Ferill 698. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.

Þingskjal 1312  —  698. mál.
Flutningsmenn.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um mannanöfn, nr. 45/1996 (nafnbreyting).

Flm.: Sigurður Helgi Pálmason, Andrea Rut Pálsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Bergþór Ólason, Grétar Mar Jónsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jens Garðar Helgason, Jón Gnarr, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Sigurjón Þórðarson, Snorri Másson, Rúnar Sigurjónsson, Þórarinn Ingi Pétursson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir.


1. gr.

    Á eftir 17. gr. laganna kemur ný grein, 17. gr. a, svohljóðandi:
    Hafi maður hlotið óskilorðsbundinn refsidóm fyrir alvarlegt brot gegn ákvæðum almennra hegningarlaga og verið gert að sæta fangelsi í 3 ár eða lengur er heimilt að synja beiðni hans um nafnbreytingu samkvæmt lögum þessum, enda hafi skráðar upplýsingar um dóminn ekki verið afmáðar úr sakaskrá hans og réttindi annarra mæli gegn nafnbreytingu eða ríkir almannahagsmunir krefjist þess.
    Til að staðreyna hvort 1. mgr. eigi við er Þjóðskrá Íslands heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá, enda liggi fyrir samþykki umsækjanda.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um mannanöfn, nr. 45/1996, sem miða að því að setja tímabundnar skorður við heimild til nafnbreytingar í afmörkuðum tilvikum. Breytingunum er einkum ætlað að stuðla að auknu öryggi almennings með því að tryggja að við afgreiðslu beiðna um nafnbreytingu verði unnt að líta til réttinda annarra eða ríkra almannahagsmuna þegar slík sjónarmið mæla gegn slíkri breytingu.
    Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 45/1996 er kveðið á um að Þjóðskrá Íslands sé heimilt að leyfa manni breytingu á eiginnafni og/eða millinafni ef telja verður að ástæður mæli með því. Sambærilegt ákvæði er að finna í 16. gr. laganna sem segir að Þjóðskrá Íslands sé heimilt að leyfa manni eldri en 18 ára að taka upp nýtt kenninafn ef telja verður að gildar ástæður mæli með því. Núgildandi lög um mannanöfn gera þannig ráð fyrir að einstaklingi sé almennt heimilt að breyta um nafn, að því tilskildu að gildar ástæður mæli með því. Við mat á því hvort slíkar ástæður séu fyrir hendi hefur í framkvæmd einkum verið litið til hagsmuna umsækjanda. Þegar réttindi annarra eða ríkir samfélagslegir hagsmunir kunna að mæla gegn nafnbreytingu skortir stjórnvöld hins vegar skýra lagastoð til að taka ákvörðun á þeim grundvelli. Gildandi lagaumhverfi er þannig til þess fallið að gera einstaklingi með alvarlegan brotaferil að baki kleift að rjúfa tengsl við fyrra auðkenni og koma fram undir nýju nafni sem tengist síður afbrotum hans. Af þessu kann að leiða aukna hættu á endurteknum brotum, enda má ætla að nýtt auðkenni geti auðveldað viðkomandi að komast í tengsl við aðra á ný, einkum einstaklinga sem standa höllum fæti eða eru í viðkvæmri stöðu. Með þessu móti getur einstaklingur sem hefur verið dæmdur fyrir alvarlegt brot gegn almennum hegningarlögum jafnframt komist hjá samfélagslegum afleiðingum háttsemi sinnar að einhverju marki þó að upplýsingar um brotið hafi ekki verið afmáðar úr sakaskrá hans.
    Frumvarpi þessu er ætlað að bæta úr framangreindum annmörkum. Markmið þess er að stuðla að auknu öryggi almennings, vernda réttindi annarra og efla traust í félagslegum samskiptum. Frumvarpinu er jafnframt ætlað að draga úr hættu á misnotkun heimildar til nafnbreytingar og bregðast við vaxandi áhyggjum almennings af slíkri hættu.
    Til að ná ofangreindum markmiðum er lagt til að við lög nr. 45/1996 verði bætt nýju ákvæði, 17. gr. a, sem kveður á um að hafi maður hlotið óskilorðsbundinn refsidóm fyrir alvarlegt brot gegn ákvæðum almennra hegningarlaga og verið gert að sæta fangelsi í þrjú ár eða lengur er heimilt að synja beiðni hans um nafnbreytingu samkvæmt lögunum, enda hafi skráðar upplýsingar um dóminn ekki verið afmáðar úr sakaskrá hans og réttindi annarra mæli gegn því eða ríkir almannahagsmunir krefjist þess. Svo unnt sé að taka afstöðu til þess hvort ákvæðið eigi við er jafnframt lagt til að Þjóðskrá Íslands verði heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá við meðferð umsókna um nafnbreytingu að undangengnu samþykki umsækjanda.

Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Við samningu frumvarpsins var sérstaklega skoðað hvort efni þess samræmdist ákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins, þar á meðal ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.
    Frumvarpið felur í sér að heimilt verður að synja beiðni um nafnbreytingu í þeim tilvikum þegar umsækjandi á að baki dóm fyrir alvarlega refsiverða háttsemi. Slík takmörkun kann að snerta réttindi sem njóta verndar skv. 71. gr. stjórnarskrárinnar um friðhelgi einkalífs og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
    Samkvæmt 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar skulu allir njóta friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. má með sérstakri lagaheimild takmarka á annan hátt friðhelgi einkalífs, heimilis eða fjölskyldu ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra, sbr. 3. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar. Við skýringu ákvæðisins hefur meðal annars verið litið til 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Í 1. mgr. þeirrar greinar er kveðið á um að sérhver maður eigi rétt til friðhelgi einkalífs síns, fjölskyldu, heimilis og bréfaskipta. Þá segir í 2. mgr. að opinber stjórnvöld skuli eigi ganga á rétt þennan nema samkvæmt því sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis, almannaheilla eða efnalegrar farsældar þjóðarinnar, til þess að firra glundroða eða glæpum, til verndar heilsu manna eða siðgæði eða réttindum og frelsi annarra.
    Eins og áður hefur komið fram er markmið frumvarpsins fyrst og fremst að stuðla að auknu öryggi almennings, vernda réttindi annarra og efla traust í félagslegum samskiptum. Um er að ræða lögmæt markmið sem varða mikilvæga almannahagsmuni og vernd þeirra sem kunna að verða fyrir áhrifum af nafnbreytingu við þær aðstæður sem frumvarpið tekur til.
    Í 1. gr. frumvarpsins er með skýrum hætti afmarkað hvenær synjun á grundvelli sakaferils umsækjanda getur komið til álita. Samkvæmt ákvæðinu þarf umsækjandi að hafa hlotið refsidóm fyrir alvarlegt brot, upplýsingar um dóminn að vera enn skráðar í sakaskrá hans og réttindi annarra eða ríkir almannahagsmunir að mæla gegn því að nafnbreyting verði heimiluð. Ákvæðið tekur þannig aðeins til afmarkaðra tilvika og mælir fyrir um þau skilyrði sem þurfa að vera uppfyllt svo að synjun á þessum grundvelli sé heimil. Sú takmörkun sem frumvarpið mælir fyrir um hvílir því á skýrri og viðhlítandi lagaheimild.
    Til að gæta meðalhófs er lagt til að frumvarpið feli í sér heimild en ekki fortakslausa skyldu stjórnvalda til að synja beiðni um nafnbreytingu í þeim tilvikum sem það tekur til. Frumvarpið á þar að auki aðeins við frá dómsuppsögu þar til upplýsingar um viðkomandi dóm hafa verið afmáðar úr sakaskrá umsækjanda. Að þeim tíma liðnum fer um beiðni um nafnbreytingu samkvæmt almennum reglum laga um mannanöfn og útilokar frumvarpið því ekki að umsækjandi geti síðar breytt um nafn að uppfylltum almennum skilyrðum laganna. Með þessu er leitast við að tryggja að ekki sé gengið lengra en nauðsynlegt er til að ná markmiðum frumvarpsins.
    Frumvarpið hefur einnig verið skoðað með hliðsjón af jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Í því sambandi hefur einkum þýðingu að sú takmörkun sem frumvarpið mælir fyrir um er bundin almennum og hlutlægum viðmiðum sem eiga jafnt við um alla sem eru í sambærilegri stöðu. Við beitingu ákvæða þess verður þannig ekki byggt á persónubundnum sjónarmiðum heldur á eðli og alvarleika brots, þyngd refsingar, skráningu dóms í sakaskrá og mati á því hvort réttindi annarra eða ríkir almannahagsmunir mæli gegn nafnbreytingu.
    Með hliðsjón af framangreindu er talið að frumvarpið samrýmist stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Með greininni er lagt til að nýju ákvæði, 17. gr. a, verði bætt við lög um mannanöfn, nr. 45/1996. Í 1. mgr. er kveðið á um að heimilt verði að synja beiðni um nafnbreytingu hafi umsækjandi hlotið óskilorðsbundinn refsidóm fyrir alvarlegt brot gegn ákvæðum almennra hegningarlaga og verið gert að sæta fangelsi í þrjú ár eða lengur. Þá er jafnframt gert að skilyrði að skráðar upplýsingar um dóminn hafi ekki verið afmáðar úr sakaskrá og að réttindi annarra mæli gegn nafnbreytingu eða ríkir almannahagsmunir krefjist þess.
    Ákvæðinu er aðeins ætlað að ná til þeirra umsækjenda sem sætt hafa hegningu fyrir meiri háttar ásetningsbrot samkvæmt almennum hegningarlögum, svo sem manndráp, stórfellda líkamsárás, kynferðisbrot eða sambærilegt brot. Gildissvið ákvæðisins er því afmarkað við tilvik þar sem alvarleiki brotsins er þess eðlis að réttindi annarra eða ríkir almannahagsmunir kunna að mæla gegn því að umsækjanda verði heimilað að breyta um nafn. Brot sem framin eru af gáleysi eða varða einungis sektum falla því utan gildissviðs ákvæðisins.
    Þar að auki er ráðgert að ákvæðið gildi aðeins frá dómsuppkvaðningu þar til dómurinn er felldur út af sakaskrá. Að þeim tíma liðnum fer um beiðni um nafnbreytingu samkvæmt almennum reglum laga um mannanöfn. Ákvæðið útilokar því ekki að viðkomandi geti síðar breytt um nafn að uppfylltum almennum skilyrðum laganna.
    Í 2. mgr. er lagt til að Þjóðskrá Íslands verði heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá við meðferð beiðna um nafnbreytingu að því marki sem nauðsynlegt er til að meta hvort 1. mgr. eigi við, enda liggi fyrir samþykki umsækjanda. Með því að áskilja samþykki umsækjanda er tryggt að upplýsingaöflun úr sakaskrá fari ekki fram nema með vitund hans.

Um 2. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringa.