tímabundins ástands hans“ við 4. málsl. 1. mgr. 22. gr. frumvarpsins.
    Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og leggur til umrædda breytingu um viðbót við 4. málsl. 1. mgr. 22. gr. frumvarpsins.

Flutningur skjólstæðings á fund með Miðstöð um öryggisráðstafanir (5. málsl. 3. mgr. 24. gr. og 3. málsl. 5. mgr. 25. gr.).
    Í umsögn Mannréttindastofnunar Íslands er bent á að skv. 3. mgr. 24. gr. frumvarpsins sé gert ráð fyrir heimild Miðstöðvar um öryggisráðstafanir til að boða skjólstæðing á fund til að fara yfir framkvæmd öryggisráðstöfunar. Gert sé ráð fyrir að skjólstæðingi sé skylt að mæta á fundinn en verði hann ekki við boðun skuli lögregla flytja hann á fundinn. Stofnunin telji ljóst að beiting slíkrar nauðungar myndi skerða verulega sjálfsákvörðunarrétt viðkomandi einstaklings. Bendir hún á að lagaákvæði megi eingöngu kveða á um slíkar takmarkanir á frelsi og friðhelgi einstaklings séu þær nauðsynlegar og ekki megi ganga lengra en þörf krefji. Stofnunin veltir því upp hvort þörf sé á svo íþyngjandi ráðstöfun í þessum tilvikum og bendir á að draga megi í efa að fundur sem skjólstæðingur hefur verið þvingaður til með valdi beri mikinn árangur. Bendir stofnunin einnig á að gert sé ráð fyrir sambærilegri ráðstöfun í 5. mgr. 25. gr. frumvarpsins þar sem fjallað er um heimild Miðstöðvarinnar til að boða skjólstæðinga reglulega á fund til að ræða hvernig þeir hafi hlítt öryggisráðstöfun. Veltir stofnunin því upp hvort það samræmist ekki betur meðalhófi að Miðstöðin geri skjólstæðingi einfaldlega grein fyrir því að það að mæta ekki á fund geti haft sömu afleiðingar í för með sér og að veita ekki upplýsingar eða uppfylla að öðru leyti ekki skilyrði öryggisráðstöfunar.
    Í minnisblaði ráðuneytisins, dags. 11. maí 2026, kemur fram að ráðuneytið taki undir afstöðu Mannréttindastofnunar Íslands og telji að betur færi á að kveða á um að Miðstöðinni sé heimilt að fela lögreglu að flytja skjólstæðing á sinn fund. Hið sama eigi við um 5. mgr. 25. gr. frumvarpsins.
    Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið og leggur til breytingu á orðalagi í 5. málsl. 3. mgr. 24. gr. og 3. málsl. 5. mgr. 25. gr. til samræmis við tillögu ráðuneytisins. Telur meiri hlutinn skynsamlegra að um heimild sé að ræða frekar en skyldu Miðstöðvarinnar til að flytja skjólstæðing á fund sinn og þannig sé það lagt í hendur Miðstöðvarinnar að meta hvort vænlegt sé að lögregla flytji skjólstæðing til fundarins eða hvort aðrar leiðir kunni að vera árangursríkari.

Þartilbær starfsmaður Miðstöðvar um öryggisráðstafanir sem hefur þekkingu á fötlun í fylgd lögreglu (4. og 5. mgr. 25. gr.).
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 12. maí 2026, kemur fram að bæta þurfi við 4. og 5. mgr. 25. gr. frumvarpsins sams konar málslið og er að finna í 3. mgr. 24. gr. um að vegna hagsmuna skjólstæðings skuli þartilbær starfsmaður Miðstöðvar um öryggisráðstafanir sem hafi þekkingu á fötlun vera í fylgd lögreglu sé hún kölluð til. Einhverra hluta vegna hafi það gleymst við samningu frumvarpsins.
    Að mati meiri hlutans er rétt að gera þá lagfæringu sem ráðuneytið leggur til enda um mikilvæga viðbót að ræða.

