Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1295 — 305. mál.
Lagfæring.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.
Frá meiri hluta velferðarnefndar (KÁB, GMJ, KÞ S, RagnaS, SandrS, SÁA).
1. Við 4. gr.
a. Í stað tilvísunarinnar „23. gr.“ í 3. tölul. komi: 24. gr.
b. Orðið „við“ í 6. tölul. falli brott.
c. Orðin „og viðeigandi“ í 11. tölul. falli brott.
2. Í stað tilvísunarinnar „23. gr.“ í 5. gr., 7. mgr. 6. gr., 6. mgr. 7. gr. og 4. mgr. 14. gr. komi: 24. gr.
3. Orðin „sem starfa“ í 3. mgr. 6. gr. falli brott.
4. Í stað orðsins „forstöðumenn“ í 1. málsl. og „Forstöðumenn“ í 2. málsl. 1. mgr. 8. gr. komi: yfirmenn; og: Yfirmenn.
5. Við 10. gr.
a. Á undan orðinu „valdi“ í 1. mgr. komi: líkamlegu.
b. Á undan orðinu „valdbeitingu“ í 1. málsl. og „Valdbeitingu“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: líkamlegri; og: Líkamlegri.
c. Á undan orðinu „valdbeitingu“ í 3. mgr. komi: líkamlega.
d. Á undan orðinu „valdbeitingu“ í 1. málsl. 4. mgr. komi: líkamlega.
e. Á undan orðinu „valdbeitingu“ í 2. málsl. 4. mgr. komi: líkamlegri.
f. Í stað tilvísunarinnar „21. gr.“ í 4. mgr. komi: 22. gr.
6. Orðin „nema ljóst sé að slíkt beri ekki árangur“ í 1. mgr. 15. gr. falli brott.
7. Við 17. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Um málsmeðferð samkvæmt grein þessari fer skv. 2. gr. og XXVII. kafla laga um meðferð sakamála. Úrskurðir samkvæmt grein þessari sæta kæru til Landsréttar, sbr. XXX. kafla laga um meðferð sakamála.
8. Við 21. gr.
a. Á eftir orðinu „öryggisgæslustað“ í 2. mgr. komi: á vegum miðstöðvarinnar eða samningsaðila skv. 14. gr.
b. Á eftir 1. málsl. 3. mgr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þarfnist skjólstæðingur félagsþjónustu skal fulltrúi lögheimilis sveitarfélags hans sitja í teyminu. Heimilt er að afla upplýsinga frá öðrum sveitarfélögum eða þjónustusvæðum ef þjónustuþarfir viðkomandi skjólstæðings eru betur þekktar þar.
9. Við 22. gr.
a. Á eftir orðunum „nema því verði ekki við komið“ í 1. mgr. komi: vegna tímabundins ástands hans.
b. Fyrirsögn greinarinnar orðist svo: Ákvörðun um öryggisgæslustað á vegum miðstöðvarinnar eða samningsaðila og vægari öryggisráðstafanir.
10. 5. málsl. 3. mgr. 24. gr. orðist svo: Verði skjólstæðingur ekki við boðun á fund getur miðstöðin falið lögreglu að flytja hann á fundinn.
11. Við 25. gr.
a. Við 4. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þar til bær starfsmaður miðstöðvarinnar sem hefur þekkingu á fötlun skal vera í fylgd lögreglu vegna hagsmuna skjólstæðings sé hún kölluð til.
b. 3. málsl. 5. mgr. orðist svo: Verði skjólstæðingur ekki við boðun á fund getur miðstöðin falið lögreglu að flytja hann á fundinn.
c. Við 5. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þar til bær starfsmaður miðstöðvarinnar sem hefur þekkingu á fötlun skal vera í fylgd lögreglu vegna hagsmuna skjólstæðings sé hún kölluð til.
12. Á eftir tilvísuninni „V. kafla“ í 2. málsl. 2. mgr. 28. gr. komi: þeirra laga.
13. Við 31. gr.
a. Á eftir 1. málsl. 3. mgr. komi nýr málsliður, svohljóðandi: Slíkar húsreglur skulu byggjast á málefnalegum sjónarmiðum og ganga ekki lengra en nauðsyn krefur.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Miðstöðinni er heimilt að greiða skjólstæðingi á öryggisgæslustað dagpeninga sem skulu miðast við að hann eigi fyrir brýnustu nauðsynjum til persónulegrar umhirðu. Fái skjólstæðingur dagpeninga eða ráðstöfunarfé frá Tryggingastofnun fær hann ekki greidda dagpeninga frá miðstöðinni.
c. Fyrirsögn greinarinnar orðist svo: Vistarverur, persónulegir munir og dagpeningar.
14. 2. málsl. 35. gr. orðist svo: Ganga skal úr skugga um hver vilji skjólstæðings sé og skal réttindagæsla fyrir fatlað fólk eftir atvikum styðja skjólstæðing við að taka upplýsta ákvörðun um það hverjum veita megi upplýsingar og um hvað.
15. Í stað orðanna „sé talið raska ró eða öryggi á öryggisgæslustað“ í 1. mgr. 38. gr. komi: ef það er talið nauðsynlegt til að tryggja öryggi skjólstæðings eða réttindi annarra á öryggisgæslustað.
16. Við 2. mgr. 60. gr. bætist nýr stafliður, e-liður, svohljóðandi: skilyrði þess að greiða skjólstæðingum á öryggisgæslustað dagpeninga og um fjárhæð þeirra, sbr. 31. gr.
17. Við 1. mgr. 61. gr. bætist þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
a. Ákvörðun um að banna heimsóknir frá tilteknum aðilum, sbr. 1. mgr. 33. gr.
b. Ákvörðun um synjun á veitingu leyfis, sbr. 1. mgr. 34. gr.
c. Ákvörðun um vöktun á símtölum eða netnotkun einstaklings, sbr. 2. mgr. 37. gr.
18. 2. mgr. 62. gr. orðist svo:
Réttindagæsla fyrir fatlað fólk skal hafa eftirlit með mannréttindum fatlaðs fólks sem sætir öryggisráðstöfunum og veita því viðeigandi stuðning eftir þörfum svo að það geti notið réttinda sinna.
19. Í stað dagsetningarinnar „1. september 2026“ í 64. gr. og 2. mgr. 65. gr. komi: 1. apríl 2027.