Ferill 577. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1317  —  577. mál.

Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið á fjölmörgum fundum frá því að því var vísað til hennar 15. apríl sl. Tillagan byggist á 5. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015. Þar kemur fram að ráðherra skuli á hverju ári leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun til næstu fimm ára hið skemmsta. Stefnumörkunin sem felst í áætluninni skal byggjast á grunngildum fjármálastefnu.
    
Umsagnaraðilar.
    Alls bárust 47 umsagnir og eru þær allar birtar á vef Alþingis, auk minnisblaða og kynningar ráðherra á málefnasviðum sem undir þá heyra. Nokkrar umsagnir fjalla eingöngu um áform um lagasetningu sem eru til umfjöllunar hjá efnahags- og viðskiptanefnd.
    Á fund nefndarinnar komu fulltrúar 16 umsagnaraðila. Þeir voru frá Alþýðusambandi Íslands, BHM, BSRB, fjármálaráði, Fjórðungssambandi Vestfirðinga, Reykjavíkurborg, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Samtökum iðnaðarins og Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Einnig frá SVÞ – Samtökum verslunar og þjónustu, Viðskiptaráði Íslands og ÖBÍ réttindasamtökum.
    Nefndin kallaði til alla ráðherra sem hver fyrir sig fór yfir helstu markmið, mælikvarða, áskoranir og fjárheimildir á þeim málefnasviðum sem undir þá heyra.
    
Meginmarkmið áætlunarinnar og samanburður við fyrri áætlun.
    Tillagan sjálf samanstendur af átta töflum sem taka til lykiltalna um afkomu og efnahag opinberra aðila, rekstraryfirlits fyrir hið opinbera, rekstraryfirlits fyrir A1-hluta ríkissjóðs og sveitarfélaga, auk heildarútgjalda og rammasettra útgjalda málefnasviða. Loks eru töflur sem annars vegar skýra og sundurliða stöðugleikareglu ríkissjóðs og hins vegar er yfirlit um sjóðstreymi ríkissjóðs. Taflan með stöðugleikareglunni sýnir að áætlað er að raunvöxtur útgjalda verði langt innan við hámark reglunnar sem miðast við 2% raunvöxt á ári. Endurspeglar það stefnu ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög 2027 sem er umfram áskilnað og markmið stöðugleikareglu. Allar töflurnar taka til áranna 2027–2031.
    Í greinargerð með áætluninni er fyrst fjallað um áherslur og stefnumið stjórnvalda og því næst um efnahagsstefnuna og stefnu í fjármálum hins opinbera, bæði ríkis og sveitarfélaga. Þar undir er líka umfjöllun um fjármál opinberra fyrirtækja og umbætur í starfsemi hins opinbera.
    Sérstakur kafli er um áhættuþætti í rekstri og efnahag ríkissjóðs og þrír viðaukar sem taka til reikningshaldslegrar framsetningar opinberra fjármála, viðmiða og forsendna útgjaldaáætlunar ríkissjóðs auk samanburðar á fjárheimildum og gjöldum ríkissjóðs samkvæmt IPSAS-reikningsskilastaðli og GFS-hagskýrslustaðli.
    Með áætluninni eru birtar greinargerðir 35 málefnasviða. Þar koma fram helstu meginmarkmið, stefna og breytingar á fjárheimildum einstakra málefnasviða. Nánari sundurliðun þeirra fyrir einstaka málaflokka verður birt með fjárlagafrumvarpi í haust.
    
Þróun efnahagsmála frá framlagningu áætlunarinnar.
    Efnahagsforsendur áætlunarinnar eru ein af grundvallarforsendum þess mats sem fram fer á tekjum, útgjöldum, afkomu og skuldastöðu hins opinbera á tímabili áætlunarinnar. Traustar, gagnsæjar og varfærnar efnahagsforsendur skipta því verulegu máli, ekki aðeins við gerð fjármálaáætlunarinnar sjálfrar heldur einnig fyrir trúverðugleika opinberra fjármála, væntingamyndun á vinnumarkaði og mat á sjálfbærni ríkisfjármála til lengri tíma litið.
    Breyting hefur verið gerð á fyrirkomulagi um forsendur fjármálaáætlunar og þar með fjárlaga sem felur í sér að efnahagsforsendur ríkisfjármála byggjast nú á spám Seðlabanka Íslands í stað þjóðhagsspáa Hagstofu Íslands. Fyrirliggjandi fjármálaáætlun byggist því nú í fyrsta sinn á hagspá Seðlabanka Íslands.
    Efnahagsforsendur eru lykilþáttur við mat á tekjum ríkissjóðs, þróun útgjalda, afkomu og skuldastöðu hins opinbera. Í lögum um opinber fjármál er kveðið á um að stefnumörkun í opinberum fjármálum skuli byggjast á traustum forsendum og gögnum, sem unnin eru hlutlægt og kerfisbundið, og opinberum hagtölum og þjóðhagsspám þar sem tekið er mið af fjárhagslegum og efnahagslegum áhrifum af áformum stjórnvalda. Jafnframt skuli hafa til hliðsjónar hagspár frá viðurkenndum fagaðilum og alþjóðastofnunum.
    Forsendur fjármálaáætlunar byggjast því nú á spá Seðlabanka Íslands sem var birt í febrúar sl. Spá Seðlabankans nær þó einungis til ársins 2028 og hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið því bætt við spána fram til ársins 2031. Á tímabili fjármálaáætlunar 2027–2031 er gert ráð fyrir hóflegum en stöðugum hagvexti á bilinu 2,2–2,4% og að meðaltali 2,3%. Slíkur hagvöxtur er nokkuð lægri en sögulegur langtímahagvöxtur. Til að mynda var hagvöxtur að meðaltali um 3% á árunum 2015–2025 þrátt fyrir ýmis efnahagsáföll á því tímabili.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Það má því vel rökstyðja að hagvaxtarforsendur séu varfærnar og þar með í samræmi við grunngildin sem fram koma í 6. gr. laga um opinber fjármál.
    Helstu hagstærðir í forsendum fjármálaáætlunar má sjá í eftirfarandi töflu.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Eins og fram kemur í töflunni er reiknað með góðu jafnvægi á tímabilinu þar sem verðbólga verði komin niður í 2,5% árið 2028 og að það stig haldist út tímabil fjármálaáætlunar. Þá er reiknað með að atvinnuleysi nái jafnvægi í 4%.
    Sé litið til annarra greiningaraðila og nýrrar spár Seðlabanka Íslands frá maí sl. hefur dregið úr hagvaxtarhorfum ársins 2027. Í spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) frá apríl sl. er reiknað með 2,1% hagvexti og í nýjustu spá Seðlabankans er reiknað með 1,8% hagvexti. Ekki eru verulegar breytingar á spá um hagvöxt fyrir árið 2028. Þá eru forsendur fyrri fjármálaáætlunar, 2026–2030, á svipuðu róli og í fyrirliggjandi fjármálaáætlun fyrir utan hagvaxtarspá ársins 2027.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Í sömu spám er gert ráð fyrir að verðbólgan verði komin niður í 2,5% árið 2028. Spá um atvinnuleysi 2027 jókst nokkuð í spá Seðlabankans frá því í maí sl. eða úr 4,3% í 5,0%. En minni hagvöxtur og aukið atvinnuleysi geta valdið því að afkoma hins opinbera verði lakari miðað við markmiðin í fjármálaáætlun.
    Ávallt er talsverð óvissa í þróun efnahagsmála, sérstaklega þegar litið er til nokkurra ára fram í tímann. Seðlabanki Íslands bendir á að helsta óvissan í spá bankans sé tengd alþjóðlegum efnahagshorfum og þá sérstaklega um framvindu alþjóðaviðskipta og mikilli spennu í alþjóðastjórnmálum. Alþjóðleg óvissa eykur enn á mikilvægi varfærni. Ísland er lítið opið hagkerfi og er háð þróun alþjóðaviðskipta, fjármálamarkaða, orkuverðs, ferðamennsku og ytri eftirspurnar. Mikilvægt er að við slíkar aðstæður séu opinber fjármál mótuð með nægilegum varúðarsjónarmiðum og að svigrúm sé til staðar til að bregðast við ófyrirséðum áföllum.
    Einnig ber að líta til óvissu um verðbólgu og vexti. Í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að árið 2028 hjaðni verðbólga að markmiði Seðlabankans og haldist þar út tímabilið. Meiri hlutinn telur það mikilvæga forsendu fyrir áætlunina, enda hefur verðbólga bein áhrif á vaxtakostnað ríkissjóðs, verðtryggðar skuldir, útgjöld og kaupmátt. Reynsla síðustu ára sýnir að verðbólga getur reynst þrálátari en spár gera ráð fyrir. Ef verðbólga verður hærri eða vextir lækka hægar en gert er ráð fyrir getur það haft neikvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs, fjármögnunarkjör og skuldastöðu.
    