Húsreglur öryggisgæslustaða (3. mgr. 31. gr.).
    Í umsögn Mannréttindastofnunar Íslands kom fram ábending um hvort tilefni væri til að árétta í 3. mgr. 31. gr. frumvarpsins að húsreglur öryggisgæslustaða skuli byggja á málefnalegum sjónarmiðum og ekki ganga lengra en nauðsyn beri til. Í 3. mgr. 31. gr. frumvarpsins er m.a. tekið fram að skjólstæðingur megi hafa persónulega muni í sínu rými svo framarlega sem þeir séu í samræmi við húsreglur öryggisstaðar. Bendir stofnunin á að þótt vissulega geti verið eðlilegt að í gildi séu húsreglur sem miði að því að gæta að öryggi og velferð skjólstæðinga geti persónulegir munir skipt miklu fyrir suma einstaklinga sem vegna fötlunar sinnar treysta á tiltekna muni til að róa sig niður.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 11. maí 2026, kemur fram að ráðuneytið geri ekki athugasemdir við tillögu Mannréttindastofnunar Íslands.
    Meiri hlutinn tekur undir tillögur Mannréttindastofnunar Íslands og telur mikilvægt að húsreglur takmarki ekki um of þá persónulegu muni sem skjólstæðingur megi hafa í herbergi sínu eða íbúð. Leggur meiri hlutinn því til að á eftir 1. málsl. 3. mgr. 31. gr. komi nýr málsliður um að húsreglur skuli byggja á málefnalegum sjónarmiðum og ekki ganga lengra en nauðsyn krefur.

Greiðsla dagpeninga (31. gr. og 60. gr.).
    Við umfjöllun málsins velti félags- og húsnæðismálaráðuneyti því upp hvort tilefni væri til að skoða heimild til ráðstöfunarfjár til þeirra sem sæti öryggisvistun. Lagði ráðuneytið til að bæta við málsgrein sem tæki á þessu þar sem fram kæmi að Miðstöð um öryggisráðstafanir sé heimilt að greiða skjólstæðingi á öryggisgæslustað dagpeninga sem skuli miðast við að hann eigi fyrir brýnustu nauðsynjum til persónulegrar umhirðu.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið ráðuneytisins og telur rétt að bæta nýrri málsgrein við 31. gr. frumvarpsins um heimild Miðstöðvarinnar til greiðslu dagpeninga til skjólstæðinga öryggisgæslustaða.
    Við útfærslu ákvæðisins telur meiri hlutinn unnt að taka mið af orðalagi 27. gr. laga um fullnustu refsinga, nr. 15/2016. Í 27. gr. laganna er kveðið á um heimild til að greiða föngum dagpeninga sem ráðherra ákveður með gjaldskrá og segir að fjárhæðin skuli miðast við að fangar eigi fyrir brýnustu nauðsynjum til persónulegrar umhirðu. Telur meiri hlutinn rétt að sömu viðmið gildi fyrir skjólstæðinga öryggisgæslustaða.
    Þá telur meiri hlutinn rétt að gera fyrirvara í málsgreininni um að skjólstæðingar sem fái greidda dagpeninga eða ráðstöfunarfé frá Tryggingastofnun fái ekki greidda dagpeninga frá Miðstöð um öryggisráðstafanir. Enn fremur telur meiri hlutinn rétt að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um nánari framkvæmd skilyrða til greiðslu dagpeninga til skjólstæðinga öryggisgæslustaða og um fjárhæð þeirra og leggur því til að bæta slíkri heimild við 2. mgr. 60. gr. Þá telur meiri hlutinn nauðsynlegt að breyta fyrirsögn greinarinnar þannig að hún endurspegli viðbótarumfjöllunarefni greinarinnar um dagpeninga.

Hlutverk réttindagæslu (35. gr.).
    Í umsögn Mannréttindastofnunar Íslands komu fram athugasemdir um orðalag í 35. gr. frumvarpsins. Í ákvæðinu er fjallað um heimild til að veita aðstandanda upplýsingar um þær öryggisráðstafanir sem skjólstæðingur sætir samkvæmt dómsúrlausn. Þá er tekið fram að ganga skuli úr skugga um hver vilji skjólstæðings sé, eftir atvikum með aðstoð réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Að mati stofnunarinnar væri ákjósanlegra og í betra samræmi við hlutverk réttindagæslunnar og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að réttindagæslan hefði það hlutverk samkvæmt ákvæðinu, eftir atvikum, að styðja viðkomandi einstakling við að taka upplýsta ákvörðun.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 12. maí 2026, kemur fram að hugsunin með ákvæðinu hafi verið að réttindagæslan aðstoði skjólstæðing við að taka ákvörðunina en ráðuneytið tekur fram að e.t.v. megi orða þetta á annan hátt, þ.e. eins og Mannréttindastofnun Íslands leggi til.
    Meiri hlutinn telur rétt að gera breytingu á orðalagi ákvæðisins til samræmis við tillögu Mannréttindastofnunar Íslands.

