Ferill 699. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1318 — 699. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um hjólaleiðsögn í rafrænum kortaveitum á Íslandi.
Frá Pawel Bartoszek.
1. Hefur ráðuneytið eða stofnanir á vegum þess átt í samskiptum við tæknifyrirtæki á borð við Google eða Apple um innleiðingu á hjólaleiðsögn fyrir Ísland í kortaforritum þeirra?
2. Eru landfræðileg gögn (GIS-gögn) um hjólastíga, hjólalandsnetið og aðra innviði hjólreiða á Íslandi aðgengileg á því formi og samkvæmt þeim stöðlum sem alþjóðleg tæknifyrirtæki kalla eftir til að virkja slíka þjónustu?
Skriflegt svar óskast.