Framleiðni og hagvöxtur til framtíðar.
    Framleiðnivöxtur er ein mikilvægasta forsenda hagvaxtar til lengri tíma litið. Til skamms tíma geta þættir eins og fjölgun fólks á vinnumarkaði og auknar fjárfestingar leitt til hagvaxtar en framleiðnivöxtur er yfirleitt meginbreytan í hagvexti þegar litið er til langs tíma. Meiri framleiðni er því mikilvægur þáttur í að stuðla að bættum lífskjörum og getu til að greiða hærri laun og fjármagna opinbera þjónustu.
    Framleiðni hefur einnig áhrif á samkeppnishæfni þjóða. Lönd með mikla framleiðni geta framleitt meiri verðmæti á hverja vinnustund og því staðið betur í alþjóðlegri samkeppni. Á heildina litið telst Ísland vera í hópi landa með hátt framleiðnistig og það er eitt auðugasta land heims miðað við landsframleiðslu á mann.
    Þó er ávallt mikilvægt að huga að framleiðniþróun og gæta þess að Ísland dragist ekki aftur úr öðrum löndum. Það sem undirbyggir framleiðnivöxt er yfirleitt samspil ýmissa þátta. Þar má t.d. nefna menntun og hæfni vinnuafls, tækniframfarir og nýsköpun og vandaðar fjárfestingar í innviðum og skipulagi. Þá er einnig mikilvægt að hið opinbera tryggi góða stjórnsýslu með skilvirkum lögum og regluverki og skapi góðar aðstæður fyrir fjárfestingar og nýsköpun.
    Mikilvægt er að greina á milli hagvaxtar í heild og hagvaxtar á mann. Hagvöxtur í heild getur verið jákvæður á sama tíma og framleiðsla á mann stendur í stað eða vex lítið. Fyrir lífskjör almennings, skattstofna og getu hins opinbera til að standa undir þjónustu skiptir hagvöxtur á mann miklu máli. Á undanförnum árum hefur árleg fólksfjölgun oft verið mjög mikil, eða yfir 2%, fyrst og fremst vegna flutnings á erlendu vinnuafli til landsins. Frá 2015 til 2025 var hagvöxtur á mann að meðaltali um 1%. Þó skal hafa í huga að hagvöxtur á mann á Íslandi er ekki einungis til kominn vegna framleiðniaukningar heldur einnig til að mynda vegna mikillar atvinnuþátttöku og margra vinnustunda. Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofu Íslands mun fólksfjölgun á tímabili fjármálaáætlunar 2027–2031 vera undir 2%. Hins vegar er reiknað með hóflegum hagvexti til ársins 2031 og þar með verður hagvöxtur á mann einungis í kringum 0,5% á tímabili fjármálaáætlunar.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Einn helsti mælikvarðinn á framleiðni er framleiðni vinnuafls, þ.e. mæling á afköstum vinnuafls, reiknuð sem landsframleiðsla á hvern starfsmann eða vinnustund. Framleiðni vinnuafls vísar því til þess hversu mikil verðmætasköpun á sér stað fyrir hverja vinnueiningu. Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands hefur árlegur vöxtur á framleiðni vinnuafls frá 2009 verið að meðaltali um 1%. Þó hefur árleg breyting á framleiðni vinnuafls verið sveiflukennd á tímabilinu 2009–2025 en á því tímabili var mestur árlegur vöxtur 5,6% og minnstur þegar framleiðni dróst saman um 2,3%.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Ekki er sjálfgefið að framleiðni vaxi á ári hverju. Í álitsgerð fjármálaráðs er bent á að til að forsendur fjármálaáætlunar gangi eftir þurfi töluverða framleiðniaukningu til ársins 2031 en ráðið telur ekki liggja ljóst fyrir hvernig slíkur vöxtur eigi að ná fram að ganga. Ráðið leggur ekki beinlínis mat á mögulegan framleiðnivöxt á Íslandi til framtíðar en bendir á mikilvægi þess að stjórnvöld hugi að aðgerðum sem styðja við aukinn og sjálfbæran hagvöxt til lengri tíma litið.
    Ýmis tækifæri eru á Íslandi til þess að styðja við aukna framleiðni, hagvöxt og undirbyggja þar með almenna velsæld. Með góðri atvinnustefnu sem styður við fjölbreytni og verðmætasköpun er hægt að ná fram aukinni framleiðni og stöðugum hagvexti. Á Íslandi hafa farið vaxandi ýmsar greinar sem búa til mikil verðmæti, svo sem hugvitsgreinar og lyfja- og tæknigeirinn. Mikilvægt er að skapa umhverfi sem styður við nýsköpun, fjárfestingu og innleiðingu nýrrar tækni en tækniþróun hefur verið megindrifkraftur framleiðnivaxtar í þeim greinum sem hafa vaxið hraðast. Þar er lykilatriði að regluverk sé skilvirkt, að það sé stöðugleiki og að fjármagn sé aðgengilegt. Það eru meginþættir þess að skapa hvata til fjárfestingar og aukinnar framleiðni. Auk hugvitsgreina og skapandi greina verða ýmsar undirstöðuatvinnugreinar mikilvægar eins og sjávarútvegur, orkuiðnaður og ferðamennska.
    Þá eru tækifæri til þess að stjórnvöld leggi til þjóðhagslega hagkvæmar innviðafjárfestingar sem styðja við almenna hagsæld. Ekki er sjálfgefið að allar fjárfestingar auki framleiðni. Mikilvægt er að forgangsraða verkefnum eftir ábata og tryggja vandaðan undirbúning, skýra ábyrgð og gagnsæi um skuldbindingar hins opinbera. Þar sem fyrirhugað er að nýta sérstök félög eða endurlán til að fjármagna innviðaverkefni þarf að tryggja að heildaráhætta ríkissjóðs sé sýnileg Alþingi og almenningi. Einnig eru mikil tækifæri í því að styrkja grunnmenntun, rannsóknir og þróun. Það undirbyggir vaxtarsprota í nýsköpun og tækniþróun. Þá eru enn til staðar mikil tækifæri í aukinni orkuöflun sem styður við framleiðslu og hagvöxt.
    
