Ferill 692. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1299  —  692. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um tilvísanir og greiðslur vegna sálfræðiþjónustu samkvæmt rammasamningum Sjúkratrygginga Íslands.

Frá Ingibjörgu Isaksen.


     1.      Hve margar tilvísanir bárust samkvæmt rammasamningum Sjúkratrygginga Íslands um sálfræðiþjónustu á hverju ári á árunum 2021–2025, sundurliðað eftir eftirtöldum þjónustuflokkum:
                  a.      þjónustu við börn með tilvísun frá greiningar- eða tilvísunarteymi,
                  b.      þjónustu við börn með tilvísun frá heilsugæslu,
                  c.      þjónustu við fullorðna með tilvísun frá heilsugæslu?
     2.      Hverjar voru fjárheimildir Sjúkratrygginga Íslands til greiðslu fyrir sálfræðiþjónustu samkvæmt rammasamningum við sálfræðinga á hverju ári á árunum 2021–2025? Óskað er eftir sundurliðun eftir fyrrnefndum þjónustuflokkum og árum.
     3.      Hve mikið greiddu Sjúkratryggingar Íslands út til sálfræðinga samkvæmt rammasamningum um sálfræðiþjónustu á hverju ári á árunum 2021–2025? Óskað er eftir sundurliðun eftir fyrrnefndum þjónustuflokkum og árum.
     4.      Hve margar framhaldstilvísanir voru gefnar út á sömu kennitölu á hverju ári á árunum 2021–2025 vegna þjónustu samkvæmt rammasamningum um sálfræðiþjónustu? Óskað er eftir sundurliðun eftir fyrrnefndum þjónustuflokkum og árum.
     5.      Hve margar framhaldstilvísanir voru gefnar út á sömu kennitölu á hverju ári á árunum 2021–2025 án þess að Sjúkratryggingar Íslands hefðu áður greitt fyrir greinargerð frá meðhöndlandi sálfræðingi, sbr. ákvæði rammasamninga um framhaldstilvísanir? Óskað er eftir sundurliðun eftir fyrrnefndum þjónustuflokkum og árum.


Skriflegt svar óskast.