Aðgangur að fjölmiðlum (1. mgr. 38. gr.).
    Í 1. mgr. 38. gr. frumvarpsins er skjólstæðingum tryggður réttur til aðgangs að fjölmiðlum. Hins vegar segir í ákvæðinu að takmarka megi slíkan rétt, m.a. ef það er talið raska ró eða öryggi á öryggisgæslustað. Í umsögn Mannréttindastofnunar Íslands kemur fram að óljóst sé hvað sé átt við með ró á öryggisgæslustað. Bendir stofnunin á að í athugasemdum með greininni í greinargerð frumvarpsins sé í dæmaskyni vísað til þess þegar aðgangur að fjölmiðlum hafi neikvæð áhrif á líðan eða hegðun skjólstæðings en stofnunin telur óljóst og matskennt hvað í því felist. Bendir stofnunin á að samkvæmt stjórnarskránni sé einungis heimilt að takmarka tjáningarfrelsi með lögum ef það er talið nauðsynlegt í þágu allsherjarreglu eða mannorðs annarra. Í því ljósi leggi stofnunin til að ákvæðið verði þrengt þannig að einungis megi takmarka rétt skjólstæðinga til aðgangs að fjölmiðlum ef það er talið nauðsynlegt til að tryggja öryggi viðkomandi einstaklings eða réttindi annarra á öryggisgæslustað.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið Mannréttindastofnunar Íslands og leggur til breytingu á orðalagi 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. frumvarpsins á þann veg að í stað orðanna „sé talið raska ró eða öryggi á öryggisgæslustað“ komi „ef það er nauðsynlegt til að tryggja öryggi skjólstæðings eða réttindi annarra á öryggisgæslustað“.

Kæruheimildir (61. gr.).
    Í umsögn Mannréttindastofnunar Íslands veltir stofnunin því upp hvort rétt sé að fleiri ákvarðanir en þær sem taldar eru upp í 1. mgr. 61. gr. frumvarpsins séu kæranlegar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Telur stofnunin að sú tæmandi talning sem finna megi þar leiði til þess að ýmsar íþyngjandi ákvarðanir sæti ekki kæru. Tekur stofnunin þó fram að hún hafi skilning á því að til að tryggja stöðugleika og skilvirkni sé ekki æskilegt að hægt sé að kæra allar ákvarðanir til æðra stjórnvalds. Nefnir stofnunin t.d. hvort rétt sé að ákvörðun um að banna heimsóknir frá tilteknum aðilum, sbr. 1. mgr. 33. gr., ákvörðun um synjun á veitingu leyfis, sbr. 1. mgr. 34. gr., og ákvörðun um vöktun á símtölum eða netnotkun einstaklings, sbr. 2. mgr. 37. gr., séu kæranlegar til úrskurðarnefndar velferðarmála.
    Í minnisblaði frá félags- og húsnæðismálaráðuneyti, dags. 11. maí 2026, bendir ráðuneytið á að samkvæmt frumvarpinu fari ráðuneytið með margvíslegar stjórnunar- og eftirlitsheimildir gagnvart starfseminni auk þess sem kveðið sé nánar á um ytra eftirlit með réttindum skjólstæðinga og gæðum þjónustunnar. Að mati ráðuneytisins sé réttarstaða skjólstæðinga vel tryggð. Bendir ráðuneytið á að skoða þurfi hvort og þá hvaða áhrif slík breyting gæti haft á starfsemi úrskurðarnefndar velferðarmála. Bendir ráðuneytið á að ef talið er nauðsynlegt að rýmka kæruheimildir geti ákvæðið orðast í samræmi við 95. gr. laga um fullnustu refsinga þannig að ákvarðanir samkvæmt lögunum séu kæranlegar til úrskurðarnefndar velferðarmála nema annað sé tekið fram.
    Að mati meiri hlutans er rétt að fleiri ákvarðanir en þær sem taldar eru upp í 1. mgr. 61. gr. séu kæranlegar til úrskurðarnefndar velferðarmála. Tekur meiri hlutinn undir tillögur Mannréttindastofnunar Íslands um að bæta við kæruheimild vegna tiltekinna ákvarðana en ekki vegna allra ákvarðana sem teknar eru á grundvelli frumvarpsins. Telur meiri hlutinn því rétt að bæta við kæruheimild vegna ákvarðana um að banna heimsóknir frá tilteknum einstaklingi skv. 1. mgr. 33. gr., vegna ákvarðana um synjun á veitingu leyfis frá öryggisgæslustað skv. 1. mgr. 34. gr. og vegna ákvarðana um eftirlit með símtölum eða netnotkun skv. 2. mgr. 37. gr. og leggur til breytingu þess efnis.