Þróun útgjalda málefnasviða á síðastliðnum árum.
    Í því skyni að geta dregið fram breytingar að raungildi á þróun ríkisútgjalda, bæði gjalda í heild sem og einstakra málefnasviða, hefur verið kallað eftir upplýsingum frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Gögn um útgjaldaþróun að raungildi liggja fyrir allt frá árinu 2017.
    Með því að skipta tímabilinu upp eftir starfstíma ríkisstjórna fæst athyglisverð nálgun á þróunina. Annars vegar síðustu fimm ár fyrri ríkisstjórnar, eða tímabilið 2020–2025, og hins vegar 2026–2031, eða til loka fjármálaáætlunar.
    Með því að miða við rammasett útgjöld eru undanskildir nokkrir stórir liðir þar sem gjöldin ráðast af hagrænum eða reiknuðum stærðum, svo sem lífeyrisskuldbindingum, afskriftum skattkrafna, vaxtagjöldum og framlögum til Atvinnuleysistryggingasjóðs.
    Einstaka breytingar eru ekki sambærilegar milli ára, t.d. vegna Orkusjóðs, en raungildisbreytingar fyrir öll veigameiri málefnasviðin eru sambærilegar milli ára.
    Á heildina litið er á tímabili áætlunarinnar, og að meðtöldum fjárlögum ársins í ár, gert ráð fyrir raunvexti málefnasviða sem nemur um 103 ma.kr. eða 8% hækkun frá fjárlögum 2026–2031. Það er mun minni hækkun en á tímabili fyrri ríkisstjórnar frá 2020 til 2025 þegar rammasett útgjöld hækkuðu að meðaltali um 215 ma.kr. eða 19%. Samandregið má segja að umfangsmestu raungildishækkanirnar komi fram á málefnasviðum heilbrigðis- og félagsmála.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Áætlað er að á tímabilinu 2026–2031 hækki nokkur málefnasvið heilbrigðisráðuneytis um samtals 68 ma.kr. og málefni aldraða um 24 ma.kr. Öll önnur málefnasvið hækka þá nettó um aðeins 11 ma.kr. en þar er bæði um hækkanir og lækkanir að raungildi að ræða á tímabilinu. Fyrir utan varasjóð er hlutfallslega mesta hækkunin, eða 30%, til hjúkrunarheimila, 22% til þróunarsamvinnu, 19% til málefna aldraða og sama hlutfall til menningar, lista og íþróttamála. Þó nokkur málefnasvið lækka að raungildi á tímabilinu.
    Þess má geta að áætlað er að framlög til æðstu stjórnar ríkisins, þ.e. Alþingis, ráðuneyta og dómstóla, lækki að raungildi á tímabilinu. Lækkunin er áætluð samtals 1,2 ma.kr.
    Til samanburðar var þróunin svipuð tímabilið 2020–2025, þegar heildargjöldin hækkuðu um 215 ma.kr. eða 19% að meðaltali, þ.e. að málefnasvið heilbrigðismála, sjúkrahúsa, heilsugæslu, lyfjakostnaðar og framlög til hjúkrunarheimila hækkuðu samtals um 89 ma.kr. Framlög til fjölskyldumála og nýsköpunar hækkuðu samtals um 50 ma.kr. Alls hækka þessi sjö málefnasvið um samtals 139 ma.kr. og þá er eftir 76 ma.kr. hækkun sem dreifist á öll önnur málefnasvið. Framlög til sex málefnasviða lækka að raungildi á þessu tímabili.

Þróun ársverka ríkisstarfsmanna.
    Að undanförnu hefur nokkuð verið fjallað um þróun fjölda opinberra starfsmanna. Meiri hlutinn hefur aflað sér gagna um þróun ársverka ríkisstarfsmanna innan A1-hluta ríkisins. Á árunum eftir bankahrunið fækkaði ársverkum ríkisstarfsmanna úr 17.911 talsins árið 2009 niður í 16.180 árið 2014. Eftir það tók þeim að fjölga að nýju og voru í heildina 20.961 talsins í fyrra. Það er 29% fjölgun frá 2015.
    Aukningin frá 2015 dreifist mjög misjafnlega eftir starfsgreinum. Ekki kemur á óvart að langmest fjölgun er meðal starfsfólks á heilbrigðissviði. Samanlagt fjölgar um 2.990 ársverk hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítalanum, Sjúkrahúsinu á Akureyri og heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Það eru 62% af heildarfjölgun tímabilsins.
    Í samræmi við stefnumörkun fjölgar einnig ársverkum löggæsluembætta samtals um 450 talsins frá árinu 2015. Lítil eða engin fjölgun kemur fram hjá ýmsum öðrum stofnunum, svo sem sýslumannsembættum og Skattinum.
    Þess ber að geta að á þessum tíma kom verkefnið um styttingu vinnuvikunnar til framkvæmda og leiddi til fjölgunar ársverka, einkum í vaktavinnustörfum. Einnig getur það haft áhrif á fjöldann þegar stofnanir ráða starfsfólk í stað þess að nota verktaka. Sú þróun hefur t.d. átt sér stað hjá nokkrum heilbrigðisstofnunum.
    Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands er áætlað að á árinu 2025 hafi alls 225 þús. manns verið starfandi á Íslandi og þar af um 58 þús. manns hjá hinu opinbera. Hlutfall starfandi hjá hinu opinbera hefur lækkað frá árinu 2009, úr um 29% í um 26% á árinu 2025. Þó hefur þeim sem starfa hjá hinu opinbera á þessu tímabili fjölgað um 21% en hins vegar hefur heildarfjöldi starfandi á Íslandi hækkað um 36% á sama tímabili.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Áherslumál meiri hluta nefndarinnar.
    Meiri hlutinn tekur undir markmið þessarar tímamótaáætlunar sem miðar að því að leggja fram hallalaus fjárlög á næsta ári. Afgangur af ríkisrekstrinum er öruggasta leiðin til að búa í haginn fyrir óvænt áföll og komandi kynslóðir. Nauðsynlegt er að halda áfram að beita aga og festu við stjórn ríkisfjármálanna. Áskoranir á gjaldahlið fjárlaga tengjast ekki hvað síst öldrun þjóðarinnar og útgjöldum til heilbrigðisþjónustu.

Lýðfræðileg þróun.
    Mikilvæg vísbending um þróun útgjalda til velferðarmála, þá sérstaklega almannatrygginga og heilbrigðisþjónustu, er hlutfall aldraðra. Algengur alþjóðlegur mælikvarði er hlutfall íbúa 65 ára og eldri á móti þeim sem eru 15–64 ára.
    Samkvæmt þessum mælikvarða var hlutfallið á Íslandi 23% árið 2024 en það hlutfall mun hækka í framtíðinni þar sem þjóðin er að eldast. Eftirfarandi mynd sýnir þetta hlutfall á öllum Norðurlöndunum frá 1980 og svo með spátölum frá 2025 til og með 2050 samkvæmt mati Sameinuðu þjóðanna.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Ef þetta sama hlutfall er áætlað hérlendis fram yfir árið 2050 er hækkun á hlutfalli aldraðra enn meiri og er t.d. áætluð 55% árið 2070 sem þýðir að það verða innan við tveir einstaklingar á vinnualdri á móti hverjum 65 ára og eldri.
    Langtímaþróunin sýnir nauðsyn þess að ríkisfjármálin verði sjálfbær til lengdar. Ísland stendur þar að sumu leyti vel að vígi, ekki hvað síst vegna stöðu lífeyrismála hérlendis en íslenska lífeyriskerfið er með hæsta hlutfall sjóðssöfnunar innan OECD-ríkjanna. Einu ríkin sem nálgast Ísland í þeim efnum eru Danmörk og Holland.
    
Sjálfbær ríkisfjármál og stöðugleikaregla.
    Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að áfram verði unnið markvisst að því að styrkja afkomu hins opinbera, draga úr skuldsetningu og tryggja sjálfbærni ríkisfjármála. Örugg hagstjórn og sjálfbær ríkisfjármál stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum til hagsbóta fyrir almenning og atvinnulíf. Samkvæmt fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að skuldir hins opinbera sem hlutfall af vergri landsframleiðslu lækki jafnt og þétt á tímabilinu og að skuldir samkvæmt viðmiði laga um opinber fjármál lækki úr 44% af vergri landsframleiðslu árið 2027 í 41% árið 2031.
    Meiri hlutinn vekur sérstaka athygli á því að samkvæmt áætluninni er stefnt að hallalausum fjárlögum ríkissjóðs strax árið 2027. Þótt tæpt standi er það mikilvægt áfanga- og trúverðugleikamerki í ríkisfjármálum og markmið sem gengur lengra en lágmarkskröfur stöðugleikareglunnar. Jafnframt er gert ráð fyrir að afkoma ríkissjóðs styrkist áfram út áætlunartímabilið, m.a. vegna hagræðingarverkefna sem losa um 170 ma.kr.
    Meiri hlutinn fagnar því að stöðugleikaregla sé nú orðin einn af hornsteinum fjármálastefnunnar. Reglan stuðlar að ábyrgri forgangsröðun og auknum fyrirsjáanleika. Hún gerir kleift að vinna gegn samdrætti og ofþenslu í stað þess að ýkja þessar sveiflur og styrkir þannig forsendur fyrir stöðugleika í efnahagslífinu til lengri tíma. Mikilvægt er að reglan njóti trausts og að stjórnvöld haldi áfram að stefna að betri afkomu en lágmarksviðmið hennar krefjast þegar aðstæður leyfa.
    
Tekjur ríkissjóðs.
    Gert er ráð fyrir því að á tímabili áætlunarinnar verði vöxtur tekna ríkissjóðs minni en vöxtur landsframleiðslu (VLF) og því mun hlutfall tekna af VLF lækka úr 30,4% árið 2027 í 30,0% árið 2031. Á tekjuhliðinni er áhersla á að bæta skattskil, loka glufum og fækka undanþágum.
    Nokkur áhersluatriði og viðmið eru:
     1.      Að tekjur af ökutækjum og eldsneyti miðist við að þær nái samtals 1,7% af VLF.
     2.      Að draga úr ívilnunum í virðisaukaskatti, m.a. með því að lækka endurgreiðsluhlutfall vegna vinnu við íbúðarhúsnæði og færa baðlón úr neðra þrepi í almenna þrep virðisaukaskatts.
     3.      Að taka upp sanngjarnt og fyrirsjáanlegt afgjald af notkun ferðamannastaða sem eru í eigu þjóðarinnar.
     4.      Að breyta fiskveiðigjaldi til lækkunar þannig að það taki mið af hagnaði í greininni og bæti rekstrarskilyrði fyrirtækjanna.
     5.      Að hækka skatta á fyrirtæki í fjármálageiranum.
     6.      Að framlengja forvarnagjald vegna innviða á Reykjanesskaga.
    
Aðhald í rekstrargjöldum ríkissjóðs.
    Í áætluninni er gert ráð fyrir aðhaldi í rekstri og miðað er við að ríkisstarfsmönnum fækki um 1% á næsta ári og með sameiningum fækki ríkisstofnunum um 15% á kjörtímabilinu. Meiri hlutinn tekur undir þessi áform og bendir jafnframt á nauðsyn þess að kjarasamningar ríkisstarfsmanna verði ekki leiðandi varðandi hækkanir launa á vinnumarkaði. Til langs tíma ættu launahækkanir ekki að vera umfram framleiðniaukningu. Vísbendingar eru um að nauðsynlegt sé að auka sérstaklega aðhald á þessu sviði.
    
