Ferill 596. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1304 — 596. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004 (jöfnunargjald).
Frá atvinnuveganefnd.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, Veitum, Rarik og Bændasamtökum Íslands.
Nefndinni bárust átta umsagnir auk minnisblaðs frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 3. mgr. 3. gr. a laga um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004. Lagt er til að fjárhæð jöfnunargjalds verði þrepaskipt, þ.e. 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun sem er undir 1.000 megavattstundum á ári og 0,52 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun sem er 1.000 megavattstundir á ári eða meiri. Auk þess er lagt til að jöfnunargjaldið hækki úr 0,17 kr. í 0,34 kr. á hverja kílóvattstund fyrir skerðanlegan flutning raforku, sbr. b-lið 1. gr. frumvarpsins.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með frumvarpinu eru að mati nefndarinnar lagðar fram tímabærar breytingar á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004. Þær umsagnir sem bárust um málið voru almennt jákvæðar og er það mat nefndarinnar að frumvarpið sé til bóta. Fyrir nefndinni kom fram að kostnaður vegna dreifingar raforku hafi á síðustu árum aukist í dreifbýli umfram kostnað í þéttbýli og að þörf sé fyrir aukið framlag. Í greinargerð með frumvarpinu kemur m.a. fram að samkvæmt útreikningum Umhverfis- og orkustofnunar þurfi um 5.100 millj. kr. til að ná fullri jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku fyrir árið 2026, en framlagið á fjárlögum fyrir árið sé 3.129 millj. kr., sem nægir aðeins fyrir 61% jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku í dreifbýli árið 2026. Gert er ráð fyrir að með þeirri hækkun jöfnunargjalds sem lögð er til með frumvarpinu verði hægt að ná 90% jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku frá og með gildistöku.
Fyrir nefndinni var fjallað um þá uppbyggingu sem hefur undanfarin ár orðið á raforkuinnviðum dreifikerfisins, þar á meðal að loftlínur hafi undanfarin ár verið færðar í jörðu í nokkrum mæli auk þess sem unnið hafi verið að þrífösun heimtauga. Sú uppbygging er mikilvæg fyrir orkuskipti og til að auka raforkuöryggi en hefur reynst kostnaðarsöm og aukið kostnað við dreifingu raforku líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu. Nefndin telur mikilvægt að kannaðir verði möguleikar þess að dreifa gjaldtöku yfir lengra tímabil fjárfestinga í viðhaldi og uppbyggingu dreifikerfisins og gjaldtöku þannig stillt í hóf eins og kostur er. Með því móti verði unnið að því að koma í veg fyrir að frekari kostnaður lendi á notendum. Íbúar í dreifbýli búa eðli máls samkvæmt við þær aðstæður að lengra er á milli tengipunkta og kostnaður á notanda er almennt meiri en í þéttbýli. Það er því byggðamál að tryggt verði að rafmagnskostnaður lendi ekki af meiri þunga á notendum í dreifbýli en þéttbýli og undirstrikar nefndin mikilvægi þess að þær breytingar sem lagðar eru til með frumvarpinu verði að lögum.
Við umfjöllun um málið í nefndinni komu fram ábendingar um að stórir notendur hafi í einhverjum tilvikum valið að skipta beint við flutningsfyrirtækið í stað þess að kaupa raforku í gegnum dreifikerfið. Í því samhengi var sérstaklega vísað til 7. mgr. 12. gr. a raforkulaga, nr. 65/2003, þar sem kemur fram að flutningsfyrirtækinu sé heimilt að afhenda raforku til stórnotenda á 66 kV eða lægri spennu enda standi sérstök gjaldtaka undir viðbótarkostnaði. Stórir notendur geta þannig keypt raforku beint af flutningsfyrirtækinu í stað dreifiveitna og við það leggst aukinn kostnaður á þá notendur sem eftir eru í kerfinu. Telur nefndin mikilvægt að aukinn fyrirsjáanleiki sé til staðar bæði hvað varðar gjaldtöku og kostnað notenda í kerfinu og beinir því til ráðuneytisins að þessar ábendingar verði skoðaðar sérstaklega við frekari breytingar á raforkulögum og lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku.