Eftirlit réttindagæslu fyrir fatlað fólk (2. mgr. 62. gr.).
    Í 2. mgr. 62. gr. frumvarpsins segir að réttindagæsla fyrir fatlað fólk fylgist með högum fatlaðs fólks sem sætir öryggisráðstöfunum og veiti því stuðning við réttindagæslu hvers konar. Í umsögn Mannréttindastofnunar Íslands er lagt til að orðalagi 2. mgr. 62. gr. verði breytt til samræmis við hlutverk réttindagæslu samkvæmt núgildandi lögum en að orðalag ákvæðisins samkvæmt frumvarpinu byggist á eldri lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Leggur stofnunin til að 2. mgr. 62. gr. frumvarpsins kveði á um að réttindagæsla fyrir fatlað fólk skuli hafa eftirlit með mannréttindum fatlaðs fólks sem sætir öryggisráðstöfunum og veita því, eftir þörfum, viðeigandi stuðning svo að það geti notið réttinda sinna.
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 11. maí 2026, kemur fram að ráðuneytið sé sammála tillögu stofnunarinnar.
    Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið Mannréttindastofnunar og leggur til breytingu á 2. mgr. 62. gr. frumvarpsins til samræmis við tillögu stofnunarinnar.

Gildistaka og lagaskil (64. og 2. mgr. 65. gr.).
    Í minnisblaði félags- og húsnæðismálaráðuneytis, dags. 11. maí 2026, bendir ráðuneytið á að endurskoða þurfi gildistökuákvæði frumvarpsins þar sem segir að lögin taki gildi 1. september 2026. Tekur ráðuneytið fram að ljóst þyki að sú dagsetning sé ekki raunhæf og leggur til að lögin taki gildi 1. apríl 2027.
    Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu og telur einsýnt að undirbúningur að stofnun Miðstöðvar um öryggisráðstafanir, svo sem með því að skipa forstjóra og undirbúa gildistöku laganna, ráðning starfsfólks stofnunarinnar og aðrar nauðsynlegar ráðstafanir fyrir gildistöku laganna muni taka lengri tíma en þá þrjá mánuði sem fram undan eru til 1. september nk. og leggur því til að seinka gildistöku frumvarpsins til 1. apríl 2027.
    Þá telur meiri hlutinn rétt að gera afleidda breytingu á 2. mgr. 65. gr. um lagaskil en þar kemur fram að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála geti beitt eftirlitsheimildum skv. III. kafla laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, nr. 88/2021, vegna þjónustu sem skjólstæðingar hafa fengið fram til 1. september 2026, enda þótt eftirlitsmál hefjist eftir gildistöku laga þessara. Rétt þykir að stofnunin geti beitt eftirlitsheimildum sínum vegna þjónustu sem skjólstæðingar fá fram til 1. apríl 2027 í ljósi seinkunar á gildistöku frumvarpsins.

Aðrar minni háttar breytingar.
    Þá leggur meiri hlutinn til lagfæringu á tilvísun til 23. gr. laga um réttindavernd fatlaðs fólks í 3. tölul. 4. gr., 5. gr., 7. mgr. 6. gr., 6. mgr. 7. gr. og 4. mgr. 14. gr., en rétt tilvísun er til 24. gr. þeirra laga.
    Þá leggur meiri hlutinn einnig til lagfæringu á tilvísun til 21. gr. laga um réttindavernd fatlaðs fólks í 4. mgr. 10. gr. frumvarpsins en rétt tilvísun er til 22. gr. laganna.
    Að lokum leggur meiri hlutinn til minni háttar málfars- og orðalagsbreytingar sem ekki er ætlað að hafa áhrif á efni frumvarpsins.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

    Sigríður Á. Andersen ritar undir álitið með fyrirvara um fjármögnun og kostnað frumvarpsins.

Alþingi, 1. júní 2026.

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,
form., frsm.
Grétar Mar Jónsson. Kristján Þórður Snæbjarnarson.
Ragna Sigurðardóttir. Sandra Sigurðardóttir. Sigríður Á. Andersen.