Fjárfestingar og innviðir.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að markmið um hallalaus fjárlög og aukinn stöðugleika gangi ekki gegn nauðsynlegri uppbyggingu innviða. Þvert á móti gerir fjármálaáætlun ráð fyrir áframhaldandi öflugri fjárfestingu hins opinbera á næstu árum. Fjárfesting ríkissjóðs í efnislegum eignum nemur tæplega 117 ma.kr. árið 2027 og er áætluð um 133 ma.kr. árið 2031. Samhliða er gert ráð fyrir verulegum fjárfestingum sveitarfélaga sem nema um 92 ma.kr. árið 2027 og ríflega 117 ma.kr. í lok tímabilsins.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að áfram verði unnið markvisst að því að vinna upp þá innviðaskuld sem byggst hefur upp á undanförnum árum og styrkja þannig samkeppnishæfni landsins og framleiðni hagkerfisins til lengri tíma. Sérstaklega ber að nefna áframhaldandi uppbyggingu samgönguinnviða en framlög til samgöngu- og fjarskiptamála nema um 76 ma.kr. árlega á tímabili áætlunarinnar. Mikilvægt er að þeim verkefnum sem þegar hafa verið sett á samgönguáætlun og í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins verði fylgt eftir af festu til að ekki verði tafir á framgangi þeirra eða fjármögnun og að unnið verði að því að skapa svigrúm til frekari uppbyggingar innviða.
    Meiri hlutinn fagnar þeim áformum sem fram koma á þingmálaskrá um frumvarp um framlagningu heildstæðrar fjárfestingaráætlunar fyrir Ísland. Mikilvægt er að slík áætlun nái til ríkisins, opinberra fyrirtækja og sveitarfélaga og veiti heildaryfirsýn yfir fjárfestingarþörf, forgangsröðun og fjármögnun innviða til lengri tíma. Jafnframt styður meiri hlutinn áform um stofnun innviðafélags sem ætlað er að hraða uppbyggingu mikilvægra innviða um land allt og skapa nýjar leiðir til fjármögnunar stórra og arðbærra framkvæmda.
    
Samstarf ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu samfélagsinnviða.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að árangur í uppbyggingu húsnæðis, innviða og velferðarþjónustu ráðist í ríkum mæli af öflugu samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir áframhaldandi vexti í tekjum sveitarfélaga og verulegum fjárfestingum á tímabilinu. Fjárfestingar sveitarfélaga eru áætlaðar um 92 ma.kr. árið 2027 og ríflega 117 ma.kr. árið 2031. Jafnframt er gert ráð fyrir að fjárframlög til sveitarfélaga fari vaxandi á tímabilinu.
    Sveitarfélög gegna lykilhlutverki við að veita mikilvæga nærþjónustu, á sviði skólamála og velferðarþjónustu en ekki síður við uppbyggingu nýrra íbúðarhverfa, leikskóla, skóla, samgönguinnviða og annarrar grunnþjónustu. Mikilvægt er að fjárhagslegt svigrúm sveitarfélaga og samstarf ríkis og sveitarfélaga taki mið af þeirri miklu uppbyggingu sem fram undan er og þörf er á víða um land. Sérstaklega á það við á vaxtarsvæðum þar sem þörf fyrir nýtt húsnæði og innviði fer ört vaxandi.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að áfram verði unnið að því að bæta fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga, m.a. til að tryggja uppbyggingu sjálfstæðra búsetuúrræða fyrir fatlað fólk. Einnig þarf að styrkja umgjörð uppbyggingarsamninga milli ríkis og sveitarfélaga, þróa hvata til innviðafjárfestinga og stuðla að aukinni samhæfingu opinberrar fjárfestingar. Með því skapast betri forsendur fyrir hraðari húsnæðisuppbyggingu, öflugri þjónustu og markvissari nýtingu fjármuna hins opinbera. Meiri hlutinn telur mikilvægt að ríki og sveitarfélög vinni í auknum mæli saman að langtímaáætlanagerð um uppbyggingu innviða, húsnæðis og þjónustu þannig að ákvarðanir um fjárfestingar styðji hver aðra og stuðli að sjálfbærri þróun byggða um land allt.
    Meiri hlutinn fagnar boðuðum viðræðum ríkis og sveitarfélaga um frekari stuðning við innviðauppbyggingu sveitarfélaga og telur eðlilegt að slík úrræði taki mið af framlagi sveitarfélaga til uppbyggingar húsnæðis. Í því sambandi telur meiri hlutinn eðlilegt að tengja ívilnanir við skuldbindingar um nauðsynlega uppbyggingu félagslegs húsnæðis og íbúða á vegum óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga þannig að stuðlað sé að auknu framboði fjölbreytts húsnæðis og þar á meðal hagkvæms húsnæðis fyrir lág- og millitekjuhópa um land allt.
    
Samgöngur og nýjar leiðir til fjármögnunar innviða.
    Framlög til samgöngu- og fjarskiptamála nema um 75 ma.kr. á ári á tímabili fjármálaáætlunar. Þar af fer verulegur hluti til fjárfestinga í samgönguinnviðum í samræmi við samgönguáætlun, samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og áframhaldandi uppbyggingu hafna- og fjarskiptainnviða um land allt.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að áfram verði unnið markvisst að því að bæta samgönguöryggi, styrkja almenningssamgöngur, tengingar milli landshluta og vinna upp þá innviðaskuld sem safnast hefur upp á undanförnum árum. Öflugir samgönguinnviðir eru forsenda atvinnuuppbyggingar, byggðaþróunar og samkeppnishæfni landsins í heild. Mikilvægt er að framkvæmd þeirra verkefna sem þegar hafa verið samþykkt á samgönguáætlun verði tryggð og að undirbúningi annarra mikilvægra verkefna verði hraðað.
    Meiri hlutinn styður áform um stofnun innviðafélags sem ætlað er að hraða uppbyggingu stórra og mikilvægra innviðaverkefna og skapa nýjar leiðir til fjármögnunar þeirra: flýta, fjármagna og framkvæma. Slík nálgun getur aukið framkvæmdahraða, dregið úr kostnaði sem fylgir töfum og skapað svigrúm innan hefðbundinnar samgönguáætlunar til að ráðast í fleiri verkefni um land allt.
    
Húsnæðisuppbygging og innviðir sveitarfélaga.
    Framlög til húsnæðis- og skipulagsmála nema tæplega 26 ma.kr. árið 2027. Í fjármálaáætlun er áfram gert ráð fyrir stuðningi við húsnæðisuppbyggingu, þar á meðal með stofnframlögum til almennra íbúða, hlutdeildarlánum og öðrum aðgerðum sem ætlað er að stuðla að auknu framboði húsnæðis. Jafnframt er lögð áhersla á að styrkja skipulags- og uppbyggingargetu samfélagsins til að mæta áframhaldandi fólksfjölgun og vaxandi húsnæðisþörf.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að húsnæðisuppbygging verði áfram eitt af meginverkefnum stjórnvalda á næstu árum. Mikilvægt er að auka framboð íbúða um land allt, stytta tíma frá skipulagi til framkvæmda og skapa skilyrði fyrir fjölbreyttari uppbyggingu. Þar gegna sveitarfélög lykilhlutverki og því þarf að tryggja að uppbygging húsnæðis og uppbygging innviða fari saman.
    Meiri hlutinn styður áframhaldandi uppbyggingu félagslegs húsnæðis, uppbyggingu á vegum óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga og íbúða á viðráðanlegu verði. Slík uppbygging er mikilvæg til að tryggja að lág- og millitekjuhópar hafi raunhæfan aðgang að öruggu og hagkvæmu húsnæði. Jafnframt telur meiri hlutinn mikilvægt að ríki og sveitarfélög vinni áfram saman að því að þróa hvata sem stuðla að aukinni uppbyggingu íbúða og nauðsynlegra innviða samhliða henni.
    Meiri hlutinn telur sérstaklega mikilvægt að niðurstöður boðaðra viðræðna ríkis og sveitarfélaga um stuðning við innviðauppbyggingu sveitarfélaga liggi fyrir sem fyrst. Með því má styrkja getu sveitarfélaga til að taka þátt í þeirri miklu húsnæðisuppbyggingu sem fram undan er og tryggja að uppbygging nýrra hverfa, skóla, leikskóla, gatnakerfis og annarrar grunnþjónustu haldist í hendur.
    Meiri hlutinn telur eðlilegt að slík úrræði byggist á gagnkvæmum skuldbindingum ríkis og sveitarfélaga. Samhliða auknum stuðningi við innviðauppbyggingu verði horft til þess hvernig sveitarfélög stuðla að uppbyggingu fjölbreytts húsnæðis, þar á meðal félagslegs húsnæðis, uppbyggingu á vegum óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga og íbúða á viðráðanlegu verði. Sérstök áhersla verði lögð á að bæta stöðu ungs fólks og fyrstu kaupenda á húsnæðismarkaði. Þannig verði stuðlað að því að uppbygging innviða og aukið framboð hagkvæms húsnæðis fari saman, tryggi félagslega blöndun og mæti þörfum ólíkra hópa um land allt.
    
