Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1315  —  442. mál.




Svar


atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Erni Rúnarssyni um bílastæðagjöld á ferðamannastöðum.


     1.      Á hve mörgum ferðamannastöðum innheimtir ríkissjóður gjald fyrir bílastæði? Hvenær hófst umrædd gjaldtaka og hvert er bílastæðagjald ríkissjóðs að meðaltali á þessum stöðum?
    Stofnanir forsætisráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis taka gjald fyrir veitta þjónustu á ferðamannastöðum í eigu ríkisins. Rétt er að beina fyrirspurn um efnið til þeirra ráðherra.

     2.      Á hve mörgum ferðamannastöðum innheimta einkaaðilar gjald fyrir bílastæði? Hvenær hófst umrædd gjaldtaka og hvert er bílastæðagjald einkaaðila að meðaltali á þessum stöðum?
    Þar sem gjaldtaka vegna bílastæða er ekki skráningar- eða leyfisskyld er ekki til yfirlit yfir á hve mörgum stöðum einkaaðilar innheimta bílastæðagjöld en samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins fer gjaldtaka í formi bílastæðagjalda nú fram á rúmum þrjátíu stöðum víðs vegar um landið utan þéttbýlis. Á flestum þessara staða eru innheimt einskiptisgjöld en í nokkrum tilvikum miðast gjaldið við dvalartíma á svæðinu. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins er verðskrá vegna bílastæða almennt sambærileg hjá opinberum aðilum og einkaaðilum, að undanskildum vangreiðslugjöldum sem einkaaðilar innheimta. Algengt verð fyrir viðveru fólksbíls er 750–1.200 kr.

     3.      Hvaða reglur gilda um dráttarvexti og aðrar aukaálögur á vangreidd bílastæðagjöld, bæði þegar um er að ræða gjöld á vegum ríkisins og þegar einkaaðilar standa að innheimtu?
    Um dráttarvexti gilda lög um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001. Í III. kafla laganna er sérstaklega fjallað um dráttarvexti.
    Gjaldtaka opinberra aðila þarf að eiga sér skýra stoð í lögum og þjónustugjöld má einungis leggja á til að standa undir kostnaði við veitta þjónustu. Fjallað er um gjaldheimtu af bílastæðum í 86. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019. Í 109. gr. laganna er fjallað um álagningu og innheimtu gjalds vegna brota gegn lögunum. Lögin heyra undir innviðaráðuneytið. Lög um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019, gilda um innheimtu á sköttum, gjöldum og sektum ásamt vöxtum, álagi og kostnaði sem lögð eru á af stjórnvöldum og sem innheimtumönnum ríkissjóðs er falið að innheimta. Í 4. mgr. 1. gr. laganna kemur fram að sérákvæði annarra laga um skatta, gjöld og sektir sem mæla fyrir á annan veg gangi framar ákvæðum laganna. Lögin heyra undir fjármála- og efnahagsráðuneytið. Sem dæmi um sérákvæði í öðrum lögum sem geta komið til skoðunar má nefna 21. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð, nr. 60/2007, en þar er fjallað um gjaldtöku í Vatnajökulsþjóðgarði. Lögin heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
    Gjaldtaka einkaaðila byggir á eignarrétti og er algengt að vangreiðslugjöld séu innheimt ef ekki er greitt innan tímamarka vegna bílastæða. Ekki er að finna sérstaka lagaheimild fyrir slíkri gjaldtöku einkaaðila en jafnframt eru engin lög sem banna slíka gjaldtöku. Af því má ráða að slík gjaldtaka er almennt heimil. Heimildir einkaaðila til að innheimta bílastæðagjöld byggja því í grunninn á samningi aðila. Innheimtu eru þó settar ákveðnar skorður í innheimtulögum, nr. 95/2008. Skv. 1. mgr. 1. gr. laganna þá gilda þau um frum- og milliinnheimtu gjaldfallinna peningakrafna fyrir aðra eða vegna eigin starfsemi. Þau gilda þó ekki um innheimtu opinberra aðila á sköttum og gjöldum og löginnheimtu. Á grundvelli 12. gr. innheimtulaga hefur verið sett reglugerð nr. 97/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar. Skv. 1. mgr. 16. gr. innheimtulaganna hefur Fjármálaeftirlitið eftirlit með starfsemi þeirra aðila sem hafa verið veitt innheimtuleyfi samkvæmt lögunum. Auk innheimtulaga þá geta ákvæði laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, nr. 7/1936, komið til skoðunar en í 36. gr., ásamt 36. gr. a – 36. gr. d, er heimild til að víkja samningi til hliðar í heild eða að hluta, eða breyta, ef það yrði talið ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að bera hann fyrir sig.
    Með nýjum markaðssetningarlögum sem afgreidd voru á Alþingi 27. apríl 2026 hafa Neytendastofu verið veittar skýrari og markvissari heimildir til að bregðast við brotum gegn lögum á sviði neytendamála. Meðal annars er í 16. gr. laganna að finna ákvæði sem kveður á um að atvinnurekendur og samtök þeirra megi ekki nota eða mæla með notkun samningsskilmála sem teljast óhæfilegir gagnvart neytendum. Ákvæðið felur í sér heimild fyrir Neytendastofu til að banna notkun slíkra skilmála. Fyrirhugað er að þetta ákvæði geti m.a. nýst þegar samningsskilmálar kveða á um óhæfilega hátt gjald vegna vangreiðslu bílastæðagjalds.