Umsögn Bændasamtaka Íslands.
Í umsögn Bændasamtaka Íslands er lagt til að ylrækt í þéttbýli verði undanþegin jöfnunargjaldi og m.a. bent á að ylrækt sé ein af fáum landbúnaðargreinum sem stundaðar eru í þéttbýli og að greinin noti óhjákvæmilega mikið rafmagn. Hækkun jöfnunargjalds fyrir þá sem ná ekki 1.000 megavattstundum á ári yrði töluverður kostnaðarauki fyrir þessa aðila og myndi sú tillaga sem sett er fram í umsögninni stuðla að jafnari starfsskilyrðum milli dreifbýlis og þéttbýlis í garðyrkju, koma í veg fyrir afleiddar verðhækkanir og stuðla að fæðuöryggi.
Í minnisblaði frá ráðuneytinu er á það bent að jöfnunargjaldið leggist jafnt á ylrækt í þéttbýli og dreifbýli en tekjur af jöfnunargjaldinu og framlag ríkisins sé hins vegar nýtt til að jafna kostnað við dreifingu raforku milli þéttbýlis og dreifbýlis, þar sem kostnaðurinn er mun hærri í dreifbýli. Tekur nefndin undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaðinu og að ekki sé ástæða til að leggja til breytingu á frumvarpinu hvað þetta varðar. Nefndin telur þó ástæðu til að beina því til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og atvinnuvegaráðuneytis að kanna frekari möguleika þess að jafna gjöld og orkukostnað milli ylræktar í þéttbýli og dreifbýli. Mikilvægt er að rýnt verði í stöðu aðila í ylrækt og sérstaklega samkeppnisstöðu ylræktar í þéttbýli og dreifbýli.
Breytingartillögur.
Notkun miðuð við mælistað.
Í umsögn Veitna koma fram ábendingar um að í frumvarpinu sé ekki nægjanlega skýrt kveðið á um hvort miðað sé við notkun samkvæmt einstökum mæli eða samanlagða notkun hvers notanda, til dæmis eftir kennitölu. Nefndin tekur undir þau sjónarmið sem koma fram í umsögn Veitna hvað þetta varðar og að afmörkun á því hvort miðað sé við mælistað eða samanlagða notkun skipti grundvallarmáli. Leggur nefndin til breytingu á 1. gr. frumvarpsins hvað þetta varðar og er hún í samræmi við þær tillögur sem fram koma í minnisblaði sem nefndinni barst frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Undanþága vegna hitunar íbúðarhúsnæðis.
Í minnisblaði frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti er lagt til að kveðið verði á um undanþágu frá greiðslu jöfnunargjalds fyrir raforkunotkun vegna hitunar íbúðarhúsnæðis sem uppfyllir skilyrði niðurgreiðslu skv. 4. gr. laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002.
Ráðuneytið bendir á í minnisblaðinu að núverandi fyrirkomulag feli í sér ósamræmi og mismunun á milli notenda sem hita hús sín með rafmagni og þeirra sem hafa aðgang að hitaveitu en nú þegar sé undanþága frá greiðslu jöfnunargjaldsins fyrir rafkyntar hitaveitur og því væri eðlilegt að stigið yrði skref til aukinnar jöfnunar með því að undanskilja þau íbúðarhúsnæði (lögheimili) sem kynda heimili sín með raforku. Rétt er að taka fram að þetta á eingöngu við þann hluta raforkunotkunar sem snýr að kyndingu íbúðarhúsnæðis. Sé rafhitun íbúðar mæld sérstaklega skal sú mæling gilda, annars skal miða við það hlutfall sem skilgreint er í 7. gr. reglugerðar um framkvæmd laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, en þar segir að 85% heildarraforkunotkunar íbúðarhúsnæðis sem hitað er með raforku skuli niðurgreidd. Þessi breyting snertir því köld svæði á landinu sem búa við mikið hærri kyndikostnað en þau lögheimili sem tengjast hitaveitu. Í upplýsingum frá ráðuneytinu er gert ráð fyrir því að þessi breyting lækki tekjur vegna jöfnunargjaldsins um 110 millj. kr. fyrir síðari hluta þessa árs, eða um 220 millj. kr. á ári. Það yrði til þess að jöfnun færi úr rúmlega 90% í um 88% á seinni hluta þessa árs.
