Ferill 535. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Prentað upp.
Þingskjal 1322 — 535. mál.
Leiðréttur texti.
2. umræða.
Breytingartillaga
við frumvarp til laga um innviðafélag.
Frá Jens Garðari Helgasyni.
Við 7. gr.
a. 3. mgr. orðist svo:
Skráður eigandi ökutækis ber ábyrgð á greiðslu veggjalda.
b. Á eftir 3. mgr. komi þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
Ef annar aðili en skráður eigandi skv. 3. mgr. hefur umráðarétt yfir ökutæki samkvæmt samningi við handhafa leyfis til að stunda eignaleigu eða fjármögnunarleigu samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki eða samningi við ökutækjaleigu með starfsleyfi til rekstrar ökutækjaleigu samkvæmt lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja hvílir gjaldskyldan, þrátt fyrir 3. mgr., á umráðamanni.
Gjöld skv. 1. og 2. mgr. eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar.
Sé annar aðili en skráður eigandi skráður fyrir ökutækinu, sbr. 4. mgr., skal ekki hefja fullnustuaðgerðir gagnvart skráðum eiganda fyrr en innheimta hjá umráðamanni telst fullreynd.
c. Á eftir orðinu „gjalda“ í 4. mgr. komi: þ.m.t. ökutækjaleigur.