Varnar- og öryggismál, löggæsla og aukinn viðnámsþróttur.
    Í fjármálaáætlun er áfram gert ráð fyrir auknum framlögum til varnarmála, öryggismála og viðbragðsþjónustu. Framlög til utanríkismála nema rúmlega 25 ma.kr. árið 2027 og framlög til almanna- og réttaröryggis nema rúmlega 52 ma.kr. á fyrsta ári áætlunarinnar sem er hækkun um 2 ma.kr. eða 4% milli ára. Áfram er lögð áhersla á eflingu lögreglu, landamæraeftirlits, netöryggis og annarra þátta sem tengjast öryggi og viðnámsþrótti samfélagsins. Jafnframt er mikilvægt að fylgja eftir stefnu Íslands um friðarmál, friðsamlegar lausnir deilumála og afvopnun.
    Meiri hlutinn tekur einnig undir mikilvægi þess að Ísland uppfylli skuldbindingar sínar gagnvart Atlantshafsbandalaginu á tímum aukinnar óvissu í öryggis- og alþjóðamálum. Unnið er að áætlunum um markvissa aukningu framlaga til varnartengdra verkefna á komandi árum. Meiri hlutinn minnir á áform um að tryggja aðkomu þingsins að þeirri vinnu með endurskipun þverpólitískrar nefndar um varnar- og öryggismál. Einnig fagnar meiri hlutinn því að Alþingi hafi samþykkt breytingar á lögum um opinber fjármál sem taka sérstakt tillit til aukinna framlaga til varnar- og öryggismála við framkvæmd stöðugleikareglu. Mikilvægt er að sú umgjörð styðji við langtímauppbyggingu á sviði varna, öryggismála og viðnámsþróttar án þess að draga úr aga og fyrirsjáanleika í opinberum fjármálum.
    Meiri hlutinn telur að breytt staða öryggis- og alþjóðamála kalli á langtímasýn í uppbyggingu varnartengdra innviða og borgaralegs viðbúnaðar. Viðnámsþróttur samfélagsins byggist ekki eingöngu á hefðbundnum varnarmannvirkjum heldur einnig á öflugum samgönguinnviðum, fjarskiptum, orkukerfum, heilbrigðisþjónustu, almannavörnum og getu viðbragðsaðila til að bregðast við áföllum.
    Meiri hlutinn leggur einnig áherslu á áframhaldandi eflingu Landhelgisgæslu Íslands, lögreglu og almannavarna. Mikilvægt er að tryggja að viðbragðsgeta landsins þróist í takt við auknar kröfur sem leiða af breyttu öryggisumhverfi, vaxandi umsvifum á Norður-Atlantshafi og aukinni áherslu bandalagsríkja á viðnámsþrótt og öryggi mikilvægra innviða.
    Meiri hlutinn telur jafnframt mikilvægt að hraða vinnu við heildstæða áætlanagerð um mikilvæga innviði samfélagsins og samspil þeirra við öryggis- og varnarmál. Í því sambandi þarf að horfa til samgöngu-, fjarskipta- og orkuinnviða, hafna, flugvalla og annarra lykilinnviða sem gegna mikilvægu hlutverki fyrir öryggi, viðbragðsgetu og samfellu í starfsemi samfélagsins. Sérstaklega er mikilvægt að tekið sé mið af aukinni náttúruvá og öðrum ógnum sem geta raskað starfsemi lykilinnviða og að unnið sé markvisst að því að auka rekstraröryggi þeirra og viðnámsþrótt.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að við uppbyggingu og þróun lykilinnviða verði í auknum mæli horft til tvíþættrar nýtingar þar sem innviðir þjóna bæði borgaralegum þörfum og styðja við öryggi, viðbúnað og viðbragðsgetu samfélagsins þegar á reynir.
    