Leggur nefndin til breytingar til samræmis við tillögur ráðuneytisins.
Þrepaskipting vegna jöfnunargjalds fyrir dreifingu á raforku.
Í umsögnum sem bárust nefndinni komu fram ábendingar um að skýrleiki frumvarpsins um þrepaskiptingu jöfnunargjaldsins væri ekki nægur. Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu er gert ráð fyrir því að notkun sem er undir 1.000 megavattstundum á ári beri hærra gjald, þ.e. 1,01 kr. á hverja kílóvattstund, en notkun sem er umfram þau mörk, þ.e. 1.000 kílóvattstundir á ári eða meiri, beri lægra gjald, þ.e. 0,52 kr. á hverja kílóvattstund. Er þannig gert ráð fyrir því að notandi sem notar 1.500 megavattstundir á ári greiði hærra gjald fyrir fyrstu 999 megavattstundirnar en lægra gjald eftir það.
Í því skyni að auka skýrleika ákvæðisins leggur nefndin til breytingu á 1. gr. frumvarpsins svo skýrt sé að jöfnunargjald verði 1,01 kr. á kílóvattstund upp að 1.000 megavattstundum á ári en notendur sem nýta raforku sem nemur 1.000 megavattstundum eða meiru greiði lægra gjald umfram þessi skilgreindu mörk.
Þrepaskipting jöfnunargjalds dreifingar vegna skerðanlegrar raforku.
Með b-lið 1. gr. frumvarpsins er lagt til að fjárhæð jöfnunargjalds fyrir skerðanlega raforku hækki úr 0,17 kr. í 0,34 kr. á hverja kílóvattstund.
Í minnisblaði frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, dags. 28. maí, kemur fram að tekjur af jöfnunargjaldi vegna skerðanlegs flutnings séu áætlaðar um 5 millj. kr. fyrir síðari hluta þessa árs. Tekjur af jöfnunargjaldi muni hækka upp í rúmlega 10 millj. kr. fyrir sama tímabil verði frumvarpið óbreytt að lögum.
Nefndin leggur til að tekin verði upp þrepaskipting á jöfnunargjaldi dreifingar á skerðanlegri raforku. Er lagt til að jöfnunargjald vegna dreifingar skerðanlegrar raforku verði 0,34 kr. á kílóvattstund upp að 1.000 megavattstundum á ári en 0,17 kr. á kílóvattstund vegna raforkunotkunar sem nemur 1.000 megavattstundum á ári eða meiru. Samkvæmt upplýsingum í minnisblaði frá ráðuneytinu, dags. 28. maí, munu tekjur af jöfnunargjaldi lækka um 1,8 millj. kr. fyrir seinni hluta ársins og verða því um 8,2 millj. kr. ef þrepaskipting fyrir skerðanlegan flutning verður tekin upp.
Dreifitöp.
Í minnisblaði frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, dags. 29. maí, eru lagðar til breytingar á frumvarpinu er varða dreifitöp. Þar kemur fram að dreifiveitur greiði jöfnunargjald af dreifitöpum og ekki sé ætlunin að breyta því með frumvarpi þessu. Mismunur milli móttekinna og afhentra raforkueininga dreifiveitu teljist til dreifitapa og taki jöfnunargjald dreifiveitna einnig til slíkra dreifitapa þar sem gjaldskylda miðist við móttekna raforku en innheimta gagnvart almennum notendum við afhenta raforku. Leggur nefndin til breytingar á frumvarpinu í samræmi við framangreindar tillögur ráðuneytisins.