Heilbrigðismál, lýðheilsa og öldrun þjóðarinnar.
    Framlög til fjögurra málefnasviða, þ.e. sviða 23–26 í áætluninni, nema samtals 448,8 ma.kr. árið 2027 og hækka um 15,6 ma.kr. frá fyrra ári eða um 4% að meðaltali. Samtals nema þessi útgjöld 30% af heildarútgjöldum ef vaxtagjöld eru frádregin.
    Gert er ráð fyrir kerfislegum raunvexti rekstrargjalda á öllum málefnasviðum heilbrigðismála, auk þess sem stefnt er að því að ljúka stærsta áfanganum við byggingu nýs Landspítala, aukningu hjá Sjúkratryggingum Íslands vegna vaxandi þjónustuþarfar og stórátaki í fjölgun hjúkrunarrýma.
     Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisinnviða til að mæta bæði fólksfjölgun og breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar. Jafnframt er gert ráð fyrir auknum framlögum til þjónustu við eldra fólk og áframhaldandi uppbyggingu á sviði hjúkrunar og öldrunarþjónustu, jafnt með uppbyggingu hjúkrunarheimila sem stóreflingu samþættrar félagsþjónustu og heimahjúkrunar.
    Meiri hlutinn fagnar þeirri aukningu sem gert er ráð fyrir í heilbrigðiskerfinu á tímabili áætlunarinnar og telur mikilvægt að tryggja að aukin fjárframlög skili sér í bættri þjónustu, aukinni afkastagetu og betra aðgengi sjúklinga að heilbrigðisþjónustu. Sérstaklega er mikilvægt að uppbygging innviða, tækjabúnaðar og mannauðs haldist í hendur. Í því sambandi er áframhaldandi uppbygging nýs Landspítala og stækkun Sjúkrahússins á Akureyri meðal mikilvægustu innviðaverkefna heilbrigðiskerfisins á komandi árum, auk stafrænnar þjónustu samhliða umbreytingu hennar. Er hvatt til að þessum verkefnum verði hraðað og hafist handa við annan áfanga Landspítalans sem m.a. felur í sér byggingu geðþjónustu í Fossvogi og betri aðstöðu fyrir göngudeildar- og krabbameinsþjónustu við Hringbraut.
    Meiri hlutinn telur að öldrun þjóðarinnar verði eitt stærsta viðfangsefni opinberrar þjónustu á næstu áratugum. Því er mikilvægt að áfram verði fjárfest í uppbyggingu hjúkrunarrýma, efldri heimahjúkrun og samþættri félagsþjónustu þannig að einstaklingar geti búið sem lengst við sjálfstæði, öryggi og lífsgæði. Jafnframt þarf að tryggja að heilbrigðisþjónusta, félagsþjónusta og þjónusta sveitarfélaga vinni saman með markvissum hætti að því að mæta þörfum eldra fólks.
    Meiri hlutinn leggur jafnframt áherslu á mikilvægi öflugrar mönnunar heilbrigðisþjónustunnar og að áfram verði unnið að því að efla menntun, ráðningu og varðveislu heilbrigðisstarfsfólks. Þá er mikilvægt að kostnaður við kjarasamninga sem gerðir eru á hverjum tíma endurspeglist í fjárhagsrömmum viðkomandi stofnana og að áætlun þeirra sé í samræmi við kostnaðarmat viðkomandi samninga en feli ekki í sér ógagnsæja hagræðingarkröfu. Jafnframt er mikilvægt að nýta tækniframfarir, stafrænar lausnir og nýsköpun til að bæta þjónustu og auka skilvirkni kerfisins.
    Meiri hlutinn leggur ríka áherslu á eflingu lýðheilsu, forvarna, geðheilbrigðisþjónustu og snemmtækrar íhlutunar. Slík nálgun bætir lífsgæði einstaklinga, dregur úr heilsufarslegum ójöfnuði og stuðlar að sjálfbærari þróun heilbrigðis- og velferðarkerfisins til lengri tíma.
    
Félagslegt öryggi og virk þátttaka.
    Framlög til málefnasviðs 28 Málefni aldraðra verða 131,3 ma.kr. og hækka um 5,5 ma.kr. milli ára eða um 4,5%. Hækkunin skýrist annars vegar af hækkun á almennu frítekjumarki ellilífeyris og hins vegar er kerfislegur vöxtur vegna fjölgunar aldraðra.
    Áfram er lögð áhersla á að styrkja félagslegt öryggisnet, bæta þjónustu við viðkvæma hópa og styðja við þátttöku fólks á vinnumarkaði. Jafnframt er unnið að frekari samþættingu þjónustu og aðgerðum sem stuðla að aukinni virkni og sjálfstæði einstaklinga.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að öflugt velferðarkerfi og sterk atvinnuþátttaka fari saman. Mikilvægt er að tryggja þeim sem á þurfa að halda örugga afkomu og góða þjónustu en jafnframt að skapa hvata og tækifæri til þátttöku í atvinnulífi og samfélagi. Aukin atvinnuþátttaka er ekki aðeins mikilvæg fyrir efnahagslífið heldur einnig fyrir lífsgæði, sjálfstæði og félagslega stöðu einstaklinga.
    Meiri hlutinn telur mikilvægt að áfram verði unnið að því að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur, styrkja innleiðingu farsældarlaganna og efla snemmtæka íhlutun. Sérstök áhersla þarf að vera á að tryggja samfellda og samþætta þjónustu fyrir börn og ungmenni sem þurfa á fjölþættri þjónustu að halda. Meiri hlutinn telur að farsæld barna sé eitt mikilvægasta langtímaverkefni íslensks velferðarsamfélags og að áfram þurfi að tryggja öflugt samstarf ríkis og sveitarfélaga við framkvæmd þeirra markmiða.
    Meiri hlutinn leggur jafnframt áherslu á að áfram verði unnið að umbótum á sviði örorku- og endurhæfingarmála með það að markmiði að styðja við virkni, þátttöku og sjálfstæði fólks eftir því sem aðstæður hvers og eins leyfa. Mikilvægt er að þjónusta og stuðningur taki mið af þörfum einstaklinga og stuðli að auknum tækifærum til þátttöku í samfélaginu.
    Meiri hlutinn telur jafnframt mikilvægt að halda áfram að bæta kjör og afkomu þeirra hópa sem búa við þrengstan fjárhag, þar á meðal aldraðs fólks og annarra sem reiða sig að verulegu leyti á opinberar greiðslur. Sterkt félagslegt öryggisnet er forsenda félagslegs stöðugleika, aukins jafnaðar og trausts í samfélaginu.
    Meiri hlutinn telur að félagslegt öryggi, jöfn tækifæri og virk þátttaka séu meðal mikilvægustu forsendna samheldins samfélags og sjálfbærrar þróunar til framtíðar.
    
Orkuöryggi, umhverfisvernd og verðmætasköpun til framtíðar.
    Í áætluninni er lögð áhersla á áframhaldandi orkuskipti, aukið orkuöryggi og uppbyggingu innviða sem styðja við sjálfbæran hagvöxt til framtíðar. Jafnframt er gert ráð fyrir áframhaldandi fjárfestingum í orkukerfum, flutningsinnviðum og öðrum verkefnum sem tengjast grænni umbreytingu hagkerfisins og loftslagsmarkmiðum Íslands.
    Meiri hlutinn telur að öruggur aðgangur að orku sé ein af lykilforsendum áframhaldandi verðmætasköpunar, bættra lífskjara og samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Á undanförnum árum hafa komið fram skýr merki um aukið álag á orkukerfið og vaxandi þörf fyrir nýja orkuvinnslu, aukna flutningsgetu og styrkingu innviða. Mikilvægt er að brugðist verði við þeirri þróun með markvissum hætti og að skapað verði fyrirsjáanlegt umhverfi fyrir uppbyggingu og fjárfestingar.
    Meiri hlutinn leggur áherslu á að hraða þurfi uppbyggingu orkuinnviða og tryggja að nauðsynlegar ákvarðanir um orkuöflun, flutningskerfi og orkuskipti dragist ekki úr hófi. Slík uppbygging er forsenda þess að ná megi markmiðum um orkuskipti, auk þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og styrkja samkeppnisstöðu Íslands á komandi árum. Jafnframt er mikilvægt að tryggja að heimili og almennir notendur njóti ávinnings af uppbyggingu orkukerfisins og að forgangur þeirra, orkuöryggi og verðöryggi sé haft að leiðarljósi við stefnumótun á sviði orkumála.
    Meiri hlutinn telur að aukin orkuöflun og markviss vernd verðmætra náttúrusvæða eigi að fara saman. Mikilvægt er að stjórnvöld móti skýra og fyrirsjáanlega stefnu um nýtingu og vernd á grunni rammaáætlunar þar sem horft er til loftslagsmarkmiða, náttúruverndar, orkuöryggis og verðmætasköpunar í samhengi. Meiri hlutinn leggur áherslu á að áfram verði unnið að því að styrkja vernd þeirra náttúrusvæða sem hafa sérstakt verndargildi samhliða því sem skapaðar eru forsendur fyrir ábyrgri uppbyggingu nýrra orkukosta.
    Meiri hlutinn fagnar því að unnið sé að mótun heildstæðrar orkuöflunarstefnu og telur mikilvægt að slík stefna veiti aukinn fyrirsjáanleika um uppbyggingu orkukerfisins til lengri tíma. Mikilvægt er að vinna að ákvæðum stjórnarsáttmálans um forgang almennings og lítilla og meðalstórra fyrirtækja að orku og verðöryggi. Jafnframt er fagnaðarefni að skýr og fyrirsjáanleg lagaumgjörð um vindorku liggi fyrir fljótlega þannig að unnt sé að byggja upp nýja orkukosti á fáum og vel völdum stöðum með breiðri samfélagslegri sátt. Í því skyni telur meiri hlutinn mikilvægt að nærsamfélög njóti í auknum mæli ávinnings af uppbyggingu orkumannvirkja. Með því skapast betri forsendur fyrir fjárfestingum, aukinni framleiðni og sjálfbærri þróun íslensks samfélags.
    