Ákvæði til bráðabirgða.
Í 2. gr. frumvarpsins er lagt til að lögin öðlist gildi 1. júlí 2026. Þá er í 1. gr. miðað við þrepaskiptingu gjalds miðað við notkun á ársgrundvelli, þ.e. frá 1. janúar til 31. desember. Nefndin leggur til að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, sem kveði á um að viðmið um notkun skuli vera 500 megavattstundir frá 1. júlí til 31. desember, í stað 1.000 megavattstunda eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Lagt er til að hið sama eigi við um fjárhæð jöfnunargjalds vegna skerðanlegs flutnings.
Að framangreindu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. a laganna:
a. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Dreifiveitur greiða jöfnunargjald í sama hlutfalli og afhent raforka til almennra notenda í eftirfarandi flokkum: Forgangsorku, forgangsorku umfram 1.000 megavattstundir, skerðanlegri orku, skerðanlegri orku umfram 1.000 megavattstundir. Almennir notendur dreifiveitna greiða jöfnunargjald samkvæmt grein þessari af raforku sem er afhent frá dreifiveitu. Dreifiveitur skulu annast innheimtu jöfnunargjalds frá almennum notendum.
b. 3. mgr. orðast svo:
Fjárhæð jöfnunargjalds er 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað upp að 1.000 megavattstundum á almanaksári og 0,52 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað sem er 1.000 megavattstundir á almanaksári eða meiri. Fjárhæð jöfnunargjalds vegna skerðanlegs flutnings raforku er 0,34 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað upp að 1.000 megavattstundum á almanaksári og 0,17 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað sem er 1.000 megavattstundir á almanaksári eða meiri. Raforkunotkun vegna raforku til kyntra hitaveitna skal undanþegin greiðslu jöfnunargjalds. Raforkunotkun vegna hitunar íbúðarhúsnæðis sem uppfyllir skilyrði niðurgreiðslna samkvæmt 4. gr. laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002, skal einnig undanþegin greiðslu jöfnunargjalds. Við ákvörðun jöfnunargjalds vegna raforkutapa í dreifikerfi skal fjárhæð gjalds taka mið af hlutfallslegri skiptingu afhentrar raforku milli framangreindra flokka á viðkomandi veitusvæði. Við ákvörðun jöfnunargjalds samkvæmt þessari málsgrein skulu dreifitöp, sem ráðast af mismun móttekinna og afhentra raforkueininga samkvæmt uppgjöri skv. 5. mgr., bera jöfnunargjald samkvæmt sömu þrepaskiptingu og gildir um forgangsorku.
2. Á eftir 1. gr. komi ný grein, svohljóðandi:
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 3. gr. a skal fjárhæð jöfnunargjalds frá 1. júlí til 31. desember 2026 vera 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað upp að 500 megavattstundum á því tímabili og 0,52 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað sem er 500 megavattstundir eða meiri á því tímabili.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 3. gr. a skal fjárhæð jöfnunargjalds vegna skerðanlegs flutnings raforku frá 1. júlí til 31. desember 2026 vera 0,34 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun á mælistað upp að 500 megavattstundum á því tímabili og 0,17 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun sem er 500 megavattstundir eða meiri á því tímabili.
Sigurjón Þórðarson og Guðrún Hafsteinsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en rita undir álitið skv. heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 2. júní 2026.
| Lilja Rafney Magnúsdóttir, form. |
Kristján Þórður Snæbjarnarson, frsm. | Eiríkur Björn Björgvinsson. |
| Eydís Ásbjörnsdóttir. | Ingvar Þóroddsson. | Sigurjón Þórðarson. |
| Jón Gunnarsson. | Bergþór Ólason. | Guðrún Hafsteinsdóttir. |