Menntun, rannsóknir, hugvit og skapandi greinar.
    Framlög til mennta- og menningarmála nema um tíunda hluta heildargjalda ríkissjóðs á tímabili fjármálaáætlunar. Jafnframt fara framlög til nýsköpunar, rannsókna og þekkingargreina vaxandi á tímabilinu, úr rúmum 34 ma.kr. árið 2027 í rúma 38 ma.kr. árið 2031. Framlög til málefnasviðs 20 Framhaldsskólastigs verða 53,2 ma.kr. á næsta ári sem er nánast óbreytt að raungildi frá fjárlögum. Innan ramma áætlunarinnar er gert ráð fyrir að efla kennslu í STEM-greinum og fjármagna uppbyggingu verknáms í fimm skólum. Fjármálaáætlun endurspeglar þannig mikilvæga áherslu á þekkingu, menntun og nýsköpun sem undirstöður verðmætasköpunar og samkeppnishæfni Íslands til framtíðar.
    Meiri hlutinn telur að menntun sé ein mikilvægasta fjárfesting samfélagsins til lengri tíma. Fagnað er þeirri vinnu sem hafin er við mótun nýrrar háskólastefnu og skýrari markmiðasetningu fyrir háskólastigið. Mikilvægt er að endurskoða Menntasjóð námsmanna frá grunni til að hann standi undir nafni sem félagslegur jöfnunarsjóður sem tryggi jafnrétti til náms. Mikilvægt er að íslenskt menntakerfi styðji við nýja atvinnustefnu stjórnvalda, öfluga þekkingarsköpun og getu samfélagsins til að mæta tæknilegum, efnahagslegum og samfélagslegum breytingum á komandi árum.
    Meiri hlutinn leggur sérstaka áherslu á mikilvægi rannsókna, þróunar og nýsköpunar sem undirstöðu aukinnar framleiðni, fjölbreyttara atvinnulífs og aukinnar verðmætasköpunar. Mikilvægt er að stuðningskerfi rannsókna og nýsköpunar búi við stöðugleika og fyrirsjáanleika þannig að háskólar, rannsóknastofnanir, frumkvöðlar og fyrirtæki geti byggt upp starfsemi sína til langs tíma.
    Meiri hlutinn telur að hugvitsgreinar og skapandi greinar gegni sífellt mikilvægara hlutverki í íslensku atvinnulífi og útflutningi. Þar undir falla m.a. kvikmyndagerð, tölvuleikjagerð, tónlist, hönnun og aðrar skapandi atvinnugreinar sem byggjast á þekkingu, menningu og hugviti. Mikilvægt er að stuðningskerfi og fjármögnun þessara greina séu fyrirsjáanleg og stöðug þannig að einstaklingar og fyrirtæki geti tekið langtímaákvarðanir um fjárfestingar og uppbyggingu.
    Meiri hlutinn fagnar áframhaldandi uppbyggingu mikilvægra mennta-, menningar- og íþróttainnviða. Þar ber sérstaklega að nefna fjármögnun og undirbúning þjóðarhallar, sem gert er ráð fyrir í fjármálaáætlun, og áform um framtíðaraðstöðu Listaháskóla Íslands í Stakkahlíð. Mikilvægt er að skýr áætlun liggi fyrir um framgang og fjármögnun þessara verkefna þannig að þau verði að veruleika og geti stutt við menntun, menningu, íþróttastarf og verðmætasköpun til framtíðar.
    Meiri hlutinn telur að öflug menntun, rannsóknir, nýsköpun og skapandi greinar séu meðal mikilvægustu forsendna þess að Ísland geti byggt upp fjölbreytt og samkeppnishæft atvinnulíf sem skapar verðmæti, eykur framleiðni og styrkir stöðu landsins í alþjóðlegu samhengi.
    
Uppfærðar áætlanir – breytingar.
    Eins og rakið er í kaflanum um efnahagshorfur hefur Seðlabankinn gefið út nýja þjóðhagsspá sem getur breytt ýmsum forsendum áætlunarinnar.
    Einnig eru aðrar forsendubreytingar, svo sem frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar sem varðar m.a. styttingu bótatímabils. Breytingar á frumvarpinu í meðförum Alþingis leiða til þess að gjöldin lækka ekki jafn mikið og gert var ráð fyrir í forsendum áætlunarinnar. Þar munar um 1,2 ma.kr. á næsta ári og um 3,7 ma.kr. árlega til loka áætlunartímabilsins.
    Þessi frávik eru þó ekki mjög veigamikil í samhengi við ýmsar aðrar forsendur, t.d. um atvinnuleysisstig. Nú spáir Seðlabankinn um 0,7% meira atvinnuleysi heldur en forsendur áætlunarinnar miðuðu við. Hvert prósentustig getur vegið á milli 9 og 10 ma.kr. í útgjöldum ríkissjóðs. Forsendur um atvinnuleysisstig vega því mun þyngra en breytingar á frumvarpi um atvinnuleysistryggingar.
    Meiri hlutinn gerir ekki tillögur um breytingar á áætluninni að þessu sinni, þar sem ekki liggur fyrir heildstætt mat á öllum þeim forsendubreytingum sem orðið hafa frá því að áætlunin var lögð fram.
    Brýnt er að gerð verði grein fyrir þeim í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2027 í haust og með sama hætti þarf fjármálaáætlun sem lögð verður fram fyrir 1. apríl á næsta ári að taka tillit til breyttra forsendna.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 6. júní 2026.

Sigurjón Þórðarson,
form., frsm.
Dagur B. Eggertsson. Arna Lára Jónsdóttir.
Grímur Grímsson. Ingvar Þóroddsson.